Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1987, Qupperneq 32
44
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987.
Menriing
óttur matfiskur víða í útlöndum, en
við höfum ekki !ært að meta hana að
verðleikum."
Það bar þó ekki á öðru en verð-
launahafar DV í ár, dómnefndarfull-
trúar og aðrir gestir, sem viðstaddir
voru verðlaunaafhendinguna að þessu
sinni, kynnu vel að meta langlúruna
sem veiddist við Vestmannaeyjar ör-
skömmu áður en sest var að borðum.
Fæstir vissu í upphafi hvað var á disk-
um þeirra þó svo hvíslað væri að
fiskurinn héti glyptocephalus cyng-
lossus á latínu, skærising á dönsku
og witch á ensku. En hún bragðaðist
vel og sannreyndu gestir orð breska
sælkerans, Alan Davidsons, sem ein-
hveiju sinni sagði um langlúruna:
„Fiskurinn er þunnur, en bragðið er
gott.“
Menningarverðlaun DV voru afhent
í áttunda sinn í gær í glæsilegu hófi
í Þinghóli er hófst með því að borið
var fram Tio Pepe sérrí i fordyri veit-
ingasalarins. Er gestir höfðu lokið úr
staupum sínum í þægilegu andrúms-
lofti var sest að borðum og forréttm-
fram borinn: hrár, sítrónuleginn lax.
Luku menn lofsorði á einfalda mat-
reiðslu réttarins og þekktur kvik-
myndagerðarmaður sagði: „Alltaf fær
maður eitthvað nýtt í þessum DV-
veislum." Honum varð hins vegar orða
vant þegar aðalrétturinn var borin á
borð, langlúra frá Vestmannaeyjum.
Langlúran er þannig vaxinn að ekki
þýðir að bera hana fram á venjulegum
diskum. Diskamir verða að vera af-
langir og sú var einmitt raunin í
Þinghóli í gær: „Þetta er ákaflega
skemmtilegt," sagði bókmenntafræð-
ingur sem sæti átti í dómnefnd um
leið og hún dreypti á hvítvíni ársins,
Gewurztraminer.
Að langlúru lokinni var borið fram
kaffi, smákökur og Daneman Espada
vindlar. Þá afhentu formenn dóm-
nefhda Menningarverðlaun DV 1987,
alls sex að tölu, fyrir bókmenntir,
myndlist, tónlist, leiklist, byggingarlist
og kvikmyndir.
Verðlaunagripir DV voru að þessu
sinni hannaðir af Stefáni B. Stefáns-
syni.
-EIR
„Langlúra er langvaxin, þunn, hálf-
gagnsæ, dökk eða rauðgrá," sagði
Jónas Kristjánsson ritstjóri er hann
kynnti aðalréttinn í málsverði er fylgdi
afhendingu Menningarverðlauna DV
í Þingholti, Hótel Holti, f gær. Síðan
vitnaði hann í bókina íslenskir fiskar
eftir Gunnar Jónsson: „Hún er eftirs-
"* Katrín Hall frá íslenska dansflokknum sýnir þeim Auði Eydal, dómnefnd um
leiklist, og Sigrúnu Valbergsdóttur, dómnefnd um leiklist, verðlaunagrip sinn
og dansflokksins.
Frá borðhaldi vegna afhendingar Menningarverðlauna DV í gær. Jónas Kristj-
ánsson ritstjóri fræðir verðlaunahafa og aðra gesti um aðalréttinn, langlúru.
DV-myndir GVA.
Menningawerðlaun DV afhent:
Langlúra og
listelskendur
Hilmar Karlsson, kvikmyndagagnrýnandi DV, skálar við Oskar Gislason i Tio
Pepe.
Thor Vilhjálmsson, verðlaunaður fyrir bókmenntir, á tali við Ellert B. Schram
ritstjóra.
Rut L. Magnússon - tónlist:
Merkilegur
vaxtarbroddur
„Allt hófst það með því að Paul
Zukofsky var fenginn hingað til
lands til að leiðbeina efnilegu ungu
fólki. Námskeiðin, sem um skeið
voru kennd við hann, þróuðust upp
í að verða stórhljómsveitamámskeið
þar sem ungmenni fengu tækifæri
til að glíma við verk sem annars
voru tæpast á verkefiiaskrá sjálfrar
sinfóníuhljómsveitar ríkisins. Upp
úr þessu spratt Sinfóníuhljómsveit
æskunnar,11 sagði Eyjólfur Melsted
þegar hann afhenti Rut L. Magnús-
son Menningarverðlaun DV fyrir
tónlist. Rut tók við verðlaunagripn-
um fyrir hönd Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar.
Eyjólfúr sagði að vissulega hefðu
margir komið við sögu Sinfóníu-
hljómsveitar æskunnar, en á
engan er hallað þótt því sé haldið
fram að án Rutar L. Magnússon
hefði þessi árangur ekki náðst. Með
óbilandi trú, útsjónarsemi, skipu-
lagsgáfu, dugnaði og smávegis af því
sem við í daglegu tali köllum frekju
hefur hún komið málum til þess veg-
ar sem þau eru nú. Rut þarf ekki
að kynna fyrir neinum sem veit haus
og sporð á tónlist á íslandi. Sem
söngkona, flytjandi nútímaverka,
kórstjóri, kennari og nú í seinni tíð
skipuleggjandi er hún hverjum
manni kunn. Það vill svo skemmti-
lega til að nú, þegar þessi verðlauna-
afhending fer fram, er Sinfóníu-
hljómsveit æskunnar enn einu sinni
að koma saman til að glíma við stór-
virki og heldur tónleika í' næstu
viku. Ég ætla ekki að hafa mál mitt
um þennan merkilega vaxtarbrodd
íslensks tónlistarlífs lengri að þessu
sinni heldur biðja þig, Rut, að koma
hingað og taka við verðlaununum
fyrir starf þitt á þessum vettvangi,"
sagði Eyjólfur Melsted. -EIR
Rut L. Magnússon tekur við Menningarverðlaunum DV úr hendi Eyjólfs Melsted.