Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Side 19
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
19
___________________________Erlendir fréttaritarar
Vilja stórhækka sektir
fýrir umhverfisglæpi
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Ýmiss konar mengun og náttúru-
spjöll ógna umhverfi og heilsu
Norömánna. Yfirvöld hafa hvorki
getu né ráörúm til þess að fylgjast
meö því aö iðnaðarfyrirtæki fylgi
settum reglum um frágang á
hættulegum úrgangsefnum.
Boö og bönn eru brotin bæði leynt
og ljóst og eiturefni, sem eru gráfin
á ólíklegustu stöðum, dreifast um
jarðveginn og geta valdið ban-
vænum sjúkdómum þeim sem
nærri koma. Krabbamein og
lungnasjúkdómar eru taldir al-
gengustu sjúkdómar af völdum
mengunar í Noregi.
Umhverfismálaráðherra, Sissel
Rönbeck, hefur stofnað deild í
ráðuneyti sínu sem á að fylgjast
meö því að reglum um meðferð
úrgangsefna sé fylgt. Einnig stend-
ur til að herða viðurlögin við
lögbrotum af þessu tagi. Ráðherr-
ann stefnir að stórhækkuðum
sektum og fangelsisvist fyrir um-
hverfisglæpina. Við núverandi
aðstæður finnst mörgum fyrirtækj-
um hagstæðara að menga um-
hverfi sitt og borga sekt en ganga
sómasamlega frá eitrinu.
Grafa upp ósómann
En enginn veit hve mörg fyrir-
tækin eru sem syndga gagnvart
reglugerðinni né í hve miklum
mæli. Hópar ungs fólks í Noregi
hafa stofnað samtök sem hafa það
að meginmarkmiði að fletta ofan
af náttúrusvínunum. Umhverfis-
verndarsamtökin Bellona og félag-
iö Náttúrubörn hafa í orðsins
fyllstu merkingu grafið upp alls
kyns ósóma sem annars hefði feng-
ið að liggja um kyrrt.
Síðasta hneykslið, sem Bellona
samtökin uppgötvuðu, var kvika-
silfursmengun frá klórverksmiðju
í Þelamörk. Verksmiðjan er í eigu
stórfyrirtækisins Norsk Hydro sem
er ríkisrekið. Nýjustu tölur benda
til þess að fimmtíu tonn af kvika-
silfri hafi á einhvern máta komist
út í umhverfið í nágrenni verk-
smiðjunnar síðan 1947. Norsk-
Hydro getur með engu móti gert
grein fyrir hvað orðið hefur af öllu
þessu kvikasilfri. Bellona hefur
auk þess flett ofan mörgum fleiri
lögbrjótum á síðastliðnum árum.
Leyfilegir mengunarvaldar
En mengunarvandamálið er enn-
þá umfangsmeira og nægir ekki að
ná í þá sem ganga ólöglega frá sín-
um úrgangsefnum því margir
slæmir mengunarvaldar eru full-
komlega leyfilegir. Dæmi um það
eru sápuverksmiðjurnar sem
framleiða fosfatrík þvottaefni og
eiga ríkan þátt í mengun í ám og
vötnum. Þessi framleiðsla er lögleg
enn sem komið er. Náttúruvemd-
arsamtök hvetja fólk til þess að
kaupa fosfatlaus þvottaefni en
verður lítt ágengt. Einstaklingar
eru frekar en fyrirtækin færir um
að bera þá ábyrgö sem með þarf til
aö varðveita umhverfi sitt og heil-
brigði.
Yfir bæjunum, einkum Osló, hgg-
ur þykkur mökkur af loftmengun
frá búum sem nú þegar eru langt-
um fleiri en vegakerfið þolir. Samt
fjölgar einkabílunum og sífellt
færri nota almenningsfarartæki.
Þriðjungur reykir
Enn einn mengunarvaldur, sem
stjórnast af einstaklingum, eru
reykingar. Vissulega er ein og ein
sígaretta smámunir í samanburði
við fimmtíu tonn af kvikasilfri en
engu að síður spá norsk heilbrigð-
isyfirvöld því að þrjú hundruð
þúsund manns muni deyja af völd-
um reykinga í Noregi á næstu
fimmtíu árum ef reykingar haldast
í óbreyttum mæli. í dag reykir
þriðjungur allra Norðmanna og
það er hátt hlutfall miðað við önnur
lönd. Til dæmis er tahð aö aðeins
fjórðungur Bandaríkjamanna
reyki. Þessar tölur geta gefið vissa
mynd af skaðsemi reykinga þó erf-
itt geti reynst að staðfesta sann-
leiksgildi þeirra. En tölur um
mengun af völdum atvinnuveg-
anna eru ekki til og munu ekki
verða til um ófyrirsjáanlega fram-
tíð.
Norski umhverfismálaráðherr-
ann er bjartsýnn á aö aukið aðhald
með stóriðju og öðrum atvinnuveg-
um geti dregið úr mengun í landinu
en ráðherrann viðurkennir van-
mátt yfirvalda sem reyndar margir
kalla viljaleysi.
Enn sem fyrr er fyrst og fremst
höfðað til samvisku þeirra sem
reka fyrirtæki og sú samviska
verður oft að víkja fyrir skamm-
tímagróðasjónarmiðum.
Jólasveinninn
kominn til Kanada
Gísli Guðmundsson, DV, Ontario:
Jólasveinninn kom til Toronto í
Kanada um helgina og var skrúð-
ganga haldin til að bjóða hann
velkominn. Jólasveinn Kanadabúa
býr á norðurpólnum og á hverju ári
um þetta leyti kemur hann til borgar-
innar.
Tólf hundruð manns tóku þátt í
göngunni. Vagnar með vel þekktum
persónum úr hinum ýmsu ævintýr-
um hðu fram hjá nær tjögur hundruð
þúsund áhorfendum og tuttugu
lúðrasveitir sáu um göngumarsa. í
enda skrúðgöngunnar var svo jóla-
sveinninn sjálfur í rauðu fötunum
sínum að vanda með sítt hvítt skegg.
Það er alltaf mikið um að vera
kringum þessar skrúðgöngur og er
mikiö vandað til þeirra. Allt frá árinu
1905 hafa þessar skrúðgöngur verið
haldnar og eru þær orðnar ómiss-
andi hefð í undirbúningi Kanadabúa
fyrir jólin.
Jólaösin í verslunum Kanada er
komin í fullan gang. Fyrir mánuði
byijuðu fyrstu jólaauglýsingarnar í
íjölmiðlum hér og íjölgar þeim á
hverjum degi.
Skaðabætur
til eyðni-
smitaðra blæðara
Ingunn Ólafedótttr, DV, Birmingham:
Breskir síblæðisjúklingar, sem
smituðust af eyðni eftir að hafa þegið
blóð frá ríkisreknum heilbrigðis-
stofnunum, munu fá meira en tíu
milljónir punda í skaðabætur frá rík-
inu.
Félag síblæðisjúkhnga fór fram á
skaðabætur til handa þeim tólf
hundruð síblæðisjúklingum sem
smituðust af eyðni eftir að hafa þegið
sýkt blóð sem var flutt inn frá Banda-
ríkjunum á árunum 1980 til 1985.
Félagið fór upphaflega fram á það
við heilbrigðismálaráðherra aö hann
setti á stofn trygginga og bótakerfi
fyrir þetta fólk en ráðherrann ákvað
þess í stað að láta félagið sjá um að
ráðstafa rúmlega tíu milljóna punda
styrk frá ríkinu.
Af þeim tólf hundruð síblæöisjúkl-
ingum sem fengu sýkt blóð hafa
sextíu og sex fengið eyðni á lokastigi
og þar af eru fjörutíu og fimm látnir.
Fórnarlömbin eru á aldrinum fimm
til sextíu ára og þeim fjölgar viku-
lega. Átján eiginkonur síblæðisjúkl-
inga hafa einnig smitast af eyðni.
Ókeypis galdra-
tæki til franskra
símnotenda
Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux:
í Frakklandi er til sniöugt tæki
sem heitir minitel. Þetta er htil
tölva sem Póstur og simi afhendir
viöskiptavinum sínum ókeypis -
það er að segja þeim sera eiga síma
því að tækið er tengt við símann
og kostnaðurinn af notkun þess
keraur fram á símareikningi viö-
komandi í formi skrefatalningar
líkt og um venjulegt símtal sé að
ræða.
Minitel samanstendur af skjá og
lyklaborði sem notandinn stimplar
inn á þau stikkorð og þær tölur sem
veita honum aðgang að þeim upp-
lýsingum sem hann leitar að.
Fjölmargir aðilar eru i þessum
upplýsingabanka og ótrúlegt hvað
símaeigandinn franski getur gert
með þessu galdratæki.
Endalaus listi
Ef honum leiðist getur hann
dundað sér við tölvuleiki, vilji hann
nýjustu fréttir stimplar hann inn
númer einhverra hinna mýmörgu
fréttaþjónustufyrirtækja. Hægt er
að fá upplýsingar um lestaferðir,
stöðuna á verðbréfamarkaðnum og
símanúmer og heimilisföng. Mat-
aruppskriftir og veðurfréttir eru
einnig á hstanum sem er endalaus.
Það er ekki einu sinni þörf á að
fara út ef maður vill hitta fólk. Það
nægir bara að stimpla inn retta
tölur og þá fær maður heilu listana
meö skilaboðum og símanúmerum
frá fólki sem virðist ekkert frekar
vilja en hitta mann. Þetta er það
sem Frakkamir kalla rósrauða
minitelið og við íslendingar mund-
um væntanlega nefna ljósblátt.
Klúr skilaboð
Rósrauða minitelið getur stund-
um orðið rautt og skilaboðin
svæsin, hreinlega klúr aö sumra
dómi. Þvi er það að stjómmála-
flokkarnir hafa allir sem einn talað
um þaö tmdanfarnar vikur að eitt-
hvaö þurfi að gera í þessum ósóma.
Hver sem er megi ekki bara nota
þetta þjónustutæki til að segja hvað
sem er. Eftir marga fundi er niður-
staöan sú að rósrauöu skilaboðin
skuli skattlögð aukalega.
Blaöamenn hafa hins vegar ný-
lega komist að því að stjómmála-
flokkarnir sjálfir bjóða símaeig-
endum upp á rósrauöu þjónustuna.
Fyrir utan ýmiss konar pólitiskar
upplýsingar og áróður era hjá öll-
um flokkunura ákveðin númer sem
nýtast símafólki til að koraa á fram-
færi persónulegum skilaboðum til
annarra minitelmanna og þá vænt-
anlega flokksmanna.
Glóandi símalínur
Sijórnmálaflokkunum væri hæg-
ur leikur að hafa eftirlit með þvi
sem fólk stimplar inn á skjáinn og
kippa út því sem þeir telja vafasamt
en þeim viröist alveg sama því hjá
öllum flokkmn fundu blaðamenn
kjamyrt tilboð og rauöglóandi sí-
manúmer sem gáfu samband við
þá sem vilja stytta einvemstundir
annarra og uppfylla drauma
þeirra.
Kannski em stjómmálaflokkam-
ir bara að hjálpa rikissjóði, kannski
er þetta rósrauöa í lagi ef það helst
innan flokksins. Allavega er óhætt
aö segja að sumar símalínur i
Frakklandi séu og verði vel rauðar
eöa dökkbláar.