Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987. FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987. 31 Iþróttir dv x>v • Fyrirliðar ÍBK og Völsungs, þeir Gunnar Oddsson, ÍBK, til vinstri og Björn Olgeirsson til hægri sjást hér skömmu áður en fyrsti 1. deildar leikurinn á Húsavík hófst í gærkvöldi. DV-mynd Jóhannes Sigurjónsson/Húsavík Markasúpa - Keflvíkingar fengu fjögur marktækrfæri og sigruðu Völsung, 2-4 Jóhannes Sigurjónssan, DV, Húsavflc „Þeir voru heppnari en við í þessum leik. Við fengum algjört dauðafæri í byrj- un leiksins sem okkur tókst ekki að nýta og í næstu sókn fengu Keflvíkingar víti og skoruðu. Þetta var vendipunkturinn í leiknum," sagði Hörður Benónýsson, hinn eldfljóti leikmaður Völsungs, eftir að ÍBK hafði sigrað Völsung, 2-4, í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á Húsavík í gærkvöldi. Þetta var jafnframt fyrsti leikur Völsungs í 1. deild. Mikill áhugi var á þessum fyrsta leik heima- manna og fylgdust á milli 800 og 900 áhorfendur með honum í blíðskaparveðri en nokkuð hvössu. Leikurinn var nokkuð þófkenndur framan af. Liðsmenn Völsungs voru dálít- ið taugaóstyrkir og virtust hálffeimnir við fyrstu skrefin í 1. deild. Kristján 01- geirsson skaut framhjá í góðu færi á 12. mínútu. Strax á næstu mínútu brunuðu Keflvíkingar upp í sókn. Helgi Helgason braut á einum Keflvíkingi innan vítateigs og vítaspyma var dæmd. Óli Þór Magn- ússon skoraði örugglega úr vítinu, 0-1. Á 18. mínútu kom há fyrirgjöf á fjar- stöngina, sem vöm Völsungs virtist hafa alla burði til að bægja frá, en Peter Fa- rell, Englendingurinn í liði Keflvíkinga, laumaði sér skemmtilega inn fyrir vöm Völsungs og renndi knettinum viðstöðu- laust í netið, 0-2. Eftir því sem leið á fyrri hálfleik komst Völsungur meira inn í leikinn og á 37. mínútu stakk Kristján Olgeirsson sér inn fyrir vöm Keflvíkinga og var felldur inn- an vítateigs, heimamenn vildu ólmir fá dæmda vítaspymu. Guðmundur Haralds- son dómari var á öðm máli og sá ekkert athugavert. Framan af seinni hálfleik einkenndist leikurinn af miðjuþófi. Leikmenn liðanna áttu erfitt með að halda knettinum vegna roks, einnig hafði malarvöllurinn sitt að segja. Á 60. mínútu skomðu Keflvíkingar sitt þriðja mark og var Gunnar Oddsson þar að verki með góðum skalla, 0-3. Eftir þriðja markið slökuðu Keflvíking- ar aðeins á og Völsungar sóttu í sig veðrið og tókst að minnka muninn á 74. mínútu. Hörður Benónýsson fékk góða sendingu inn fyrir vöm Keflvíkinga, stakk af sér vamarmenn, lék á Þorstein Bjamarson markvörð og skoraði ömgg- lega, 1-3. Tvívegis á næstu mínútum komst Hörð- ur í færi en tókst ekki að skora. Keflvík- ingar bættu við Qórða markinu fimm mínútum fyrir leikslok eftir mikil mistök í vöm Völsunga. Gunnar Oddsson stakk sér í gegnum vöm Völsunga o'g lyfti knettinum laglega yfir markvörðinn, 1-4. Völsungur átti svo síðasta orðið í leikn- um þegar þeir skomðu sitt annað mark. Vítaspyma var dæmd á Keflvíkinga og úr henni skoraði Jónas Hallgrímsson ör- ugglega. Þgtta var 24. víti Jónasar fyrir liðið án þess að bregðast. Sigur Keflvíkinga var sanngjam en ef til vill of stór miðað við gang leiksins. Keflvíkingar skora fjögur mörk en áttu engin tækifæri þar fyrir utan. Völsungar skora hins vegar tvö mörk og áttu þar að auki tvö góð tækifæri sem ekki nýtt- ust. Óli Þór Magnússon var bestur Keflvík- inga, skoraði eitt mark og lagði upp önnur tvö. Einnig átti Gunnar Oddsson góðan leik. Kristján Olgeirsson átti bestan leik heimamanna, einnig vom þeir Ómar Rafhsson og Hörður Benónýsson sprækir. Góður dómari leiksins var Guðmundur Haraldsson. -JKS/JS „Súrt að þeir skyldu skora þegar svo stutt var eftir“ - sagði Haukur Hafsteinsson, þjálfari Víðis, sem gerði jafntefli gegn Val, 1-1 Staöan beittari. í nokkur skipti tókst Vals- mönnum að skapa sér góð tækifæri, ýmist varði Gísli markvörður eða knötturinn fór framhjá. Sóknarþungi Vals bar loks árangur á 78. mínútu, kannski þegar menn áttu síst von á skoti að marki. Magni Blöndal Pétursson fékk knöttinn frek- ar fyrir tilviljun og var ekkert að tvínóna við hlutina. Hann lét skot ríða af 33 metra færi og knötturinn söng i netinu, undir þverslá marksins og átti Gísli markvörður ekki möguleika á að verja þrátt fyrir góða tilburði. Jöfn- unarmark Vals virtist ekki koma Víði úr jafnvægi, þeir frekar tvíefldust og vörðust af alefli. Valsliðið var mun sterkari aðilinn í leiknum og réð mestu um gang hans en gekk mjög erfiðlega að komast í gegnum þéttan vamarmúr Víðis. Magni var bestur Valsmanna í leikn- um og barðist vel. Jón Grétar og Sigurjón Kristjánsson voru einnig góðir. Hjá Víði voru þeir Daníel Einarsson og Vilhjálmur Þorvaldsson sterkir í vöminni. Sævar Leifsson, nýliðinn, fellur ágætlega inn í leik liðsins. Gísli markvörður er traustur og Guðjón Guðmunds drífur liðið vel áfram. Gult spjald: Víðir, Daníel Einarsson og Vilberg Þorvaldsson. Valur, Jón Grétar. Mjög góður dómari leiksins var Kjartan Ölafsson. Áhorfendur vom 900. -JKS/emm • Jón Grétar Jónsson, Val, sést hér í harðri baráttu gegn einum varnarmanna Víðis í leik liðanna í gærkvöldi. DV-mynd Gunnar Sverrisson Staðan er þannig eftir fyrstu umferð íslandsmótsins í knattspymu í gær- kvöldi: Keflavík 1 1 0 0 4-2 3 Akranes 1 1 0 0 1-0 3 KR 1 1 0 0 1-0 3 Valur 1 0 1 0' 1-1 1 Víðir : 1 0 1 0 1-1 1 FH 1 0 0 1 0-1 0 KA 1 0 0 1 0-1 0 Fram 1 0 0 1 1-3 0 Völsungur 1 0 0 1 2rA 0 Magnús Gíslasan, DV, Suðumesjiun: „Ég er ánægður með leik minna manna. Það var svolítið súrt að fá markið á okkur þegar svona skammt var til leiksloka en þegar öllu er á botninn hvolt heppnaðist leikaðferð okkar ágætlega. Við vörðumst vel gegn sterkum andstæðingum," sagði Haukur Hafsteinsson, þjálfari Víðis- manna, eftir jafnteflisleik liðsins, 1-1, gegn Val í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á Garðsvelli í gærkvöldi. Fyrsta stundaríjórðunginn í leiknum sóttu Valsmenn án afláts, spurningin var hvenær þeir myndu skora fyrsta markið. Víðir barðist af mikilli grimmd og fengu Valsmenn lítinn frið þegar upp að marki andstæðinganna kom. Á 7. mínútu átti Jón Grétar Jónsson skalla í stöng. Fimm mínútum síðar skaut Sævar Jónsson góðu skoti að marki Víðis en Gísli Hreiðarsson markvörður varði vel með því að slá knöttinn aftur fyrir markið. Stuttu síðar náðu Víðismenn foryst- unni í leiknum öllum á óvart. Vilherg Þorvaldsson fékk knöttinn út á hægri kantinn, lék upp að endamörkum og gaf góða sendingu fyrir markið. -Þar kom Guðjón Guðmundsson aðvífandi og skoraði með því að skjóta yfir Guð- mund Hreiðarsson markvörð. Það má segja að þetta hafi verið eina skot Víðis að marki Valsmanna í leiknum en lítið skipulag var í sóknarleik þeirra. Valsmenn mættu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik, staðráðnir í að jafna leikinn. Þeir fóru að nýta kantana betur og það gerði sóknarleik þeirra ■ • Jónas Róbertsson nær forystunni fyrir Þór gegn Fram með marki úr vitaspyrnu. Friðrik markvörður var nálægt því að verja. DV-mynd Brynjar Gauti - sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Þórs, eftir 1-3 sigur Þórs gegn Fram „Ég er hress með þetta og vonandi fara strákamir nú að trúa á sjálfa sig aftur eftir að hafa verið langt niðri eftir síðasta keppnistímabil. Ég er sérstaklega ánægð- ur með úrslitin og ekki síst vegna þess að strákamir hafa ekki stigið á grasblett fyrr en í kvöld og ég hef ekki fyrr en í kvöld getað stillt upp okkar sterkasta liði,“ sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Þórs frá Ákureyri, eftir sigur sinna manna • Pétur Amþórsson, lengst til hægri, skorar mark Fram gegn Þór í Laugardal í DV-mynd Brynjar Gauti gærkvöldi. ái ! 1 u i :\ gegn íslandsmeisturum Fram í Laugardal í gærkvöldi. Þórsarar sigmðu, 3-1, og halda því uppteknum hætti. Þetta er þriðja árið í röð sem Þór sigrar íslands- meistara frá árinu áður í fyrsta leiknum í deildinni. Glæsilegur árangur sem lofar góðu fyrir Þórsara. Jóhannes Atlason, sem er rótgróinn Framari og hefur meðal annars þjálfað liðið, var greinilega mjög kátur eftir leik- inn í gærkvöldi. „Auðvitað var þetta mjög uppörvandi sigur. Og ég var mjög ánægð- ur þegar ég sá að Pétur Ormslev átti að leika í fremstu víglínu hjá Fram. Þá vissi ég að hann yrði í góðum höndum. Og reyndin varð sú að hann var nánast ekk- ert með í leiknum,“ sagði Jóhannes ennfremur. Framarar ná forystunni Framarar byrjuðu nokkuð frískir og voru heldur betri aðilinn á vellinum og náðu forystunni á 37. mínútu. Pétur Ormslev gaf þá fyrir markið á Pétur Am- þórsson sem skoraði laglega af frekar stuttu færi. Lengi vel leit út fyrir að Fram- arar næðu að halda forskotinu til leikhlés en ótrúlega klaufaleg vamarmistök ollu því að Hlynur Birgisson komst inn í send- ingu til Friðriks Friðrikssonar, vippaði knettinum yfir hann og nikkaði honum síðan snyrtilega í markið. Glæsimark Halldórs Tólf mínútum eftir leikhlé var dæmd vítaspyma á Fram eftir að Halldór Áskelsson hafði att kappi við vamarmenn Fram inni í vítateignum. Jónas Róberts- son skoraði úr vítinu en ekki mátti miklu muna að Friðrik næði að verja skot hans. • Það var svo Halldór Áskelsson sem innsiglaði sigur Þórs, þegar 7 mínútur vom eftir, með stórglæsilegu skoti efst í markhomið úr vítateig Fram. • Varnannenn Þórs áttu allir góðan leik, Einar Arason, Júlíus Tryggvason og Árni Stefánsson bestir. Þrátt fyrir að vamarleikmenn Fram hafi fært Þórsumm sigurinn í gær á silfurfati verður ekki lit- ið framhjá þeirri staðreynd að Þórsliðið er líklegt til afreka í sumar. • Margt þarf að bæta i leik Framliðsins og þá sérstaklega vamarleikinn sem var hreint hörmulegur i þessum leik. Þá vant- aði einnig meiri grimmd i sóknina og sú ákvörðun að láta Pétur Ormslev leika í fremstu víglínu reyndist röng. Endur- skoða þarf marga hluti í leik liðsins og Framarar verða greinilega að taka sig saman í andlitinu ætli þeir að halda titlin- um. • Ólafur Lárusson dæmdi leikinn og stóð sig þokkalega. Hann sýndi þeim Guðmundi Val Sigurðssyni, Þór, og Pétri Ormslev gula spjaldið. Áhorfendur 1152. -SK íþróttir i----------------------------1 | Punktar fiá 1. umferð ! íslandsmótsins í gærkvöldi: Sigurður _Vr'.. ' ,_1 _ Jónsson, atvinnumaður hjá Sheffield VVed- nesday, 'var á meðal áhorfenda á leik Akurnesinga og FH-inga í Hafnarfirði í gærkvöldi. Sigurður sá fyrrum félaga sína vinna nokkum heppnissigur og hefði eflaust kosið að sjá meira til Skagamanna í leikn- um. DV-mynd G. Bender Jóhannes braut pípuna Jóhannes Atlason, þjálfari Þórs frá AkurejTÍ, getur orðið æstur eins og aðrir góðir menn og einn besti félagi hans fékk að kenna á því í gærkvöldi. Er hér átt við for- láta reykingapípu sem er oftar í munni Jóhannesar en margt ann- að, að sögn gárunga. Þegar mesti hasarinn gekk yfir í gærkvöldi í leik Þórs gegn Fram sló Jóhannes pípunni of harkalega utan í og hrökk hún í sundui- við miðju. Brá mörgum eftir leikinn þegar Jó- hannes sást totta pípuna og töldu þeir hinir sömu fremri helming hennar í koki kappans. Fyrsta markið á Húsavík allir við meiðsli að stríða. Þetta eru þeir Stefán Jóhannsson, Stefán Amarsson og Sævar Bjamason. I gærkvöldi lék Páll Gíslason í marki KR á Akurevri og þótti stand sig vel. spjöld í 1. umferð Dómaramir sem dæmdu leikina i fyrstu umferð íslandsmótsins í knattspvmu í gærkvöldi höföu í nógu að snúast. í leikjunum fimm var ellefú leikmönnum sýmt gula spjaldið og má það varla meira vera. Enginn leikmaður var rekinn af leikvelli. Sá sem komst næst því var líklega Ian Fleming, þjálfari FH, en hann slapp með skrekkinn. Ellefu Valsmenn fjölmenntu í Garðinn Óli Þór Magnússon. Keflavík. skoraði fyrsta mark 1. deildar í ái- í leik Keflvíkinga gegn Völsungi á Húsavík. Óli skoraði markið á 13. mínútu leiksins. Mark Óla var aðeins lognið á undan storminum því fimm mörk áttu eftir að fylgja í kjölfarið hjá leikmönnum liðanna í gærkvöldi. Óvenjulegt vandamál Gordon Lee, þjálfari KR. á við fremui' óvenjulegt vandamál að stríða þessa dagana. Markverðir þeir sem æft hafa með meistara- flokki hafa lent í meiðslum hver á eftfr öðrum og nú er svo komið að þrír fyrstu markverðir liðsins eiga Stuðningsmenn Vals fjölmenntu í gærkvöldi á leik Vals og Víðis í Gai'ðinum. A meðal áhorfenda voru tveir þingmenn, þeir Albert Guðmundsson og Hreggviður Jónsson. formaðurSkíðasambands íslands. Samkvæmt heimildum DV héldu þeir hvor með sínu liðinu en engu að síður fór vel á með þeim. Þá má geta þess að nokkrir stuðningsmanna Vals máluðu sig hvíta og rauða í framan en ekki dugði það til sigurs í gærkvöldi. -SK Ajldl*! Marteinsson, KR-ingur, meiddist í leik KA og KR á Akureyri í gærkvöldi. Andri þurfti að yfirgefa leikvöllinn um miðjan síðari hálfleik en meiðsli hans eru ekki alvarleg. Hér sjást félagar Andra stumra yfir honum og greinilegt er á svip Andra að ekki er allt með felldu. DV-mynd Gylfi Kristjánsson/Akureyri^j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.