Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1987, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 1987.
39
Fréttir
Okuleikni BFÖ - DV
Hart baríst um gullið á Blönduósi
Sigurvegarinn í kvennariðli meðal 10 efstu yfir landið
Anna Linda Sigurgeirsdóttir stóð sig mjög vel í kvennariðli og var eini keppand-
inn á Blönduósi sem hafði umferðarspurningar allar réttar. Hún mun nú hafa
öðlast rétt til þátttöku i úrslitunum og hefur því möguieika á að vinna Maz-
dabílinn sem Mazda-umboðið mun gefa fyrir villulausan akstur i úrslitakeppn-
inni.
Blönduósbúar tóku á honum stóra
sínum þegar þeir mættu til leiks í öku-
leikni Bindindisfélags ökumanna og
DV þann 30. júní sl.
Veðrið var ekki eins og best varð á
kosið en það aftraði ekki heimamönn-
um frá að taka þátt eða íylgjast með
hvernig aðrir ækju.
Sviptingar um efstu sætin
Hart var barist um efsta sætið í
karlariðli ökuleikninnar. Stöðugt
bættu menn árangur þeirra er fyrr
höfðu ekið og stundum munaði ekki
nema örfáum sekúndum á keppendum.
Sá er uppi stóð sem sigurvegari að
lokum var ekki alls óreyndur ökumað-
ur því hann hefur sigrað í ökuleikni
áður. Sá heitir Þorsteinn Sigurðsson
á BMW 316. Hann fékk 219 refsistig.
Það var ekki nóg með að Þorsteinn
hlyti gullið á Blönduósi, heldur var
hann einnig með besta tímann í braut-
inni og fyrir það gaf Casio-umboðið
honum Casio-úr, eins og alls staðar
annars staðar á landinu.
Annar í ökuleikninni varð Halldór
Armannsson á Skoda með 283 refsi-
stig. Hann hafði jafnvel eygt sigur því
Þorsteinn var síðasti keppandinn í
karlariðli og var Halldór efstur þar til
Þorsteinn keppti. I þriðja sæti varð
Elvar Halldórsson á Fiat Polonez.
Hann var með aðeins 5 sekúndna
lakari árangur en Halldór, pabbi
hans. Hann var því með 288 refsi-
stig.
Fámennur kvennariðill
Aðeins tvær konur mættu til leiks í
kvennariðli og var sú sem betur stóð
sig með mjög góðan árangur miðað
við landið. Sú heitir Anna Linda Sig-
urgeirsdóttir og fékk hún 289 refsistg.
Guðbjörg Gestsdóttir varð önnur með
368 refstig. Enn einu sinni vilja for-
ráðamenn ökuleikninnar hvetja
kvenfólkið til að vera með því allir
hefa þörf fyrir smáuppnfjun á um-
ferðarreglum og hæfnisakstri.
Góð þátttaka í reiðhjólumum
Þátttaka í hjólreiðakeppninni var
góð eins og yfirleitt hefur verið i sum-
ar. Keppendur voru 12 talsins og var
keppt í tveimur riðlum eins og venju-
lega.
Sigurvegari í yngri riðli var Ingimar
Einarsson með 90 refsistig. En í eldri
riðli sigraði Ingvar Búi Halldórsson
með 80 refsistig.
Verðlaunin í hjólreiðakeppninni gaf
Fálkinn hf. eins og alls staðar yfir
landið. En í ökuleikninni var það
Búnaðarbankinn á Blönduósi sem gaf
verðlaunin.
Staðan yfir efstu keppendur yfir
landið
Nú hafa hátt á þriðja hundrað kepp-
endur mætt í ökuleiknina og er staða
þeirra 10 efstu í karlariðli þessi:
1. Gréfar Reynisson, Egilsstöðum, 110
rst.
2. Guðmundur Salómonsson, Húsa-
vík, 131 rst.
3. Gunnar Skarphéðinsson, Fáskrúðs-
firði, 139 rst.
4. Jósep Snæbjömsson, Eskifirði, 140
rst.
5. Elvar Höjgaard, Vopnafirði, 142 rst.
6. Björn Bjömsson, Egilsstöðum, 145
rst.
7. Guðmundur B. Guðmundsson, Ak-
ureyri, 147 rst.
8. -9. Halldór Jónsson, Reykjavík, 148
rst.
8.-9. Elías Jónsson, Reyðarfirði, 148
rst.
10. Jónas Kristjánsson, Húsavík, 150
rst.
Kvennariðill
1. Fríða Halldórsdóttir, Revkjavík,
191 rst.
2. Þóra Víkingsdóttir, Akurevri, 236
rst.
3. Inga María Ingadóttir, Vopnafirði,
268 rst.
4. -5. Aðalbjörg Hjálmsdóttir, Reykja-
vík, 271 rst.
4.-5. Birgitta Pálsdóttir, Siglufirði,
271.
6. Halla Sigbjörnsdóttir, Seyðisfirði,
282 rst.
Besti tíminn sem nú er í brautinni er
89 sekúndur og var það Grétar Reynis-
son á Egilsstöðum sem náði honum.
Takist honum að'halda besta tímanum
mun Casio-umboðið gefa honum úr af
vönduðustu gerð og mun hann sjálfur
fá að velja það.
-EG.
Sigurvegarinn í kvennariðli stóð sig mjög vel þrátt fyrir smáhnjask.
Ökuleikni BFÖ og DV
Hjón sigurvegarar í
karla- og kvennariðli
Ekki maigar konur
<JD
record
Sýningar-
hurðir
á staðnum
Sveinn
Egilsson h/f
Skeifunni 17
sími 68-51-00
Ökuleikni BFÖ og DV byrjaði hér á
Króknum með því að ökumenn óku í
gegnum brautina og svömðu svo um-
ferðarspumingum.
Hjólreiðakeppnin varð því miður að
falla niður vegna þess að ónóg þátt-
taka fékkst.
Úrslitin urðu þannig í ökuleikninni
að í fyrsta sæti í karlariðli lenti Rúnar
Gíslason með 182 refsistig, í öðru sæti
lenti Valdimar Bjamason með 200
refsistig og í þriðja sæti lenti Snævar
Hauksson með 222 refsistig.
I kvennariðli lenti Katrín Andrés-
dóttir mað 298 refsistig og í öðm sæti
lenti Linda Káradóttir með 387 refsi-
stig en þær vom þær einu sem þorðu
að taka þátt í þessu og þurftu þær
ekki að skammast sín fyrir árangur-
inn.
Verðlaunin í ökuleiknina gaf tré-
smiðjan Borg.
Málun bifreiðastæða
Önnumst merkingar og málun á
bifreiðastæðum fyrir fyrirtæki og fjölbýlishús!
Gerum verðtilboð.
VEGTAK SF.
S. 23552 - 52858 - 39800