Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Page 11
FIMMTUDAGUR 4. JUNI 1987.
11
Útlönd
Miklar tilfærslur á fylgi flokkanna
Jón Ormnr HaUdórssan, DV, TVmrinTr
í gærkvöldi voru birtar niðurstöður
fjögurra skoðanakannana í Bretlandi
sem gerðar voru á vegum stórra stofii-
ana og sýna þrjár þeirra vaxandi fylgi
Verkamannafiokksins nú þegar rétt
vika er til kjördags.
Nýjust þessara kannana var könnun
Gallups sem fór fram í gærdag og náði
til tvö þúsund og fimm hundruð
manna úrtaks. Niðurstöður hennar
voru þær að íhaldsflokkurinn nyti nú
stuðnings 40,5 prósenta kjósenda,
Verkamannaflokkurinn 36 prósent og
kosningabandalag fijálslyndra og
jafhaðarmanna 21,5 prósent.
I síðustu viku sýndu kannanir
Verkamannaflokkinn með 34 prósent
atkvæða og íhaldsflokkirm með 43
prósent. Munurinn á flokkunum hefur
því minnkað úr 9 prósent í 4,5 prósent
á einni viku ef marka má þessar kann-
anir.
Könnun Gallup stofnunarinnar gaf
einnig skýringar á þessum miklu til-
færslum á fýlgi flokkanna. Er kjósend-
ur voru spurðir hver af Ieiðtogum
flokkanna hefði haft mest áhrif á við-
komandi með baráttu sinni undan-
famar vikur fékk Neil Kinnock
Simamynd Reuter
atkvæði 40 prósent aðspurðra en
Thatcher aðeins 23 prósent.
Könnunin sýndi ennfremur veikustu
punkta hvers flokks en flestir þeirra
sem ekki ætluðu að kjósa Verka-
mannaflokkinn nefiidu stefriu flokks-
ins í vamarmálum sem skýringu þess.
Flestir andstæðingar íhaldsflokksins
nefiidu stuðning flokksins við hina
ríku í landinu sem skýringu á and-
stöðu sinni við flokkinn.
Þessar nýjustu kannanir .ásamt
þeirri könnun sem birt var í fymæ
kvöld og Ieiddi í ljós meiri fylgisaukn-
ingu Verkamannaflokksins í
baráttusætum í London og Norður-
Englandi en í landinu öllu hafa sett
aukna spennu í kosningabaráttuna.
Fyrir fáum dögum virtist ekkert geta
stöðvað yfirburðasigur Dialdsflokks-
ins sem kannanir spáðu þá allt upp í
140 þingsæta meirihluta.
Flestir spá enn sigri íhaldsmanna en
spár um meirihluta flokksins hafa
lækkað stórlega síðustu tvo til þrjá
daga. Þrátt fvrir sókn Verkamanna-
flokksins síðustu daga sýnist þó afar
hæpið að flokkurinn eigi möguleika á
meirihluta á þingi. Það sem fellt gæti
stjóm Thatcher væri fylgisaukning
kosningabandalagsins í Suður- og
Vestur-Englandi á síðustu dögum
kosningabaráttunnar en sem stendur
er flokknum spáð aðeins 20 þingsætum
af 650 vegna einmenningskjördæma-
skipunar. Þessi tala gæti hins vegar
hækkað mjög verulega ef flokkurinn
bætti við sig aðeins fáum prósentustig-
um á næstu dögum.
MARSHAL
TEPPÆDEKK
3M5
Ý.eS^'o
>|\0
30x9,5x15 Verð kr. 7.836
31x10,5x15 Verð kr. 8.493
33x12,5x15 Verð kr. 8.970
35x12,5x15 Verð kr. 9.890
700x15 Verð kr. 5.440
750x16 Verð kr. 6.369
Gott verð og mikil gæði
eru okkar markmið.
Góð greiöslukjör.
CfPorsteinsson
Xfohnson hf. ARMÚLI 1 105 REYKJAVÍK
Símar - 687377 685533
BORGARSKRÁIN í NÝJUM BÚNINGI
í ÁR KYNNUM VIÐ EFTIRTALDAR NÝJUNGAR!
Götukort og fyrirtæki á Suðurnesjum,
Selfossi, Hveragerði, Akranesi, Akureyri
og nágrenni.
Öll fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og
á ofantöldum þéttbýlisstöðum verða
skráð.
Fyrirtæki skráð í götu- og númeraskrá.
Götunúmer sett inn á kort.
Auknar millivísanir.
Betri upplýsingar til ferðamanna.
Notandinn sparar tíma, fé og fyrirhöfn
vegna þess að í GULU BÓKINNI er hann
fljótari að finna fyrirtæki og þá þjón-
ustu sem hann þarf á að halda.
Fyrirtæki fá hér einstakt tækifæri til að
kynna betur starfsemi sína og um leið
auka þjónustuna við notendur.
a lO&d
VSCt M-OtU,
Eintaki af GULU BÓKINNI verður dreift
ókeypis á hvert heimili í landinu, af
Pósti og síma fljótt og vel.
Aukaeintök verða seld.
V**®3
■ ■ - TL v.o**^1* '...»
____
HÚNER
/
^vart á fantu