Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. Útiönd Fíknieöiaframleiöandi, sem var aö afþlána tuttugu ára fangelsis- dóm, flúöi úr svissnesku fangelsi í gær ásamt fimm félögum sinum. Haföi maöurinn, Charles Altieri, verið dæmdur til tveggja áratuga fangavistar fyrir að hafa átt og rek- ið efnafræðistofu þar sem framleitt var heróin. Altieri, sem er liölega þrítugur Frakki, átti aö koma aö nýju fyrir rétt á næsta ári, í tengslum viö morðiö á Pierre Michel dómara. Ekki var skýrt frá því í gær hveij- ir hinir fimm, sem Qúðu með Altieri, væru. Fnykur í Rómaborg Mikil ólykt er nú víða i Rómaborg þar sem sorphreinsunarraenn eru í verkfalli. Hlaðar af sorpi liggja víða á götum úti og er byrjað aö slá í marga þeirra. Sorphreinsunarmennimir krefj- ast aukinna réttinda og á sama tíma vilja þeir minnkun á yfir- vinnu sinni. í gær efndu starfsmenn flugvalla og flugfélaga í Róm og Milanó einn- ig til verkfalla og urðu töluverðar truflanir á áætlanaflugi um þessa flugvelli vegna þess. Þá hafa þrjú af helstu alþýðusam- böndum Ítaiíu boðað allsheijar- verkfall þann 25. nóvember til þess aö mótmæla því að ríkisstjómin hefur frestað skattalækkunum. Ráðstefnur flýja Töluverð brögð em nú að þvi að ráðstefnur, sem ætlunin var að yrðu haldnar á Filippseyjum, flytji sig um set eitthvað annað vegna ástands öryggisrnála þar í landi. ’rákynnt hefur verið um að minnsta kosti tíu stórar ráðstefnur sem hætt hefúr verið við að halda á Filippseyjum. Er talið að þetta muni kosta landið milfjónir dollara. Ein stærsta ráðstefnan, sem halda átti á Filippseyjum á næstumii, var kristileg ráðstefha sem búist var við að fimm þúsund útlendingar sæktu. Þessi ráðstefna hefur nú verið flutt til Singapore. Skipuleggjendur annarrar alþjóðlegrar ráðstefiiu um alnæmi, sem halda átti í næstu viku, segja að sex af þeim sem þar áttu að flytja erindi hafi Sérstakur kviðdómur komst í gær aö þeirri niöurstöðu að ekki væri grundvöllur til þess að ákæra rokkstjömuna David Bowie fyrir nauðgun. Bowie var sakaður um að hafa ráöist kynferðislega á konu i Dallas og aö hafa sett hana í hættu af alnæmissmiti. Konan, sem er þrítug aö aldri, kærði Bowie fyrir að hafa ráðist á sig á hótelherbergi í Dallas í októ- bermánuði síðastliönum. Eftir á á hann aö hafa sagt henni að nú væri hún komin með alnæmissmit. Bowie sagði að ákæmr þessar væru fáránlegar og mætti ekki fyr- ir rétti. tækt kókaín sem talið er að hefði selst fyrir um flmm hundrað milljónir doliara eöa um tuttugu milljarða íslenskra króna. Fíkniefnin voru i gám á leið frá Mið-Ameriku til Florida og var hægt að rekja sendinguna til húsgagnaverslunar. Alls voru þetta nær þijú tonn af kókaíni sem falin vora í timbursend- ingu. koma höndum yfir í einu. Rústir neðanjarðarbrautarstöðvarinnar King’s Cross í morgun, eftir að eldur fór þar um i gaer. Simamynd Reuter Á fjórða tug fórust í eldi Á íjórða tug farþega og starfs- manna neðanjarðarbrautanna í London fórust í gær þegar eldur kom upp í King’s Cross brautarstöðinni. Ljóst er að þijátíu og tveir fórust í eldinum, eða af völdum reykeitrunar en óttast er að sú tala eigi eftir að hækka því meira en fimmtíu manns liggja þungt haldnir af bruna og reykeitrun og nokkurra er enn sakn- að. Eldurinn braust út um klukkan hálfátta í gærkvöldi í gamalli lyftu í brautarstöðinni. Á þeim tíma er mestu umferðinni um stöðina lokið en hundruð farþega voru samt enn á leið um hana. Mikill ótti greip um sig þegar reykurinn breiddist út um stööina og gaus út um útgönguleiðir hennar. Sem fyrr segir er nokkurra aðila enn saknaö og að sögn slökkviliðs- manna er talið ómögulegt að nokkur sá sem er enn niðri í göngum stöðv- arinnar geti verið á lífi. Slökkviliösmenn hvíia sig frá slökkvistörfum í gærkvöldi. Simamynd Reuter Eldurinn breiddist skjótt út frá lyft- unni og gjöreyðilagði stóran sal, þar sem miðasala stöðvarinnar er. Talið er að þetta sé versta slys sem átt hefur sér stað í neðanjarðarbraut- arkerfinu í London til þessa. Kerfi þetta hefur verið talið eitt hið örugg- asta í heimi, enda hafa þar orðið mjög fá slys á þeim langa tíma sem það hefur starfað. Árið 1975 létu þó fjörutíu og þrír lífið þegar árekstur varð í einum af göngum neðanjarðarbrautarkerfis- ins. Stórir hlutar brautarkerfisins voru byggðir á síðustu öld og eru því komnir nokkuö til ára sinna. Undan- farin ár hefur staðið mikil endumýj- un á kerfinu og var meðal annars fyrirhugað að hefja endurbyggingu King’ðs Cross bráðlega. Lyftan þar sem eldurinn kom upp átti að verða meðal þess fyrsta sem endurnýjað yrði þar. x:!Í!:!M!!?¥ ■ ■ ■ Reykur gýs upp um útgönguleið frá King’s Cross. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.