Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Page 17
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. 17 Lesendur „Tjömin hefur lengstum veriö stolt og prýöi borgarinnar,“ segir Gunnar. Ráðhúsbygging við Tjörnina: Gengið verði til atkvæða Gunnar Sverrisson skrifar: Það mál, sem virðist bera hæst hér í höfuðborginni þessa stundina og var reyndar fundað um sl. helgi, er það hvort leyfa skuli byggingu ráð- húss við Tjörnina. Tjörnin hefur lengstum verið stolt og prýði borgarinnar og hún sett svip á hana svo um munar þannig að mér finnst að ekki megi hrófla viö neinu sem henni við kemur, jafnvef þótt heilt ráðhús eigi í hlut. Þessu máli hefur reyndar skotið upp öðru hvoru undanfarin ár og því held ég að þetta sé einhvers konar bóla sem skýtur upp kollinum við og við og hjaðni því af sjálfu sér nú eins og áður. Mér fmnst þó að í þessu tilviki sé tími til kominn að allir Reykvíkingar fái tækifæri til að greiða atkvæði um málið - hverjir eru með hverjir á móti. Ég held að það yrði sterkara heldur en að láta framkvæma skoð- anakönnun eins og var víst sam- þykkt á áðurnefndum fundi. Það hefur verið gengið til atkvæða greiðslu um önnur eins mál svo méi fmnst það engin frágangssök þót þetta mál lyti því lögmáli. En frómt frá sagt þá fmnst mér ac vinur okkar, tíminn, vinni best mec réttum aðilum í þessu máli og er þé ekki örgrannt um að ég hafi það á tilfmningunni að endanleg niður- staða verði sú að ráðhúsið fái annan og virðulegri stað sem allir verða sammála um. Vegaviðhald í Borgarfirði Heflun og frágangur óviðunandi Bílstjóri af Vesturlandi hringdi: Ég sé mig tilneyddan til að láta í ljósi opinberlega vanþóknun mina yfir því hversu illa er staðið að við- haldi vega í Borgarfiröinum. Þetta á þó sérstaklega og kannski eingöngu við um vegheflunina sem er frá- munalega illa unnin. Ég tek sem dæmi að þegar maður kemur á nýheflaðan vegarkafla og reiknar með að allt sé nokkurn veg- inn slétt og fellt framundan þá kemur í Ijós að þar er um algjört „þvotta- bretti“ að ræða. Þetta kannast fleiri við en ég í þessum landshluta. Þetta stafar af því að þeir sem hefla vegina aka of hratt þegar þeir dreifa úr malarreitunum. Um fóstureyðingar: í tilefni heimskulegs sjónvarpsþáttar Richard Úlfarsson skrifar: Það þárf varla að spyrja einn eða annan að því hvort konum líki að fara á slysavarðstofu til að láta fiar- lægja æxli! Þeir sem eru á móti fóstureyðing- um eru það vegna þess að þeir telja fóstrið mannveru með ákveðin rétt- indi eða þau sömu og aðrir í þjóð- félaginu hafa. Þess vegna beri þjóðfélaginu skylda til að verja þaö eins og aðra þegna. Fóstureyöing er aldrei félagslegt vandamál heldur spurning um það hvort réttur fóstursins er einhver yfirleitt. Þegar allt kemur til alls er vandamálið það að ákvarða hvenær fóstrið verður lifandi mannvera með sál. Ef þetta á sér stað við fæðingu ætti konan náttúrlega að vera sjálfráð um líkama sinn og fóstur. Ef hins vegar lífiö kviknar við getnað ber þjóð- félaginu eftir mætti að veija fóstrið. Eg er nýkominn úr langkeyrslu víða um landið og hef orðið var við hið gagnstæða. Á Ströndum t.d. þar sem verið er að hækka upp veg örlar ekki á neinum þvottabrettum. í Lundarreykjadal er búið að hækka upp og styrkja veg og er mjög til bóta, en vegurinn er alltof mjór, og á kafla, sem er um það bil 8-10 km langur er ekki viðlit að mætast, nema við afleggjara að bæjum. En það eru fyrst og fremst þvotta- brettin margnefndu sem gera vegi í Borgarfirði mun verri an annars staðar. Menn eru orðnir þreyttir á þessu og telja óþarfa að viðhafa svona vinnubrögð sem ég tel, eins og áður segir, vera að kenna of mikl- um hraða í vinnuframkvæmd. Og ef það er rétt, sem sagt er, aó þeir sem vinna verkið fái kaupauka, samkvæmt unnum kílómetrum, þá er ekki að undra þótt eitthvað fari úrskeiðis. Það hlýtur að vera hægt að finna aðra aðferð til aö umbuna mönnum. Þessi vinnubrögð eru þó hvaö mest áberandi á vegum Borgar- fiarðar og eru rakin til aðila úr Borgarnesi og Akranesi án þess að ég útlisti það frekar. Ég vænti þess hins vegar að ein- hverjir þeir lesi þetta sem geta og eiga að hafa umsjón með viðgerðum og viðhaldi vega í Borgarfirði og breyti þessu til batnaðar fyrir alla þá sem um vegina fara. „Fóstureyðing er aldrei félagslegt vandamál" segir m.a. i bréfinu. SÁLFRÆÐINGUR - UNGLINGADEILD Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar auglýsir eftir sálfræðingi í fullt starf. Skilyrði er að viðkomandi hafi að minnsta kosti 2 ára starfs- reynslu sem sálfræðingur. Starfið felst meðal annars í meðferð, ráðgjöf við starfshópa og þátttöku í stefnu- mótun og skipulagningu unglingastarfs. Umsóknarfrestur er til 8. desember. Upplýsingar veita Snjólaug Stefánsdóttir, deildar- stjóri unglingadeildar, í síma 622760 og Gunnar Sandholt, yfirmaðurfjölskyldudeildar, í síma 25500. Umsóknum skal skilað til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar á umsóknareyðublöðum sem þar fást. LITLA GLASGOW GA-GA GÓRILLAN! Diskódans- apinn Sknður, dettur grætuv oy tendur siöan sjá\f uPP'-'- ' Einnig föt, skartgripir og smágjafavara í miklu úrvali Laugavegi 91 CTty 91

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.