Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987. Utlönd 41% kjósenda, Verkamannaflokkur um 33 % og hefur munurinn milli fylg- is flokkanna því minnkað um 6% á einni viku, úr fjórtán í átta. Kosningabandalag fijálslyndra og sósíaldemókrata virðist hins vegar ekki hafa haft árangur sem erfiði því fylgi þess er aðeins um 21 prósent og hefur það því tapað fjórum prósentu- stigum frá síðustu viku. Miðað við niðurstöður þessara kannana myndi íhaldsflokkurinn hljóta aðeins þijátíu og átta þingsæta meirihluta en fyrr í vikunni virtist hann ætla að fá um sextíu sæta for- ystu á þinginu. Margareth Thatcher, forsætisráð- herra og leiðtogi íhaldsflokksins, er nú að hefja kosningaferðalag sitt um Bretlandseyjar en það mun standa fram undir kosningamar sjálfar þann 11. júní næstkomandi. Hefur frúin hvatt sína menn til að standa fastir fyrir og missa ekki móð- inn þótt heldur virðist halla á í augnablikinu. Hún leggur meginá- herslu á vamarmál í kosningabarátt- unni, enda telur hún þau með mestu afrekum stjómar sinnar jafiiframt því að stefna Verkamannaflokksins í vamarmálum sé sneggsti bletturinn á þeirra málflutningi. Breski Verkamannaflokkurinn vinnur enn á forskot það sem Ihalds- flokkurinn hafði við upphaf kosninga- baráttunnar á Bretlandseyjum og virðist nú aðeins átta prósentustigum á eftir stjómarflokknum. Samkvæmt skoðanakönnunum, sem birtar vom í gær, nýtur íhaldsflokkur nú fylgis Járnfrúin lætur ekki deigan síga þótt brestir séu farnir að birtast í brynju hennar. Símamynd Reuter Verkamannaflokkur vinnur á forskotið Hiyðjuverkamenn teknir í París Baldur Róbertssan, DV, Genúa: Þrír ítalskir hryðjuverkamenn hafa verið handteknir í París. Þeir em allir dæmdir fyrir hryðjuverkastarfsemi með Rauðu herdeildunum og hefur ítalska lögreglan leitað þeirra lengi. Kona nokkur þekkti einn þein-a á mynd og kom hún lögreglunni á spor hryðjuverkamannanna. Sagði hún myndina mjög líka manni sem byggi í sama húsi og hún. Konan greindi frá því að maðurinn bæri þýskt nafn en væri ömgglega ekki þýskur því hann talaði ekki frönskuna með þýskum hreim. Franska lögreglan fylgdist með ferð- um mannsins í tvo mánuði áður en hún tók hann þegar hann var með tveimur öðrum hryðjuverkamönnum. Rétt nafn mannsins er Vincenzo Oh- veri og er hann talinn vera margfaldur morðingi, hafi síðast verið að verki þann 14. febrúar síðastliðinn þegar bíl var rænt í Róm og tveir lögreglumenn skotnir. Hinir tveir, sem teknir vom, em Sebre Gondi og sambýliskona hans, Paula de Luca, en hún er með tólf ára fangelsisdóm fyrir að hafa starfað með Rauðu herdeildunum. Sebre Gondi, sem strauk úr fangelsi á Ítalíu 1980, er með furðulega réttar- sögu að baki. Var hann ákærður 1978 fyrir að hafa drepið stjómmálamann, bílstjóra hans og lífvörð. í fyrstu rétt- arhöldunum var hann dæmdur í tíu ára fangelsi, í öðrum réttarhöldunum var hann sýknaður vegna skorts á sönnunargögnum. I þeim þriðju var hann dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann var sýknaður í þeim fjórðu og í þeim fimmtu var hann dæmdur í tólf ára fangelsi. En þá var hann orðinn leiður og strauk úr fangelsinu. . Rabuka í forsæti bráðabirgðastjórnar Fyrrum forsætisráðherra Fidjieyja, Timoci Bavadra, leitaði skjóls hjá Nýsjálendingum eftir að landstjórinn setti hann af. Hefur Bavadra verið í felum síðastliðna tvo sólarhringa. Höfðingjaráð eyjanna hefur gert uppkast þar sem lagt er til að leiðtogi uppreisnarmanna, Rabuka ofursti, verði í forsæti fyrir bráðabirgðastjóm þar til efnt verður til nýrra kosninga. Þúsundir eyjaskeggja dönsuðu á götum úti eftir að tilkynnt var að höfð- mgjaráðið styddi Rabuka. Landstjór- inn kvaðst í gær ekki geta barist gegn höfðingjunum þrátt fyrir að dómsvald- ið hvetti hann til þess að veita mótspymu þar sem höfðingjaráðið hefði engin stjómmálavöld samkvæmt stjómarskránni. Talið er að Bavadra hafist við á frei- gátunni Wellington sem var í vináttu- heimsókn á Fidjieyjum þegar valdaránið hófst. Forsætisráðherra Nýja-Sjálands, David Lange, hefur staðfest að Bavadra hafi verið veitt skjól en hann tók það jafhframt fram að Bavadra hafi ekki sótt um hæli sem pólítískur flóttamaður. Höfðingjaráð Fidjieyja ánægt eftir fundinn þar sem nánasta framtíð eyjanna var ráöin. Símamynd Reuter Skordýr til vamar plöntum Bakiur Röbertesan, DV, Genúa: Á Italíu em notuð tvö hundruð þúsund tonn af eitri á ári hverju til að verja plöntur fyrir ágangi skordýra. Er það mesta notkun sem þekkist í Evrópu. Hefur nú komið fram ný aðferð til að verja plöntumar og byggist hún á því að sleppa skordýrum innan um piöntumar sem svo éta skordýrin sem skemma plöntumar. Hægt er að nota þessa aðferð til vamar jarðarbeijum, papriku, tómötum og gúrkum. Við þetta mun eitumotkun hér á Itah'u minrika um þijátíu til fjörutíu pró* sent. Kveikti í farþegalest Baldur Róbertsson, DV, Genúa: Kínveiji einn, sem starfaði sem sjúkraliði á geðveikrahæli í Pek- ing, var rekinn úr starfi, sakaður um að fara illa með sjúklingana. Reiddíst hann brottrekstrinum svo mikið að hann klikkaðist og ákvað að hefria sín grimmiíega. Fór hann um borð í jámbrautar- lest sem var full af farþegum og kveikti í henni þegar hún var kom- in á ferð. Tólf Kínveijar létust og fjömtíu og sjö slösuðust. Kínverjinn dvelur nú á gamla viimustaðnum sínum. William O’Doyle, kaupahéðinn frá New York, bar í gær vitni i íranmálinu, meðal annars um ævintýralegar áætlanir Oliver North, ofursta. - Símamynd Reuter North ætlaði að taka Nigaragua William O’Doyle, kaupahéðinn frá New York, skýrði frá því í gær að Oliver North, ofursti og fyrrum starfs- maður bandaríska þjóðaröryggisráðs- ins, hefði lagt fram áætlun um að láta kontraskæruliða bylta stjóm Nig- aragua, með hemaðarlegu fulltingi Bandaríkjanna. O’Doyle skýrði frá því að ætlun North hefði verið sú að kontraskæru- liðar réðust inn í Nigaragua, tækju hluta landsins og settu þar á stofii svæðisríkisstjóm. Á sama tíma átti bandaríski flotinn að framfylgja hafri- banni á Nigaragua með flotadeildum sínum og koma í veg fyrir að vopn og vistir bærust til heija ríkisstjómar sandinista í landinu. Taldi North að þetta yrði til þess að ríkisstjómin félli, kontramenn gætu þá tekið öll völd í landinu og endurreist lýðræði þar. Sagði O’Doyle North hafa verið mótmallinn því að bandaríska ríkið veitti kontraskæmliðum áframhald- andi fjárstuðning. Hefði ofurstinn talið að ef skæruliðamir yrðu settir í fjársvelti myndi reynast auðveldara að fá þá til að grípa til örvæntingar- fullra aðgerða af þessu tagi. Þá kom itrekað fram, í yfirheyrslum rannsóknamefridarinnar í gær, að þeim sem lögðu fram fé til handa kontraskæruliðum var lofað fundi með Reagan, Bandaríkjaforseta, í staðinn. Var því heitið að hver sá sem legði fram þijú hundruð þúsund dollara eða meir, fengi stundarfjórðungs fund með forsetanum, þar sem Reagan bæri per- sónulega fram þakkir fyrir stuðning- inn. Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Halldór K. Valdimarsson Gyðingadrengur fannst myrtur Vamarmálaráðherra ísraels, Yitz- hak Rabin, hvatti í gær fólk til að sýna stillingu eftir morðið á átta ára dreng af gyðingaættum. Lík drengsins fannst í helli nálægt bústöðum gyðinga á Vesturbakkanum en hans hafði verið saknað frá því í fyrradag. Steinn lá við hlið líksins og krufriing leiddi í ljós að höfuðkúpa drengsins hafði brotnað eftir högg. Talið er að skæruliðar araba hafi ve- rið að verki. Þúsundir manna fylgdu drengnum til grafar og meðal þeirra var fulltrúi stjómarinnar, ráðherrann Hurvitz, sem krafðist dauðarefsingar fyrir skæruliða. Sendiherra Bandaríkjanna í Jerú- salem, Thomas Pickering, fordæmdi skömmu eftir morðið aðgerðir ísraels- manna gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum jafriframt því sem hann lýsti yfir sorg sinni vegna morðs- ins á drengnum. Frá því í desember hafa fimmtán arabar og gyðingar látið lífið í óeirðum á Vesturbakkanum. ísraelskir lögreglumenn rannsaka vegsummerki i hellinum á Vestur- bakkanum þar sem átta ára drengur af gyðingaættum fannst myrtur. - Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.