Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1987, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987.
Stjómmál
Skoðanakönnun DV:
Drjúgur meiri-
hluti styður
ríkisstjórnina
Ríkisstiómin nýtur fvlgis dtjúgs
meirihluta landsmanna samkvæmt
skoðanakönnun DV um síðustu helgi.
Nær tveir þriðju þeirra, sem taka af-
stöðu. styðja stjómina.
Af öllu úrtakinu styðja 45.5 prósent
stjómina. 27,2 prósent em henni and-
víg. 22 prósent em óákveðin, og 5,3
prósent vilja ekki svara spumingunni.
Þetta þýðir, að af þeim, sem taka
afstöðu, styðja 62,6 prósent rikisstjóm-
ina, en 37,4 prósent em andvíg henni.
Ríkisstjómin nýtur meira fylgis
meðal karla en kvenna. Hún hefur
meira fylgi á landsbyggðinni en Stór-
Reykj avíkursvæðinu.
Hvað um næstu ríkisstjómir á und-
an? Skoðanakannanir DV og fyrir-
rennara þess sýndu á sínum tíma, aö
stjóm Steingríms Hermannssonar og
stjóm dr. Gunnars Thoroddsen áttu
hveiðibrauösdaga. Þær fengu mikið
fylgi í byijun. Stjóm dr. Gunnars fékk
til dæmis fylgi yfir 80 prósent þeirra,
sem tóku afstöðu fljótlega eftir mynd-
un stjómarinnar. Stjóm Steingríms
hlaut í upphafl fylgi 63,5 prósent
þeirra, sem tóku afstöðu.
Úrtakið í könnuninni nú var 600
manns, og var jafnt skipt milli kynja.
Þá var jafnt skipt milli Stór-Reykjavík-
ursvæðisins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvígur
ríkisstjóminni?
-HH
Rikisstjórnin á sína hveitibrauðsdaga.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar:
Fylgjandi 273 eða 45,5%
Andvígir 163 eða 27,2%
Óákveðnir 132 eða 22%
Svaraekki 32 eða 5,3%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða niðurstöðurnar
þessar:
Fylgjandi stjórninni 62,6%
Andvígir 37,4%
Með og móti stjórninni
Ritið sýnir hlutföllin milli fylgismanna og andstæðinga ríkisstjórnarinnar.
Ummæli fólks
í könnuninni
Farl á landsbyggöinni sagði, að þing kæmi saman. Karl á Vestur- vegna hækkunar á matvöru. Önnur
ríkisstjómin væri ekki mjög traust- landi sagöi, að rikisstjórnin ætti eför kvaðst vera á móti stjórninni og reið
vekjandi er rétt væri að leyfa henni að sýna sig. Kona á Reykjavíkur- yflr, hvemig fariö var með Albert.
að spreyta sig. Kona sagöist ekki svæðinu sagði, aö stjómin værí Karl kvaöst sjálfstæöismaður en
geta gert upp hug sinn, afþvíaðsvo hálfgerður hrærigrautur en allt í ekki fylgja stjórninni. Steingrímur
lítið hefði enn reynt á sfjómina. lagi aö iofe hermi að prófa. Karl sagð- ætti aö vera forsætísráðherra, sagði
Önnur sagði, að rikisstjómin væri ist fylgjandi stjóminni, þótt hún hana Kona á landsbyggöinni kvað
að gera þaö, sem þurft hefði að gera. væri ekki alveg nógu traust Kona á stjómina litið hafa sagt eða gert, en
Karl á landsbyggðinni sagði, að Austurlandi kvaðst hafa stutt ríkis- hún væri fylgjandi stjóminni, vildi
stjómin hefði ekkert gott gert fram stjómina en stuðningurinn fa:ri leyfa henni að spreyta sig.
að þessu. Kona á Reykjanesi kvað minnkandi. Kona á Reykjavíkur- -HH
erfittaðdæmaumstjómina.fyrren svæðinu kvaðst andvíg stjóminni
í dag mælir Dagfari__________________
Hvalavinir kveljast
Hvalavinir hafa liöið nokkrar
kvaflr uppi í Hvaifirði að undan-
fömu og komist í sviðsljósið fyrir
bragðið. Hins vegar hefitr enginn
verið drepinn í þessum hvalaslag
þegar þetta er skrifað, hvorki hvalir
né vinir þeirra. En ef marka má frétt
DV í gær mátti ekki miklu muna
þegar starfsmenn Hvals hf. skám á
líflínu hvalavina. Þessu neitar raun-
ar forstjóri Hvals, enda vart í
verkahring hvalveiðimanna að
skera á líflínur hvala eða hvalavina.
Tíminn heldur þvi fram að við
höfum unnið stórsigur á Bandaríkja-
mönnum í hvalamálinu og þakkar
það Steingrími Hermannssyni og
Halldóri Ásgrímssyni. Þetta tengist
síðan yfirgengilegum ættfræðiáhuga
ritstjóra Tímans sem keppist við að
rekja ættir Ronalds Reagan norður
á Strandir, ef rétt er munað. Þó er
þess getið í leiðinni að þetta hafi
ekki fengist staðfest úr kirkjubókum
vestra þar sem allt sem viðkemur
formæðrum Reagans hafi verið
flokkað undir leyndarskjöl og í þær
komist nú ekki nokkur maður, ekki
einu sinni ritstjóri Tímans. Það má
hins vegar telja mjög líklegt aö rit-
stjóri Tímans hafi komið þessum
upplýsingum um ættir Reagans í
hendur Steingrími og hann hafi
komið því áleiðis til Bandaríkafor-
seta að ef hann ekki hætti að skipta
sér af hvalveiðum okkar þá muni
það fréttast til heimspressunnar að
langamma hans hafi verið lausa-
leikskrói af Ströndum. Forsetinn
hafi síðan af sinni alkunnu skarp-
skyggni séð að betra væri að lúffa
fyrir Steingrími en að eiga á hættu
að vera talinn eiga ættir sínar að
rekja til íslands. Að vísu kom DV
fyrst með þá frétt að Reagan væri
af íslenskum ættum en slíkt telst
ekki markvert hjá Framsókn fyrr
en Tíminn grípur þetta upp eftir að
Indriði G. settist þar í stól ritsjóra.
Nú, og svo hélt Steingrímur ræðu á
þingi Sameinuðu þjóðanna í nótt
sem leið. Ræðu utanríkisráðherra
hafa enn ekki verið gerð nægjleg
skil í heimspressunni, ef Tíminn er
undanskilinn. Hélt maður þó aðjafn-
an þegar Steingrímur opnaði
munninn kostaði það minnst fimm
dálka fyrirsagnir í helstu heims-
blöðunum. En svo kemur það jafnvel
fyrir bestu menn að segja margt án
þess að segja neitt og af slíkum ræðu-
höldum segir helst í innsveitarblöð-
um.
En svo sögunni sé vikið aftur til
Hvalfjarðar þá segja hvalavinimir
þrir að vistin um borð í Hval 9 hafi
verið gífúrlega óþægileg. Fremstur í
flokki hvalavina er fyrrum strætis-
vagnabílstjóri í Reykjavík sem hætti
þeim störftim til að geta snúið sér
alfarið að vinum sínum, hvölunum.
Sumir segja reyndar að hann hafi
stjómað skrifum Þjóðviljans um
hvalamál undanfama mánuði en
engum getum skal að því leitt hvort
þar er rétt með fariö. Máltækið segir
hins vegar: Ber er hver að baki nema
sér bróður eigi, En um borð í hval-
bátnum höfðu vinimir ekki annaö
en rúsínur til að næra sig á lengi
framan af þar til tókst að koma til
þeirra vatnsbirgðum miklum. Það
má lengi lifa á vatni og rúsínum og
sýnir best að ekki þurfum við hval-
kjöt til að lifa af þann fellivetur sem
sifellt vofir yfir íslensku þjóðfélagi.
Það hefúr hdns végar ekki komið í
ljós hvemig hvalavinir ætla að bera
sig að þá hvalveiðunum verður hald-
ið áfram. Það er með öllu óvíst að
Kristján hvalstjóri ráði þá í vist upp
á vatn og rúsínur. Það fer hins vegar
ekkert á milli mála að menn geta
vaðið um borð í hvalbáta hvenær
sem þeim sýnist, hvort sem tilgang-
urinn er að sökkva þeim ellegar
nasla í rúsínur eftir að hafa hlekkjað
sig við fallbyssumar. Við skulum
bara vona að ófriðunarmenn fari
ekki að gera sig heimakomna um
borð í bátunum og hefji skothríð á
braggahverfið í Hvalfirði. Þetta var
nú í engang talið til hemaðarsvæða
og SÍS gróf sig þar í jörð með olíu-
birgðir sem áttu að endast NATO-
flota Moggans til stórstyrjaldar
árum saman. Þetta er hins vegar
gömul saga sem menn kjósa að
gleyma af ýmsum ástæðum og alla
vega kemur vart til þess að hún verði
rifjuð upp á síðum Tímans. Ætt-
fræðin getur nefnilega orðið ýmsum
skeinuhætt, ekki síður hér en vest-
anhafs.
Dagfari