Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1987, Page 33
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987. DV Sviðsljós Það er ekki tekið út með sitjandi sældinni að vera toppfígúra. Hérna er járnfrúin, Margrét Thatcher, við störf kröfuhörðu Ijósmyndara. Álagið var of mikið á bakið. Kosningabaráttan er á fullu í Bretlandi núna og Magga foröast það eins og heitan eldinn að láta mynda sig með simpansa. En pandabjörn gengur alveg. Núllnúllsjö og mafían Sean Connery mætti á Loews Astor Plaza með eiginkonuna, Michelin, þegar frumsýningin á nýjustu mynd hans - The Untouchables - fór fram á þriðjudaginn. í filmunni leikur Connery þann sterka irska Malone sem kenn- ir leiðtoga leynilöggunnar hvernig berjast skal við bandíttinn Al Capone. Mafían fær sumsé til tevatnsins vegna aðgerða fyrrum núllnúllsjökappans. Símamynd Reuter Jámfrúin beygir sig Mikið annríki er hjá breska forsætisráðherranum um þessar mundir enda kosningabaráttan í algleymingi. Að ýmsu þarf að hyggja í framkomumálum á opinberum vettvangi og ekki æskilegt að festast á filmu nema yfirborðið henti ímyndinni. Það er alveg tabú fyrir Möggu að myndast til að mynda með simpansa en pandabjörn sleppur í gegnurn nálaraugað. Múrskeið hefði átt að hanga inni líka en það er verra ef bakið á görnlu konunni fer að gefa sig. Þrautirnar taka þó enda því kosningarnar verða vfirstaðnar eftir nokkra daga. Þá tekur við daglegt brauð og fjölmiðlar leggja aðalþungann á önnur mál. Símamynd Reuter Glaöur Elton Rokkarinn og fótboltaliðseigandinn Elton John hampar glaður sigurlaunun- um í Peking. Klúbburinn hans - Watford - sigraði í kínversku Great Wall Cup keppninni á þriðjudaginn. Hann er ljóslega kominn á fætur aftur eftir síðustu krisu - skilnað. evðniótta og önnur safarík hneykslismál á síðasta misseri. Símamvnd Reuter Ólyginn sagði... er orðinn hundleiður á því að sitja á óþaegilegum pinnastólum þegar hann mætir á mikilvægari staði. Hann hefur því ráðið til sin tvo unga herramenn sem eiga að sjá um að hans einkahægindi sé alltaf innan seilingar. Apparatið hefur svo innbyggðan rafmagnsnudd- ara sem sér um að halda Beatty bæði vakandi og í heilsusamlegri stellingu fundinn á enda. Þessi þriggja manna hersing með hæg- f indastólinn I eftirdragi þykir svo ekkert skrýtnari en margt annað sem gerist í henni Hollí. Linda Evans hefur heilmikinn frítíma því að hún þarf engri fjölskyldu að sinna eftir að skyldustörfum í stúdíóinu er lokið. Þann tíma hefur bomban notað til skrifta og eru nú komnar frá henni bækur um bæði fegurð og hreyfingu. Þarna skal þó bætt um betur og er nú doðrantur á leiðinni sem fjallar um matargerð og flest sem því er tengt - eins og hvernig hægt er að vera hinn fullkomni gestgjafi. Þessi siðasta er talin verða ekki síðri sölubók en þær tvær fyrri. Marilyn Monroe fær engan frið fyrir eftirlifendum sem hvorki geta né vilja gleyma hinni dáðu Ijósku. Um hæfileika hennar efast enginn lengur og alls kyns smáhlutir, sem minna á bomþuna í lifanda lífi, seljast eins og heitar lummur. Það nýjasta eru spekúleringar miklar um útlit stjörnunnar ef hún væri á lífi enn- þá og alls kyns teiknisjení hafa spreytt sig á verkefninu. Fæstir hafa þó háar hugmyndir um Mari- lyn þegar dæmið er sett upp á þennan máta - eins og meðfylgj- andi myndarkorn ber glögglega með sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.