Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Side 42
»42
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
Jarðarfarir Merming
Baldur Þórhallsson lést 10. nóvemb-
er sl. Hann fæddist á Djúpavogi 8.
mai 1915, sonur Kristbjargar Sveins-
dóttur og Þórhalls Sigíryggssonar.
Baldur hóf ungur trésmíðanám í
Reykjavík og lauk sveinspróii í húsa-
smíði. Síðustu árin starfaöi hann sem
húsvörður í Búnaðarbanka íslands.
Eftirlifandi eiginkona hans er Guð-
rún Sigurðardóttir. Þau hjónin
eignuðust eina dóttur, eina dóttur
hafði hann eignast fyrir hjónaband.
Útfór hans verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Árni Sævar Gunnlaugsson bifreið-
arstjóri, Öldugranda 3, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 20. þ.m. kl. 10.30.
Björn Ragnar Hjálmarsson, Hrafn-
istu, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu í dag, fimmtudaginn 19.
nóvember, kl. 15.
Erlendur Páll Grímsson bifvéla-
virki, Selsvöllum 14, Grindavík,
verður jarðsunginn frá Neskirkju,
Reykjavík, föstudaginn 20. nóvember
kl. 13.30. Jarðsett verður í Grindavík.
Jarðarfór Guðlaugar Oddsdóttur,
sem lést 13. nóvember, fer fram frá
Hofskirkju, Öræfum, laugardaginn
21. nóvember kl. 14.
Ásta Pálsdóttir, Silfurgötu 1, Stykk-
ishólmi, andaðist í St. Fransiskuspít-
alanum í Stykkishólmi 15. þ.m.
Útfórin fer fram frá Stykkishólms-
kirkju laugardaginn 21. nóvember
kl. 14.
Útfor Bjarna Óskars Frímannsson-
ar, fyrrverandi oddvita frá Efri-
Mýrum, Austur-Húnavatnssýslu, fer
fram frá 'Kefiavíkurkirkju laugar-
daginn 21. nóvember kl. 14. Sætaferð
frá Fremstagili, Blönduósi, að
morgni sama dags.
Katrín Hildibrandsdóttir verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnar-
firði föstudaginn 20. nóvember kl.
13.30.
Steinþóra Sigurbjörnsdóttir, Dval-
- arheimilinu Höfða, áður húsfreyja
Þyrli, sem lést 10. nóvember, verður
jarösungin frá Hallgrímskirkju í
Saurbæ, laugardaginn 21. nóvember
kl. 14.
Svanur Ágústsson matreiðslumeist-
ari, Espigerði 2, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 20.
nóvember kl. 15.
Útfór Þorláks Björnssonar frá Eyj-
arhólmum í Mýrdal, fer fram frá
Skeiðflatarkirkju í Mýrdal laugar-
daginn 21. nóvember kl. 14. Kveðjuat-
höfn verður í Selfosskirkju sama dag
kl. 10.30.
Happdrætti
Happdrætti samtaka um
byggingu tónlistarhúss
Fyrirhugað var að draga í happdrætti
Samtaka um byggingu tónlistarhúss 14.
nóvember nk. i beinni útsendingu sjón-
varpsins frá tónleikum í Reiðhöllinni.
Af ýmsum ástæðum reyndist ekki unnt
að halda tónleikana á þeim degi. Kom þar
margt til. Lögregíustjóri haföi ákveðið að
tónleikarnir þar mættu ekki standa nema
til kl. 19. Erfitt var að samræma tíma
þeirra fjölmörgu listamanna sem ætla að
koma fram og plötuútgáfa í tengslum við
tónleikana hefur tafist. Hefur því stjórn
samtakanna ákveðið með leyfi dóms-
málaráðuneytisins að fresta drætti til
laugardagsins 9. janúar nk. og Veiour þá
- dregið á tónleikum f Háskólabíói í beinni
útsendingu sjónvarpsins.
Tilkynriingar
Lögfræðiaðstoð laganema
Orator, félag laganema, er með ókeypis
lögfræðiaðstoð fyrir almenning á
fimmtudagskvöldum í vetur milli kl. 19.30
^pg 22 í síma 11012.
Hádegis-selló
Félagar í Sinfóníuhljómsveit Is-
lands hafa nokkrir komið fram á
Háskólatónleikum í Norræna hús-
in og leikið stutta einleikstónleika,
sem er útaf fyrir sig alveg ljómandi
gott.
í gær var þarna nýr sellisti en
hann hefur verið fyrsti maður í
sinni deild í hljómsveitum hér og
þar, síðast i Barselónu á Spáni.
Heitir sá Richard Talkowsky, hann
er Bandaríkjamaður og er nýsestur
í sellódeildina í SÍ.
Efnisskráin var aðeins eitt verk
og það ekki nema í meðallagi langt.
Sellósvíta eftir spánska sellósnill-
inginn Gaspar Cassade, sem eru
útaf fyrir sig ekki svo þunnar trakt-
eringar í hádeginu í miðri viku.
Cassade (1897-1966) er einn af
„gömlu meisturunum" sellósins,
Tónlist
Leifur Þórarinsson:
nemandi Casals, og vakti þegar
heimsathygli á barnsaldri. Það er
því áhugavert að heyra hvað hann
hafði til málanna að leggja á sviði
tónsmíða.
Þessi svíta, sem er í þrem og hálf-
um þætti, er áreiðanlega mjög
erfið, það heyrði maður. Hún er í
einhverskonar spænskum alda-
mótastíl (Albeniz, De Falla o.s.frv.),
þar sem söngdansinn er sífellt í
bakgrunni. En það er ekki hægt að
segja að Talkowsky hafi tekist að
halda athygli manns glaövakandi
frá byrjun til enda, til þess voru
of margir lausir þræðir á flutningn-
um. Þetta er tilfinningamúsik sem
verður að flytjast með miklum funa
og fullkomnum „tæknibúnaði" ef
hún á að njóta sín.
Slíkt hafa svo fáir á sínum snær-
um og tónskáldið Cassado er
heldur enginn leiftrandi Bach sem
geislar í gegnum bletti og hrukkur
og hvað annað sem á gengur.
-LÞ
Richard Talkowsky sellóleikari.
DV-mynd KAE
ígærkvöldi
Hafsteinn Austmann listmálari:
Skrrtnar fréttir
Ég hlustaði á óvenjumarga
fréttatíma í útvarpi í gær á rás 1
og 2 og þaö fór svolítið í taugarnar
á mér að aðalfréttin, sem mest er
talaö um, er um einhvern Bjarna
Sigurðsson sem vinnur úti í Noregi
^og hefur fengið atvinnutilboð í Sví-
þjóð. Er það nú svo fréttnæmt.
í kvöldfréttum rásar 1 var spaugi-
leg fréttin um kjot sem verið var
að telja undir lögregluvernd. Og
enn er Reagan í vandræðum vegna
íransmálsins. Ég sleppti síðan báð-
um fréttaþáttum sjónvarpsstöðv-
anna. Síðan náði ég góðum
umræðum um Tjarnarmálið milli
Davíös Oddssonar og Flosa Ólafs-
sonar og styð ég frekar Flosa í
þessu máli. Reyndar hef ég löngum
verið hissa á framkvæmdum innan
Reykjavíkur eins og að hafa flug-
völl á einu besta byggingarsvæði
borgarinnar. Ég bíð bara eftir því
að flugvél steypist yfir Alþingis-
húsið og nýja ráðhúsið og sópi þeim
báðum burt í einu.
Ég skipti síðan yfir á Ríkissjón-
varpið og sá þátt um Jóhann Kon-
ráðsson frá Akureyri. Ég er sjálfur
nýkominn þaðan og vakti þáttur-
inn athygli mína. Annars finnst
mér fréttaflutningur oft skrítinn
þaðan, þar sem oft er fjallað um
ófréttnæm mál en til dæmis ekkert
sagt frá opnun nýs sýningarsalar
fyrir listamenn þar nyrðra. Meira
mætti einnig gera af þáttum um
listamenn á meðan þeir eru enn
lifandi.
Síðan var Kolkrabbinn á dagskrá.
Mér finnst ítalskan fallegt mál að
hlusta á. Á eftir honum var endur-
tekinn þáttur um Thorvaldssen.
Björn Th. Bjömsson er einn af okk-
ar bestu sjónvarpsmönnum. Ég vil
láta breyta titli margra manna sem
kalla sig listfræðinga, þeir mættu
frekar kalla sig listsögufræðinga því
að þeir eru oft sérmenntaðir í
ákveðnu tímabili en ekki í stakk
búnir til þess að gefa krítík fyrir
önnur.
Háskólafyrirlestur
Föstudaginn 20. nóv. heldur prófessor
Alec Garner, frá University of London,
fyrirlestur á vegum læknadeildar Há-
skóla íslands í Eirbergi á Landspítalalóö.
Fyrirlesturinn nefnist „Pathology of the
Diabetic Eye“. Fyrirlesturinn hefst kl.
14.30 og er öllum heimill aögangur.
Ölfuskórinn með útimarkað
Ölfuskórinn verður með útimarkað í
Austurstræti föstudaginn 20. nóvember
frá kl. 14. Á boðstólum verður rabarbara-
sulta, broddur, þurrskreytingar, fatnað-
ur og fleira. Útimarkaðurinn er haldinn
í fjáröflunarskyni fyrir fór kórsins til
ísraels um jólin.
Starfsmannafélagið Sókn
Fundur stjórnar og trúnaðarráðs Starfs-
mannafélagsins Sóknar haldinn 19.10. ’87
sendir frá sér svohljóðandi ályktun:
„Stjórn og trúnaðarráð Starfsmannafé-
lagsins Sóknar mótmælir harðlega fyrir-
huguðum söluskatti á matvæli. Slík
kjaraskerðing bitnar Jiarðast á þeim er
síst skyldi. Þá átelur stjórn og trúnaðar-
ráð Starfsmannafélagsins Sóknar ríkis-
stjórnina og borgarstjórn Reykjavíkur
harðlega fyrir þá hækkun á opinberri
þjónustu er dunið hefur yfír undanfarið.
Opinber þjónusta hefur hækkað langt
umfram þær kjarabætur er fengust fram
1. október sl. Stjórn og trúnaðarráð
Starfsmannafélagsins Sóknar lýsir undr-
un sinni á aðgerðum þessum á hendur
alþýðu landsins á þessu síðasta misseri
gildandi kjarasamnings, og bendir á að
fólk með laun á bilinu 29.975 til 36.686
hefur ekki greiðsluþol til að bera slíkar
álögur.
„Verbúðin“ ný búð í hjarta
borgarinnar.
Enn eykst fjölbreytnin í verslunarlífi
Gamla miðbæjarins með tilkomu „Ver-
búðarinnar" við Skólavörðustíg. Eigend-
ur eru Einar Guðnason matsveinn og
Helga Kristmundsdóttir. Helga og Einar
Félagsmiðstöð Geðhjálpar
að Veltusundi 3b, er opin á fimmtudögum
kl. 20-22.30, laugardögum og sunnudög-
um kl. 14-18. Einnig hefur Geðhjálp opna
skrifstofu alla virka daga kl. 10-14 þar
sem seld eru minningarkort félagsins og
veittar upplýsingar um starfsemina. Sími
25990.
Hörpuskin
Málningarverksmiðjan Harpa hf. hefur
sett á markaðinn nýja innanhússmáln-
ingu sem nefnist Hörpuskin. Þessi nýja
málning hefur 10% gljástig sem gerir
hana bæði áferðarfallega og auðvelda í
þrifum. Hörpuskin er einkum ætlað á
steinveggi innanhúss, er einfóld í notkun
og þekur mjög vel. Hörpuskin er fáanlegt
í 10 staðallitum en völ er á fleiri litum
með blöndun við aðrar málningartegund-
ir Hörpu.
Upplýsingamiðstöð
ferðamála
hefur aðsetur að Ingólfsstræti 5. Þar eru
veittar allar upplýsingar um ferðalög á
íslandi og það sem er á döfmni í borg-
inni. Opið mánudaga til föstudaga kl.
10-16 og laugardaga kl. 10-14. Sími
623045.
munu einatt bjóða upp á fisk í miklu
úrvali og munu ávalt vera reiðubúin til
að aöstoða viðskiptavinina með holl og
broshýr ráö í matargerðinni. Boðið verð-
ur upp á það sem hugurinn gimist hverju
sinni, tilbúið í pottinn eða á pönnuna.
Verbúðin er opin kl. 10-18.30.
Kynning hjá Hugi hf.
Dagana 20. og 21. nóvember nk. heldur
Hugi hf. kynningu á Roland DG tölvu-
teiknurum, GTCO hnitaborðum og
Generic CADD teiknikerfinu í húsakynn-
um Tölvufræðslunnar, Borgartúni 28, 3.
hæð. Á kynningunni verður í fyrsta sinn
sýnd á Islandi vél til módelgerðar frá
Roland DG. Tæki þetta, kallað CAMM-3,
er fræsir sem stjórnaö er með PC-tölvu
og teikniforriti. Tækið fræsir í mismun-
andi efnl og vinnur með tlöt sem er 180
mm langur, 150 mm breiður og 150 mm
djúpur. Kynningin verður opin frá kl.
10-18 fóstudag20. nóv. og 10-16 laugardag
21. nóv. Henrik Héden eigandi H-Data í
Svíðþjóð, sem er endursöluaðili Roland
DG þar í landi, verður með báöa dagana
og mun veita allar upplýsingar ásamt
starfsmönnum Huga hf.
FAAS
Félag aðstendenda Alzheimersjúklinga
er með símatíma í Hlíðarbæ við Flóka-
götu á þriðjudögum kl. 10-12 í síma
622953.
Ráðstefna
Ráðstefna Bandalags kvenna
í Reykjavík,
um illa meðferð á börnum, haldin að
Hallveigarstöðum 31. október 1987, lýsir
yfir áhyggjum vegna þess hve illa er búið
að börnum og foreldrum þeirra í íslensku
samfélagi, þar sem þeim gefst skaðlega
lítill tími til samskipta vegna vinnuálags,
skortur er á öruggri gæslu og samræmd-
um vinnudegi foreldra og barna. þess
vegna skorar ráðstefnan á yfirvöld að
huga alvarlega að því aö hlúa betur að
börnum og foreldrum þeirra. í því felst
besta fjárfesting íslensks þjóðfélags til
framtíðar.
Skemmtikvöld
Grafík í Duus-húsi
Hljómsveitin Grafik hefur nú gefið út
sína fimmtu hljómplötu og hefur hún
hlotið nafnið Leyndarmál. Þetta nýjasta
afkvæmi hljómsveitarinnar virðist fá
mjög góðar viðtökur, m.a. fóru tvö lög
af breiðskífu þessari, Presley og Prins:
essan beint inn á vinsældalistana. I
kvöld, fimmtudagskvöld, stillir Grafík
upp í Duus-húsi og kynnir Leyndar-
mál. Hljómsveitina skipa : Rafn Jóns-
son - trommur, Baldvin Sigurðsson -
bassi, Hjörtur Howser - hljómborð,
Rúnar Þórisson - gítar og Andrea
Gylfadóttir - söngur.
Hóamarkaður
Flóamarkaður
á vegum D-ll, Kleppsspítala verður hald-
inn í samkomusal Kleppsspítala laugar-
daginn 21. nóvember nk. kl. 14-16. Mikiö
úrval góðra hluta og ódýrra. Ágóðinn
rennur í ferðasjóð vistmanna.
Tórúeikar
Einieikaraprófstónleikar
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur ein-
leikaraprófstónleika í Bústaðakirkju
fóstudaginn 20. nóvember nk. kl. 20.30. Á
efnisskrá eru þessi verk: Kanon fyrir
strengjasveit eftir J. Pachelbel, Konsert
í A-dúr fyrir fiölu og hljómsveit eftir
W.A. Mozart og Oktett eftir F. Mend-
elssohn fyrir fiórar fiölur, tvær lágfiðlur
og tvö selló. í fiðlukonsertinum eftir
Mozart leikur Hidigunnur Halldórsdóttir
einleik en tónleikarnir eru hluti af ein-
leikaraprófi hennar frá skólanum.
Stjórnandi er Gunnar Kvaran. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.