Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Page 20
32
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
Iþróttir dv
„Mjóg gaman
að sjá bolt-
ann í netinu“
KR vann KA á Akureyri, 0-1
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri;
„Bjöm náði að pota boltanum til
mín og ég hitti hann mjög vel, beint
á ristina og það var mjög gaman að
sjá boltann í netinu," sagði Gunnar
Skúlason; ungur nýliði í KR-liðinu, en
hann skoraði sigurmark KR gegn KA
á Akureyri í gærkvöldi í leik liðanna
í 1. deild íslándsmótsins í knattspyrnu
og tryggði liði sínu þar með þrjú dýr-
mæt stig.
Mark Gunnars var eina mark leiks-
ins og kom það á 42. mínútu eftir
sendingu frá Bimi Rafnssyni og Hauk-
ur Bragason markvörður ótti ekki
möguleika á að verja skot Gunnars.
Leikur liðanna var annars tíðinda-
lítill uppi við mörkin og leikmenn
beggja liða áttu erfitt með að hemja
knöttinn vegna roks sem stóð þvert á
völlinn.
• Knötturinn á leiðinni í netið hjá KA eftir skot Gunnars Skúlasonar sem sést á innfelldu myndinni.
DV-mynd Gylfi Kristjánsson/Akureyri
„Urslitin engin endalokfyrir
okkur“
• „Þessi úrslit þýða engin endalok
fyrir okkur. Við náðum ekki að spila
vegna roksins. Við áttum meira í
leiknum og ég hefði vel sætt mig við
jafntefli en ég er vitanlega óhress með
tapið. En þrátt fyrir það er engin ör-
vænting í okkar herbúðum," sagði
Hörður Helgason, þjálfari KA, í sam-
tali við DV eftir leikinn í gærkvöldi.
Andri meiddist
Andri Marteinsson meiddist um
miðjan síðari hálfleikinn og varð að
yfirgefa völlinn. Meiðsli hans munu
þó ekki vera alvarlegs eðlis. Þorsteinn
Guðjónsson var bestur í KR-liðinu og
stóð hann sig mjög vel í vöminni.
Skagamenn vora heppmr
• Hjá KA var Erlingur Kristjáns-
son bestur ásamt þeim Þorvaldi
Örlygssyni og Amari Frey Jónssyni
sem hélt Pétri Péturssyni vel niðri.
- að ná í þrjú stig í Kaplakrika gegn sprækum FH-ingum
„Þetta var geysilega erfiður leikur
en við börðumst vel og uppskárum
eftir því. Það er mjög gott að fara með
3 stigin héðan í kvöld því fyrstu stigin
em alltaf mikilvæg. Við hugsum bara
um einn leik í einu og því vil ég ekki
spá um sumarið en sérhver leikur
verður án efa mjög erfiður," sagði
Guðjón Þórðarsson, þjálfari Skaga-
_manna, eftir að lið hans hafði sigrað
FH í fyrstu umferð 1. deildarinnar í
knattspymu á Kaplakrikavelli í gær-
kvöldi. Skagamenn skomðu eina mark
leiksins og fóru því heim með öll stig-
in en FH-ingar vom óheppnir að ná
ekki í það minnsta jafiitefli.
Skemmtilegur fyrri hálfleikur
Það var greinilegt að taugaspenna
hrjáði bæði liðin í byrjun leiksins og
leikmenn fóm varlega af stað. Á 15.
mfnútu kom fyrsta færið. Falleg send-
ing kom fyrir mark Skagamanna þar
sem Pálmi Jónsson kom aðvífandi og
skallaði yfir markið. En einmitt þegar
FH-ingar virtust vera að ná undirtök-
unum í leiknum skomðu Skagamenn.
Boltinn barst fyrir mark FH en vömin
var illa á verði og boltinn rúllaði fram-
hjá FH-ingum, beint á Heimi Guðjóns-
son sem skoraði auðveldlega ffamhjá
Halldóri markverði. Skömmu síðar
vom FH-ingar nálægt því að jafha en
Birkir, markvörður ÍA, varði meist-
aralega hjólhestaspymu frá Pólma.
Bæði liðin sýndu ágætisknattspymu á
köflum og fyrri hálfleikur var
skemmtilegur á að horfa.
Daufur síðari hálfleikur
I síðaii hálfleik reyndu liðin meira af
löngum sendingum sem ekki gáfust vel og
á köflum var leikurinn nokkuð grófur.
FH-ingar fengu mörg ágætisfæri en vöm
Skagamanna var þétt fyrir og þar fyrir
aftan var Birkir Kristinsson öryggið upp-
málað í markinu. Allt fram á síðustu
mínútu leiksins var hörð sókn að marki
Skagamanna en FH-ingar höfðu ekki
heppnina með sér. Skagamenn fögnuðu
því innilega þegar flautað var til leiksloka
og 3 stig í höfn.
„Strákamir vom heppnir að vinna leik-
inn, FH-ingar áttu jafntefli skilið í þessum
leik. Mér líst mjög vel á 1. deildina í sum-
ar og ég vona að liðin eigi eftir að sýna
góða leiki," sagði Sigurður Jónsson, knatt-
spymuhetja af Skaganum og leikmaður
Sheffield Wednesday, í samtali við DV efh
ir leikinn.
Lið ÍA sýndi mikla baráttu í leiknum
og liðið lék ágætlega í fyrri hálfleik en
bakkaði mikið í seinni hálfleik og hélt
fengnum hlut. Vömin var sterk allan tím-
ann og Birkir átti stórgóðan leik í mark-
inu. Liðið er til alls líklegt í sumar en
margir stórefnilegir leikmenn leika nú með
liðinu í fyrsta sinn. FH-ingar geta nagað
sig í handarbökin fyrir að hafa tapað þœs-
um leik. Liðið fékk mörg góð marktæki-
færi en framheriamir vom ekki á
skotskónum. Liðið sýndi góðan samleik á
köflum og vann vel sem heild en það er
ekki nóg því leikir vinnast ekki nema að
skomð séu mörk.
Skotinn Ian Fleming lék sinn fyrsta leik
fyrir FH og stóð sig vel sem aftasti maður
en mætti nöldra minna í dómaranum enda
fékk hann gult spjald fyrir vikið. Kristján
Hilmarsson barðist mjög vel á miðjunni
og Pálmi vann vel frammi en fór illa með
dauðafærin. Dómari var Eysteinn Guð-
mundsson og leyfði hann of mikla hörku
á köflum en dæmdi annars ágætlega í
heildina.
Gul spjöld: Leifur Garðarsson og Ian
Fleming, FH, og Sigurður Lárusson, ÍA.
-RR
• Mjög góður dómari var Óli Olsen
og sýndi hann þeim Þorsteini Guð-
jónssyni, KR, Jósteini Einarssyni, KR,
og Þorsteini Halldórssyni, KR, gula
spjaldið.
-SK
i Punktamót i
Punktamót í golfi, fyrir kylfinga |
I undir 21 árs aldri, fer fram hjá .
| Golfklúbbi Reykjavíkur á morgun, |
■ laugardag, og hefst klukkan eitt. ■
• Heimir Guðjónsson skoraði sigurmark ÍA í Hafnarfirði gegn FH og hér er knötturinn kominn í netið og Skagamenn fagna.
DV-mynd G. Bender
Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma: Sunnuvegur 15,1. hæð og 'A kj., þingl. eigandi Svanhildur Gunn- arsdóttir, mánud. 25. maí 1987 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur em Steingrímur Þormóðsson hdl. og Jón Þóroddsson hdl. Hjaltabakki 16, 2.t.v., þingl. eigandi Þorbjöm Jónsson, mánud. 25. maí 1987 kl. 11.00. Úppboðsbeiðendur em Landsbanki íslands, Ámi Guðjónsson hrl., Búnaðarbanki íslands, Bjöm Ólafur Hall- grímsson hdl., Jón Magnússon hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Útvegsbanki Islands, Ámi Einarsson hdl., Veðdeild Landsbanka Islands, Jón Finnsson hrl., Jón Ingólfsson hdl. og Ólafior Axelsson hrl.
BORGARFÓGETAEMBÆ'ITIÐ í REYKJAVÍK.
Brávallagata 14, kjallari, þingl. eigandi Sigurður Guðjónsson o.fl., mánud. 25. maí 1987 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimt- an í Reykjavík og Ólafur Gústaísson hrl. Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma:
Hverfisgata 106 A, 4. hæð, þingl. eigandi Sigurður Egilsson og Guðbjörg Valdimarsd., mánud. 25. maí 1987 kl. 16.00. Uppboðs- beiðendur em Ævar Guðmundsson hdl. og Guðjón Armann Jónsson hdl.
Einarsnes 76,1. hæð og ris, þingl. eigandi Bjami Bjamason o.íl., mánud. 25. maí 1987 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Njörvasund 3, þingl. eigandi Gunnar P. Sigurðsson, mánud. 25. maí 1987 kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Guðrúnargata 9, e. hæð og ris, þingl. eigandi Steinunn Fnðriks- dóttir, mánud. 25. maí 1987 kl, 16.30. Uppboðsbeiðandi er Útvegs- banki Islands. Boðagrandi 7,10. hæð A, þingl. eigandi Hrafii Sigurðsson, mánud. 25. maí 1987 kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykja- vík.
Reykás 37, íb. 0101, tal. eigandi Kristján Friðriksson, mánud. 25. maí 1987 kl. 14.15. Úppboðsbeiðendur em Ásgeir Thoroddsen hdl., Guðmundur Jónsson hdl., Ámi Grétar Finnsson hrl. og Bergur Obversson hdl.
Gunnarsbraut 40, efri hæð m.m., þingl. eigandi Ásbjöm Magnús- son, mánud. 25. maí 1987 kl. 16.15. Uppboðsbeiðandi er Landsbanki íslands. Grettisgata 61, hL, þingl. eigandi Ólafur Lárus Baldursson, mánud. 25. maí 1987 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykja- vík.
Krummahólar 4, 8. hæð D, talinn eigandi Sigurður V. Sveinsson, mánud. 25. maí 1987 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur em Ari ísberg hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Hátún 10, þingl. eigandi Öryrkjabandalag íslands, mánud. 25. maí 1987 Id. 10.45. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK.