Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 13
—
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
13
DV
Neytendur
Ávaxta- og grænmetisverð svipað og í fyrra
Dæmi um vernlegar verðlækkanir,
eins og t.d. á kiwi og tómötum
Verö á innfluttu grænmeti er svipaö nú eins og þaö var i fyrra. Fáeinar tegundir hafa þó hækkað eitthvað í verði.
DV-myndir Brynjar Gauti
Heildsöluverö banana hefur hækkað um 9 kr. siðan Þarna er kominn karambóla sem skorinn er i sneiðar
i nóvember i fyrra. og notaður til að skreyta drykki og ábætisrétti.
Verð á ávöxtum er mjög svipað og
það var í fyrra, sumar tegundir
hafa jafnvel lækkað í verði og einna
mest kiwi ávöxturinn sem lækkað
hefur í verði svo um munar, eða
um 30%. Svanhildur Árnadóttir hjá
Mata hf. sagði í samtali við DV að
tekist hefði að ná verðinu niður
með hagstæðum innkaupum. Fleiri
ávextir hafa lækkað, þó ekki jafn-
mikið, en í fyrra voru til græn
ítölsk vínber sem kostuðu 150 kr. í
heildsölu. Sams konar vínber kosta
í dag 119 kr. í heildsölu. Hollenskar
perur kosta í dag 69 kr. í heildsölu
en í fyrra var heildsöluverð á
frönskum perum 82 kr. og 67 kr. á
þýskum. Bananar hafa hins vegar
hækkað í veröi siðan í fyrra, sem
varla er þó orð á gerandi. Heild-
söluverð hefur hækkað um 9 kr.,
úr 70 í 79 kr. frá því í nóvember í
fyrra.
Úrval af ávöxtum er mikið. Svan-
hildur sagði að nú væru t.d. til
fjórar tegundir af rauðum eplum
sem öll eru frá Bandaríkjunum og
að auki gul og græn frönsk epli.
Gísli Magnússon hjá Banönum hf.
sagði að íslenskir neytendur
keyptu mikið „eftir auganu“ og
vildu ekki annað en fyrsta flokks
vöru. Nefndi hann einmitt dæmi
af eplum. Það þýðir ekki að flytja
hingað nema falleg og góð epli.
Hann sagði að bannað væri að
flytja epli til Danmerkur á meðan
þeir væru að ljúka við eigin upp-
skeru og mætti stundum sjá epli á
dönskum. markaöi sem ekki þýddi
að bjóða íslenskum neytendum.
Það eru því fleiri sem verða að
sæta afarkostum með innflutnings-
bönn en við hér á landi.
Svanhildur sagði að verið væri
að taka nýja sítrusávexti í hús og
væri verð á glænýjum klementín-
um og mandarínum frá Spáni og
Marokkó lægra en í fyrra.
Innflutningsbann á græn-
meti aflétt nema á hvítkáii
Innflutningsbanni hefur nú verið
létt af öllu grænmeti nema hvít-
káli. Gísli Magnússon sagði að þeir
væru óánægðir með að fá ekki að
flytja inn hvítkál því það íslenska
væri orðið svo lélegt og mikið væri
kvartað yfir því.
Verð á innfluttu grænmeti er
svipað og í fyrra í mörgum tilfellum
en sumar tegundir hafa hækkað
eitthvað smávegis aö sögn Svan-
hildar.
Þegar opnað var fyrir tómatinn-
flutninginn snarlækkaði verðið á
tómötunum eins og neytendur hafa
vafalítið tekið eftir. En svo ein-
kennilega vildi til að eitthvað var
eftir af íslenskum og þeir lækkuðu
einnig niöur „úr öllu valdi" eða
langt niður fyrir það verð sem þeir
voru lægstir á yfir háuppskerutím-
ann, eins og bent hefur verið á hér
á neytendasíðunni.
Það er ýmislegt einkennilegt við
tómatinnflutninginn annað en að
hann er bannaður mikinn hluta
ársins. Til þess að flytja inn tómata
þarf gjaldeyrisleyfi og þar að auki
er greiddur af þeim 40% tollur eins
og öðru innfluttu grænmeti. En
þrátt fyrir þetta komast tómatar á
„skaplegt" verð um leið og inn-
flutningurinn hefst.
Tollur af þessu en ekki hinu
Af öllu innfluttu grænmeti er
greiddur 40% tollur. Tollur er hins
vegar aðeins greiddur af ákveðnum
tegundum af ávöxtum en ekki af
öðrum. T.d. er ekki greiddur tollur
af sítrusávöxtum nema af t.d. greip,
pomelo og uglý. Af þeim er greidd-
ur 15% tollur. Enginn tollur er
greiddur af eplum, melónum og
banönum en 15% af perum. Af
ferskum berjum, eins og vínberjum
og jarðarberjum, er greiddur 40%
tollur.
Framandlegir ávextir
í stórmörkuöunum eru jafnan á
boðstólum alls konar framandlegir
ávextir sem fluttir eru til landsins
í litlu magni. Þeir eru flestir mjög
dýrir í innkaupi enda margir sjald-
gæfir, jafnvel erlendis þar sem
markaðurinn er stærri en hér.
Þessir ávextir heita ókunnuglegum
nöfnum. eins og karambóla sem er
gulur á lit, skorinn í sneiðar og
notaður til skrauts á drykki og
ábætisrétti, litchie, vínrauður með
hrufóttri skel, sem etið er innan
úr. notað í eftirrétt. Kumquat er
agnarlítill sítrusávöxtur sem not-
aður er til bragðbætis í salöt og
búðinga og má borða hann allan
og hýðið með. Mjög sérstætt bragð.
Ástríðuávöxtur (passions fruit)
lítur út eins og ónýt plóma en það
er bara skelin. því etið er innan úr
henni. Og fleiri sjaldgæfir ávextir
eru til hér í verslunum en hér hafa
verið nefndir.
-A.Bj.
Bjarni Þ. Halldórsson,
Umboðs og Heildverslun,
Vesturgötu 28 sími: 29877