Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Síða 11
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. 11 Utlönd Kosningar_______________ Ozal fær meirihluta Flest bendir nú til þess aö Turgut Ozal, forsætisráðherra Tyrklands, og flokkur hans muni fá hreinan meirihluta á tyrkneska þinginu eft- ir kosningarnar sem fram fara í landinu í lok þessa mánaðar. Kosið verður þann 29. nóvember en skoð- anakannafnir sýna að forsætisráð- herrann á miklu fylgi að fagna meðal tyrkneskra kjósenda um þessar mundir. í skoðanakönnun, sem gerð var fyrir tyrkneskt dagblað, voru nið- Turgut Ozal forsætisráðherra. urstöður þær að Móðurlandsflokk- urinn, flokkur Ozal, myndi hljóta liðlega fjörutíu af hundraði at- kvæða í kosningunum. Fylgi þetta myndi nægja flokknum til að fá tvö hundruð og flmmtíu af fjögur hundruð og fimmtíu þingsætum. í síðustu viku sýndu skoðana- kannanir aö flokkur forsætisráð- herrans naut fylgis liðlega þrjátíu og sjö prósent kjósenda, svo hann virðist vera að auka við sig jafnt og þétt. í síðustu þingkosningum í Tyrk- landi fékk Móðurlandsflokkurinn, sem er íhaldssamur, tvö hundruð fimmtíu og eitt þingsæti. Þá voru á þingi aðeins fjögur hundruð þing- menn, eða fimmtiu færri en nú. Aðrir flokkar virðast samkvæmt skoðanakönnunum þessum fá mun minna atkvæðamagn og er sá stærsti þeirra, flokkur sósíaldemó- krata, aðeins með tæplega átján prósent atkvæða. Hefur kost- að tugi milljarða Fjögurra ára borgarastyrjöld á Sri Lanka hefur valdið tjóni sem nemur nær tveim milljörðum Bandaríkja- dala, eða um sjötíu milljörðum íslenskra króna, að því er fjármála- ráðherra landsins, Ronnie de Mel, sagði í gær. Ráðherrann fylgdi fjárlögum landsins fyrir komandi ár úr hlaði í gær. Sagði hann við það tækifæri að meginverkefni stjórnvalda þar yrði á næstunni að endurreisa efnahagslíf landsins og koma því á réttan kjöl að nýju. Sagði hann að í tjcnatölum þeim, er hann nefndi, væri aðeins reiknað inn beint tjón af völdum átakanna undanfarin ár. Bætti hann við að óbeint tjón á landi, eignum og efna- hag ríkis og þegna yrði aldrei hægt að reikna út. Talið er að um sjö þúsund manns hafi fallið í átökunum á Sri Lanka. Auk þess hefur hálf miljón manna misst heimili sín. Meira en eitt hundrað þúsund byggingar, á tólfta þúsund fyrirtækja, um eitt þúsund langferðabifreiðar og þrjú hundruð skólar hafa orðið fyrir árásum og meiri háttar skemmdum eða eyði- leggingu. Að sögn fjármálaráðherrans leitar Sri Lanka nú fyrir sér um aðstoð erlendis frá til enduruppbyggingar í landinu. Alþjóðabankinn hefur látið gera áætlun um þessa endurupp- byggingu og er talið að kostnaður við hana verði nær fjögur hundruð millj- ónir Bandaríkjadala. Er áætlað að enduruppbyggingin taki þrjú ár. Sú aðstoö, sem Alþjóðabankinn býður fram, er þó ekki nema brot af því sem de Mel hefur sagt nauðsyn- legt. Gerir ráðherrann ráð fyrir að enduruppbygging landsins kosti lið- lega tvo og hálfan milljarö Banda- ríkjadala, eða nær hundrað milljarða íslenskra króna. Stjórnarhermenn á Sri Lanka lyfta særðum félaga sínum af flugvél eftir bardaga við skæruliðahreyfingu tamila á norðurhluta eyjunnar. Simamynd Reuter GLÆSIVAGNAR Á GÓÐU VERÐI Toyota Corolla DX, árgerð 1987, sem nýr bíll, ekinn aðeins 5 þús. km, 3ja dyra, litur grænsanseraður, aðeins bein sala. Verð 440 þús. Nissan Sunny, 1.6 SLX, 4x4, árgerð 1987, fallegur, fjórhjóladrifinn bill, ekinn 16 þús. km, 5 gíra, vökva- stýri, litur silfur og samlitir stuðar- ar, aðeins bein sala. Verð 540 þús. Mitsubishi Colt EXE, árgerð 1987, ekinn aðeins 7 þús. km, litur hvítur, samlitir stuðarar, útvarp, segul- band, aðeins bein sala. Verð 420 þús. Subaru Justy J-10, 4x4, árgerð 1987, ekinn aðeins 7 þús. km, 5 gíra, 5 dyra, útvarp, segulband, litur hvítur, aðeins bein sala. Verð 390 þús. Chevrolet Monza SL/E, árgerð 1986, ekinn 33 þús. km, 5 gíra, vökvastýri, 4ra dyra, útvarp, segul- band, litur dökkgrænn, skipti koma til greina á ódýrari bifreið. Verð 470 þús KAUPENDUR, ATHUGIÐ: NÆSTU DAGA SELJUM VIÐ BÍLA Á GÓÐUM KJÖRUM, T.D. SKULDA- BRÉFUM 12-24 MÁNAÐA. Subaru 1800, station, 4x4, árgerö 1987, ekinn aðeins 11 þús. km, 5 gira, vökvastýri, útvarp, segulband, rafmagn í rúðum og speglum, drátt- arkúla. silsalistar, grjótgrind, litur blár, skipti koma til greina á ódýr- ari Subaru Justy. Verð 700 þús. BÍLAR VIÐ FLESTRA HÆFI. GRAFARV0GUR Sundakaffi opnar útibú í Grafarvogi laugardaginn 21. nóvember kl. 7.00 Við bjóðum upp á meðal annars: * Heimllismat í hádeginu * Hamborgara og franskar * Grillaðar samlokur * Kaldar samlokur * Heítar pylsur * Glæsilega kaffiteríu Opið alla virka daga frá kl. 7.00-20.30. Laugardaga frá kl. 7.00-18.00. Sunnudaga frá kl. 9.0(1-18.00. SUNDAKAFFI v/Dyrhamra, Grafarvogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.