Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Síða 24
24
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
Iþróttir
„Eg spái Islandi verð
launasæti á OL í Seoul
„Islenska liöiö er mjög sterkt og það
hef ég vitað í langan tíma. Það er
engin skömm aö tapa fyrir íslenska
liðinu. Við lékum betur í seinni hálf-
leiknum en það reyndist engan
veginn nóg,“ sagði Zenon Lakomy,
þjálfari pólska landsliðsins í hand-
knattleik, í samtali við DV eftir
landsleikinn í gærkvöldi.
„Markvörður íslenska liðsins varði
mjög vel í leiknum. Alfreð Gíslason
var sterkur í leiknum en ég hef séð
hann leika tvívegis nú í vetur með
Essen í Vestur-Þýskalandi. Ekki má
gleyma Kristjáni Arasyni, þar er á
ferðinni frábær handknattleiksmað-
- sagði Zenon Lakomy, þjátfari Pólverja, eför tapið fyrir íslandi
ur. Ef íslenska liðið leikur eins og
það lék hér í kvöld þá spái ég liðinu
einum af þremur efstu sætunum á
ólympíuleikunum í Seoul á næsta
ári,“ sagði Zenon Lakomy.
„Islenska liðið var mjög gott
í þessum leik“
„íslendingar voru mjög góðir í
þessum leik. Ég vil ekki nefna nein
nöfn í íslenska liöinu. Allir leikmenn
liðsins léku mjög vel. Allir hlutir
gengu upp hjá liðinu og þegar þeir
eru í svona ham stoppar þá ekkert
hð,“ sagði Bogdan Wenta, einn sterk-
asti leikmaður pólska landshðsins, í
samtah við DV í gærkvöldi.
„Ég spái að því að íslenska liðið
hafni í einu af sex efstu sætunum á
ólympíuleikunum. Ef þeir hins vegar
sýna jafnfrábæran leik og þeir gerðu
hér í kvöld geta þeir hafnað enn ofar
á ólympíuleikunum. Við lékum illa í
þessum leik. Við eru þreyttir eftir
erfiða deildarleiki heima í Póllandi
að undaníornu," sagði Bogdan
Wenta.
-JKS
Atli var veikur
Ath Hilmarsson lék ekki með ís-
lenska landsliðinu gegn Pólverjum
í gærkvöldi og mjög hæpið er að
hann leiki í kvöld. Atli fékk maga-
kveisu í fyrradag og í samtali við
DV sagðist hann ekki reikna með
því að leika síðari leikinn gegn
Pólveijum.
• íslenska liðið, sem leikur gegn
Pólverjum í Hölhnni í kvöld, verð-
ur óbreytt frá leiknum í gærkvöldi
að öðru leyti en því að Guðmundur
Hrafnkelsson markvörður kemur í
stað Brynjars Kvaran. -SK
r Island-PólTand í tölum: ~|
• Kristján Arason hleypir af gegn Pólverjum í gærkvöldi.
I
I
„Við blómstruðum í kvöld'
- sagði Kristján Arason
I
Islands 65.1%
„Fyrri hálfleikurinn var einn sá
besti sem liðið hefur leikið í langan
tíma og við gerðum þá endanlega út
um leikinn. Undir eðlilegum kring-
umstæðum eiga þessar þjóðir að vera
jafnar að getu en við hins vegar
blómstruðum í þessum leik,“ sagði
Kristján Arason í samtali við DV eft-
ir leik íslands og Póllands í gær-
kvöldi.
„Pólverjar léku vömina mun fram-
ar í seinni hálfleiknum en um leið
losnaði um Pál Ólafsson þannig að
varnaraðferð þeirra kom ekki svo
mikið niður á okkar sóknarleik. Það
gekk nánast allt upp hjá okkur í
leiknum. Ég býst við jafnari leik í
kvöld. Við verðum að hafa í huga að
Pólverjar eru ein af tíu bestu hand-
boltaþjóðum í heiminum í dag,“ sagði
Kristján Arason.
-JKS
Iíslenska landsliðið var með frá-
1
I
1 bæra sóknaraýtingu gegn Pólverj-
I um í gærkvöldi. Liðið fékk 43
' sóknir í leiknum og skoraði 28
I mörk sem gerir 65,1% nýtingu.
IPólska liðið fékk 44 sóknir og skor-
aði 23 mörk sem gerir 52,2%
| sóknamýtingu.
• Karl Þráinsson skaut 4 skotum |
• Alfreð Gíslason skaut 8 skot-
I um að marki Pólverja og skoraði 7
1 mörk. Eitt skot var varið. Alfreð
„BetraenáHMíSviss4
- sagði Bogdan Kowalczyk
„Eg er mjög ánægður með þennan
leik hjá strákunum og þá sérstaklega
fyrri hálfleikinn. Að vinna Pólveija
með sjö marka mun er mjög góður
árangur," sagði Bogdan Kowalczyk,
landsliðsþjálfari íslands, í samtali
við DV eftir landsleikinn í gærkvöldi.
„Þessi leikur var að mörgu leyti
mun betri en leikimir á heimsmeist-
arakeppninni í Sviss í fyrra þó að
þeir hafi verið góðir margir hveijir.
Verkefnin sem bíða landsliðsins á
næstunni eru mjög erfið svo leikur-
inn var aðeins rétt byrjunin. Ef
einbeitingin verður í lagi hjá strák-
unum í seinni leiknum í kvöld þá er
ég óhræddur en ef ekki getur illa
farið,“ sagði Bogdan Kowalczyk.
-JKS
| átti 2 línusendingar, fiskaöi 1 viti,
! tapaði bolta einu sinni en vann
| boltann tvivegis.
I* Kristján Arason skaut 9 skot-
um og skoraöi 6 mörk, 2 skot varin
Iog eitt í stöng. Hann átti 2 línusend-
ingar, fiskaði l víti og var tvívegis
I rekinn útaf í 2 mínútur.
* • Páll Ólafsson skaut 9 skotum
| og skoraði 6 mörk. 3 skot vora var-
Iin. Páh átti 1 línusendingu og
tapaði einum bolta.
1« Þorghs Óttar Mathiesen skaut
5 skotum og skoraði 4 mörk, eitt
I skot var varið. Hann fiskaöi 1 viti
* og tapaði einum bolta.
og skoraði 3 mörk, eitt skot var
varið. I
• Sigurður Gunnarsson skaut J
einu skoti og skoraði 1 mark. |
• Sigurður Sveinsson skaut.
sömuleiðis 1 skoti og skoraði 11
mark. ■
• Guðmundur Guðmundsson •
skaut einu skoti sem var varið. g
Hann átti eina línusendingu og 1
fiskaði 1 víti. Guðmundur var einu I
sinni rekinn út af í 2 mínútur. .
• Geh- Sveinsson var tvivegis |
rekinn út aí' i 2 mínútur. ■
• Jakob Sigurösson átti l mis- I
heppnað skot og tapaöi einum |
bolta. ■
• Júiíus Jónasson kom ekki Inn I
á í leiknum. *
• Einar Þorvarðai-son stóð í |
markinu alian tímaim og varði 17 .
skot. Brynjar Kvaran kom ekki inn |
á. |
• Samtals voru íslensku leik- I
mennirnir reknir út af í 10 mínútur I
-SKJ
en þeir pólsku í 4 mínutur.
Páll Ólafsson
Það besta i lang
C
- íslenska landsliðið sýndi heimsklassahandbolta í fyni hálfleik og lagði þá gninninn a<
„Þetta small allt saman hjá okkur í fyrri hálfleik
og þá var boltinn látinn vinna mjög vel. Við vitum
að Pólveijarnir mæta mjög grimmir til leiks í síð-
ari leiknum eftir þessi úrslit en viö munum ekkert
gefa eftir og ætlum okkur að vinna þá aftur,“ sagði
Alfreð Gíslason efdr frækilegan sigur Islands á
Póllandi í LaugardalshöH í gærkvöldi. Island sigr*
aði, 28-21, e,n staðan í leikhléi var 17-11 Islandi í
vH. Leikur Islands í fyrri hálfleik í gærkvöldi var
Hklega sá besti sem Hðið hefur nokkru sinni leikið.
fjölmörgum áhorfendum, upp á og Pólverjar áttu
ekkert svar við stórleik Islendinga.
Sóknarnýtingin hjá íslenska liðinu í
fyrri hálfleik var hreint út sagt frábær.
Liðið skoraði hvorki meira né minna
en 17 mörk úr 21 sókn sem gerir 80,9%
nýtingu. Líklega hefur íslenska liðið
aldrei leikið betur og oft hafa 17 mörk
skoruð í tveimur hálfleikjum nægt til
að vinna landsleiki. Pólverjarnir virk-
uðu nokkuö þungir og þeir áttu ekkert
svar við hárbeittum sóknarleik íslend-
inga í fyrri hálfleik. Vamarleikurinn
var einnig góður svo og markvarsla
Einars Þorvarðarsonar.
Fyrsta sókn Islendinga rann út í
sandinn. Alfreð náði þó að jafna og
Þorgils Óttar kom íslandi yfir, 2-1. Pól-
verjar náðu að hanga í okkar mönnum
fram eftir fyrri hálfleiknum en þegar
hann var hálfnaður skildu leiðir og
staðan breyttist úr 7-5 í 12-6 en þá hafði
íslenska liðið nýtt tólf sóknir í röð.
Þessi sex marka munur hélst síðan
fram að leikhléi, 13-7,14-8,15-9,16-10
og 17-11 í leikhléi.
leik. Þá fór allt í gang aftur, Islendingar
sýndu yfirburði sína, fóra hreinlega á
kostum í lokin og þegar flautað var til
leiksloka var staðan 28-21. Feiknalega
öruggur sigur og níundi sigur íslands
gegn Póllandi frá upphafi.
Tólf sóknir nýttar í röð
Pólveijar náðu forystunni í fyrstu
sókn leiksins og var það í eina skiptið
í leiknum sem þeir höfðu yfirhöndina.
Lengst af slökun í síðari
hálfleik
í upphafi síðari hálfleiks gerði nokk-
uö kæruleysi vart við sig hjá íslenska
liðinu og Pólveijar náðu að minnka
muninn í 20-17 um miðjan síðari hálf-
Liðið allt lék stórvel
Allir leikmenn íslenska liðsins léku
stórvel í gærkvöldi. Alfreð Gíslason,
Kristján Araspn og Páll Ólafsson,
ásamt Þorgils Óttari Mathiesen léku á
als oddi í sókninni og skoruðu bróður-
partinn af mörkunum, samtals 23 af 28.
Menn voru mjög hreyfanlegir í sókn-
inni og boltinn var látinn vinna. Vörn
Pólverjanna vissi lengstum hvorki í
þennan heim né annan. Liðsheildin var