Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Page 7
MANUDAGUR 20. JULI 1987. 7 Utlönd Melanie Finley slitnaði úr björgunartaug þyrlunnar og hrapaði til jarð- ar. Hún lést samstundis. Símamynd Reuter Hrapaði til bana úr líftaug björgunarþyrlu Melanie Finley, fjórtán ára gömul stúlka frá bænum Mesquite í Texas, hrapaði á föstudag til bana úr líftaug björgunarþyrlu við Guadelupe-ána við bæinn Comfort. Melanie var ein þeirra sem lentu í miklu flóði í ánni og var áhöfn þyrlunnar að bjarga henni úr því. Ekki er ljóst hvemig á því stóð að Melanie slitnaði frá líftauginni en talið var hugsanlegt að festing hefði bilað. Langferðabifreið, sem var full af ungmennum i ferð á vegum kirkj- unnar. lenti í flóðinu í Guadelupe og drukknuðu að minnsta kosti sex unglinganna en íjögurra var enn saknað þegar síðast fréttist. Alls vom um fjörutíu manns í langferðabifreiðinni og voru sumir þeirra mjög hraktir þegar tókst að bjarga þeim. Einn ungur piltm’ bjargaðist með þeim hætti að hann náði taki á dádýri. sem var á simdi í ánni. og komst með því að tré sem stóð upp úr vatninu. Þar beið hann síðan þess að björgunarþyrla næði í hann og kæmi honum á þurrt land. Dauðadómurfyrir e'iturtyfjasmygl Dómstóll í Colombo, höfúðborg Sri Lanka, dæmdi á föstudag ungan mann til lífláts fyrir mikið eiturlyfjasmvgl. Er þetta í fyrsta sinn sem Sri Lanka- búi hlýtur dauðadóm fyrir eiturlyfja- smygl en stjómvöld í Sri Lanka hafa hert mjög baráttu sína gegn eiturlyfja- vandanum i landinu og settu meðal annars fvrir þrem árum nýja löggjöf sem herðir viðurlög í slíkum máltmi og ’neimilar beitingu dauðadóma. 1) 2) 3) 4) Nýir rafmagns-teppastandar gera okkur kleift að sýna þér meira og meira úrval af tepparúllum á auðveldari hátt. Á fallegu parketgólfínu taka stöku teppin sig sérlega glæsilega út. Bætt vinnuaðstaða auðveldar afgreiðslu og betri þjónustu. JL-teppadeild: Greiðslukjör gerast varla betri. RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND FTW BYGGIMGAVÖRURl BYGGINGAVÖRUDEILD HRINGBRAUT 120 sími 28600 Breskur her- maður myrtur á írlandi Breskur hermaður var í gær skotinn til bana á Norður-írlandi, skammt frá landamærum Irska lýðveldisins. Tals- menn lögreglunnar sögðu í gær að hugsanlega hefði verið skotið á her- manninn yfir landamærin. Þetta er þriðji breski hermaðurinn sem myrtur hefur verið á Norður-Ir- landi á þessu ári. Alls hafa tuttugu manns fallið úr röðum öryggisgæslu- sveita þar á árinu. Getum útvegað ýmsar stærðir af Ford dísilvél- um fyrir báta, iðnaðar- táeki og rafstöðvar. Hagstætt verð, stuttur afgreiðslufrestur. Almenna Varahlutasalan s/f Skeifunni 17, s. 83240 og 685100 'jLL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.