Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 12
12
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
Kiyddspeki
Neytendur
Laukurinn má
ekkert kosta
„Þaö er ágætt aö þú nefnir þetta
með laukinn en þannig er að lauk-
ur má ekkert kosta. Þaö er bara
spurt um verð og tilfellið er að góð-
ur laukur kostar meira. Við eigum
t.d. fyrsta flokks lauk núna en stór-
markaðirnir vilja heldur lélegri
laukinn," sagði Gísli Magnússon.
hjá Bönunum hf. er DV spurði
hvers vegna oft væri lélegur laukur
á boðstólum í matvöruverslunum
hér á landi. Hér er hægt að fá sjald-
gæfa ávexti og grænmeti sem varla
nokkur maður þekkir og á sama
tíma er ekkert að fá annað en hand-
ónýtan lauk.
Gísli sagði að stórmarkaðirnir
væru svo hræddir við verðkannan-
ir Verðlagsstofnunar, sem þeir
vissu aldrei hvenær dyttu yfir, að
þeir þyrðu ekki að hafa almenni-
legan lauk á boðstólum. Hann
sagðist helst vilja hafa þann hátt-
inn á að neytendum væri gefinn
kostur á að fá bæði dýran og góðan
lauk og einnig lélegan og ódýran.
En þessar tegundir yrðu að vera
hlið við hlið í versluninni til þess
að fólk gæti séð mismuninn með
eigin augum.
Við tökum undir orð Gísla og
biðjum um góðan lauk. Það gengur
svo mikið úr lélega lauknum að það
er fljótt að koma í verðinu. Nú á
að vera til mjög góður pólskur
laukur sem gæti hugsanlega kostað
um 65 kr. kg út úr búö. Áður hefur
verið til frekar lélegur laukur sem
kostaði nálægt 36 kr. út úr búð.
-A.Bj.
í norsku blaði lásum við eftirfarandi
speki um krydd.
* Svartur pipar er mest selda
kryddið í heiminum.
* Hvítur pipar er þroskaður, flysj-
aður og þurrkaður ávöxtur af sama
runna og svarti piparinn.
* Koriander var notað gegn ástar-
sorg í gamla daga en í dag er það
notað í pylsur.
* Cayenne (chili) er kallað „pipar
fátæka mannsins" og er mest notaða
krydd í heiminum.
* Kurkuma (turmerik á ensku,
guyrkemeie á Norðurlandamálum)
er ekki notað vegna bragðsins heldur
vegna þess að það gefur fallega gulan
lit. Þetta krydd er einnig notað til
þess að lita fatnað.
* Dilla (dill) þótti gott til varnar
nornum á miðöldum.
* Kardimommur passa vel í kaffið
- það segja arabarnir í það minnsta.
* Valmúafræ koma frá sömu jurt
og ópíum.
Það fer ekki milli mála að jólin eru
á næsta leiti. Það eru meira að segja
komnir jólasveinar og jólavörur í
verslanir. í tilefni af jólunum birtum
við hér mynstur af einfóldum en
mjög sætum jólahjörtum sem auð-
velt er að sauma í hvað sem er.
Ef þig langar að sauma svona
krosssaumshjörtu í hvít handklæði
til þess aö gera þau jólaleg er auð-
velt að gera það með því að þræða
grófan stramma á handklæðið og
* Saffran er unnið úr krókusum.
Til þess að fá 1 kg af saffran þarf
hvorki meira né minna en 70 þúsund
krókusplöntur - enda er lítið notað
af þessu kryddi hveiju sinni.
* Múskat og múskathýði eru tvö
ólík krydd.
* Mynta er einkennandi fyrir
breska matargerð.
* Hvítlaukur er skínandi vöm
gegn bakteríum og blóðsugum.
sauma svo hjartað í strammann. Þeg-
ar því er lokið er auðvelt að rekja
strammann hreinlega upp undan
krosssaumnum.
Svona hjörtu má sauma í barna-
smekki, svuntur, pottaleppa, diska-
þurrkur og munnþurrkur, dúka og
púða. Það er bara notað hvítt og rautt
garn og efnið getur verið hvað sem
er, rautt, hvítt, blátt eða grænt.
-A.BJ.
Þetta er fallegur og góður laukur. DV-mynd Brynjar Gauti
Einföld jólahjörtu
Engin skftíki við (yldsmíði
eða úttekt úr bönkum
Eiríka hafði samband og vakti láta skipta um læsingu í skránni. aöaldreierofvarlegafariðogsjálf-
athygli á tveimur málum. Henni Þá vildi Eiríka einnig vekja at- sagt að nota leyni-kennitákn þegar
fmnst ástæða til þess að þeir sem hygli á því að fólk ætti að sýna bankabækur eru annars vegar.
stundalyklasmíðiættuaðhafaein- meiri varúö hvaö varðar Annarserþaðlíkagóðvarúðarráð-
hvers konar skrá yfir þá sem fá bankabækur. Það ætti almennt að stöfiin aö geyma bankabækumar í
smiöaða lykla hjá þeim. nota lykilorö eða leyni-orð sem bankanum sjálí'um. Þá fær viðkom-
Eins og nú er getur hver sem er enginn þekkir nema viðkomandi. andi kort sem hljóöar á nafh sem
komið með hvaða lykil sem er og Þannig ætti að vera hægt að koma hann framvísar þegar taka á út úr
fengið smíðað eftir honum. Það í veg fyrir að hægt sé að taka fé bókinni.
þarfekkiaösýnaneinskilriki. Ei- út úr stolnum bankabókum. Viö erum alltof sofandaieg hvað
ríka varð fyrir því aö lykli að íbúð Hún benti einnig á aö ekki þarf varðar öryggi okkar og eigna okkar
hennar var stolið og haföi viðkom- að sýna persónuskiiríki við úttekt enda kemur það fólki oft í koll.
andi látiö smíöa eftir honum. Þá á flármunum í banka. -A.Bj.
dugði ekki annaö fyrir hana en að Viö tökum undir orð Eiríku um
PSST! ÞAÐ ER DRAUMUR AÐ
SOFA MED BORÁS
tlú þarftu eKKi lengur að Kvíða fyrir því að fara í
háttinn. iiann er sænskur og alveg frábær, þú verð-
ur að prófa hann.
B0RÁ5 sængurfatnaður er sænsk gæðavara
úr 100% mjúKri bómull og fæst í öllum helstu
heimilis- og vefnaðarvöruverslunum landsins.
B0RÁ5 sængurfatnaðurinn er nefnilega sér-
saumaður fyrir almennileg TslensK heimili.
Koddaverin eru 50x70 cm. Engin afgangsbrot sem
lafa útaf eða sem verður að troða undir. Eða þá
þessi 5lag5mál við að troða stóra og góða kodd-
anum sínum inn í alltof lítið koddaver.
MEITAKK! Ég tek sænska BORÁ5 sængurfatnaðinn
fram yfir allt annað - þú líka.
borás