Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. Fréttir__________________________ Skoðanakönnun DV um dóma í kynferðisafbrotamálum: Nær allir telja dómana hafa verið of létta Geysimikill meirihluti lands- manna telur, aö dómar í kynferðisaf- brotamálum hafi veriö of léttir. Meirihlutinn er svo mikill, að varla er nokkur annarrar skoðunar. Þetta kom í ljós í skoðanakönnun DV. Úrtakið í könnuninni var 600 manns. Jafnt var skipt milli kynja og jafnt milli höfuöborgarsvæðis og landsbyggðarinnar. Spurt var: Tel- urðu að dómar i kynferðisafbrota- málum hér á landi hafi verið of þungir, of léttir eða hæfilegir? Af öllu úrtakinu sögðu aðeins 0,3 prósent, að dómarnir hefðu verið of þungir. Heil 86,8 próent sögðu, að dómarnir hefðu verið of léttir. 3,7 prósent töldu dómana hafa verið hæfilega. 6,2 prósent voru óákveðin og 3 prósent færðust undan að svara. Þetta þýðir, að af þeim, sem afstöðu taka, telja 0,4 prósent að dómarnir hafi verið of þungir, 95,6 prósent telja dóma í kynferöisafbrotamálum hafa verið of létta og 4 prósent telja dóm- ana hafa verið hæfdega. Enginn teljandi munur var á af- stöðu karla og kvenna til þessarar spurningar, og enginn teljandi mun- ur var milli landshluta. -HH Ummæli fólks Karl í Reykjavík kvaðst hand- viss um, að dómar í kynferðisaf- brotamálum hér hefðu verið of vægir að undanfórnu. Kona á Norðurlandi sagði, að dæma ætti þessa menn mun þyngra en nú væri gert. Kona í Reykjavík kvaðst mjög reiö, því að þessir dómar heföu verið alltof léttir. Karl á Vesturlandi sagði, að taka þyrfti þessi mál fastari tökum. Kona á Reykjavíkursvæðinu sagði, að dómar fyrir kynferðisaf- brot hefðu veriö tii skammar og alltof léttir. Kona á Austurlandi sagði, að taka ætti mjög hart á kynferðisglæpamönnum. Karl úti á landi sagði, að nota þyrfti gamaldags refsingar, þegar slíkir menn ættu í hlut. Kona á Norður- landi taidi, að slik brot endur- tækju sig siður, væru refsingam- ar harðari. Kona í Reykjavik sagði, að dómamir hefðu verið réttir og hæfllegir. -HH. Um dóma yfir kynferðisafbrotamenn Kakan sýnir hlutföllin milli þeirra, sem telja dómana of þunga, þeirra sem telja þá of létta og þeirra sem telja dómana hæfilega. Nær allir vilja, að dómarnir hefðu verið þyngri. Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar: Telja dómana hafa verið of þunga 2 eða 0,3% Telja dómana hafa veriö of létta 521 eða 86,8% Telja dómana hafa verið hæfilega 22 eða 3,7% Óákveðnir 37 eða 6,2% Svara ekki 18 eða 3% Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða niðurstöðurnar þessar: Teljadómanaofþunga 0,4% Teljadómanaoflétta 95,6% Telja dómana hæfilega 4% í dag mælir Dagfari Ekki veit Dagfari hversu margir menn sitja Fiskiþing. Þeir hljóta þó að vera harla margir miðað við þær óteljandi skoðanir sem á lofti eru um fiskveiðistefnuna, enda verður ekki betur séð en hver og einn sjávarútvegsmaður hafi sína sérstöku skoðun á þessari stefnu. Einn vill kvótann, annar vill sókn- armark, sá þriðji aflamark. Enn aðrir vilja skrapdaga, sumir jafna skiptingu milli landshluta og svo eru það þeir sem vilja kvóta en bara öðruvísi kvóta en kvótann í dag. Einn hópurinn vill auðlinda- skatt, annar viU útboð á kvótum og sá þriðji vill að fólkið í landi fái sama rétt og sjómenn og útvegs- menn til að veiða fiskinn og gæti það svo sem orðið nógu fróðlegt að fá að sjá hvernig fískveiðar á þurru landi ganga fyrir sig. Langsamlega flestir eru hins veg- ar á móti því sem hinir segja og hefur sú skoðun yfirgnæfandi meirihluta ef marka má ítarlegar fréttaskýringar á umræðum Fiski- þings, Landssambandsþings, Sjómannasambandsþings og Al- þingis. Frá síðastnefnda þinginu hafa borist tilmæli til svokallaðrar ráð- gjafamefndar um fiskveiðistjóm- Fagur fiskur í sjó un framtíðarinnar frá þrjátíu og tveim þingmönnum um að ráðgjaf- arnefndin leggi til að skiptingu landsins í tvö veiðisvæði verði af- numin. Ekki er gott að sjá hvað þeir vilja fá í staðinn en það er líka aukaatriði ef hafður ér sá meiri- hlutavilji í huga að aðalatriðið sé að vera á móti því sem aðrir segja eöa vilja. Sjávarútvegsráðherra hefur bent þessum þijátíu og tveim þing- mönnum á þá staðreynd að það sé Alþingi sem setur lög um fiskveiði- stefnu en ekki ráðgjafarnefndir út í bæ en það verður að virða bles- suðum þingmönnunum okkar það til vorkunnar að þeir eru ekki leng- ur vissir um það hverju Aiþingi ræður eða hver ræður Alþingi. Þeir geta heldur ekki fyrir nokkurn mun treyst því að Alþingi geri það sem þeir vilja sjálflr vegna þess að þingmenn eru fyrir löngu hættir að hafa nokkuð um það að segja hvað gert er á Alþingi. Ákvarðanir eru teknar úti í bæ, eins og allir vita, ýmist á fiskiþingum, lands- sambandsþingum eða þá einkum af Halldóri sjávarútvegsráðherra sem hefur ráðgjafamefndir á sín- um snærum sem samþykkja það sem ráðherra ráðleggur þeim að ráðleggja sér þegar hann er búinn að taka ákvörðun um það hvað hann vill láta ráöleggja sér. í rauninni er ailt þetta umstang með fiskveiðiþing og önnur þing ekki bara flókið og furðulegt. Það er líka bráðfyndið og hlægilegt. Og ennþá hlægilegra er þegar þessi þing eru að reyna að hafa skoðanir á fiskveiðistefnunni sem Halldór Ásgrímsson er búinn að ákveða hver verður. Enda fer þetta frekar í taugarnar á Halldóri heldur en hitt og maöurinn er auðsjáanlega þreyttur og svekktur yfir því að þurfa að sitja undir öllum þessum skoðunum sem verið er að ónáða hann með löngu eftir að hann er búinn að taka ákvörðun. Enda hrynja þær af honum eins vatn af gæs. Stundum verður Halldór hissa, oft reiður en mest og oftast er hann dapur, óskaplega dapur, yfir öllum þessum mönnum sem em að skamma hann og gagnrýna fyrir fiskveiöistefnu sem hann er löngu búinn að ákveða og getur ekki orð- ið öðruvísi en hann er búinn að ákveða. Halldór er reyndar með pottþétta aðferð í því að ákveöa fiskveiði- stefnu. Hann segir á fiskiþingi að Alþingi setji lög. En niðri á Alþingi segir hann við þingmennina að það séu fiskiþing og ráðgjafarnefnd sjávarútvegsins sem ákveöi tillög- ur sem hann verði að fara eftir. Og svo verður hann hissa á svipinn þegar þingmennirnir senda honum bænarskrár um að fá samþykkt lög sem þeir vilja samþykkja. En þegar hann kemur niður í fiskiþing setur hann upp hinn svipinn og verður sár og reiður þegar fiskiþingsmenn eru að blanda sér í mál sem Al- þingi tekur ákvarðanir um. Segja má að almenningur og sjón- varpsáhorfendur, sem fá alla þessa umræðu beint í æð, séu miklu daprari yfir ástandinu á andlitinu á honum Haildóri. heldur en ástandinu á fiskveiöistefnunni. Al- menningur hefur meiri áhyggjur af Halldóri heldur en þorskinum sem segir sína sögu'um fiskveið- iumræðuna. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.