Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Side 10
10
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
Utlönd
Hvað er kosið um
á BretJandseyjum?
Flokkar þeir sem takast á í kosningunum á Bretlandi, þann
11. júní næstkomandi, hafa nú allir sent frá sér stefnuskrár,
með tilheyrandi kosningaloforðum. I plöggum þessum koma
andstæður í breskum stjórnmálum skýrt í ljós og þá sérstaklega
milli íhaldsflokks og Verkamannaflokks.
Helstu hitamál kosninganna að þessu sinni virðast ætla að
verða efnahagsmál, vamarmál, fyrirkomulag kosninga, kjör-
dæmaskipan og sjálfsstjóm héraða.
Verkamannaflokkurinn, sem telur stjóm íhaldsflokksins á
efnahagsmálum síðastliðin átta ár, undir forystu Margaret
Thatcher, hafa verið alla af hinu vonda. Lofa þeir nú að skapa
tvær milljónir nýrra atvinnutækifæra á tveim árom, auka út-
gjöld ríkisins um sex milljarða sterlingspunda á sama tíma, ná
ýmsum þjónustufyrirtækjum, sem seld hafa verið-á almennum
markaði, að nýju undir stjóm hins opinbera og að stofna til
sérstaks iðnlánabanka. Brúsann ætla þeir svo að borga með
því að leggja á a-ðskatt og hækka skatta hátekjumanna svo
og með því að ná heim aftur því fjármagni sem fjárfest hefur
verið með erlendis.
fhaldsmenn hyggjast lækka skatta, afnema verðbólgu, halda
útgjöldum ríkisins í skefjum, selja meira af þjónustutyrirtækjum
ríkisins og setja aukin höft á starfsemi stéttarfélaga.
Kosningabandalag frjálslyndra og sósíaliiemókrata lætur sér
hins vegar nægja að lofa einni milljón nýrra starfstækifæra.
I vamarmálum hyggjast íhaidsmenn endumýja kjamorkuvíg-
búnað Breta með kaupum á bandarískum Trident-eldflaugum.
Verkamenn hyggjast hins vegar leggja kjarnorkuvopn Breta
niður með öllu og semja um brottflutning bandarískra vopna
af Bretlandseyjum. Kosningabandalagið fer milliveginn, ætlar
hvorki að endumýja né fleygja þeim Pólaris flaugum sem Bret-
ar nú eiga, fyrr en náðst hafa samningar um kjamorkuafvopnun.
Kosningabandalag frjálslyndra og sósíaldemókrata er eitt um
það stefriumál að gjörbreyta kosningafyrirkomulagi og kjör-
Kort þetta sýnir kjördæmaskipan á Bretlandi, en eitt helsta
deilumál kosningnna þar nú er að atkvæði þeirra sem tapa
í einstökum kjördæmum koma þeim ekki til góða annars
staðar. Þá er einnig rætt um sjálfsstjóm fyrir Skotland og
Wales en enginn flokkanna minnist á N-írland i því sambandi.
dæmaskipulagi á Bretlandseyjum. Samkvæmt núverandi kerfi
er kosið um einstaklinga í hverju kjördæmi fyrir sig, þeir sem
tapa geta ekki nýtt sér atkvæði sín þar annars staðar. Þannig
getur íhaldsflokkurinn nú náð góðum meirihluta á þingi án
þess að hafa neitt nálægt meirihluta atkvæða. Kemur þetta illi-
legast niður á kosningabandalaginu, sem víða er í öðru sæti í
einstökum kjördæmum, en kemur samt fáum mönnum á þing.
Er því von að þeir vilji breytingar.
I héraðsstjómarmálum hefur Ihaldsflokkurinn ekki haft uppi
miklar heitingar, en lofar þó umbótum í þeim efnum, að mestu
ótilgreindum. Verkamannaflokkurinn vill ganga lengra og setja
á stofn sérstakt þing á Skotlandi sem væntanlega færi með ein-
hver sjálfsstjómarmál. Kosningabandalagið vill svo ganga
fetinu ffamar og veita bæði Skotlandi og Wales sjálfsstjórn að
einhverju leyti. Enginn flokkanna minnist á N-írland í þessu
samhengi.
Hver flokkur fyrir sig er svo með ýmis aðlaðandi loforð sem
virðast til þess eins ætluð að veiða atkvæði þeirra sem láta
alvarlegri málefni sig litlu skipta. Þannig stefnir Ihaldsflokkur-
inn að því að setja á rýmri reglur um heimilan opnunartíma
vínveitingahúsa, sem og heimila verslun á sunnudögum. Verka-
mannaflokkurinn ætlar hins vegar að setja mörkuðum í
Lundiinum þrengri skorður.
Hvort verður ofan á, fijálshyggjukennd markaðsstefha Thatc-
hers, eða ríkisforsjárstefna Verkamannaflokksins, kemur í ljós
að kvöldi hins 11. júní. Skoðanakannanir virðast benda til þess
að jámfrúnni sé sigurinn næsta vís, en ekki þarf þó mikla
sveiflu til þess að Verkamannaflokkurinn steypi henni. Það
eina sem ailir em vissir um er að kosningabandalagið verður
ekki sigurvegari kosninganna. Eina von þess er að sigra í nægi-
lega mörgum kjördæmum til þess að koma í veg fyrir að annar
hvor stóm flokkanna fái hreinan meirihluta.
Helstu kosningaloforð
íhaldsflokks:
Margaret Thatcher, leiðtogi
íhaldsflokksins.
Minnka tekjuskatt í 25% að grunnpró-
sentu
Eyða verðbólgu algerlega
Halda ríkisútgj öldum niðri
Selja fleiri þj ónustufyrirtæki ríkisins,
raforkufyrirtæki og vatnsveitur næst
Auka einkaeign á íbúðarhúsnæði og
hlutabréfum
Herða innflytj endalöggj öf
Setja stéttarfélögum þrengri skorður
Slaka á löggjöf varðandi opnunartíma
vínveitingahúsa og verslana
Skipuleggj a grunnnámsefni, sem gilti fyr-
ir allt landið
Umbætur í héraðsstj órnum
Áframhaldandi uppbygging kjarnorku-
vera
★ Enduruppbygging kj arnorkuvígbúnaðar
með bandarískum Trident flaugum
★
★
★
★
★
★
★
★
Helstu kosningaloforð
Verkamannaflokks:
★
★
★
★
★
★
Neil Kinnock, leiðtogi
Verkamannaflokksins.
★
★
★
★
Ein milljón nýrra starfstækifæra
Aukning ríkisútgj alda um sex milljarða
sterlingspunda á tveim árum
Kjarnorkuvopn Breta verði lögð niður
Samið verði um brottflutning bandarískra
kj arnorkuvopna
Stofnaður verði ríkisrekinn fj árfestinga-
banki fyrir iðnaðinn
Heimflutningur fjárfestinga erlendis
Aukin skattheimta á hálaunafólk og sér-
stakur auðskattur
Ríkið taki aftur við sljórn á þjónustufyrir-
tækjum sínum
Ný ráðuneyti, sem fjalli um tæknimál,
kvennamál og umhverfismál, stofnuð
Hert yfirsfjórn markaða í London
Dregið verði úr mikilvægi kjarnorku í
orkuiðnaði
Stofnað verði til þings í Skotlandi
Efnahagsaðgerðir gegn S-Afríku
Helstu kosningaloforð kosningabanda'
★ Endurskoðun kosningalaga, atkvæðahlutfall ráði í stað úrslita í einstökum K M' Æ. Mk
HH| kjördæm um
★ Afnám leyndarlöggj afar, sem gerir sfjórnvöldum kleift að takmarka upplýsingar til yix’Æ
fjölmiðla og almennings t d||PiiíPKlL^ .mfc..
★ Kosið verði um sæti í lávarðadeild þingsins, sem nú ganga í arf
/'msa& ÆM ★ Aukin völd héraðssfjórna f
★ Sjálfssfjórn Skotlands og Wales fkjÆ* >V' .
★ Ein milljón nýrra atvinnutækifæra ánjT Æ/mk m ‘"SvS
★ Dómsmálaráðuneyti verði stofnsett
ííéhÉíI ★ Haldið verði aftur af launahækkunum til að takmarka verðbólgu j
David Owen, leiötogi sósíaldemó- ★ Hætt verði við kaup a Trident eldflaugum krafa. ★ Polaris kjarnorkuvígbúnaði verði viðhaldið bar til semst um útrvmineru hans David Staal. IpiAtoni friálslvndra