Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
5
Fréttir
Að borga skattinn á bensínstöðinni
Samkvæmt vegaáætlun eiga að fara
á þessu ári 2.150 milljónir króna til
vegamála. Er þar um heildarfjárveit-
ingu til Vegagerðar ríkisins að ræða.
Þessara peninga er aflað með skatt-
lagningu á bíleigendur, það er gert
með álagningu á bensínverð, þunga-
skatti og ökumælagjaldi.
Á sl. ári voru seldir hérlendis 139
milljón lítrar af bensíni. Raunhæft er
að reikna með að bensínsala á þessu
ári verði ekki minni en 140 milljón
lítrar. Einn lítri af bensíni kostar nú
30 krónur og 60 aura. Þar af renna til
ríkisins 19 krónur og 81 eyrir. Miðað
við sölu á einu ári eru það samtals
2.773 milljónir króna. Af hluta ríkisins
er vegagjald 10 krónur og 49 aurar af
hverjum lítra. Af árssölu er vegagjald
því 1.469 milljónir króna. Tekjur af
þungaskatti og ökumælagjaldi verða
á þessu ári 700 milljónir. Skoðum þetta
betur. Allar upphæðir eru í milljónum.
Miðað er við eins árs sölu.
Tekjur:
Vegagjald 1.469.
Þungaskattur og
ökumælagjald 700.
Samtals 2.169.
Gjöld:
Fjárveiting til Vega-
gerðar 2.150.
Tekjur eru hærri en gjöld. Mismunur-
inn er 19 milljónir. Þá er eftir að reikna
með öðrum gjöldum af bensínverði.
Þegar þau gjöld eru tekin með hækkar
skattlagning á bíleigendur umfram
Qárveitingu til vegamála í 1.323 millj-
ónir króna.
Olíufélögin fá 600 milljónir
Tekjuliðir olíufélaganna eru tveir.
Dreifingarkostnaður og smásölu-
álagning. Samtals eru þessir tveir liðir
4 krónur og 30 aurar af hverjum bens-
ínlítra. Af árssölu fara því til olíufélag-
anna kr. 602 milljónir. Hér er ekki um
hreinan hagnað að ræða, að sjálfsögðu
fylgir dreifingu og sölu á bensíni mik-
ill kostnaður.
Innflutningsverð á bensíni er 5 krón-
ur og 40 aurar á hvem lítra. í innkaup-
um kostar því bensín til eins árs 756
milljónir króna. Þegar sama magn af
bensíni er komið á bílana okkar kost-
ar það hins vegar 4.284 milljónir
króna.
-sme
EZ3|
BYGGINGAVÖRUR
LAUGARDAGS-
KYNNING
Samband ungra framsoknarmanna:
Vill leiftursókn
gegn skattsvikum
„Niðurstöður nýafstaðinna Alþingis-
kosninga sýna að þjóðin treystir
Framsóknarflokknum og formanni
hans, Steingrími Hermannssyni, til
forystu í ríkisstjóm.
SUF lýsir vanþóknun sinni á
ábyrgðarlausu lýðskrumi formanns
Alþýðuflokksins og minnir á reynslu-
leysi hans í landsstjóm."
Svo segir meðal annars í ályktun
fundar stjómar Sambands ungra fram-
sóknarmanna á sunnudag.
Komi til stjómarþátttaka Fram-
sóknarflokksins krefst SUF þess að
eftirfarandi atriði verði meðal annarra
tryggð í stjómarsáttmála:
„Baráttan gegn verðbólgunni hafi
áfram forgang.
Harðar verði tekið á fjárlagahallan-
um en verið hefur meðal annars með
leiftursókn gegn skattsvikum.
Tryggt verði að stjómarsáttmálinn
kveði á um markvissar aðgerðir til
jöfnunar búsetuskilyrða og dreifingu
valds.
Ekki verði hvikað frá fiskveiðistefh-
unni nema þar sem eðlilegrar og
réttlátrar aðlögunar er þörf.
Búvörusamningurinn verði fram-
kvæmdur eins og til hans var stofnað.
Lánveitingar Húsnæðisstofnunar
fari til þeirra sem mest þurfa, en ekki
til stórefnafólks eins og dæmi eru um.
Þá verði Verkamannabústaðakerfið
stokkað upp.
Hvergi verði hvikað frá stefhu Fram-
sóknarflokksins í málefrium Lánasjóðs
íslenskra námsmanna.
Umhverfismál verði sett undir eitt
ráðuneyti." -KMU
AUSTAST
v/STÓRHÖFÐA
Kynning á
eldhús-
innréttingum
Kynningarafsláttur
VESTAST
v/HRINGBRAUT
Kynning á Hörpu-
málningarvörum.
Kynningarafsláttur.
Sérfræðingar á staðnum
OPIÐ
KL. 8-18
VIRKA DAGA,
KL. 10-16
LAUGARDAGA.
2 góðar
byggingarvöruverslan ir,
austast og vestast í borginni.
Stórhöfða, sími 671100
Hringbraut, sími 28600.
\
MAZDA626
MAGAZlN
„Heimsins besti bíir 4ár í röð.
Betrimeðmælifástekkil!
lá, verðlaunabíllinn MAZDA 626
I.6L 4 dyra SEDAN með 5 gíra
tassa og ríkulegum búnaði kostar
íú aðeins 498.000. Þetta eru án
ifa bestu bílakaupin í dag!
Síðustu bílamir af árgerð 1987
foru að koma til landsins og eru til
ifgreiðslu STRAX. Hafið því hrað-
ir hendur, því aðeins örfáum bll-
jm eróráðstafað.
Opið laugardaga frá kl. 1-5.
BÍLABORG HR
FOSSHÁLSI 1.SÍMI 68 12 99
gengisskr. 11.5. ’87