Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 28
40 FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987. Andlát Guðmundur Stefánsson lést 8. maí sl. Hann fæddist að Bjólu í Djúpár- hreppi 23. nóvember 1910. Foreldrar hans voru hjónin Áslaug Einars- dóttir og Stefán Bjarnason. Á yngri árum stundaði Guðmundur vinnu við vegagerð í Rangárþingi en flutt- ist fljótlega til Reykjavíkur og gerðist þar leigubílstjóri. Því starfi gegndi hann þar til nú fyrir nokkrum árum er hann varð að hætta vegna heilsubrests. Guðmundur kvæntist Katrínu Gísladóttur og eignaðist með henni tvo syni, fyrir átti hann einn son. Þau Katrín slitu samvist- um. Seinni kona Guðmundar var Aðalbjörg Skúladóttir og lifir hún mann sinn. Útfcr Guðmundar verður gerð frá Langholtskirkju í dag kl. 13.30. Jón H. Júlíusson er látinn. Hann fæddist í Miðkoti í Miðneshreppi 6. febrúar 1927, sonur Salvarar Páls- dóttur og Júlíusar Eiríkssonar. Jón ól allan sinn aldur í Sandgerði. Stundaði störf til sjós og lands og síðustu áratugina starfaði hann hjá Sandgerðishöfn. Eftirlifandi eigin- kona hans er Rósa Jónsdóttir. Útför Jóns verður gerð frá Hvalsneskirkju í dag kl. 14. Ingólfur Jónsson lést 16. maí sl. Hann fæddist í Reykjavík 25. febrúar 1922, sonur Jóns Jónssonar og Júlí- önnu Björnsdóttur. Ingólfur nam rennismíði og starfaði sem renni- smiður í yfir 20 ár hjá Vélsmiðju Kristjáns Gíslasonar hf. en síðustu 17 árin starfaði hann hjá vélaverk- stæði Sig. Sveinbjörnssonar hf. í Garðabæ. Eftirlifandi eiginkona hans er Erla Sveinbjömsdóttir. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið. Útför Ingólfs verður gerð frá Foss- vogskapellu í dag kl. 15. Kristján Sumarliðason, Hafsteins- stöðum, Bolungarvík, lést á sjúkra- húsinu í Bolungarvík 15. maí. Jarðarförin fer fram frá Hólskirkju laugardaginn 23. maí kl. 14. Tilkyimirtgar Kórsöngur með kaffinu í Norræna húsinu Nk. mánudagseftirmiðdag tekur norskur áhugamannakór, Storebrandkoret, lagið í Norræna húsinu og syngur ýmis þekkt og vinsæl lög. Kórinn er hér á ferð til þess að heimsækja Samkór Selfoss og til þess að halda upp á 40 ára afmæli sitt. Ennfrem- ur tengist heimsóknin 70 ára afmæli Brunabótar, en kórfélagar eru allir starfs- menn norska tryggingafélagsins Store- brand. Kórinn heldur tónleika á Selfossi á sunnudaginn en heldur síðan til Reykja- víkur og syngur hjá Brunabótafélaginu. Síðan er ætlunin að syngja nokkur lög í Norræna húsinu sem fyrr segir. Ekki verð- ur selt inn á tónleikana né er hægt að segja nákvæmlega hvenær kórinn syngur í Norræna húsinu, heldur verður þetta eins konar „uppákoma" einhvern tíma dagsins og eru allir velkomnir að koma og hlusta. Jón Á. Þorsteinsson lést 13. maí sl. Hann fæddist 14. júní 1910 á Leys- ingjastöðum í Sveinsstaðahreppi. Foreldrar hans voru Þorsteinn Þor- steinsson og Jenný Jónsdóttir. Jón starfaði lengst af hjá Olíufélagi ís- lands, oftast við akstur á olíubílum. Eftirlifandi eiginkona hans er Guð- rún Guðmannsdóttir. Útför Jóns verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Þórormur Júlíusson, lést 12. maí sl. Hann fæddist í Reykjavík 26. des- ember árið 1947. Foreldrar hans voru Þóra Karólína Þórormsdóttir og Júl- íus S. Júlíusson. Útför Þórorms verður gerð frá Kópavogskirkju í dag kl. 15. Sigurður Jónsson frá Efra-Lóni á Langanesi, síðar búsettur að Loka- stíg 4, Reykjavík, lést á Landakots- spítala aðfaranótt 15. maí sl. Jarðarförin fer fram frá Hallgríms- kirkju 26. maí nk. kl. 15. Ragnheiður O. Björnsson kaup- maður, Akureyri, andaðist á Dvalar- heimilinu Hlíð, Akureyri, fimmtu- daginn 21. maí sl. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudag- inn 29. maí. Guðrún Magnúsdóttir frá Grund- arbrekku lést í sjúkrahúsi Vest- mannaeyja miðvikudaginn 20. maí sl. Guðrún Þórðardóttir frá Syðri- Hraundal lést í sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 20. maí. Hákon B. Teitsson, Langholtsvegi 185, Reykjavík, lést í Borgarspítalan- um 21. maí. Kristrún V. Jónsdóttir, Nýlendu- götu 29, lést í Borgarspítalanum 19. maí. Jóhanna Sigurðardóttir frá Rafns- eyri, Skólavegi 10, Vestmannaeyjum, verður jarðsett frá Landakirkju laugardaginn 23. maí kl. 14. Sigurður Jónsson frá Balaskarði verður jarðsunginn frá Höskulds- staðakirkju laugardaginn 23. maí kl. 17. í gærkvöldi Hilmar Karlsson útlitsteiknari: liflegar knattspymulýsingar Enn sem komið er er ekkert ríkis- sjónvarp á fimmtudögum en eins og komið hefur fram mun verða breyt- ing á með lækkandi sól. Stöð 2 hefur því landsmenn út af fyrir sig og bauð í gærkvöldi upp á þokkalega dag- skrá. Ber þar fyrst að nefna saka- málaþáttinn Morðgátu sem er með betri þáttum sem sú stöðin sýnir. Hef ég sérstaklega gaman af Ang- elu Lansbury í hlutverki rithöfund- arins Jessicu Fletcher sem er skemmtilegur karakter. Yfirleitt er söguþráður þáttanna nokkuð spenn- andi, uppbyggingin er klassískt dæmi, ættað úr hugarheimi Agöthu Christie. Stundum þó útþynnt, enda um fjöldaframleiðslu að ræða. Kvikmynd kvöldsins var ekki af verri endanum. Þar leiddu þær sam- an hesta sína stjömur fyrri ára, Bette Davis og Olivia De Havilland í Þei, þei, kæra Charlotte og var þar á ferðinni spennandi mynd sem sjálf- Hilmar Karlsson. sagt hefur hrellt einhverja. Var ég hrifinn af túlkun gömlu stjamanna. Lítið var- um markvissa útvarps- hlustun í gær. í raun eru rás 2 ríkisútvarpsins og Bylgjan það líkar útvarpsstöðvar að á daginn er sama hvora stöðina maður stillir á ef það er léttmeti sem óskað er eftir. Það er svo aðeins persónulegt hvort manni líkar betur við kynninn á rás 2 eða Bylgjunni. Á kvöldin býður rás 2 upp á mun fjölbreyttari dagskrá þótt ekki sé allt vel heppnað sem þar er. í gær- kvöldi fór mestur hluti kvöldsins í knattspymulýsingar enda 1. deildin byijuð. Fannst mér vel takast .til. Fimm leikir og útvarpað beint frá þeim öllum. Er mun líflegra að hlusta á þess konar lýsingu heldur en aðeins lýsingu frá einum leik. Var þetta tvimælalaust besta útvarps- efnið í gærkvöldi. Knattspyrnuskóli ÍK ’87 Knattspyrnuskóli lK verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur. I sumar verður skólinn með nokkuð öðru sniði en áður. Felast þær breytingar einkum í nýrri aðstöðu félagsins í Digranesi og fjölgun leiðbeinenda við skólann. Einnig hefur félagið eignast fullkomna videoupptöku- vél sem notuð verður við kennsluna. Vegna aukins áhuga stúlkna á knatt- spymu eru þær boðnar sérstaklega velkomnar. Námskeiðin verða sem hér segir: 1. júní - 12. júní á mánud. - föstud. kl. 10-12. á Heiðarvelli. 15. júm' - 26. júní. 29. júní - 10. júlí. 13. júlí - 24. júlí. Aðal- kennari er Þórir Bergsson íþróttakennari. Innritun fer fram í sír.rn 44368 eftir kl. 20. Verð kr. 1.500. Platti með mynd frá Drangey Skagafjörður hefur löngum verið vinsæll ferðamannastaður, enda sögustaðir marg- ir að fornu og nýju. Bátsferðir til Drang- eyjar, með góðum leiðsögumönnum, eiga þar vaxandi vinsældum að fagna enda er Drangey náttúruperla og fræg fuglapara- dís. Baldur Heiðdal á Sauðárkróki hefur nú látið útbúa platta með mynd frá Drang- Afmæli ey. Teikningin er eftir Eydísi Lúðvíks- dóttur, myndlistarkonu í Listasmiðju Glits, og plattinn er brenndur í Gliti hf. sem tekur að sér að gera platta fyrir inn- lenda aðila. Verk af þessu tagi eru smám saman að flytjast inn í landið. Plattarnir verða til sölu norðanlands á vegum Bald- urs Heiðdal á Sauðárkróki og á vegum Glits í Reykjavík. Mígrensamtökin hafa opnað skrifstofu að Suðurgötu 14. Opið á mánudögum kl. 17-19. Sími 623620. Barnaspil - ný kassetta út er komin barnakassetta sem heitir Barnaspil. Flytjendur eru Guðmundur Rúnar Lúðvíksson og Káti leikhópurinn. Þetta er sjöunda (hljómplatan) og kassett- an sem kemur frá G.R. Lúðvíkssyni. Á kassettunni eru ellefu sígild barnalög. Einnig eru tvö frumsamin lög við texta eftir Guðjón Weithe. Á B-hliðinni er frmflutt nýtt leikrit sem heitir „Daði, dvergur í stóra skógi“. Til að byrja með verður „Barnaspil" aðeins til á kassettu. Hún fæst í öllum helstu hljómplötu- og kassettuverslunum. Bretar hafa sent íslendingum orð- sendingu þess efhis að þeir samþykki ekki fyrirhugaðar rannsóknir íslend- inga, Dana og Færeyinga á Rockall- svæðinu í sumar. Þeir segjast sjálfir ætla að stunda þar rannsóknir á sama tíma. „Við munum skoða þetta mál vand- lega og það verður tekið upp á fundi ríkisstjómarinnar á þriðjudaginn og strax á eftir í utanríkismálanefnd og Tónleikar Megas á tónleikaferð Meistari Megas er á tónleikaferð um landið þessa dagana. Hann kemur fram með kassagítar og spilar jafnt gömul sem ný lög úr safni sínu. Einnig mun Bubbi Morthens heimsækja Megas á einstaka stað og taka með honum lagið. I kvöld verður hann á Vopnafirði, laugardags- kvöld á á Þórshöfn, sunnudagskvöld á Raufarhöf og mánudagskvöld á Húsavík. Allir tónleikamir hefjast kl. 21. Tapað - Fundið Síamsköttur týndur úr miðbænum Fimmtudaginn 7. maí sl. tapaðist símas- köttur (fress) frá Tjarnargötunni í Reykja- vík. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 19492 eftir kl. 18 á kvöldin. fyrr en málið hefur verið rætt á þessum vettvangi er lítið um það að segja,“ sagði Matthías Á. Mathiesen utanrík- isráðherra í samtali við D V í morgun. Líklegt er talið að þama sé hörku- deilumál í uppsiglingu. Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkis- málanefndar, segir að íslensk/danski leiðangurinn fari að sjálfsögðu á svæð- ið, hvað sem Bretar segi. -S.dór Bretar mótmæla Rockallrannsóknum: „Þovskastríð“ undir öfúgum formerkjum? - málið tekið fyrir á ríkisstjómarfundi á þriðjudag Viðræðurnar hafnar 60 ára afinæli á í dag, 22. maí, ísleif- ur Jónsson verkfræðingur frá Grindavík. Hann er í Afríkuríkinu Djibúti og starfar þar við jarðhitar- annsóknir á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hann hefur mörg undan- farin ár starfað hjá SÞ við slíkar rannsóknir í ýmsum þjóðlöndum. Heimilisfang Isleifs er: I. Jónsson c/o United Nations development pro- gramme B.P. 2001 (Pnu) Djibouti Africa. Stjómarmyndunarviðræður Sjálf- stæðisflokks, Alþýðuflokks og Kvennalista hófust rétt fyrir hádegi í dag, kl. 11.30. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, fékk jákvætt svar við bréfi sínu til flokkanna tveggja í gær Verkfall rafeindavirkja hjá Pósti og síma, Vita- og hafhamálastjóm og Flugumferðarstjóm skall á í gær- kvöldi eftir að tilboði frá fjármála- ráðuneytinu hafði verið hafnað. Það em 10 rafvirkjar og 65 rafeindavirkjar sem hófu verkfall í gærkvöldi. Eftir viku kemur svo til verkfalls rafeinda- virkja hjá Ríkisútvarpinu. Magnús Geirsson, formaður Rafiðn- aðarsambandsins, sagði í morgun að en í því bauð hann Alþýðuflokki og Kvennalista til formlegra stjómar- myndunartilrauna. Ljóst er að mörg ágreiningsmál þarf að leysa milli ftokkanna og gætu við- ræðumar því tekið nokkum tíma. -ES tilboð það sem rafeindavirkjar höfri- uðu hefði í sumum tilfellum lækkað menn i launum en hækkað aðra lítið eitt. Enginn sáttafundur verður í deil- unni yfir helgina en á mánudaginn klukkan 10 hefur verið boðað til fund- ar og sagðist Magnús Geirsson vera allt annað en bjartsýnn á að lausn á deilunni væri á næstu grösum. -S.dór Rafeindavirkjar: Verkfall skollið á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.