Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. 35 Sandkom Stuðmenn til sölu Kvikmyndin um Stuðmenn í Kína á víst að vera ein af skrautfjöðrum sjónvarpsins í kringum aðvifandi kristni- hald í desember. Þeir sem nenna ekki að bíða eftir jól- unum til þess að sjá myndina geta einfaldlega keypt bandið á 2.500 krónur í myndbanda- verslun. Skotar í Þorlákshöfn Skoska sjónvarpið heim- sótti Þorlákshöfn á dögunum og var þá að elta þangað Skota í fiskvinnu til þess að afmynda þá í bak og fy rir. Tókst þaö svo einstaklega vel að engum Skota, sem hímir ennþá heima hjá sér, dettur framar í hug að fá sér vinnu á íslandi. Að sögn sjónarvotta að sýn- ingunni var gert mikið úr aumum örlögum Þorláks- hafnar-Skota og fannst enginn ljós blettur á veru þeirra í því arma og auma plássi norður í rassi. Nú eru írar að koma hingað til vinnu enda enga Skota að fá lengur. Þess er raunar vandlega gætt aö setja írana ekki niður í neitt slorplássið, heldur fá þeir störf í hvít- skúruðum verksmiðjuhöll- mn höfuðborgarinnar. Verðir ríkisins Utanríkisráðuneytið er kyrfdega innmúraö í Lög- reglustöðina við Hverfisgötu í Reykjavík og mætti því ætla að það ráðuneyti væri betur variö en aðrir angar Stjórn- Lífverðir utanrikisráðherra á vinnustað, og Oskar Olason. arráðsins. í anddyri hússins, þeim megin sem gengið er inn í ráöuneytið, er raunar lög- regluþjónn á verði, svona venjuíega, án þess að ber- sýnilegt sé hvaða hlutverki hann gegnir öðru en að nota stól og skrifborð sem fáir pappírar koma á aðrir en þá dagblöðin. Annars er utan- ríkisráðuneytið formlega óvarið í sjálfri lögreglustöð- inni. En úr þessu er bætt með öðrum ráðum. Ráðuneytið hefur sína eigin verði við inn- gönguna á sinni hæð. Þar annast-móttökuna á vixl þeir Guðmundur Kjæmested, fyrrverandi skipherra, og Oskar Ólason, fyrrverandi yfirlögregluþjónn. Það fer víst enginn óboðinn fram hjá þessum fornköppum. Gróður- vandinn á Miðnesheiði Flugstöðvargróðurinn mikli á Miðnesheiði líður enn af skammdegisdrunga og enda þótt hann Ufi ennþá er sumt af þessum sex milljóna skógi farinn að láta á sjá. Þá mun skammt í að hin frægu fornkapparnir Guðmundur Kjærnested eðlutré frá Bandaríkjunum þarfnist nægrar birtu til þess að rétta sig viö, en aUa lýs- ingu á gróðurbeltið vantar ennþá. Það var algerlega rang- hermt að verktakinn við uppsetningu og hirðingu gróöursins hefði ekki staðið við uppsetningu lýsingarinn- ar. Hún er einfaldlega ekkert á hans könnu heldur gersam- lega á ábyrgð byggingar- nefndar flugstöðvarinnar. Verktakinn er danskur ís- lendingur sem rekur með íslenskri konú sinni vinsæla blómaverslun í Ingólfsstræti íReykjavík. Eðli-legt Ýmsir hafa orðið til þess að Qalla um bandarísku eðlu- trén í Leifsstöð, þótt þau séu vitanlega engin eðlutré held- ur hreinustu gersemi og eðaltré. Ástæðan er annars vegar verð tijánna sem þótti og þykir ennþá með ólíkind- um og hins vegar að í þeim leyndust eðlur sem ekki hafa sést hér lifandi fyrr. Trén hafa nú hlotið íslenskt heiti og nefnast eðh-legt. Eðl- an, sem hreinsunarmenn handsömuðu og lenti i krukku vísindamanna í Há- skólanum, heitir að sjálf- sögöu Leifur og vegna örlaga sinna vitanlega Leifur óheppni. Hin eðlan, sem menn vilja að minnsta kosti halda að leiki enn lausum hala í flugstöðinni, gengur undir heitinu Eiríkur rauði. Sumir halda þó að hún sé Eiríkurdauði. Úti um ættarlaukinn? Húsvíkingur nokkur ber upp harm sinn í Víkurblaö- inu og óttast mjög um örlög ættar sinnar. Tilefniö er mik- il vonbrigði með ráðleggingar á Stöð 2 þar sem maðurinn með moldugu hendurnar kynnti lauk sem lostahvata. Húsvíkingurinn, sem segist vera á milli rauða og gráa fiðringsins, kveður sig og jafnaldra sína hafa brugðið skjótt við og keypt upp lauk- lager kaupfélagsins. Hann segir að þrátt fyrir miklar kúnstir við matreiðslu og mikla laukneyslu þá sam- stundis hafi hann verið alveg óvenju linur um kvöldiö og hreint ekkert skárri morgun- inn eftir. Greinilega hefur eitthvað farið úrskeiðis á Húsavík, ell- egar áhrifm koma síðar fram. Það eitt er víst að undanfariö hefur verið lauklaust i bæn- um, eða svo gott sem, svo að tilrauninni er hvergi nærri lokið þrátt fyrir vonbrigði það sem af er. Ástæða þess að tilrauninni er haidið áfram mun vera eindregnar óskir kvenna á staðnum sem vilja herða róðurinn. Umsjón: Herbert Guðmundsson Unglingameistaramótið í skák: Andri Áss vann yfirburðasigur Unglingameistaramóti íslands í skák, skákmanna 20 ára og yngri, lauk með yfirburðasigri Andra Ass Grétarssonar, sem hlaut 7 vinninga sem er fullt hús. í öðru sæti varð Gunnar Björnsson með 5,5 vinmnga, í þriðja sæti varð Tómas Björnsson, líka með 5,5 vinninga, i fjórða sæti varð Þröstur Árnason með 5,0 vinn- inga og í fimmta sæti Snorri G. Bergsson, líka með 5,0 vinninga. Árangur Andra Áss, að ná fullu húsi vinninga í jafnsterku móti og þessu, vekur athygh. Hann er greini- lega kominn í hóp hinna sterkustu af ungu skákmönnunum okkar. Hann fékk í sigurlaun ferö á skák- mót erlendis, auk bókagjafar, en fimm efstu menn fengu bókaverð- laun. -S.dór t } t t t t í BLAÐ BURÐARFÓLK í eýti/CCátiyv /we/sjjC: Mánagötu Karlagötu Háaleitisbraut 11—51 Starhaga Lynghaga Fálkagötu Hjarðarhaga Oddagötu Aragötu Litla-Skerjafjörð Hverfisgötu 1-66 t fr t t 'k fr AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11 * I t t II "I? ^ ^ fl ft ft ft SÍMI 27022 SOFASETT í miklu úrvali. Opið kl. 10-19 ALLA DAGA. Greiðsluskilmálar Svefnsófasett, 3 +1 +1, 84.980 stgr. Fiocco, 3 + 1 +1, 108.000 stgr. Koala, 3 + 1 +1, 109.000 stgr. Leðursófasett, 3 + 1+1, 139.650 stgr. % JÐókturgorðin Garðshorni - Fossvogi - Sími 16541.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.