Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Side 11
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
11
Utiönd
Golden Gate brúin i San-Fransisco er nú fimmtug.
Simamynd Reuter
Golden-Gate fimmtug
Golden Gate brúin í San-Fransisco
er nú fimmtug. Brú þessi, sem er um
tveggja kílómetra löng, hefur verið
eitt helsta aðdráttarafl fyrir ferða-
menn í borginni, allt frá því hún var
byggð. Hún hefur birst í ótöldum fjölda
kvikmynda og er enn þann dag í dag
eitt helsta stolt borgarbúa.
Brúnni verður haldin mikil afmælis-
veisla, með tilheyrandi skrúðsiglingu
skipalestar, yfirflugi nær hundrað og
fimmtíu flugvéla og mikilli flugelda-
sýningu.
Aðstandendur reyna að þekkja líkamsleifar ættingja af myndum.
Símamynd Reuter
Reyna að bera kennsl á líkin
Þegar flugslys verða ber oft mikið
á þeim í fjölmiðlum fyrstu dagana, en
síðan yfirleitt ekki söguna meir, fyrr
en þá ef einhveijar sérstakar fréttir
berast af rannsókn þeirra.
Það þýðir þó ekki að ekkert sé að
gerast því mikið starf liggur í því að
sundurgreina allt í tengslum við slysið
í þeirri von að niðurstaða fáist um
hvað gerðist og hvers vegna.
Hinn mannlegi þáttur þess starfs er
stór, meðal annars sá hluti að fá að-
standendur þeirra sem fórust, eða
taldir eru hafa farist með flugvélinni,
til þess að bera kennsl á líkamsleifar
þær sem kunna að hafa fundist. Það
starf stendur nú yfir i Póllandi, vegna
flugslyssins þar á dögunum, þegar 183
fórust. Þarf ekki að fjölyrða um þenn-
an þátt slíkra mála, hann er eitt af
mörgu sem oft gleymist þótt vert sé
að muna.
Lenin á ruslahaugnum
Sjötíu heil sett af heildarverkum
Vladimir Lenin, leiðtoga sovésku bylt-
ingarinnar, fundust nýverið á rusla-
haugum í Belgrad, höfuðborg
Júgóslavíu, að því er þarlend frétta-
stofa skýrði frá í gær.
Ekki var ljóst hvemig verkin kom-
ust á haugana, en fréttastofan sagði
þetta dæmigert fyrir það hvemig farið
væri með bókmenntaverk í landinu.
Kommúnistaflokkur Júgóslaviu hef-
ur varðveitt sjálfstæði sitt frá Moskvu
vandlega, allt frá 1948, en Lenin er þó
enn dáður þar sem frumherji alheims-
byltingarinnar.
Eyðniprófa fólk
úr þriðja heiminum
Vestur-Þjóðverjar tilkynntu í gær
að þeir framkvæmdu reglubundið eft-
irlit með námsmönnum úr ríkjum
þriðja heimsins, með tilliti til þess
hvort þeir væm smitaðir af eyðni. I
svari við fyrirspum frá þinginu í Bonn
sagði að allir þeir nemendur frá þriðja
heiminum, sem koma til Þýskalands á
styrkjum frá efnahagsþróunarráðu-
neytinu í Bonn, væm eyðniprófaðir.
Fjömtiu og fimm nemendum hefur
verið snúið aftur til síns heima, eftir
að prófun hefur verið jákvæð.
í svari ráðuneytisins var ekki tiltek-
ið frá hvaða löndum fólk þetta væri
og ásökunum um að um kynþátta-
misrétti væri að ræða, var hafiiað.
Vann fjörutíu milljónir í póker
Johnny Chan, Kínverji sem fluttist
til Bandaríkjanna fyrir tveim áratug-
um, vann í gær liðlega milljón dollara,
eða um fjömtíu milljónir íslenskra
króna, í pókerspili í Las Vegas. Chan
bar þá sigur úr býtum í heimsmeistara-
keppni í pókerspili, sem staðið hefur
í borginni undanfama daga.
Frakkar og V-Þjóð-
verjar samræma
afvopnunarstefnur
Stjómvöld í Frakklandi og Vestur-
Þýskalandi virðast nú nærri þvi að
samræma viðhorf sín til hugmynda
þeirra sem stórveldin ræða nú í af-
vopnunarmálum, eftir að Francois
Mitterrand, forseti Frakklands, lýsti
stuðningi sínum við hugmyndir Sovét-
manna um að eyða öllum meðaldræg-
um kjamaeldflaugum í Evrópu.
Leiðtogar Frakklands og V-Þýska-
lands, Mitterrand og Helmut Kohl
Þýskalandskanslari, ftmduðu í París i
gær og kom fram eftir þann fund að
stjómvöld ríkjanna tveggja væm sam-
mála í flestum meginatriðum. Hins
vegar var talið að allt að tveggja vikna
starf þyrfti til þess að Þjóðveijar,
Frakkar og Bretar næðu að setja fram
sameiginlega stefnu Evrópuríkja í
þessum málum.
Talið er að Evrópuríki hyggist leggja
fram sameiginlega stefhumörkun
varðandi það tilboð Sovétríkjanna að
fjarlægja allar skammdrægar og með-
aldrægar eldflaugar og að hún verði
tilbúin til umfjöllunar á fundi vest-
rænna þjóða í Feneyjum í næsta
mánuði eða á vorfundi utanríkisráð-
herra ríkja Atlantshafsbandalagsins í
Reykjavik í annarri viku júní.
Bretar hafa þegar lýst sig fylgjandi
hugmyndum Sovétmanna.
Francois Mitterrand Frakklandsforseti býöur Helmut Kohl, kanslara V-Þýska-
lands, velkominn til Parisar þar sem leiðtogarnir funda um stefnur rikisstjórna
Sinna i afvopnunarmálum. Simamynd Reuter
AUMT ER EINLIFI!
ALLIR I EVRÓPU ÞAR ER FÓLKŒ)
DÚNDUR
Hljómsveitin Dúndur skemmtir i EVRÓPU í kvöld. Þetta er
næstsíðasta helgin sem Dúndur kemur fram því að þeir Friðrik
Karlsson, Gunnlaugur Briem og Jóhann Ásmundsson eru að
yfirgefa landið vegna hljómleikaferðar Mezzoforte. ", hætta
púndur
SHANNON
Bandaríska söngkonan Shannon verður naesti erlendi skemmti-
kraftur í EVRÓPU. Hún kom laginu ”Let The Music Play” í 1. sæti
bandaríska vinsældalistans í hittiðfyrra og varð lagið einnig gifurlega
vinsælt hérlendis. Shannon skemmtir dagana 11., 12. og 13. júnín.k.
Shann°n
Itcmur i
JAKI GRAHAM
Nú er Jaki Graham farin af landi brott. Hún fékk frábærar viðtökur í
EVRÓPU um síðustu helgi og sjálf skemmti hún sér mjög vel. Hún
lét þess meira að segja getið að hún vildi gjarnan koma aftur til
fslands og skemmta þessari þrælhressu þjóð.
Joki v°r
Jr<Sb«r
FRAMTIÐIN
Um helgina tökum við stórt skref inn í framtíðina og kynnum nýjan
geisla-plötuspilara (Lazer) frá Technics. Spilarinn var að koma á
markaðinn og heitir SL-P1200. Hann er sérhannaður fyrir diskótek
og útvarpsstöðvar. Komið og hlustið á "diskósánd” framtíðarinnar.
_ O)
3
__ (0