Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. 25 íþróttir átti stórleik er Islendingar sigruðu Pólverja í landsleik í Laugardalshöll í gærkvöldi með 28 mörkum gegn 21. íslendingar sýndu stórkostlegan leik, sérstaklega í fyrri halfleik en þa var soknarnýting liðsins 80,9%. Páll sést hér skora eitt af 6 mörkum sínum í gærkvöldi. Til hægri á myndinni eru þeir Bogdan Wenta og Guðmundur Guðmundsson. Liðin leika að nýju í Laugardalshöll í kvöld og má þá búast við mun öflugri mótspymu Pólverja. DV-mynd Brynjar Gauti 5 stórsigri gegn Pólveijum, 28-21 ávallt sett á oddinn og eigingirni sást ekki. Svona á þetta aö vera og ekki öðruvísi. Varnarleikur og markvarsla í háum gæðaflokki Varnarleikur íslenska liðsins í gær var mjög góður lengst af en þó sáust nokkur mistök. Geir Sveinsson lék manna best í vöminni en einnig voru þeir Kristján Arason og Þorgils Óttar mjög sterkir. Þáttur Einars Þorvarðar- sonar í þessum sigri var mikill. Hann varði 7 skot í fyrri hálfleik en stóö sig svo enn betur í þeim síðari og varði þá 10 skot, samtals 17 skot. Einar sýndi sínar bestu hliðar í síðari hálfleik og náði því meðal annars að grípa léttilega eitt skot Pólverjanna. Stórkostleg markvarsla sem áhorfendur kunnu vel að meta sem og leik íslenska liðsins í heild. Mörk íslands: Alfreð Gíslason 7/1, Kristján Arason 6/2, Páll Ólafsson 6, Þorgils Óttar Mathiesen 4, Karl Þráins- son 3, Siguröur Sveinsson 1 og Siguröur Gunnarsson 1. • Flest mörk Pólveija skoraði Leslaw Dziuba, 7/3, og Bogdan Wenta sem skorði 4 mörk. • Leikinn dæmdu þeir Öjvind Bol- stad og Terje Anthonsen frá Noregi og skiluðu sínu hlutverki vel. -SK SÍOUK KVENSKÓR - HERRASKÓR VESTUR-ÞÝSKIR GÆÐASKÓR SIOUX skór eru aðeins fáanlegir í tveim verslunum Skósölunni, Laugavegi 1, Skóverslun Kópavogs, Hamraborg 3. Umboðs- og heildverslun ANDRES GUÐNASON HF., Bolholti 4, sími 686388.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.