Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987. Neytendur Spyrjið um verðið áður en kaupin em gerð „Fyrir áramótin keypti ég efni á útsölu í vefnaðarvöruverslun og kostaði metrinn af efninu 100 kr. Þegar ég ætlaði að fara að sauma kom í ljós að mig vantaði meira og fór því aftur í verslunina. Stúlk- an fór „á bak við“ og kom með efni og ég bað um 1,30 m sem mig vant- '- aði. Þá kostaði það 360 kr. eða 277 >■ kr. metrinn," sagði kona nokkur sem hringdi til okkar á neytenda- síðu. „Mig rak í rogastáns og vildi ekki greiða þetta verð fyrir efhið og spurði hvort þetta væri ekki sama efnið og hefði verið á útsöl- unni á 100 kr. Konan kvað já við því en sagði að „þær gætu ekki látið það liggja á því verði“. Svo bauð hún mér efnið fyrir 300 kr. og endaði með því ég tók því boði. Ég var samt langt frá því að vera ánægð með þessi málalok og ég geri ráð fyrir að það verði bið á að ég versli þarna aftur", sagði við- mælandi okkar. Þama var ekki um að ræða neitt ólöglegt. Þegar vörur eru settar á útsölu eru þær boðnar á útsölu- verði i einhvem ákveðinn tíma. Verslunin er ekki skyldug að láta það verð gilda um aldur og ævi. Hins vegar hefði ekki ^erið illa til fundið að selja konunní efnið á „útsöluverðinu“. Hún hefði orðið ánægð og verslað áfram í framtíð- inni. Viðskiptavinurinn fór hins vegar ekki rétt að ráði sínu. Hann hefði átt að spyrja hvað efhið kostaði áður“en byrjað var að klippa það af stranganum. Það er góð regla að spyrja alltaf hvað hlutimir kosta áður en kaup eru gerð. -A.BJ. I baráttunni við óvin nr.l „Það gæti hugsast að ég hefði hér hlut sem komið getur í veg fyrir frek- ari hjartaáföll og dauðsföll í eldhúsinu vegna glímu við álpappír og plast- filmu,“ sagði Marta Einarsdóttir hjá Burstagerðinni í samtali við neytenda- síðuna. Marta var nýbúin að lesa grein sem fjallaði um óvin nr. 1 í eldhúsinu, ál- pappírinn, er hún fór að taka upp vörusendingu til fyrirtækisins frá Þýskalandi. Það var statíf fyrir ál- pappír og plastfilmu sem hengt er á vegg í eldhúsinu. Á einfaldan hátt er pappírinn dreginn út og síðan skorið með þar til gerðum hníf sem er í upp- henginu. Upphengið fæst í búsáhaldaverslun- um og kostar um 1490 kr. -A.BJ. Ust Guðrúnar 5. Urup KAN komin - alltaf fersk Hrökkva eða stökkva, - segir Þórður Ásgeirsson í ____ Vikuviðtalinu en hann fer úr spíni olíuviðskiptum í jógúrtframleiðslu. - Sumir stjómarmenn hjá Olíuversluninni haía líklega verið orðnir svo þyrstir í pen- inga eða búnir að fínna svo rrukla peninga- lykt að þeir ákváðu að selja sín bréf, jafnvel á þvi lága verði sem í boði var, og með þeim hætti sem raunin varð á, segir Þórður Ásgeirsson, fyrrverandi forstjóri Olís, með- al annars um söluna á Olís í lok síðasta árs. Svo segir hann frá hvalnum og Baulu. Sffl Guðnínar Siguiðardóttui Uiup myndlislarmanns Sovéska stóisjainan Ma Pugatjova Nautaat á Spáiii Nafn Vikunnar: Komelíus Sigmundsson forsetaritari Ný framhaldssaga eflir Raymond Chandler Fyrst er pappírinn dreginn úr með báðum höndum. Síðan er hnifnum rennt eftir endilöngu upphenginu og pappírinn skerst beint af og engin vandræði. Heillaráð í eldhúsinu Þegar verið er að fletja út deig á eldhúsborðinu er tilvalið að sprauta úðafeiti á borðið og strá hveiti á. Þá festist deigið alls ekki við borðið. Hafið fyrir reglu að byrja á því að setja þvottaefnið í uppþvotta- vélina áður en byrjað er að raða í hana bollum og diskum. Þá er allt- af hægt að sjá á augabragði hvort búið er að þvo eða ekki, það sem í vélinni er. Oft vill fisk- og lauklykt loða við hendumar löngu eftir að þær hafa verið þvegnar með góðri sápu. Þá er gott ráð að bera tannkrem á þær. Þá hverfur lyktin. Þegar heitir ostaréttir eins og t.d. lasagna er borið fram vill skeiðin sem er í réttinum verða hálfólystug og klístruð. Gott ráð er að úða á hana úr fituúðabrúsan- um. Þá tollir heitur osturinn ekki eins á skeiðinni. Munið að senda inn upp- lýsinga- seðilinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.