Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Síða 45
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
4?
Fréttir
Þór Mýrdal, flugmaður vélarinnar sem kviknaði í við Selfoss:
Hugsaði að þetta væri
okkar síðasta stund
- Þór liggur nú með brunasár á sjúkrahúsi
Þór Mýrdal liggur á Landspítalanum. Hann er hafður i einangrun vegna brunasára. Hann hefur hjá sér sjón-
varps- og myndbandstæki og er búinn að horfa oft á slysið. Bróðir Guðjóns, Logi, var staddur af tilviljun á
fiugvellinum með ný upptökutæki og var ætlun hans að taka myndir er þeir félagar Þór og Guðjón hæfu sig á
loft á leið til Reykjavíkur. Myndir Loga af slysinu eru einstakar og sýna þær atburðarásina mjög vel.
DV-mynd: KAE.
„Ég hugsaði að þetta væri okkar
síðasta stund og þannig myndi ég
þá enda eftir allt. Ég var búinn að
sætta mig við örlögin þótt erfitt
væri. Samt varð ég að halda ræn-
unni og var ákveðinn í að gefast
ekki upp,“ sagði Þór Mýrdal flug-
maður er hann rifiaði upp þegar
hann lenti logandi flugvél við flug-
völlinn við Selfoss á föstudag. Þór
hggur nú í einangrun á sjúkrahúsi
vegna brunasára.
Þór var í vélinni ásamt félaga sín-
um, Guðjóni Benediktssyni. Þeir
fóru á Selfoss án erindis, voru að-
eins að leika sér. Þór segir að véhn
hafi verið í góðu ásigkomulagi.
Flugvéhn var nýlega komin úr við-
gerð.
„Við urðum einskis varir þegar
við fórum í loftið' Skömmu síðar
sáum við reyk leggja undan vélar-
hlífinni. Guðjón varð fyrri til að sjá
að eitthvað var að. Þegar ég leit út
um hliðarglugga sá ég að eld lagði
frá vélarhúsinu. Það var tvennt
fyrir mig aö gera. Að lenda aftur á
brautinni sem við vorum að fara
af en við það hefðum við farið fram
af henni og út í á. Hinn kosturinn
var að snúa véhnni og reyna lend-
ingu á austur-vestur brautinni. Við
tókum þann kostinn. Þegar ég
hugsa til baka er ég sannfærður
um að við tókum betri kostinn.
Sáum ekki handa okkar skil
í beygjunni virðist sem eldurinn
hafi magnast mikið. Ég var þá far-
inn að brenna á fótunum. Ég man
ekki til þess að ég hafi fundið mik-
ið til, ég var það upptekinn við að
reyna að lenda vélinni. Sfiórnklef-
inn fylltist strax af reyk. Þótt við
opnuðum húsið breyttist ástandið
lítið til hins betra. Reykurinn var
það mikih að við sáum ekki handa
okkar skil. Ég var ekki viss úm
hvort ég hefði lyft hjólunum upp.
Ég varð að þreifa til að finna stöng-
ina til að athuga í hvaða stihingu
hún væri.
Ofrisið varð okkur til lífs
Þegar reykurinn var hvað mestur
og viö sáum ekki neitt og áttuðum
okkur reyndar ekki á í hvaða stell-
ingum vélin var ofreis hún skyndi-
lega. Við það sá Guðjón út og gátum
við þá áttað okkur á hvar við vor-
um. Ákváðum við þá að reisa hana
aftur. Ég er sannfærður um að sú
tilviljun að vélin ofreis hafi orðið
okkur til lifs.
Vélin kom niður á hjóhn og skall
síðan á framhjóhð sem skaust af.
Vélin fór síðan yfir sig og stöðvað-
ist á hvolfi. Enginn eldur sást í
stjómklefanum og inni var mikið
myrkur og sót um allt. Við lágum
í kuðung undir mælaborðinu. Ég
sá eina leið til áð komast út úr
brennandi vélinni, var það um gat
sem var um 20 sinnum 40 sentí-
metra stórt. Við fórum báðir út um
gatið. Okkur ber ekki saman um
hvor okkar hafi farið út á undan.
Ég er nokkuð viss um að ég hafi
farið fyrr út þar sem gúmmíþétt-
ing, sem var í gatinu, hékk um
hálsinn á mér þegar ég var kominn
út. Það var ótrúleg tilfinning að
finna fóstuijörðina aftur. Eins var
það ólýsanlegt þegar við Guðjón
horföumst í augu - báðir lifandi og
lítið meiddir. Á því átti ég ekki von
þegar útlitið var hvað verst.
Mátti engu muna
Fáum sekúndum eftir að við vor-
um komnir út úr vélinni varð hún
alelda - þannig að engu mátti
muna. Svo mikið er víst að þetta
er lífsreynsla sem ég mun aldrei
gleyma,“ sagði Þór Mýrdal.
Þór hóf flugnám árið 1972. Hann
flaug ekkert í átta ár. Vinur hans
fórst í flugslysi árið 1975. Flugvél
hrapaði og eldur kviknaði í henni.
Engum tókst að koinast út úr vél-
inni. Eftir það slys flaug Þór ekki
aftur fyrr en á árinu 1983. Þór sagði
að hann hefði hugsað til þessa slyss
þegar hann var í logandi véhnni
og fannst sem allar bjargir væru
bannaðar.
Ætlar aö fljúga á ný
Þór Mýrdal er giftur og á 12 ára
gamla dóttur. Hann hggur nú á
Landspítalanum með fyrsta og
annars stigs bruna á fótum. Hann
er meira brenndur á vinstra fæti
þar sem hann átti ekki eins gott
með að færa hann til í flugvélinni. ^
Þór á eftir að vera á sjúkrahúsi í
tíu til fimmtán daga til viðbótar.
Hann segist ákveðinn að fljúga á
ný.
Þór á erfitt með að gera sér í
hugarlund hvemig eldurinn
kviknaði. Hann segist þó helst
halda að vökvakerfi fyrir flapsa og
hjól hafi bilað og það hafi orðið til
þess að eldur braust út. Véhn var
af gerðinni North American
NA-145 Navion. Hún var smíðuö
árið 1947. Vélin kom til íslands árið
1953. Þór hefur ásamt fleiri aðilum
átt vélina í þrjú ár. Þór sagði að
TF-AIE hefði verið góð flugvél og
væri mikil eftirsjá að henni. -sme
ísungi, fyrirtæki Sambands eggjaframleiðenda:
Fær 5 milljóna lán
hjá Stofhlánadeild
Samband eggjaframleiðenda hef-
ur fengið lánsloforð frá Stofnlána-
deild landbúnaðarins upp á 5
milljónir króna vegna uppbygging-
ar fyrirtækisins ísunga sem er
útungunar- og uppeldisstöð fyrir
hænuunga. Þessar upplýsingar
fékk DV hjá Stefáni Valgeirssyni,
formanni bankaráðs Búnaöar-
bankans.
Stefán sagði aö lánið væri veitt
vegna uppbyggingar fýrirtækisins
en heildarkostnaöur viö húsbygg-
ingu og tæki er á mihi 20 og 25
milijónir króna.
„Samkvæmt reglum Stofnlána-
deildar á ísungi rétt á lánveitingu
fVrir allt að 50% af kostnaði. Sótt
var um lán á bilinu 10 til 12 milijón-
ir króna en loforð fékkst fyrir flmm
milljónum," sagði Stefán.
Aöspuröur sagði Stefán að þetta
lánsloforð þýddi ekki að lokað hefði
verið á frekari lánveitingar til is-
unga en ástæðuna fyrir því að
ísungi fékk ekki þá upphæð, sem
fyrirtækið hefði rétt á, sagði Stefán
fjárskort Stofnlánadeildarinnar.
„Það er erfitt að lána þegar viö vit-
um ekki hvaða peninga við fáum,“
sagði Stefán.
„Þaö er nauösynlegt aö byggja
upp fyrirtækið þvi að vegna sjiik-
dóma þarf sérstaka útungunarstöð
og síöan þarf aö ala ungana upp
annars staðar. Þarna eru bæði
framleiddir kjötfuglar og varphæn-
ur og það eru framleiðendur sem
standa að fyrirtækinu," sagöi Stef-
án.
Stefán var spurður að því hvers
konar lán ísungi fengi. Hann sagði
að í gangi væru tvenns konar lán
frá Stofnlánadeild, annars vegar til
kaupa á útbúnaði og hins vegar
vegna byggingarframkvæmda. Lán
til húsbygginga eru til lengri tíma
en hin til skemmri en Stefán sagði
það óákveðið hvort lánið ísungi
fengi.
í samtah við DV sagöi Leifur Jó-
hannesson hjá Stofnlánadeild
landbúnaðarins að ahar lánveit-
ingar væru trúnaðarmál deildar-
innar og lánþega og neitaði hann
að gefa upplýsingar um þessa fyrir-
greiöslu.
-ój
son, formadur Sambands eggjaframleiðenda, Geir Gunnar Geirsson,
eggjabóndi á Vallá, Helgi Magnússon lögfræðingur og Einar Eiriksson, form-
aður Félags alifuglabænda. Til hægri eru þeir Gisli isleifsson, lögfræðingur
hjá Verðlagsstofnun, og Kristinn Briem.
Eggjabændur:
Með frest til mánudags
„Á fundinum settum við það skil-
yrði aö eggjabændur féllu frá
samráði sínu um eggjaverð og fengu
þeir frest fram til mánudags til þess
að koma því á framfæri á fundi í sín-
um samtökum," sagði Gisli ísleifs-
son, lögfræðingur hjá Verðlagsstofn-
un. í samtali við DV, þegar hann var
spurður að því hvað fram hefði farið
á fundi með eggjabændum.
„Þessi fundur fór mjög vel fram,
en þeir koma hingað aftur klukkan
11 á mánudagsmorgun og gera okkur
þá grein fyrir niðurstöðu sinni. Það
er ekki eggjaverðið sjálft sem við
erum að gagnrýna heldur samráðið
sem njenn höfðu til þess að koma h'd
á," sagði Gísli.
Geir Gunnar Geirsson, eggjabóndi
á Vallá, en hann var einn þeirra sem
sat fundinn, sagði að eggjabændur
myndu að líkindum hittast um helg-
ina til að ræða málin en ekki vildi
hann tjá sig um hugsanlega niður-
stöðu málsins.
-ój