Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Page 2
2
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987.
Fréttir r>v
Harastaðir í Dalasýslu:
Harðar deilur um
sólu jarðarinnar
,.Ég tók við búinu fyrir 20 árum og
nú átti að selja jörðina án minnar vit-
undar einhverjum náunga úr Reykja-
vík." sagði Guðmundui' Agnai'
Guðjónsson. bóndi á Harastöðimi á
Fellsströnd í Dalasýslu.
Að sögn Guðmundar telst faðir hans.
Guðjón Sigurðsson. eigandi jarðarinn-
ar en hann vill nú selja f>TÍr áeggjan
bróðm' Guðmundar. Fellshreppur hef-
ur forkaupsrétt og segist Guðmundui'
vona að hreppurinn notfæri sér hann
því að þá eigi hann von um að halda
jörðinni. ..Ef hi-eppurinn kaupir ekki
verður jörðin seld náunganum í
Reykjavík og þá verð ég að fara af
henni 1. október."
Guðmundur sagðist ekki vita hvert
yrði farið en hann myndi ekki gefast
upp fyrr en í fulla hnefana og sækja
rétt sinn með aðstoð lögfræðings. Guð-
mundur telur sig eiga um þriðjung
jarðarinnar en söluverð hennar mun
vera 1.7 milljónir.
..Jörðin var auglýgt f>TÍr 2 árum en
þá gekk ekkert að selja hana. Guð-
mundur afþakkaði þá að kaupa hana
þrátt fyrir að hreppsnefndin væri til-
búin að hjálpa honum," sagði Sigurður
Pétur Guðjónsson. bróðir Guðmundar.
Sigurður segist einungis vera milli-
göngumaður. Faðir sinn vilji selja
jörðina en kaupandi hafi fengist í
gegnum kunningsskap við sig. Alex-
ander Sigurðsson. „Ef Guðmundur vill
kaupa þá er það nýtt. Það hefur verið
vonlaust að tala um það við hann því
hann segist eiga þetta. Ég hafði þess
vegna alveg gefist upp á því. Þess
vegna talaði ég ekki við hann núna,“
sagði Sigurður en bætti því við að ef
bróðir hans gæti lagt fram tryggingu
fyrir greiðslunum þá gæti vel komið
til greina að selja honum jörðina.
Málið verður afgreitt frá hrepps-
nefhd á næstu dögum. Sigurður, sem
situr í hreppsnefhd, var spurður hvort
hann myndi taka þátt í að fjalla um
málið og sagðist hann reikna með
því. „Það hefur tíðkast hér í hrepps-
nefridinni að enginn hefur gengið úr
þegar fjallað hefur verið um svona.
Ég er þó alveg til í að víkja sæti ef
fólki finnst það betra,“ sagði Sigurður
P. Guðjónsson.
JFJ
Dufnaralíið um helgina:
Sigurdúfuna
átb' Már
Már Pétursson, 16 ára gamall,
átti sigurdúfrona í bréfdúfurallinu
sem firam fór á laugardag. Mældist
hún fara á 1001,66 metrum miðað
við hraða á mínútu. í öðru sæti
var dúfa Þóris Eggertssonar og í
þnðja sæti dúfa Björns Ingvars-
sonar. Um helgina birtust önnur
úrslít í þessari keppni, bæði í blöð-
um og útvarpi, en aðstandendur
keppninnar vissu ekki hvemig á
þeim stæði. „Eftir þeim úrslitum
sem birtust hefði keppandi átt að
hafa unnið sem ekki var með í
keppninni. Við teljum þetta alveg
út í hött. Sigurvegarinn átti að
hafa verið sex ára strákur en hann
er fóstursonur Jóns Guðmunds-
sonar, sem f>TÍr löngu var rekinn
úr Dúfharæktarfélaginu," sagði
Ómar Bjamason, einn af aðstand-
endum keppninnar, í samtali við
DV. Hann sagðist vera að fara yfir
klukkumar og samkvæmt þeim
væri röðin eins og áður er sagt.
-ELA
Jón fékk
réttláta
meðferð
Jcm G. Hauksson, DV, Aknreyri:
„Helsta vöm ráðuneytisíns í
máiinu er sú að þrátt fyrir að sýslu-
maður sé bæði dómari og yfirmað-
ur lögreglunnar hafi Jón Kristins-
son fengið réttláta meðferð," sagði
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu. í
morgun um mál Jóns Kristinsson-
ar sem nú er fyrir mannréttinda-
nefhd Evrópu til afgreiðslu.
Nefndin afgreiðir málið í haust til
mannréttindadómstólsins.
Þorsteinn sagði að viðhorf ráðu-
neytisins til þess að aðgreina
dómsvald og framkvæmdavald
væri þó svipað og flestra lögfræð-
inga í landinu, sem er að hafa þessi
völd aðgreind. „Það er reyndar á
stefnuskrá ríkisstjómarinnar að
aðgreina dómsvaldið og fram-
kvæmdavaldið,“ sagði Þorsteinn.
Mál Jóns snýst um það að hann
var tekinn fyrir of hraðan akstur
á sínum tíma á Akureyri og var
þar dæmdur fyrir vikið. „Það fá
allir réttláta meðferð. Það hafa
engir hagsmunaárekstrar komið
upp, ég er þó á því að þetta eigi
að vera aðskilið," sagði Elías I.
Elíasson, bæjarfógeti á Akureyri,
í morgun.
Óvissa síldarsöKun
Slitnað hefur upp úr samninga-
viðræðum við Sovétmenn um kaup
á saltsíld af Islendingum. Þetta
skapar mikla óvissu hér á landi
þar sem síldarvertíðin fer nú í
hönd.
í fyrra skapaðist svipað ástand
og var ósamið um saltsíldarkaup
Sovétmanna langt fram eftir ver-
tíð. Því var síldin söltuð án þess
að vissa væri fyrir því að hún seld-
ist eða á hvaða verði.
Mikil harka er á saltsíldarmark-
aðinum og undirboðum beitt á
báða bóga. Þar hafa Kandamenn
haft sig mikið í frammi. Hafa þeir
látið Sovétmenn hafa fiskveiði-
kvóta í kanadískri landhelgi gegn
því að Sovétmenn kaupi af þeim
saltsfld.
Verð það sem íslendingar krefj-
ast er hærra en það sem Kanada-
menn fá fyrir sína síld. Þó hafa
Svíar gert samning við okkur um
kaup á nokkru magni á því verði
sem síldin er nú boðin Sovétmönn-
um. -ES
Landað í morgun
Það var engin smálúða sem Einar
Halldórsson á Sæbjörgu, 8 tonna
báti, fékk í veiðarfæri sín í gærdag.
Hún er einir 2 metrar á lengd og vó
hvorki meira né minna en 230 pund.
Að sögn kostaði það svita og strit
að draga lúðuna að borði, enda eins-
dæmi að slíkur risafiskur veiðist á
handfæri hér á landi. Henni var svo
landað í morgunsárið í gömlu
Reykjavíkurhöfninni. Það voru þeir
Einar og Gunnar Auðunsson sem
lönduðu ferlíkinu
-Gkr./DV-mynd JAK
Bílvelta í Sandgerði
Bílvelta varð við beinamjölsverk-
smiðjuna í Sandgerði á tólfta tímanum
á föstudagskvöldið. I bifreiðinni var
ökumaður og stúlka sem flutt var á
sjúkrahús en fékk að fara heim
skömmu síðar. Bifreiðin er mikið
skemmd og óökufær. Bílstjórinn var
einnig óökufær þar sem hann var tal-
inn hafa bragðað talsvert áfengi.
Bifreiðin er Toyota bifreið, árgerð ’82.
Alls þurfti lögreglan í Keflavík að
hafa fjórum sinnum afskipti af ölvuð-
um ökumönnum um helgina.
-GKr.
Samkomulag á
Breiðdalsvík
„Fiskverð verður miðað við meðal-
verð hverrar viku á fiskmarkaðnum í
Hafnarfirði, að frádregnum 4 prósent-
um sem er áætlaður kostnaður útgerð-
ar ef fiskinum hefði verið komið á
markað,“ sagði Heimir Hávarðsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Breiðdælinga h/f.
Um helgina náðist samkomulag milli
sjómanna og fiskkaupenda. Heimir
sagði að samningurinn fæli í sér
ákvæði um meðhöndlun aflans um
borð og væri að því leyti nánast sam-
hljóða samningnum frá Fáskrúðsfirði.
„Ég er ánægður með að samkomulag
hefur tekist. Þetta er viss áhætta sem
bæði við og þeir taka því að þetta er
alveg nýtt. Ég hef þá trú að fiskmark-
aðir verði í framtíðinni settir upp í
hverjum landsfjórðungi, hvort sem það
verður uppboðsmarkaður eða fjar-
skiptamarkaður,“ sagði Heimir
Hávarsson.
-JFJ
Samið á Fá-
skrúðsfirði
„Samningarnir eru þannig í aðalat-
riðum að miðað er við meðalverð
hverrar viku á fiskmarkaðnum í Hafh-
arfirði. Þetta er gert sem tilraun í einn
og hálfan mánuð. Undanskilið frá
þessu er þó ýsa, lúða og skötuselur,
þar verður greitt verðlagsráðsverð
með 10% álagi. Þetta eru þær tegund-
ir sem fiskbúðimar hafa keypt,“ sagði
Eiríkur Ólafsson, útgerðarstjóri á Fá-
skrúðsfirði.
Eiríkur sagði að einnig hefði verið
samið um ákveðnar verklagsreglur,
hvemig ganga ætti frá fiskinum við
ísun, röðun, þunga í kassa og fleira.
Þannig fengist bætt vömnýting og
aukin verðmæti. Ef þessum skilyrðum
væm ekki fullnægt væri greitt fyrir
fiskinn sem lausan fisk sem væri 90fyo
af markaðsverði.
Eiríkur sagðist vera feginn að fundin
hefði verði bráðabirgðalausn þó að
honum þætti hún nokkuð byltingar-
kennd, sagði hann menn renna blint
í sjóinn með hana frá báðum hliðum.
Verðið væri búið til annars staðar og
svona frjálst fiskverð ætti ekki við úti
á landi. Hins vegar væri allt í lagi að
sjá hvernig þessi tilraun tækist.
-JFJ
Viðræðumar í Washington:
Fyriikomulag
enn óljóst
Ólafiir Amanon, DV, New Yadc
Enn er mjög óljóst hvemig fyrir-
komulag viðræðna Halldórs Ás-
grímssonar sjávarútvegsráðherra og
íslensku sendinefhdarinnar víð
bandaríska embættismenn verður. I
morgun var ekki orðið ljóst hverja
ráðherrann og samstarfsmenn hans
myndu ræða við né heldur lá fyrir
nein tímaáætlun um fundarhöld
þeirra.
Embættismenn hafa ekki fengist
til að tjá sig um hugsanlegan árang-
ur af viðræðunum og því einnig
óljóst hvort búist er við að hvalveiði-
deila íslands við Bandaríkjamenn
leysist með þessum viðræðum.
Islenska sendinefhdin kom til
Washington á laugardagskvöld,
nema Halldór sjálfur sem kom þang-
að í gærkvöldi.
Sendiráð íslands i Washington
hefur undanfama daga unnið að því
að skipuleggja viðræður ráðherrans
við Bandaríkjamenn og er vonast til
að þeirri skipulagningu ljúki í dag.
Má raunar ekki vera seinna, því við-
ræðumar hefjast á morgun, þriðju-
dag, og búist er við að þeim ljúki á
miðvikudag.