Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987. Fréttir Lánsfjárþörf ríkissjóðs grfurleg: Vantar 8,6 milljarða óvíst um hluta fjármögnunar Rekstrarhalli ríkissjóðs í ár hefur verið mikið til umræðu undanfarið. Ljóst er að menn greinir á um hve hár hann er en tölur allt frá 3,4 til 5 millj- arðar króna hafa heyrst. 8,6 milljaróar í mínus Önnur stærð, sem ekki skiptir minna máli, er raunveruleg lánsfjárþörf ríkis- ins. Það er sú upphæð sem ríkið ætlar sér að greiða í rekstur og íjárfestingar umfram það fé sem ríkissjóður hefur handbært. Þetta eru því greiðslur sem ríkið ætlar sér að inna af hendi án þess að eiga íyrir þeim. Sú upphæð, lánsfjárþörf ríkissjóðs, nemur líklega 8,6 milljörðum króna a pessu ári. Sum- ir hagfræðingar halda því jafnvel fram að lánsfjárþörfin sé nú þegar fyrirsján- lega um 9 milljarðar króna. Þessa fjár þarf ríkið að afla með lántökum ýmiss konar og er þetta 2,5 til 3 milljörðum hærri upphæð en gert var ráð fyrir við' afgreiðslu fjárlaga. Ríkissjóður mun brúa þetta 8,6 til 9 milljarða bil með erlendum lántökum, lánum í gegnum bankakerfið, lánum hjá lífeyrissjóðum og síðast en ekki síst með lántökum hjá almenningi í gegnum spariskírteini ríkissjóðs. Ekki er þó ljóst hvernig 1 til 1,5 milljarði verður aflað. Bullandi „tap“ á ríkissjóði Rekstrarhalli ríkissjóðs í ár er nokkru minni en lánsfjárþörfin því hluti af þessum 8,6 til 9 milljörðum króna telst vera afborganir og framlög ýmiss konar en ekki rekstrargjöld rík- issjóðs. Ymsar tölur hafa verið nefridar undanfarið í umræðum um þennan halla á ríkissjóði. Nýleg greinargerð frármálaráðuneytisins benti til að hann væri um 3,4 milljarðar króna en hæstu spár ýmissa stjómmálamanna hljóða upp á rúma 5 milljarða. Allt bendir til þess að raunverulega sé fyrirsjáanlegur halli mun hærri en gert er ráð fyrir í greinargerð fjármála- ráðuneytisins. Strax er augljós einn þáttur sem verður til þess að hallinn er í raun hærri en 3,4 milljarðar og hefur verið bent á hann áður hér í DV. í greinar- gerðinni er gert ráð fyrir 600 milljóna kr. hækkun á hagnaði ÁTVR. Nú er það mjög á reiki hvort einhver hluti af þessu hafði þegar verið ákveðinn við afgreiðslu fjárlaga en ekki verður annað séð af greinargerðinni en þetta sé umfram þann hagnað sem þegar var gert ráð fyrir í fjárlögum. Ljóst er að hér er um að ræða, að einhverjum hluta, sérstakar aðgerðir til að draga úr hallanum og ekki getur talist raun- hæft; að taka þessar sérstöku aðgerðir inn í greinargerðina á þessu stigi þcg- ar verið var að sýna fyrirsjáanlegan halla. Gleymdist hækkunin hjá Trygg- ingastofnun? Að minnsta kosti er augljóst að ef þessi hækkun á að teljast með þá verð- ur að taka með í myndina hækkun heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, Ragnhildar Helgadóttur, á bótum Tryggingastofnunar ríkisins sem flestir eru raunar sammála um að var þjóðþrifaverk. Sú hækkun mun kosta ríkissjóð um 250 milljónir það sem eftir er ársins og kom hún til fram- kvæmda um svipað leyti og hækkun ÁTVR. Án efa hefur hækkun trygg- ingamálaráðherra verið fyrirséð þegar greinargerð fjánnálaráðuneytisins var samin en samt virðist ekki gert ráð fyrir henni þar. Ástandið fer síst batnandi Af þessu er ljóst að um er að ræða mun meiri halla á ríkissjóði heldur en opinberlega hefur verið staðfest. í DV hefur áður verið sagt að líklegt sé að hallinn verði um 4 milljarðar og verð- ur ekki annað séð en að sú tala geti staðist. Þá eru ótaldar ýmsar ófyrir- séðar ráðstafanir sem gripið verður til af nýrri ríkisstjóm og er líklegt að í heildina verði þær til þess að auka hallann en ekki minnka hann. -ES Ríkissjóður er rekinn með mikium halla: Eytt um efhi fram - gengur það til lengdar? Eitt af aðalatriðunum í yfirstand- andi stjómarmyndunarviðræðum er án efa hinn gífurlegi halli sem ríkis- sjóður er rekinn með í ár og raunar undanfarin tvö ár einnig. Þama er um að ræða atriði sem ekki kemur mikið við í daglegu lífi fólksins í landinu og er þvi ekki vin- sælt umræðuefni. Þó virðist einsýnt að stjómun ríkisfjármála getur verið eitt af þeim atriðum sem mest áhrif hafa á almenna efnahagsþróun í landinu. Fjármögnun hallans Hagfræðingar em alls ekki sam- mála um það hver áhrif halli á rekstri ríkisins hefur á ástand efna- hagsmála en þó virðast þeir yfirleitt sammála um að þennan halla verði að fjármagna með lántökum innan- lands. Taka má dæmi sem á engan hátt er sambærilegt en skýrir þó nokkuð um hvað er rætt. Þjóðinni má líkja við fjölskyldu og ríkissjóði við eitt afkvæmi þeirrar fjölskyldu. Af- kvæmið fær fé til að spila úr með vasapeningum á sama hátt og ríkið fær fé til að spila úr á mestan hátt með skattgreiðslum. Nú eyðir af- kvæmið umfram þá vasapeninga sem það hefur úr að spila eins og ríkis- sjóður eyðir umfram þær skatttekjur og aðrar tekjur sem hann hefur úr að spila. Þá má segja að fjárhagslegu öryggi fjölskyldunnar sé ekki stefnt í voða ef afkvæmið brúar bilið með lántökum innan fjölskyldunnar. Ef hins vegar afkvæmið leitar mikilla lána utan fjölskyldunnar þá getur fjárhagslegt öryggi hennar verið í voða vegna þess að vaxtagreiðslum- ar fara út fyrir fjölskylduna og auka á Iieildarútgjöld hennar. Auk þess gæti langvinn skuldasöfnun gert fjölskylduna háða utanaðkomandi aðilum ef ekki kemur til spamaður á móti. Á sama hátt verður ríkissjóður að fjámiagna hallareksturinn innan- lands en ekki með að leita út fyrir landsteinana eftir lánum. Ef það er gert í mjög miklum mæli aukast heildarútgjöld þjóðarbúsins og fjár- hagslegt sjálfstæði þjóðarinar veik- ist. Eykur hallinn þenslu? Þetta dæmi segir þó alls ekki alla söguna því þensluáhrífin eru eitt af því sem hagfræðingar hafa deilt mest um. Algengust er sú skoðun að ef ríkis- sjóður er rekinn með miklum halla þá sé óhjákvæmilegt að það kalli á að verðbólga og viðskiptahalli au- kist og vextir á almennum markaði hækki. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarið em aðrir sem segja að almenningur geri sér grein fyrir því að halli á ríkissjóði kalli á aukna skattheimtu í framtíðinni. Því spari fólk sem hallanum nemur til að geta mætt þessari auknu skatt- heimtu sem skellur á það í framtíð- inni. Eyjólfúr Konráð Jónsson alþingis- maður hefúr háldið þeim kenningum á lofti um árabil að helsta ráðið til að kveða niður verðbólgu sé að reka ríkissjóð með halla um nokkurt skeið og fjármagna hann með inn- lendri skuldabréfaútgáfu. Forsenda hjá Eyjólfi er, samkvæmt greinum hans, að verið sé að lækka skatta og vömverð með því að reka ríkis- sjóð með halla um skeið. Þar stendur hins vegar hnífurinn í kúnni. Hingað til virðist hallinn hafa stafað af því að útgjöld og framkvæmdir á vegum ríkisins hafi einfaldlega verið s''0 miklar að stjómmálamenn hafa ekki treyst sér til að innheimta skatta til að standa undir þeim útgjöldum. Fjárlagahallinn er afgangsstærð Hallinn á ríkissjóði má ekki vera eins konar afgangsstærð eins og Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, hefur bent á. Stað- reyndin virðist vera sú að stjómmálamenn hafa fundið út hver lægstu útgjöld séu sem þeir telja sig geta komist af með vegna pólitískra ástæðna og hverjir hæstu skattar séu sem þeir treysta sér til að leggja á. Niðurstaðan úr dæminu er: fjár- lagahalli. Hvort sem hagfræðingar telja að hallarekstur á ríkissjóði leiði til þenslu í þjóðfélaginu eða ekki em þeir yfirleitt sammála um að það samrýmist ekki heilbrigðri skynsemi að reka ríkissjóð með miklum halla svo árum skiptir án þess að halla- reksturinn stafi af einhverjum sérstökum efhahagsaðgerðum. Þeir segja að stjómmálamenn þurfi einfaldlega að vera enn harð- ari en þeir hafa verið hingað til og í góðæri hljóti krafan að vera; byggj- um upp fyrir mögm árin. -ES Burðarþolsskýrslan: Slysagildrum haldið leyndum Ekki fæst uppgefið á hvaða bygg- ingum var gerð úttekt við gerð burðarþolsskýrslu félagsmálaráð- herra. í DV í gær var sagt að skólahúsið sem úttekt var gerð á væri Foldaskóli. Það hefur nú feng- ist staðfest að svo er. Hver hin húsin níu em er ekki enn vitað. Þar sem sum húsanna em ekki nógu traust til að standa af sér sterkan jarð- skjálfta má líta þannig á að verið sé að halda leyndum slysagildrum og það jafnvel fyrir eigendum við- komandi húsa. I mörgum tilfellum er um að ræða hús þar sem fram fer margvísleg þjónustustarfsemi og í öllum tilfellum er um atvinnuhús- næði að ræða þar sem fjöldi manns starfar. Allir þeir aðilar sem málið þekkja og DV hefur talað við neita að svara og segja að um trúnaðar- mál sé að ræöa. -sme Ástriður Thorarensen borgarstjórafrú með hundinn Tanna. DV-mynd KAE Hundur borgarstjórans ekki hreinræktaður: Fomeskja að leyfa ekki innflutning á hundum - segir Davíð Oddsson „Við hjónin lásum okkur til í hálft ár áður en við keyptum hundinn. Það er rétt, Tanni okkar er með lafandi eyru en við vissum frá upphafi að ekki væri hægt að fá hreinræktaðan schá- ferhund hér á landi,“ sagði Davíð Oddsson borgarstjóri í samtali við DV. í dagblaðinu Tímanum í gær er greint frá ómannúðlegri meðferð á scháferhundum sem látnir eru gjóta ótt og títt til að afla eigendum sínum tekna. Scháferhvolpar gangi kaupum og sölum og kosti allt að 45 þúsund krónur stykkið. Dæmi séu þess að tík hafi verið send í keisaraskurð i þrí- gang vegna þess að hún þoldi ekki „framleiðsluálagið". Þá er þess einnig getið að hvolpamir, sem seldir eru á framangreindu verði, séu alls ekki hreinræktaðir og varan því svikin. Dæmi er tekið af Davíð Oddssyni borg- arstjóra sem keypti scháferhund af lögregluþjóni. Hundur Davíðs var ber- sýnilega ekki hreinræktaður vegna þess að eyrun á honum lafa. Á hrein- ræktuðum scháferhundum eru eyrun hins vegar bísperrt. „Ég var aðeins að hugsa um að fá góðan og traustan hund. Tanni hefúr svo sannarlega ekki brugðist vonum fjölskyldunnar, hann er mikið yndi hér á heimilinu. Hins vegar er ég mjög pirraður á misnotkun á hundum til undaneldis. Fyrir utan þjáningar dý- ranna getur fólk, sem í þessu stendur, haft 300-400 þúsund krónur skatt- frjálsar á ári. Þetta ástand lagast ekki fyrr en viðurkenndum aðilum verður heimilað að flytja inn hreinræktaða hunda. Allt amiað er fomeskja," sagði Davið Oddsson borgarstjóri. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.