Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987.
13
Neytendur
Samkeppni
um „besta
sjávarréttinn“
Skilafrestur til 15. ágúst - Glæsileg verðlaun í boði
Marska hf. á Skagaströnd og DV
efna til samkeppni um „besta sjávar-
réttinn". Skilafrestur er til 15. ágúst
og verður tilkynnt um úrslitin 15. sept-
ember.
Rétturinn, sem fær 1. verðlaun, verð-
ur hugsanlega settur í framleiðslu hjá
Marska sem áskilur sér rétt til þess
að nota uppskriftimar sem berast að
vild.
Mjög glæsileg verðlaun em í boði.
1. verðlaun er viku-sælkeraferð til út-
landa fyrir tvo með Flugleiðum. 2.
verðlaun Philips örbylgjuofii og 3.
verðlaun Philips grænmetiskvöm,
hvort tveggja frá Heimilistækjum hf.
Uppskriftimar verða að vera úr ein-
hverri eftirtaldri sjávarafurð: rækju,
hörpuskelfiski, ýsu, þorski, ufsa eða
karfa. Nákvæmt mál þarf að gefa upp
og allar uppskriftimar verða að vera
vélritaðar. Merkið uppskriftimar með
dulneíhi og hafið eigin nafn, heimilis-
fang og símanúmer með i luktu
umslagi sem merkt er með dulnefninu.
Sendið til DV, Þverholti 11,105 Rvík.
og merkið „Besti sjávarrétturinn11.
Dómnefnd er skipuð þremur mjög
hæfum matreiðslumeisturum, þeim
Hilmari B. Jónssyni, Úlfari Eysteins-
syni og Steindóri R. Haraldssyni, sem
jafnframt er framleiðslustjóri hjá
Marska. Einnig á dr. Einar Matthías-
son, matvælafræðingur hjá Iðntækni-
stofnun, sæti í dómnefiidinni og loks
Anna Bjamason, blaðamaður á DV.
Þeir sem standa fyrir þessari sam-
keppni áskilja sér rétt til þess að fella
keppnina niður ef ekki berast upp-
skriftir sem em hæfar að mati
dómnefndarinnar.
Upplýsingar um keppnina liggja
frammi í öllum stærri matvöruverslun-
um, víðs vegar úm landið, þar sem
framleiðsluvörur Marska hf. em seld-
ar.
-A.BJ.
I^PEPíPEWfePWKPafö
Smútas
NEYTENDAblaðií
Neytendablaðið:
Gveiðslukorlf mjólkur-
umbúðir, örbylgjuofh-
ar og uppþvottavélar
með uppþvottavélarnar og ör-
bylgjuofnana, aðeins um þriðjung-
ur vélanna hafði hlotið skoðun frá
Rafmagnseftirlitinu en þriðjungur
var í skoðun.
Þá er grein i blaðinu um áfram-
hald á samvinnu um verðgæslu á
vegum Alþýðusambands íslands,
BSRB og Neytendasamtakanna.
Fréttir frá Neytendafélagi Fljóts-
dalshéraðs, grein um neytendamál
i Svíþjóð, og sagt frá komu sænska
neytendamálafulltrúans á sl. vetri.
Sagt er frá heiðursfélaga Neyten-
dasamtakanna og frá nýju Neyt-
endafélagi á Patreksfirði.
Þá er í Neytendablaðinu dálkur
sem heitir Hvert á að leita? Þar er
sagt frá hvert fólk á að leita til að
leita eftir aðstoð í hinum ýmsu
málum sem upp koma. Og þá er
eftir að geta um „svarta listann“
sem að þessu sinni hefur að geyma
fimm fyrirtæki. Þessi fyrirtæki
hafa ekki levst úr ágreiningsmál-
um sem upp hafa komið og ekki
svarað ítrekuðum tilskrifum sam-
takanna.
Ráðinn hefur verið nýr ritstjóri
Neytendablaðsins sem er Elísabet
Þorgeirsdóttir. I Neytendasamtök-
unum eru nú þrettán aðildarfélög
víða um landið. Formaður samtak-
anna er Jóhannes Gunnarsson.
-A.BJ.
Blað Neytendasamtakanna,
Neytendablaðið, er komið út. Er
það 1. tbl. á þessu ári sem sér dags-
ins ljós. í þessu blaði er ýmislegt
forvitnilegt efni, m.a. tvær kannan-
ir, annars vegar um notkun
greiðslukorta og hins vegar um
afstöðu fólks til mjólkurumbúða.
Um 58% aðspurðra notuðu
greiðslukort í viðskiptum sínum og
taldi langstærstur hluti þeirra að
viðkomandi ættu bera þann kostn-
að sem af slíkum viðskiptum
hlytist. í mjólkurumbúðakönnun-
inni kom fram óánægja með þær
umbúðir, sem notaðar eru á höfuð-
borgarsvæðinu, sem er langstærsti
markaðurinn.
í Neytendablaðinu er gæða- og
markaðskönnun á örbylgjuofnum.
Kannaðir voru 46 ofnar. sá ódýr-
asti kostaði rúmlega 13 þúsund kr.
og sá dýrasti 59 þúsund kr. Af þess-
um 46 örbylgjuofnum voru 17
óskoðaðir af Rafmagnseftirliti rik-
isins. Eru þeir ofnar frá vel þekkt-
uni og viðurkenndum vörumerkj-
um.
Þá er markaðs- og notendakönn-
un á uppþvottavélum. Af þeim sem
hringt var í áttu 30% uppþvottavél-
ar. Kannaðar voru 28 uppþvotta-
vélar, ódýrasta vélin kostaði rúml.
21 þúsund og sú dýrasta rúml. 55
þús. kr. Sama var uppi á teningnum
Canon
Canoti a>
Canon
með 50 mm f 1.8
Verðkr. 18.419.-
LJÓSMYNDABÚÐIN LAUGAVEG1118, ® 27744