Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987. Atvinnumál Sölumiðstöð hraðfiystihúsanna: Hættum að láta menn ginna okkur svona - sagði Friðrik Pálsson forstjóri sem gagmýndi gámaútflutninginn harðlega Á aðalfundi Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, sem hófst í gær, flutti Friðrik Pálsson forstjóri yfirgrips- mikla ræðu og kom víða við. Hann staldraði lengst við, í ræðu sinni, vax- andi gámaútflutning fiski og gagn- rýndi hann harðlega. Hann sagði marga fiskverkendur vera kvíðafulla vegna þessa og sagðist ekki lá þeim það en öll él birti upp um síðir. Síðan sagði Friðrik: „Okkur Islendinga hefur borið nokkuð af leið um stundarsakir. Við höfum dregið rangar ályktanir af þeim fréttaflutningi sem dunið hefur yfir þjóðina síðustu misserin um glæsileg verð á óunnum fiski erlendis og þann „aumingjaskap hérlendra", eins og sumir orða það, að geta ekki borgað þetta eða hitt toppverðið sem tíundað Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur 10-12 Lb óbund. Spjarireikningar 3ja mán. uppsögn 11-15 Sb 6 mán. uppsögn 11-20 lb 12 mán. uppsögn 14-25,5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 22-24,5 Bb Ávisanareikningar 4-10 Ab Hlaupareikningar 4-7 Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab.Bb, 6 mán. uppsöqn Innlán með sérkjörum 2,5-4 Lb.Sb, Úb.Vb Ab.Úb 10-22 Innlángengistryggð Bandaríkjadalur 5,5-6,25 Ib Sterlingspund 8-10.25 Ab Vestur-þýsk mörk 2,5-4 Ab Danskarkrónur 9-10,25 Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 20-24 Bb.Sb. Viöskiptavíxlar(forv.)(1) 22,5-26 Úb eða kge Almenn skuldabréf(2) 21-27 Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir . Hlaupareikningarfvfirdr.) Utlán verðtryggð 21-24,5 Bb.Sb Skuldabréf Að2.5árum 6-7 Lb Til lengri tíma 6,5-7 Bb.Lb, Sb.Úb Utlántilframleiðslu Isl. krónur 16.25-26 Ib SDR 7,75-8,25 Bb.Lb, Bandaríkjadalir 8-8,75 Úb Bb.Sb Sterlingspund 11,25-13 Bb.Vb Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Bb.Lb, Húsnæðislán 3,5 Úb.Vb Lífeyrissjóðslán 5-6.75 Dráttarvextir 30 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala mai 1662 stig Byggingavísitala 305stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 3% 1. aprll HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 110kr. Eimskip 246 kr. Flugleiöir 170 kr. Hampiöjan 114 kr. Iðnaðarbankinn 124 kr. Verslunarbankinn 114 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað víð sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21 % ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil- alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð- tryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= lönaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánarl upplýsingar um penlngamarkaðinn birtast í DV á fimmtudögum. er hverju sirni. Um lægsta verð eða meðalverð er ekki rætt.“ Síðan sagði Friðrik að það yrði ekki hlutverk íslenskra sjómanna að afla hráefnis fynr fiskvinnslu keppinauta okkar í nálægum löndum og að við yrðum að snúa af þeirri leið. Hann sagði ennfremur að enda þótt menn hefðu um stundarsakir talið sér hag- kvæmt að selja verulegt magn óunnins fisks á erlenda markaði þá væri óhugs- andi að við létum bjóða okkur það að við værum ginntir til þess í skjóli tolla- múra að fæða fiskvinnslu annarra landa. Við Islendingar yrðum að standa saman um það að ná fullu toll- frelsi fyrir allar okkar fiskafurðir innan Efnahagsbandalagsins. Friðrik sagði að mesta veikleika- merki, sem við gætum sýnt í tollabar- áttunni við Efhahagsbandalagið, væru að halda áfram ferskfiskútflutningi í stórum stíl, en það væri nákvæmlega það sem Efnahagsbandalagslöndin vilja. Hann benti á að þeim hefði ekki tekist að kúga okkur í þorskastríðun- um en nú ná þeir stöðugt vaxandi hluta hráefnis fyrir fiskvinnsluna sína til að halda uppi atvinnu í þorpum sínum. Hér er farið yfir skjöl rétt áður en aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna hófst í gær og það er Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvarinnar, sem situr og skrifar niöur en Jón Páll Halldórsson, sem var kjörinn fundar- stjóri, fylgist með. DV-mynd Brynjar Gauti Þá sagði Friðrik að í áratugi hefði það verið stefha íslendinga í sölumál- um á fiskafúrðum á erlendum mörkuð- um að komast eins nærri neytendum og hagkvæmt er þegar til lengri tíma er litið. Stefhufesta í þessu efhi hefði verið okkar sterkasta vopn í sam- keppninni á mörkuðunum. Nú aftur á móti legðum við aðalkeppinautum okkar á þessum mörkuðum lið. „Við seljum þeim hráefhi til að keppa um sömu kaupendur og við höfum ræktað upþ viðskiptasambönd við í áratugi. Við tökum líka hráefhi frá þeim mörkuðum sem lengst og best hafa reynst okkur og eyðileggjum þar með dýrmæt viðskiptasambönd," sagði Friðrik Pálsson. Hann sagðist ekki sjá neina leið út úr þeim vanda, sem fiskvinnslan er nú komin í, aðra en að gera þá kröfu að fiskvinnslan fengi meira til skip- tanna fyrir sig og sitt starfsfólk. Það ójafnvægi sem ríkt hefur á milli veiða og vinnslu hefur haft í för með sér meira tekjumisvægi innan greinarinn- ar en heppilegt getur talist. Þessu þyrfti að snúa við hið bráðasta. -S.dór Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra flytur setningarræðuna á ráð- stefnu um þróun fiskimjölsiðnaðar á íslandi. DV-mynd Brynjar Gauti Ráðstefna um þróun fiskimjölsiðnaðar á íslandi: Afkastageta verksmiðjanna er milljón tonn á 77 dögum í gær hófst að Hótel Sögu ráðstefna um þróun fiskimjölsiðnaðar á íslandi. Það eru Rannsóknastofriun fiskiðnað- arins og Félag íslenskra fiskimjöls- framleiðenda sem standa fyrir ráðstefiiunni. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra setti ráðstefhuna með stuttu ávarpi. Kom fram í ræðu hans að á íslandi væru 20 fiskimjölsverksmiðjur og þær geta afkastað 13 þúsund lestum á sólarhring sem þýðir að þær geta brætt eina milljón lesta á aðeins 77 dögum. Loðnuaflinn á síðustu vertíð var einmitt ein milljón lestir. í gær var á dagskrá fjár- og fjárfest- ingarmál. Undir þeim lið flutti Benedikt Valsson erindi um rekstrar- stöðu fiskimjölsiðnaðar í nútíð og framtíð. Jón Reynir Magnússon for- stjóri flutti erindi um efriahagslegan grundvöll fiskimjölsframleiðslu og Sveinn Hjartarson flutti erindi um efnahagslegan grundvöll veiða á bræðslufiski. Síðan voru frjálsar um- ræður. I dag heldur svo ráðstefnan áfram og verða þá rædd tæknimál og mark- aðs- og gæðamál og verða fjölmörg erindi flutt undir þessum dagskrárlið- um. -S.dór Sölumiðstöð hraðftystihúsanna: Grandi hf. er með mesta framleiðslu - en Útgerðarfélag Akureyringa með mesta verðmætið Aðalfundur Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna hófst í gær og verður fram haldið í dag. I skýrslu stjómar samtakanna kemur fram að í fyrra framleiddu frystihús innan Sölumið- stöðvarinnar 76.733 smálestir sem er rúmum eitt þúsund smálestum meira en árið áður. Auk þess annaðist Sölumiðstöðin útflutning á 6.549 lestum af sjófrystum afurðum. Ileild- arframleiðslan varð því 83.282 lestir í fyrra, sem er 10,1% aukning frá árinu áður. Grandi hf. í Reykjavík er með mesta frandeiðslu allra frystihúsa innan Sölumiðstöðvarinnar eða samtals 6.515 lestir. Næst kemur Útgerðarfélag Akureyringa með 6.422 lestir, Vinnslustöðin í Vest- mannaeyjum með 3.734 lestir, Isfélag Vestmannaeyja með 3.558 lestir, Síldarvinnslan í Neskaupstað með 3.542 lestir og Fiskiðjan í Vest- mannaeyjum með 3.245 lestir. Útgerðarfélag Akureyringa var með mestu verðmætin eða 650 millj- ónir króna, Grandi hf. með 550 milljónir, íshúsfélag Bolungavíkur með 344 milljónir, Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum með 308 milljónir, Haraldur Böðvarsson & Co á Akra- nesi með 300 milljónir og Síldar- vinnslan í Neskaupstað 288 milljónir króna. Mest var framleitt af þorski eða 32.883 lestir, karfa 13.961 lest og ufsa 10.335 lestir. Alls flutti Sölumiðstöðin út í fyrra 92.433 lestir að verðmæti 9,8 millj- arðar króna. Miðað við magn var um 8% aukningu að ræða frá árinu á undan en í verðmætum 2,5 millj- arðar sem er 30% aukning frá árinu á undan. Útflutningurinn skiptist þannig að til Bandaríkjanna fóru 36.633 lestir eða 39,5%, til Bretlands 15.082 lestir eða 16,2%, til Sovétríkjanna 12.665 lestir eða 13,6%, til Japan 11.531 lest eða 12,4%, til V-Þýskalands 6.190 lestir eða 6,6%, til annarra EBE landa 7.650 lestir eða 12,4% og til annarra landa 2.945 lestir eða 3,1%.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.