Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Page 32
44
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Sósser Krag
hefur orðið að leggja vinnuna á
hilluna - um stundarsakir að
minnsta kosti. Nýlega var vitnað
hér á síðum Sviðsljóssins í vital
Sosser við ferðaekkjuna Janni
Spies en þessi hressi blaðamað-
ur en nú óvinnufær af völdum
MS-sjúkdómsins sem fór að
láta á sér kræla hjá henni með
alvarlegum lömunarköstum
strax um síðustu jól. Hún er
samt ekkert á því að gefast upp
og þykir löndum hennar, Dön-
um, sem hún minni mjög á
föðurinn - Jens Otto Krag -
hvað skapstyrk snertir. Þessa
dagana er Sosser í sveitasæl-
unni með móðurinni, Helle
Virkner Krag, og þjálfar hún lík-
amann daglega til þess að ná
fullum styrk í hendur og fætur
Jannike
Björling
er í slæmu máli um þessar
mundir. Fyrir nokkrum dögum
fór Björn með soninn Robin í
heimsókn til foreldra sinna sem
búa í Mónakó. Sama dag flutti
Jannike Björling í íbúðina þeirra
sem er í miðborg Stokkhólms
til þess að vera nær fjölskyldu
og vinum. Þegar svo Jannike
sást aftur og aftur á hinum ýmsu
diskótekum með yngri systur
sinni og fjölda vinkvenna tóku
blöðin við sér - Jannike og
Björn Borg hlutu að vera endan-
lega skilin. Nú er unnið hörðum
höndum að því að bera sögu-
sagnirnar til baka en heima
bíður unga frúin þess að eigin-
maður og sonur snúi heim aftur
frá Mónakó.
Anna
Bretaprinsessa
þykir líkjast móður sinni, Elisa-
betu, með hverju árinu sem
líður. Það eru ekki einungis and-
litsdrættirnir sem minna á
hvaðan eggið kom upphaflega
heldur er fatavalið oft á tíðum
alveg það sama. Hið hefð-
bundna höfuðfat þeirra kon-
unglegu - að kórónunni slepptri
- er slæðan gamla og góða sem
bundin er vandlega undir hök-
una. Fyrir nokkrum vikum fór
hin konunglega hersing á hest-
bak og þar mætti Anna með
nýja slæðutegund sem aflöng
reyndist I sniði þannig að hyrnu-
brotið var óframkvæmanlegt að
þessu sinni. Nýbreytnin telst
bylting í höllinni.
Heimuriim brosir við Bumett
Gamanleikkonan sívinsæla -
Carol Burnett - er komin í sviðsljó-
sið á nýjan leik eftir örskamma
hvíld. Hún var reyndar svo vinsæl
í Bandaríkjunum fyrir þættina
sína, Carol Bumett Show á árun-
um ’67-’78, að gagnrýnendur töldu
Carol Burnett ókrýndan arftaka
Danny Kaye.
Síðustu árin hefur Carol haft
hægara um sig en áður vegna erfið-
leika á heimavígstöðvum - sem nú
em afstaðnir. Tveir skilnaðir eru
að baki og hún situr nú við skriftir
með elstu dóttur sinni, Carrie, sem
er tuttugu og þriggja ára gömul.
Carrie lenti í feni eiturlyfja og
vímuefnaneyslu þegar hún var
þrettán ára gömul en þær mæðgur
segjast hafa unnið í viðureigninni
við alkóhólismann.
„Það erfiðasta sem ég hef nokkru
sinni upplifað voru erfiðleikar
dóttur minnar," segir Carol.
„Sjálf vissi ég allnokkuð um
þennan sjúkdóm því báðir foreldrar
mínir vom illa haldnir af honum.
Þegar börnin lenda svo í sama fen-
inu er þetta helmingi sárara en það
er mikilvægt að gefast ekki upp.“
Dóttir Carol var lögð inn | með-
ferðarheimili til langdvalar og
þurfti að skipta um stofnun einu
„Það er engin ástæða til þess að gefast upp fyrir erfiðleikunum," segir Carol Burnett.
sinni. En hún komst út úr erfiðleik- einu danshlutverkanna. Síðan eru í þeirri von að það geti hjálpað ein-
unum og tók meðal annars þátt í liðin tíu ár og ætla mæðgurnar hverjum sem eiga við sama sjúk-
myndinni Fame þar sem hún var í núna að gefa út bók um reynsluna dóm að stríða.
Þvottadagur
hjá
páfa
Hætt er við að launaflokkaspekingar rækju upp stór augu
við yfirlestur starfslýsingar páfans sem nú situr í Róma-
borg. Jóhannes Páll átti ákaflega annríkt um daginn því
að við messu í Péturskirkjunni þurfti karlinn að þvo eina
tuttugu og fjóra prestsfætur - sem gera einar tvö hundruð
áttatíu og átta tær. Að því loknu varð að kyssa á þennan
ágæta líkamspart hinna hálfheilögu fulltrúa almættisins á
jörðu niðri. Það er því deginum Ijósara að páfar þurfa að
vera sæmilega hraustir í hnjám og baki til þess að þola
álagið en ekki er alveg Ijóst hvaða verkalýðsfélag gerði
tilkall til starfa páfans hérlendis. Sagt er að Sóknarkonur
hafi málið til athugunar.
Gitte er gróin
sára sinna
Danir anda nú léttara eftir að ein þeirra vinsælasta söngkona - Gitte
Hænning - er komin fram á sjónarsviðið aftur. Hún hefur ekki sést opin-
berlega í marga mánuði og gengu um það sögur að Gitte væri illa
afskræmd í andliti eftir hundsbit.
Forsaga málsins er sú að þegar Gitte var að skilja við sinn þýska eigin-
mann réðst einn hundurinn þeirra á hana og beit illa í andlitið. Ekki
er ljóst hvað olli þessu en talið er að hundurinn hafi ætlað að reyna að
ná af Gitte töskunum.
Sárin voru það slæm að læknar vildu ekki sauma þau saman fyrr en
að sex mánuðum liðnum og meðan Gitte beið meðferðarinnar mögnuðust
sögusagnirnar. Á tímabili var talið að andlitið væri gereyðilagt og hún
myndi aldrei koma fram aftur opinberlega. En biðin er á enda - Gitte
Hænning hélt tónleika fyrir troðfullu húsi og ljóst var að ekkert var að
andlitinu dýrmæta. Gitte sjálf var hin hressasta og sagði að jafnvel örin
eftir sauminn væru að mestu leyti horfin. Og frændur vorir Baunar hafa
tekið gleði sína að nýju.
Vinsælasta söngkona Danmerkur er komin fram á nýjan leik - löndum
sínum til mikillar huggunar.