Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Pantanasími 13010 k ^
Litakynning.
Permanettkynning.
Strípukynning.
Rakarastofan Klapparstíg
Pantanasími 12725
STÚDENTAFÉLAG REYKJAVÍKUR
STOFNAD 1871
FULLVELDISFAGNAÐUR
STÚDENTAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
VERÐUR HALDINN
LAUGARDAGINN 28. NÓVEMBER 1987
í ÁTTHAGASAL HÓTEL SÖGU
Boðið er upp á glæsilegan kvöldverð. Inga Backman
söngkona kemur fram og ræða kvöldsins verður flutt
af Jóni Erni Marinóssyni. Fjöldasöng er stjórnað af
hinum landskunna „stuðmanni" Valdimar Örnólfs-
syni. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi.
Borðapantanir í síma 67 33 55.
Stjórnin
MITSUBISHI PAJERO SUPER WAGON
. ..... ' }
- lágþekja, aflstýri, árg. '87, ekinn 16 þús., þensín,
útvarp/segulband, rafm. í rúðum, beinsk., 5 gjra,
dráttarkúla, hvítur. Verð 11 50 þús.
Laugardaga
kl. 13-17.
Globusn
Lágmúli 5, Reykjavík
Sími 91-681555
Utiönd
Lee Hamilton, formaöur nefndar Bandarikjaþings um Iransmáliö, kynnti í gær skýrslu þingsins um vopnasölu-
hneykslið. Simamynd Reuter
Reagan forseti
óvirti lögin
ísrael mælti mjög með vopnasöl-
unni til írans en lokaákvörðunin var
tekin af Reagan Bandaríkjaforseta,
segir í skýrslu Bandaríkjaþings um
vopnasöluna sem birt var í gær.
I skýrslunni segir að ísraelsmenn
hafi fyrst stungið upp á að Banda-
ríkjamenn seldu vopn til írans
sumarið 1985 til þess að fá gísla látna
lausa. ísraelskir embættismenn hafa
gert lítið úr aðild sinni að málinu.
Shimon Peres, sem var utanríkisráð-
herra þegar sumir athurðanna
gerðust, sagði í gær að ekki sé hægt
að segja að ætlun ísraela hafi verið
önnur en að aðstoöa við frelsun gísl-
anna.
Reagan Bandaríkjaforseti er sagð-
ur bera alla ábyrgö á vopnasölunni
og er hann sakaöur um að hafa leyft
hópi öfgamanna úr starfsliði sínu aö
sjá um leynilegar aðgerðir sem lít-
ilsvirtu lögin. Forsetinn er þó ekki
sakaður um að hafa brotið lög né um
að hafa vitað fyrirfram um að starfs-
menn hans hafi sent hagnaðinn af
vopnasölunni til kontraskæruliða í
Nicaragua.
í skýrslunni er bent á að ef Reagan
Bandaríkjaforseti hafi ekki vitað að
öryggisráðgjafar hans höfðu fyrir
stafni þá hefði hann átt að vita það.
Reagan, sem einnig nú er sakaður
um að að fordæma ekki athæfi undir-
manna sinna með því að berjast gegn
banni þingsins við aðstoð við kontra-
skæruliða, er sagður hafa hegðað sér
þannig að þeir sem vissu af peninga-
flutningunum til kontraskæruliða
voru þeirrar skoðunar að þeir væru
að framkvæma stefnu forsetans.
í skýrslunni er einnig greint frá
danska skipinu Erria, sem Oliver
North, fyrrum starfsmaður Hvíta
hússins, keypti til að flytja vopn til
þeirra er berjast gegn kommúnistum
víðs vegar um heiminn. Það var í
apríl 1986 sem North keypti skipið
fyrir rúmlega 300 þúsund dollara.
Greint er frá ferðum skipsins sjö
mánuði þar á eftir. Var þar um að
ræða ferðir til Kýpur og Portúgal,
ísraels og Póllands og fleiri staða þar
sem náð var í vopn. Þegar upp komst
um vopnasöluna fyrir ári var skipinu
lagt í Fujairah í Persaflóa. Þar beið
skipið eftir tveimur sovéskum skrið-
drekum sem menn Norths höíðu
lofað en ekkert varð af efndunum.
Einnig er greint frá áætlun Norths
um að leigja hermenn í Líbanon með
aðstoð ísraels.
CITROEN BX 16 TRS
árg. 1985, 4 gíra, ZF sjálfskipting, vökvastýri, ekinn
aðeins 10 þps., tvídáklæði, rafdrifnar rúður, central
læsingar, reyklitað gler, bíll í sérflokki. Verð 570 þús.
OPIÐ
LAUGARDAGA
KL. 13-17
Globusn
Lágmúli 5, Reykjavík
Sími 91-681555
Panama bauðst til hiyðju-
verka í Nicaragua
Yfirmaður hersins í Panama
bauöst til aö sjá um skemmdarverk
og jafnvel morð í Nicaragua fyrir
Reaganstjórnina. Frétt um þetta birt-
ist í bandaríska dagblaðinu New
York Times í morgun.
Sagði blaðið að ónafngreindir emb-
ættismenn heföu ljóstrað upp um
þetta tilboð til að útskýra óbeina
ásökun í skýrslu Bandaríkjaþings
um vopnasölumálið sem birt var í
gær.
í blaðinu var sagt frá því aö Oliver
North hefði þegið boð Noriega, yfir-
manns hersins í Panama, samkvæmt
skipunum yfirmanns síns, Johns
Poindexter, en áætlunin kom aldrei
til framkvæmda.
Samkvæmt skýrslunni skipaði Po-
indexter North að láta sig aldrei
verða viðriðinn samsæri eða morð
en blaðið segir að hann hafi ekki víl-
að fyrir sér að láta aöra sjá um
hryðjuverk. í skýrslunni er þess get-
ið að þriðji aöili hafi boðist til að taka
shkt að sér.
Blaðiö segir aö North hafi sagt
rannsóknarnefnd að hann hafi verið
rekinn áður en hægt hefði verið að
hrinda áætluninni í framkvæmd.
Viðbrögð í Nicaragua við skýrsl-
unni um vopnasölumálið voru á
þann veg að Reagan hefði brotið
lögin. Var dagskrá rofin í ríkisút-
varpinu þar tii þess aö boða frétt-
imar.
Greint var frá skýrslunni í smá-
atriðum og þá sérstaklega þar sem
þess var getið að menn forsetans
gætu hafa gerst sekir um lögbrot
og reynt að hylma yfir misgjöröir
sínar með því að beina hagnaöin-
um af vopnasölunni til kontra-
skæruliða í Nicaragua.
Engin viðbrögð komu frá stjóm-
inni í Nicaragua en embættismenn
sögðu í trúnaöi að skýrslan stað-
festi þá skoöun stjómarinnar að
Reagan hefði ekki farið aö lögum.
TaUð er óUklegt að vegna vopna-
söluhneyksUsins og friöarumleit-
ana í Miö-Araeríku muni verða
erfitt fyrir Reagan aö knýja fram
aöstoö við kontraskæruliða á
Bandaríkjaþingi.