Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Page 10
10 FIMMTUÐAGUR 4. JUNI 1987. Uflönd Akvörðun Volckers á sér margar orsakir Paul Volcker. bankastjóri banda- ríska seðlabankans. sem tilkynnt hefur að hann muni láta af embætti í haust. iysti því yfir við blaðamenn í vikunni að persónulegir hagir hans væru helsta forsenda þessarar á- kvörðunar. Hann tók þó fram að aðrir þættir hefðu haft áhrif á niður- stöðu sína en tiltók ekki hverjir þeir væru. Fréttaskýrendur velta því nú f>TÍr sér hvaða orsakir liggja því til grundvallar að Volcker neitar að halda áfyam starfi sem hann hefur náð verulegtmt árangri í. Lióst er að ástæðurnar eru margar. en jafn- ffamt er þá reynt-að leita svara um mikilvægi hverrar og einnar. Erfiður fjárhagur Ljóst er að ákvörðun Volckers byggist að miklu ley.ti á stöðu per- sónulegra mála hans. Eiginkona hans býr í New York og mun hún vera óánaígð með búsetu bóndans í Washington DC. Setti hún sig til dæmis rnjög á móti því að hann tæki að nýju við embætti árið 1983 þegar fvTstaskipunartímabil hans var úti. Þá mun fjárhagsstaða bankastjór- ans vera erfið. Hann fór úrstarfi þar sem hann hafði allt að milljón doll- ara árstekjur. þegar Jimmy Carter. þáverandi Bandaríkjaforseti.skipaði hann seðlabankastjóra 1979. Síðan þá hefur hann helgað bankanum líf sitt allt og látiðsér nægja tiltölulega lág laun. miðað við þær skuldbind- ingarsem hann hefur. A þessum átta árum hafa því safnast upp íjárhags- legir erfiðleikar.sem hann mun eiga erfitt með að láta afskiptalausa leng- ur. Óánægður með árangur Flestir fféttaskýrendm- telja þó að óánægja Volckers með ffammistöðu n'kisstjómar Reagans foseta í efha- Ronald Reagan Bandríkjaforseti tilkynnir aö Paul Volcker (til hægri) muni í haust og aó Alan Greenspan (til vinstri) muni taka viö af honum. hagsmálum. sérstaklega að ekki hefur náðstsamkomulag um aðgerð- ir til að draga úr halla á fjárlögum ríkisins. eigi drjúgan þátt í ákvörðun hans. Þá mun Volcker ennfremur vera mjög óánægður með bankastjóm seðlabankans. eins og hún er nú skipuð. Þar eiga nú sæti lítt reyndir menn. hafa samtak ekki nema sex eða-sjö ára reymslu afstarfi viðseðla- bankann, og segja kunnugir að Volcker hafi þótt erfitt og óþægilegt að starfa með þeim. Allir eru þeir skipaðir af Reagan forseta. Óttast margir að reynslulevsi bankastjómarinnar eigi eftir að valda erfiðleikum, einkum eftir að láta af embætti seólabankastjóra - Símamynd Reuter Volcker lætur af embætti, því þar hafi enginn reynslu til þess að tak- ast á við þau vandamál ag þá óvissu sem fr amundan er í efnahagsmálum. Ætlaði út1985 Volcker ætlaði raunar ekki að gegna embætti út þaðskipunartíma- bil sem nú er að enda. Þegar hann var endurskipaður 1983sagðist hann ekki ætla að vera í embætti lengur en tvö ár í viðbót. Þegar Donald Regan lét af emb- ætti fjármálaráöherra Bandaríkj- anna ákvað Volcker að sitja áffam íseðlabankanum. Þeir Regan elduðu oft grátt silfitr ag voru ósammála um nánast alla hluti. Hins vegar mun Volcker hafa litist vel á að starfa með James Baker sem tók við af Regan sem fjármálaráðherra, en þeir tveir voru sammála um nauðsyn þess að ráðast gegn vandamálum vegna erlendra skulda og vegna hárrar skrásetningar Bandaríkja- dals. James Baker hefur ítrekað reynt að fá Volcker til að halda áffam eitt tímabil tO viðbótar en án árangurs, því seðlabankastjórinn virðist ákveðinn í að hætta. Viðbrögð við þessari ákvörðun Volckers hafa verið flest á einn veg. Mörg ríki Mið- og Suður-Ameríku sjá við brottför hans á bak velvildar- manni sem oft beitti áhrifum sínum til þess að auðvelda þeim þunga skuldabyrði. Þegar skuldafen Mex- íkó yfirþyrmdi stjómvöld þar í landi, árið 1982, var það til dæmis Volcker sem fjármálaráðherra landsins leit- aði til ffemur en bandaríski fjár- málaiáðherrann. Auk Mexíkó hafa stjómvöld í Brasilíu og Venezúela þegar lýst áhyggjum sínum vegna mannaskipt- anna í bandaríska seðlabankanum. Viðbrögð annarra, svo sem stjóm- valda í Argentínu, Panama og Perú, hafa hins vegar verið Volcker lítt vinsamleg. Viðbrögð annars 'staðar í heimin- um hafa yfirleitt verið þau að áhyggjum er lýst vegna hugsanlegra breytinga ástefhu Bandaríkjastjóm- ar og þá helst að hún komi til með að harðna. Stefnubreytíng talin ólíkleg á næstunni * Talið er ólíklegt að skipun Alan Greenspan í emhætti bankastjóra seðlabanka Bandaríkjanna muni valda einhverjum skyndilegum eða stórvægilegum breytingum á stefnu bankans eða ríkisstjórnar. Green- span er íhaldssamur hagffæðingur og er talinn líklegur til þess að halda áffam að þrengja hægt að í lánamál- litinn pening G P SKE.K UNNI íiA SIMI !)l B 47 Ö8 um. í þeim tilgangi að halda aftur af verðbólguótta og styrkja dollar- ann á alþjóðamarkaði. Um leið og Reagan forseti til- kynnti að Paul Volcker myndi. ekki taka að sér að gegna embætti seðla- bankastjóra eitt tímabil til viðbótar og mvndi því hætta störfum í haust skýrði hann frá því að Alan Green- span hefði verið útneíhdur sem arftaki Volckers. Misjöfn viðbrögð Greenspan er tiltölulega hefð- bundinn íhaldsmaður og talið er að hann muni feta svipaða troðninga og Volcker, forveri hans, gerði. Hann var helsti efnahagslegi ráð- gjafi Geralds Ford Bandaríkjafor- seta ffá þvf í september 1974 fram í janúar 1977. Flestir telja að hann muni leggja megináherslu á aðgerðir gegn verðbólgu og að ná samstöðu um aðgerðir gegn fjárlagahalla. Viðbrögð við útnefningu Green- span hafa verið nokkuð misjöfn. Margir bankamenn telja að þótt nýi bankastjórinn verði líklega um flest svipaður forvera sínum muni hann stefha meir í átt til ftjálsræðis í bankamálum. Eru þeir því fremur jákvæðirgagnvart útnefningu hans. James Wright, forseti fulltrúa- deildar bandaríska þingsins, hefur hins vegar lýst áhyggjum sínum ydir að sú stefna, sem Greenspan fylgir í efhahagsmálum, hafi tilhneigingu til að auka verðbólgu. Þrátt fyrir þessar efasemdir deild- arforsetans er búist við að öldunga- deild þingsins samþykki útnefningu Greenspans án verulegra erfiðleika. Leiðtogi repúblikana í öldungadeild- inni, Robert Dole, telur að forysta seðlabankans verði í góðum höndum eftir mannaskiptin, ekki síður en fyrir þau. Tekur hann þar til þekk- ingu Greenspan á efnahagsmálum og reynslu hans í starfi með æðstu stjórn lansins. Erfitt hlutverk Talið er að það verði erfitt fyrir Greenspan að taka við bankastjóra- embættinu. Volcker hefur notið Alan Greenspan tekur nú viö af Paul Volcker sem bankastjóri seðla- banka Bandaríkjanna. _ Simamynd Reuter mikillar virðingar, jafnt utanlands sem innan Bandaríkjanna. Óttast bandarískii' fjármálamenn nú að Greenspan muni ekki geta tekið mál jafn föstum tökum og forveri hans, að hann verði ekki jafn afgerandi í embættisákvörðunum. ■Þegar Volcker tók við embætti var hann þegar þekktur um allan heim og naut trausts flestra. Greenspan verður hins vegar ekki aðeins að sanna bæði hæfhi sína og sjálfstæði heldur jafhframt að fýlla skarðið eft- ir einn virtasta og áhrifamesta cmbættismann nútímans. Hans bíður því erfitt. hlutverk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.