Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Page 15
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. 15 Það skyldi þó aldrei vera „Það skyldi þó aldrei vera að þéttbýlis- búar taki einmitt undir þá nýju land- búnaðarstefnu sem Framsóknarflokk- urinn hefur mótað og verið er að vinna að. Eg er þess fullviss að sú er raunin.“ í síðustu skoðanakönnun DV um fylgi stjómmálaflokkanna kemur fram mikil fylgisaukning hjá Framsóknarflokknum og er hon- um nú spáð 29,1% atkvæða eða um 10% fylgisaukningu frá alþingis- kosningunum sl. vor. Að sjálfsögðu eru þetta ánægju- legar niðurstöður fyrir Framsókn- arflokkinn og sýnir að stefna hans nýtur vaxandi fylgis meðaf lands- manna. í sama blaði og niðurstöðurnar birtust var feitað áfits forystu- manna stjórnmálaflokkanna á þeim. Svo sem búast mátti við voru þeir misjafnlega ánægðir og kom fram í svari Jóns Bafdvins Hanni- bafssonar fjármálaráðherra (hann eyddi meiri tíma í að útskýra fylgis- aukningu Framsóknarflokksins en fylgistap síns flokks) að hann ætti erfitt með að skýra þess fylgisaukn- ingu Framsóknarflokksins og sagði m.a.: „Og það væri forvitnilegt að vita hvort þessi stuðningur við hann kemur úr þéttbýhnu eöa af landsbyggðinni. Varla er þetta stuöningur þéttbýhsins við land- búnaðarstefnu Framsóknar, eða hvað?“ Já, Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra, það er ekki nema von að þú sért hugsi yfir þessu. Það skyldi þó aldrei vera að þéttbýlisbúar taki einmitt undir þá nýju landbúnaðarstefnu sem Framsóknarflokkurinn hefur mót- KjaUarinn Níels Árni Lund varaþingmaður Framsóknar- flokksins í Reykjaneskjördæmi að og verið er að vinna að. Ég er þess fullviss að sú er raunin. Ný stefna Sú landbúnaðarstefna, sem rekin hefur verið hér á landi í mörg und- anfarin ár og áratugi, var fyrir löngu orði úrelt og brýna nauðsyn bar til að breyta til í samræmi við nýja tíma og þær markaðsaöstæð- ur sem við búum við nú. Engum var þetta betur ljóst en Framsókn- arflokknum. í samræmi við það var það eitt af fyrstu verkum Jóns Helgasonar landbúnaðarráðherra í ríkisstjórn Steingríms 1 Hermannssnar að semja og leggja fram á Alþingi nýtt lagafrumvarp um framleiðslu og sölu búvara. Við samningu þeirra laga byggði hann á hugmyndum Stéttarsambands bænda og fleiri aðila sem hlut eiga aö máli enda lá fyrir vhji þeirra um verulegar breytingar á fyrri lögum. Alþingi samþykkti ný búvörulög og þau tóku gildi 1. júlí 1985. Eitt af markmiðum þeirra laga er að framleiðsla landbúnaðaraf- urða skuli nema sem næst innan- landsneyslu hverju sinni. Þetta þýddi að draga þurfti verulega saman framleiðslu á mjólkurafurð- 'um og kjöti og haföi það í för með sér aö bændum var úthlutaöur tak- markaður framleiðsluréttur sem þeim var tryggt verð fyrir. Samhliöa þessu hefur verið lögð áhersla á uppbyggingu nýrra bú- greina, með það að markmiöi að tryggja búsetu á jörðum og auka fjölbreytni í atvinnulífi og íslenskri framleiðslu. Á síðasta vori var undirritaður sérstakur samningur milli bænda og stjórnvalda um framleiöslurétt á mjólk og kindakjöti fyrir verð- lagsárin 1988-1992 og miðast samningurinn við að ná birgða- stöðu þessarar afurða í eðlilegt horf á samningstímabilinu. Enginn vafi er á að yfirgnæfandi hluti íslensku þjóðarinnar gerir sér grein fyrir þeim breytingum sem eiga sér stað í landbúnaöi og vill aö þær takist sem best. Þjóðin veit að bændur reyna nú í samræmi viö stefnu stjórnvalda að skrúfa eins hratt fyrir umframframleiðslu og kostur er, án þess að riðla þeirri byggðaskipan sem fyrir er í landinu. Þann aðlögunartíma, sem nú stendur yfir, er nauðsynlegt aö nota til að koma stjórn á framleiðsl- una og að því er unnið. Ábyrg vinnubrögð skapa traust Óábyrg vinnubrögð, sem e.t.v. hafa þaö eitt að markmiði að klekkja á bændastéttinni, geta leitt til stórkostlegrar byggðaröskunar sem hvorki stjórnvöld né íslenskt þjóðfélag eru fær um að mæta. Þjóðin vhl ábyrg vinnubrögð og að stjórnmálamenn vinni í átt til uppbyggingar en ekki aö niðurrifi, hvort heldur það er gegn atvinnu- stéttum eða byggöum landsins. Framsóknarflokkurinn hefur unnið ábyrgt að landbúnaðarmál- um sem og öðrum málaflokkum. Við það hefur hann fengið traust þjóðarinnar, af þeim ástæðum fer fylgi hans vaxandi. Hann skilur þörf fyrir breytingar í landbúnað- armálum og vinnur að því að koma þeim á. Þetta fmnur þéttbýlisfólk jafnt sem landsbyggðarfólk og þar af leiðandi nýtur hann stuðnings allra landsmanna við framkvæmd stefnumála sinna. Áróður, sem byggist á að sverta íslenskan landbúnað og þá sem viö hann vinna, gengur ekki í kjósend- ur - sama þótt um hálfkveðnar vísur sé að ræða. Það er sem betur fer liðin tíð að hægt sé að etja þétt- býlisfólki og landsbyggðarfólki saman út af landbúnaðarmálum og í raun skammarlegt að það skuli vera reynt af stjórnmálamönnum sem vilja kalla sig ábyrga. Niels Árni Lund Ekki vald fiá Guði heldur umboð kjósenda Eftirfarandi grein var flutt sem ávarp á útifundi við Tjörnina í Reykjavík sunnudaginn 15. þ.m.: íbúum Reykjavíkur og velunnur- um hennar hefur sjaldan brugðið eins illa og þegar þeir áttuðu sig á því að búið var að keyra í gegnum borgarstjórn og skiplagsnefnd rík- isins samþykkt um byggingu ráðhúss við Tjörnina. Menn standa agndofa - þetta ber svo brátt að. Fólk hafði ekki áttað sig á því hvað var að gerast. I útvarpinu á þriðjudaginn var kallaði Davíð Oddsson þessar áætl- anir um byggingu ráðhúss við Tjörnina „dægurmál á borði borg- arstjórnar". Þetta er ekkert dægurmál. Þetta er mál sem varðar alla íslendinga sem unna sinni höf- uðborg. Furðulegt læknisráð Ég held að flestir borgarbúar hafi skoðun á þessu máli - og ég er ekki i vafa um hver hin almenna skoðun er: Menn vilja ekki láta troða ofan í sig ráðhúsi við Tjörnina. Ákvarð- anir, sem teknar eru í tengslum við þessa byggingu, eru svo flausturs- lega unnar, það er svo lítið hugað að afleiöingunum, að það er skelfi- legt. Hvers vegna liggur svona á? Það er aðeins eitt svar til við því: Það á að keyra þetta mál í gegn - það er engu líkara en fylgismenn þess séu hræddir við vilja borgarbúa. Þeir þora ekki að spyija okkur því þeir vita hvert svarið verður. Það verður: Byggið ráðhús ef þið viljið en veljið því annan staö. Reisið þaö á stað sem þolir slíka byggingu og þá umferð sem henni fylgir. Tjörn- in í Reykjavík þolir það ekki. Tjörnin og umhverfi hennar er einhver viðkvæmasti staður í allri Reykjavík. Hann er fíngerður og mun bera skaða af raski og stílrofi af því tagi sem hér á að fremja. Það er rétt hjá Davíð að Bárulóð- in er til skammar eins og hún er núna. En að eina leiðin til að bjarga því sé að byggja á henni ráðhús er furðulegt læknisráð og ég er hrædd um að Davíð vanmeti samtíma- menn sína ef hann heldur að þeir kyngi svona rökum. Það eru borg- aryfirvöld sjálf sem bera ábyrgð á ástandi þessarar lóðar. Menn geta ekki varist þeirri hugsun að þau hafi vísvitandi látið hana fara svona á undanförnum árum til þess að geta beitt ástandi hennar sem rökum fyrir því að þetta sé ljótur blettur sem lagfæra megi með ráð- húsi. Þaö má lagfæra hann á annan hátt - nærtækast er að breyta hon- um í lítinn garð með trjágróðri og bekkjum svo að fólk geti notið KjaUariim Guðrún Pétursdóttir lektor Tjarnarinnar frá þessu horni. Það yrði lausn sem menn kynnu að meta. Bygging ráðhússins á þessum stað mun hins vegar spilla heildar- mynd Tjarnarinnar. Það á að setja það inn í einhverja fínlegustu götu Reykjavíkur. Davíð beitir þeim rökum að húsið sé lítið. Stærð er afstæð og það verður að meta stærð þessa húss eftir stærð nágranna þess við Tjarnargötuna. Svo er önnur hætta, sem lítið hefur verið minnst á, en hún felst í því að þetta hús getur átt eftir að stækka. Opinber stjórnsýsla er þess eðlið að hún vex og vex. Það verður óhjákvæmilega þörf fyrir aukið húsnæði fyrir stjórnsýslu borgarinnar með árunum - og hvar á að hýsa hana? í ráðhúsinu auðvit- að og ef það reynist of lítið veröur að byggja við það. Það er skamm- sýni að byggja ráðhús á staö sem alls ekki þolir að það vaxi. Og ég held að það sé meira en skamm- sýni. Mér finnst þaö vera óheiðar- legt. Mér finnst að þaö sé verið aö lauma inn á okkur „litlu húsi“ en ég heyri þegar rökin sem beitt verð- ur þegar leyfa verður viðbygging- ar. Það þýðir lítið fyrir núverandi yfirvöld að lofa því að aldrei komi til stækkunar á þessu húsi. Það verður ólíklega í þeirra valdi að taka ákvörðun um það. Þau verða annaðhvort orðin elliær eða komin undir græna torfu þegar þar að kemur. Því segi ég: Byggið ráðhús þar sem það getur vaxið - byggið það ekki við Tjörnina. „Over my dead body“ Hvernig á svo að komast að þessu húsi? Samkvæmt upplýsingum umferðardeildar borgarverkfræð- ings má gera ráð fyrir að umferð um Vonarstræti aukist um 20%. Hvaðan eiga þeir bílar að koma? í fallhlíf og lenda á Vonarstræti? Ætli þeir komi ekki akandi eftir Suðurgötu eða meðfram Tjörninni. Aörir eru möguleikarnir ekki. Suðurgatan er svo þröng að þegar er búið að taka gangstéttina öðrum megin til þess að bílar geti mæst. Þessi gata liggur á brekkubrún meðfram gömlum kirkjugarði. Hvernig á að veita aukinni umférð um hana? Fylla upp í brekkuna bak við húsin í Tjarnargötu? Eða flytja kirkjugaröinn? Mér er sem ég heyri ibúa hans segja: „Over my dead body.“ Hvernig á svo að mæta aukinni umferð um Tjarnargötu og Frí- kirkjuveg? Varla fara þeir aö rífa Listasafnið, það er nýbúið aö gera það upp. Einfaldasta leiðin verður auðvitað aö breikka þessar götur út í Tjörn. Þaö verður gert með tárum en okkur verður sagt að það sé því miður nauösynlegt. í áliti umferðardeildar borgar- verkfræðings segir: „Frá umferð- artæknilegu sjónarmiði er æskilegt að gert sé ráð fyrir breikkun Sól- eyjargötu-Fríkirkjuvegar í 4 ak- reinar. Ef til vill mæla umhverfis- sjónarmið gegn slíku." Ef til vill? Er nokkur vafi á því? Hver vill 4 akreinar meðfram Tjörninni? 4 akreinar eru eins og Skúlagata. Þaö eru engin rök að segja að umferðin muni óhjákvæmilega aukast. Til þess á að hafa stjórn á málum að reynt sé að beina þróun í heilla- vænlega átt. Ráðhús á þessum stað mun stuðla aö aukinni umferð. Það er óheillavænleg þróun. Annar arkitektanna. sem að húsinu standa. kynnti hugmvndina að baki þess í Kastljósi nú í vikunni. Ég gat ekki betur skilið en að hún teldi þörf á því að tengja Tjörnina mannlífinu. henni fannst íbúar ekki komast nóg í tengsl við vatnið. Ætli það gangi betur þegar bílaum- ferð þvtur um 4 akreinar meðfram því? Skipulagsstjórn ríkisins sam- þvkkti tillögurnar um byggingu ráðhúss án þess að fyrir lægju skýrar áætlanir um hvernig mæta á því umferðaröngþveiti sem af því mun leiða. Den tid. den sorg. Ekki sem hluti af skipulagi Það eru furðuleg vinnubrögð að senda ráðherra tillögur til sam- þykktar þar sem ekki er kynnt nema brot af því sem gera á. Þeir sem ekki sætta sig v ið svona vinnu- brögð setja nú traust sitt á félags- málaráðherra. Við treystum því aö hún samþykki ekki þessar tillögur heldur fari fram á það að gengið verði frá áætlun um hvernig mæta á þeirri auknu umferð sem af bygg- ingu ráðhússins hlýst. Þegar svo þessa skipulagstillögur hafa verið lagðar fram á að kynna þær almennilega fyrir borgarbúum og kanna viðbrögð þeirra viö þeim. Borgarbúum hefur aldrei verið gefinn formlegur kostur á því að segja álit sitt á þessum fram- kvæmdum. Þetta ráðhús var ekki kynnt sem hluti af skipulagi fyrir miðbæ Reykjavíkur, á þeim teikn- ingum var þetta horn Tjarnarinnar afmarkað með punktalínum og merkt með smáum stöfum „Fyrir- huguð bvgging ráðhúss". Það grunaði fæsta að þetta væri alvara. Menn höfðu séð svona punktalínu fyrr. Ráðhús Gunnars Thorodds- ens var inni á skipulagi í tuttugu ár. Þarna var enga byggingu að sjá og menn uggðu ekki að sér. Það var illa gert af borgarstjórn að lauma þessu ráðhúsi inn á skipulagstillög- urnar með litlu bréfi til skipulags- nefndar seint í október. löngu eftir að umsagnarfrestur borgarbúa rann út. Það er ekki samboðið borgarstjórn að læðast svona aftan að umbjóðendum sínum. Þetta er okkar bær ekki síður en þeirra. Mér þykir borgarstjóri sýna furðu- lega mannfyrirlitningu þegar hann gerir lítið úr nauðsyn þess að inna borgarbúa eftir áliti þeirra á þess- um framkvæmdum. „Fólk er alltaf á móti öllum framfórum." segir hann. „svo. þegar þetta er komið upp. eru allir ánægðir." Þetta jafn- gildir því að segja að aldrei þurfi aö spyrja neinn álits eða hlusta eft- ir skoöunum annarra. Ég hevri ekki betur en það sé að koma sól- konungstónn í Davíð Oddsson: Borgin. það er ég. Látið mig ráða. í kastljósi sagði hann að á þessu máli þyrfti að taka með myndar- skap og kjarki. Hvaða kjarkur er það að neita að bera þetta undir borgarbúa? Það er ekki kjarkur. það er gerræði. í borgarstjórn var borin fram til- laga um að kjósendur yrðu spurðir álits áður en lagt yröi í þessar fram- kvæmdir. Meirihluti borgarstjórn- ar hefur álitið að landsmönnum kæmi þetta dægurmál á borði borg- arstjórnar ekki við. Þeim skjátlast. Andstaða gegn ráðhúsi viö Tjörn- ina er almenn og ekki síöur innan Sjálfstæöisflokks en í öðrum flokk- um. Því viljum við vera spurð álits og við fórum kurteislega fram á það við borgarstjórn að hún láti hlut- lausan aöila gera víðtæka skoöana- könnun á því hvort menn styöja þessa fyrirhuguðu ráðhúsbyggingu viö Tjörnina eða ekki. Síðan verður meirihluti borgarstjórnar að virða niðurstöður slíkrar könnunar og minnast þess að vald hans er ekki frá Guði heldur fer hann með um- boð kjósenda. Guðrún Pétursdóttir „Andstaða gegn ráðhúsi við Tjörnina er almenn og ekki síður innan Sjálf- stæðisflokks en í öðrum flokkum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.