Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Side 16
16
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987.
Spumingin
Lesendur
Ertu í sólskinsskapi
sumarblíðunni?
í
Marianna Friðriksdóttir afgreiðslu-
stúlka: Vissulega er ég það. Það er
búið að vera alveg indælis veður og
maður biður og vonar að þetta sumar
verði eins gott og það síðasta.
ísbúð: Varla. því ég vinn inni og mér
finnst alveg hryllilegt að vera lokuð
inni í svona góðu veðri. ég læt mig
nú samt hafa það. Maður fer bara í
gott skap. nánartiltekiðsólskinskap.
þegar það hlýnar svona í veðri.
í
Árelíus ? íelsson prestur: Auðvitað
ég er alltaf í sólkinsskapi hvernig svo
sem viðrar. Eg veit að sólin er bak
við sk; in hvort sem ég sé hana eða
ekki. það heldur manni í sólskins-
skapi.
Jón Sigurjónsson, starfar hjá Reykja-
víkurborg: Jú. alveg tvímælalaust.
Sumarblíðan léttir. kætir lund. Það
er búið að vera svo frábært veður
að ég vona bara í lengstu lög að það
verði eins gott og síðasta sumar.
Stjómarmyndun:
Nægir að styrkja
núverandi stjóm
Lárus skrifar:
Eftir það sem á undan er gengið i
stjórnarmvndunarviðræðum virðist
liggja nokkuð ljóst fyrir að mjög örð-
ugt ætlar að reynast að koma á
laggimar nýrri stjóm sem hefur næg-
an styrk en þó umfram allt styrk
landsmanna til að takast á við þau
málefni sem brenna hvað heitast á
þjóðarbúinu.
Héðan í frá mun fólk ekki líta mjög
til Alþýðubandalagsins um þátttöku i
ríkisstjórn og Kvennalisti mun varla
teljast nógu málefnalegur til að takast
á við stærstu vandamálin.
Alþýðuflokkurinn á við forystu-
vandamál að etja að því leyti að
formaður flokksins t.d. er svo andsnú-
inn samvinnu við Framsóknarflokk
að varla rætist lú' þeim samskipta-
vanda í bráð. Einkum þar sem
samskiptavandinn virðist líka vera
gagnkvæmur milli þessara tveggja
flokka.
Xú sem stendur er hér ríkisstjóm
þótt til bráðabirgða sé. Og er það sú
stjórn sem hvað mesta lýðhylli hafði
ef marka má skoðanakannanir sem
gerðar voru á meðan hún sat sem kjör-
in stjórn.
Flestir virðast einnig vera þeirrar
skoðunar að Steingrímur Hermanns-
son sé sá aðili sem hvað mesta lýðhylli
hafði ef marka má skoðanakannanir
sem gerðar vom meðan hún sat sem
kjörin stjóm.
Flestir virðast einnig vera þeirrar
„Flestir virðast vera þeirrar skoðunar
að Steingrímur Hermannsson sé sá
aðili sem hvað best geti valdið emb-
ætti forsætisráðherra af þeim flokks-
foringjum sem til er að dreifa nú.“
skoðunar að Steingrímur Hermanns-
son sé sá aðili sem hvað best geti
valdið embætti forsætisráðherra af
þeim flokksforíngjum sem til er að
dreifa nú.
En hængurinn er sá að þessi stjóm
sem nú situr hefur ekki meirihluta
nema fá til liðs við sig stuðningsmann
eða menn á þingi og sem er ekki ætíð
treystandi á.
Og úr því að almenningur hafði
traust á þessari ríkisstjóm og einnig
forsætisráðherra og myndi sennilega
ekkert frekar vilja en hann stýrði
þeirri næstu þá er eftirleikurinn auð-
veldur. Hann er sá að Framsóknar-
flokkurinn standi að myndun næstu
stjómar - eða eigum við að segja
áframhald á núverandi stjóm Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisfiokks með
fúllum liðsstyrk og þar á ég við að
Albert Guðmundsson komi inn á ný
til liðs við sinn gamla flokk.
Borgaraflokkurinn er nú einu sinni
samnefoari fyrir Albert Guðmundsson
og með endurkomu hans í Sjálfstæðis-
flokkinn væri ekkert því til fyrirstöðu
að mynda nýja ríkisstjórn undir for-
sæti Steingríms Hermannssonar á ný.
Hvað sem líður undangengnum deil-
um og írafári er þetta lausn að skapi
meirihluta kjósenda og þannig fengist
sterk stjóm sem gæti starfað óhindrað
allt næsta kjörtímabil.
Öll önnur samsetning næstu ríkis
stjómar er varhugaverð og verður
ekki langlíf, kosningar í bráð er ekki
það sem fólk óskar eftir, eða hvað?
Allt vitlaust:
Stórkost-
leg sýning
Berglind Hannesdóttir hringdi:
Ég var mjög-ánægð með sýninguna
Allt vitlaust á laugardagskvöldið í
Broadway.1! Þetta er virkilega vönduð
sýning í atya staði, hressir skemmti-
kraftar er nvergi gáfu eftir.
Maður er njssa hvað það hefúr verið
hljótt um þessa sýningu þvi hún á
mikið lof skilið.
Þetta var í einu orði sagt stórkostleg
sýning er flestir ef ekki allir áhorfend-
ur virtust hafa mjög gaman af.
„Allt vitlaust er virkilega vönduð sýning í alla staði, hressir skemmtikraftar er
hvergi gáfu eftir.“
Óætur matur á Hótel Örk
skapi. Það er búið að vera svo fallegt
veður, það mætti kannski vera örlít-
ið hlýrra.
Pétur Haraldsson kaupmaður: Já
eflaust er maður það. Svona á veðrið
að vera.
Guðlaug Aðalsteinsdóttir, 2942-3607,
hringdi:
Við fórum 12 manns á Hótel Örk í
mat og einróma álit okkar var vondur
matur og litlir matarskammtar.
Ég var svo óánægð með matinn að
ég teldi hann ekki hundum bjóðandi.
Og aðra eins matarskammta hef ég
aldrei séð, allt sem var borið fram var
skorið við nögl, maður hefði þurft að
borða áður heima hjá sér til þess að
verða saddur eftir máltíðina.
Nógu mikið þurfti maður að borga
fyrir þetta óæti, hvorki meira né
minna en 1370 kr. á mann. Ég sé mig
tilneydda til að segja frá þessu því ég
hef aldrei á ævinni bragðað annað
eins.
Varið ykkur á sölumönnunum
„Eg vil vara við sölumönnum sem ganga í hús og selja slökkvitæki og sjúkra-
kassa. Þessir aðilar selja vörurnar miklu dýrari en nákvæmlega sama vara
kostar úr búð.“
Húsmóðir hringdi:
Ég vil vara við sölumönnum sem
ganga í hús og selja slökkvitæki og
sjúkrakassa. Að því er ég best veit eru
þetta sömu mennimir og voru stopp-
aðir austur í sveitum í fyrrasumar
vegna óeðlilegra söluhátta.
Þessir aðilar selja vömrnar miklu
dýrari en sömu vömr kosta úr búð.
Ég var svo grandalaus að ég lét glepj-
ast og keypti í sakleysi mínu slökkvi-
tæki og sjúkrakassa á 5200 kr. Seinna
rakst ég á nákvæmlega eins slökkvi-
tæki í verslun einni á 1500 kr og
stærsti sjúkrakassinn var á 2000 kr
en hann var mun stærri en sá sem
mér var seldur og einnig innihélt hann
lyf sem ekki voru í mínum.
Ég vil því vara fólk við, það er betra
að vera á varðbergi þegar um þessa
gæja er að ræða sem koma vel fyrir
og telja manni trú um að maður sé
að gera voða góð kaup. Ég lét blekkj-
ast, látið það ekki henda ykkur líka.
Fullnægingar-
námskeið
fyrir karimenn!
Lesandi hringdi:
í tilefni af Dagfara þar sem verið
er að gera grín að fúllnægingar-
náraskeiðinu langar mig að leggja
orð í belg. Núna virðist ekki gert
annað en að ræða um þetta nám-
skeið og þá alltaf S gríni því fólk
er of feimið og bælt og getur ekki
viðurkennt fyrir sér að það er mjög
algengt að fólk eigi við þennan
vanda að glíma og þá sérstaklega
konur.
Mér finnst svona fullnægingar-
námskeið skref í rétta átt en tel
þó vera miklu meiri þörf fyrir slík
námskeið fyrir karlmennina af því
að karlmaðurinn þarf að læra á
konuna. Ég veit um fjöldann allan
af konum sem ekki hafa fengið
fullnægingu með sínum mönnum
en þær hafa einfaldlega ekki þorað
að segja manninum sínum frá því
vegna þess að þeim þykir vænt um
þá og vilja ekki særa þá.
Því vona ég að karlmönnum
verði boðið upp á svona fúllnæg-
ingamámskeið líka, staðreyndin
er sú að þeir hafa meiri þörf fyrir
það-________________________
Leigubflahallæri
E. J. hringdi
Mér hefur alltaf verið fyrirmun-
að að skilja starfshætti leigubíl-
stjóra hérlendis. Um helgar er eins
og allir leigubílstjórar í Reykjavík
forðist skemmtistaði unga fólksins.
Það er helst að fá bíl ef maður
fer í Ártún eða á svipaða staði!
Það hlýtur að vera eitthvað sem
hægt er að gera í þessum málum.
Þetta er kannski sök sér á sumrin
þegar gott er veður, en á vetuma
kemst maður iðulega heim við ill-
an leik, kalinn og kvalinn.
Ég held að leigubílstjórar verði
að reyna að láta það sama yfir alla
ganga. Við unga fólkið þurfum jú
líka að komast heim.
Hreinsið götumar
íbúi i Seljahverfi hringdi:
Það er orðið tímabærtfyrir borg-
aryfirvöld að fara hreinsa götumar
hér í Breiðholtinu og þá sérstak-
lega þar sem ég bý, í Seljahverfmu.
Það er svo mikil synd að þurfa að
vera í rykinu og drallunni og það
líka í svona indælu veðri.
Svona, borgarstarfemenn, brettið
nú upp ermamar og takið til við
að smúla götumar, ekki veitir af.
Ánægjuleg ferð
Hannes Tómasson hringdi:
Við í Félagi eldri borgara fórum
um daginn í ferðalag saman alla
leið vestur á Snæfellsnes. Það var
margt í leið okkar sem þakka ber
og vil ég koma því á framfæri á
lesendasíðunni.
Fyrst stoppuðum við í Borgar-
nesi og fengum þar alveg ljómandi
mat. í Ólafsvík fengum við indælar
og alúðlegar móttökur hjá kvenfé-
laginu á staðnum, þar voru ýmsar
gimilegar kræsingar é boðstólum.
í lokin vildi ég þakka hótelinu í
Stykkishólmi fyrir alveg sérlega
góða þjónustu sem allir kunnu að
meta.
Á tali hjá
borgarfógeta
Guðný Einarsdóttir hringdi:
Ég er orðin dauðleið á að hringja
á skrifetofu borgarfógeta í Reykja-
vík. Það er alveg sama á hvaða
tíma maður hringir, það er alltaf
á tali. Ég eyði heilu klukkutímun-
um í að reyna ná þangað niður
eftir en alltaf er sama sagan, á tali.
Svo loksins þegar maður nær línu
er klukkan orðin þrjú og þá er
búið að loka þannig að það virðist
vera Hfsins ómögulegt að ná sam-
bandi þangað.
Því legg ég til að Hnum verði
íjölgað hjá borgarfógeta svo að
hægt verði að ná sambandi þang-
að. .