Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987. 7 Fréttir Að lokinni námstefnu um fíkniefnamál: Fíkniefnalögreglan: Vandamálið gert meira en Er fíkniefnavandamálið hér á landi gert'meira en það er af stjómvöldum, fjölmiðlum og aðilum sem fást við það? Þetta er ein þeirra spuminga sem ræddar vom í panelumræðum að lokinni námstefriu þeirri sem „ííkniefnavarnamefnd" og Blaða- mannafélagið efndu til í þessari viku. Sýndist sitt hverjum um spuming- una. Guðjón Magnússon, fulltrúi við Sakadóm í ávana- og fíkniefhum, sagði í umræðum að það væri sín skoðun að umfang vandans væri ekki eins mikið og stjómvöld hafa viljað vera láta. Nefndi hann sem dæmi að árið 1985 hefði verið gert upptækt sama magn af hassi og 10 árum áður eða 1975 en þá vom starfsmenn fíkniefnalögreglunnar helmingi færri en þeir em nú. Amar Jensson, yfirmaður fíkni- efnalögreglunnar, taldi þetta ekki réttan mælikvarða þar sem þessi mál hefðu orðið flóknari og flóknari með árunum og þeir sem stæðu í innílutn- ingi og dreifingu á fíkniefnum lærðu af reynslunni eins og aðrir. I panelumræðunum tóku þátt auk Arnars þau Halldór Valdimarsson blaðamaður, Helga Jónsdóttir form- aður „fíknienavamanefhdarinnar", Ólafur Oddsson, forstöðumaður Rauða kross heimilisins, Sölvína Konráðsdóttir sálfræðingur og Þór- arinn Tyrfingsson ■ yfirlæknir. Stjómandi umræðnanna var svo Lúðvík Geirsson, formaður BÍ, en þátttakendur á námstefnunni máttu síðan koma með fyrirspumir og ábendingar. Sölvína Konráðsdóttir sagði m.a. í umræðunni um fyrrgreinda spum- ingu að ákveðnir hópar væm gjamir á að eigna sér ákveðin vandamál og segja sem svo „þetta er mitt vanda- mál og ég vil hafa það stórt“ og Helga Jónsdóttir tók undir með Guðjóni um að stjómvöld hefðu blásið út fíkniefnavandamálið meir en efhi standa til. Panelumræðumar snemst svo fljótlega i skoðanaskipti um áfengis- vandamálið hér og ýmsa anga þess eins og þann hvemig stæði á því að hér væri einna minnst dmkkið, mælt í hreinu áfengi per mann, mið- að við nágrannalöndin, en hins vegar væm hvergi fleiri sjúkrarúm fyrir áfengissjúklinga á meðferðar- stofnunum. Þórarinn Tyrfingsson tók þetta sem dæmi um að í með- ferðarmálum væri ástandið hvergi eins gott og hér en Sölvína taldi að hér væri alltof auðvelt að komast í meðferð, sem kostaði viðkomandi ekkert, og að umburðarlyndið gagn- vart áfengi hérlendis væri um of. Um árangur af þessari námstefnu vom skiptar skoðanir. Sumir töldu ekkert eða nær ekkert á henni að græða en aðrir sögðu það árangur í sjálfu sér að fulltrúar hinna ólíku aðila, sem vinna að þessu vanda- máli, kæmu saman og skiptust á skoðunum og upplýsingum og vissu- lega hefði námstefnan verið ffóðleg á margan hátt. -FRI Húsleitir hafa aldrei verið fleiri Frá síðustu áramótum hefur fíkni- efnalögreglan framkvæmt 50 húsleitir og hafa þær aldrei verið fleiri á jafn- skömmum tíma áður. Til samanburðar má geta þess að allt árið í fyrra vom framkvæmdar 69 húsleitir af fíkniefha- lögreglunni. Af þessum 50 húsleitum nú voru 16 framkvæmdar án úrskurðar, þá annað hvort með heimild húsráðanda eða að aðstæður vom þannig að ekki var hægt að bíða úrskurðarins, þ.e. neysla og/eða sala fíkniefna var í gangi. Samkvæmt yfirliti ffá fíkniefhalög- reglunni vom 71 mál til rannsóknar á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs og vom 168 aðilar, þar af 6 vitni, teknir til yfirheyrslu. Af þessum fjölda hafa 40 viðurkennt dreifingu og 7 innflutn- ing á fíkniefnum. Flestir þeirra sem teknir vom em atvinnulausir (45) en næstir koma verkamenn (40) og sjómenn em i þriðja sæti (23). -FRI Lí F/MV alla vikuna BOLIR BOLIR / * I J * ) / I / I '/ 1 / I ’ / / /7 /4 /////; Stuttermabolir m/kraga* kr. 59Q,- Hlýrabolir kr. 320,- Háskólabolir m/prenti kr. 1.190,- Háskólabolir, einlitir, kr. 506,- Ermabolir barna kr. 590,- Nærbolir barna kr. 9jp,- o.fl. bolir og margt fleira. jOGÚM^TI^ IfL. 16y00.j / ký 10-18, - föstudaga kl. 10-19/- laugardagaÍo-16. V/SA f ----------1^4 ''//// 1 l-|T Smiöjuvegi 2B/Kopavogí, á^iorni Skenhmuvegar. ) / I Símar 7Í866 - 79*94. / / / t ' Formaður Samtaka herstoðvaandstæðinga: Lofum þús- undum manna í Kefla- víkuigöngu „Þó gengið sé á laugardegi fyrir hvítasunnu, eina mestu ferðahelgi árs- ins, lofum við mörg þúsund manns í Keflavíkurgöngunni. Við finnum áhuga fólks, við erum í sókn,“ sagði Ingibjörg Haraldsdóttir, formaður Samtaka herstöðvaandstæðinga, í samtali við DV. Samtökin em nú að skipuleggja Keflavíkurgöngu, þá tí- undu sem gengin hefur verið ffá árinu 1960. Síðasta Keflavíkurgangan var geng- in árið 1983 og þar áður 1981. Þátttaka í göngunum hefur verið misjöfn en sló þó öll met árið 1976 þegar um 10 þús- und manns þrömmuðu niður á Lækjartorg undir slagorðunum: ísland úr NATO - Herinn burt! „Keflavíkurgöngunni í ár er einnig stefnt gegn NATO-fundinum sem haldinn verður í Reykjavík innan skamms. Við vfljum að utanríkisráð- herra taki tillit til krafna okkar um herstöðvalaust land og kjamorku- vopnalaus Norðurlönd," sagði Ingi- björg Haraldsdóttir. Aðspurð kvaðst Ingibjörg hafa tekið eftir auknum áhuga ffamhaldsskóla- nema á málstað herstöðvaandstæð- inga, hægribylgjan sem riðið hefði yfir að undanfomu væri í rénun. Lagt verður upp í Keflavíkur- gönguna ffá hliði herstöðvarinnar á Miðnesheiði árla laugardagsins 6. júní og áætlaður komutími á Lækjartorg í Reykjavík um klukkan 22 að kvöldi sama dags. Víða verður áð á leiðinni og göngumönnum skemmt með ræðu- höldum, þjóðlegum fróðleik og öðmm uppákomum. -EIR Ingibjörg Haraldsdóttir, formaður Samtaka herstöðvaandstæðinga, á Keflavíkurveginum í gær. DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.