Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987.
Fréttir dv
Stormasamur fundur sjávarútvegsráðherra og hagsmunaaðila í sjávarútvegi:
Fundurinn sprakk í loft upp
- vegna deilu sjómanna og fulltrúa fiskvinnslunnar um kvótafrumvarpið
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra hélt fund með full-
trúum aUra hagsmunaaðila í
sjávarútvegi í fyrradag þar sem
ætlunin var að láta þá skrifa undir
skjal þess efnis að þeir væru sáttir
við og samþykkir frumvarpi til laga
um fiskveiðistefnu sem Halldór er
að leggja fram á Alþingi. í stað þess
að fulltrúarnir skrifuðu undir
sprakk allt í loft upp á fundinum
og eftir þrotlausar tilraunir ráð-
herra til að ná sáttum var fundin-
um slitið án þess að skrifað væri
undir skjalið.
Ástæðan fyrir því að allt fór í loft
upp var sú að fulltrúar sjómanna,
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, og Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambandsins,
lögðu fram bókun þar sem þeir
sögðu sjómenn hafa fyrirvara á
undirskriftinni vegna hækkunar
gjalds á útflutning ferskíisks.
Fulltrúar fiskvinnslustöðva mót-
mæltu þessu og báðu um fundar-
hlé. Eftir að þeir höfðu rætt saman
lýstu þeir því yfir að þeir myndu
ekki skrifa undir plagg Halldórs ef
þessi fyrirvari sjómanna væri þar
inni.
. Sjávarútvegsráðherra gerði þá
aftur fundarhlé og hélt sérfund
með fulltrúum sjómanna, að hon-
um loknum fund með fiskvinnslu-
mönnum og síðan aftur fund með
sjómönnum. Þegar útséð var með
að samkomulag gæti tekist sleit
ráðherra fundi, sagði stöðuna mjög
alvarlega og bað menn hugsa vel
sinn gang í þessu máli.
Örn Pálsson, fulltrúi smábátaeig-
enda, lýsti andstöðu við þau atriði
kvótafrumvarpsins sem snertir
smábátaeigendur. Kristján Ragn-
arsson, fulltrúi útgeröarmanna, og
Þorsteinn Gíslason fiskimálastjóri
tóku ekki þátt í þessari deilu sjó-
manna og vinnslumanna.
Guðjón A. Kristjánsson sagði í
samtali viö DV að fulltrúar sjó-
manna hefðu fleira við kvótafrum-
varpið að athuga þar sem ekki hefði
verið farið að óskum þings Far-
mannasambandsins og ekki heldur
að fullu að tillögum sem Fiskiþing
samþykkti á dögunum. Sagði Guð-
jón að eftir að þessum fundi var
slitið hefði ekkert verið rætt við
fulltrúa sjómanna.
Dagbjartur Einarsson, frá Sö-
lusamtökum íslenskra fiskfram-
leiðenda, sem var í hópi fisk-
vinnslumanna, sagði að það kæmi
ekki til greina að skrifa undir þetta
plagg með þeim fyrirvara sem full-
trúar sjómanna væru með. Hann
sagði fiskvinnsluna tilbúna að
skrifa undir án allra fyrirvara,
annars ekki. Nú væri það ráðher-
rans að reyna að bera klæði á
vopnin ef það væri mögulegt.
Þessi úrslit koma sér illa fyrir
Halldór Ásgrímsson því aö hann
hefur til þessa getað státað af all-
góðu samkomulagi helstu hags-
munaaðila í sjávarútvegi en eins
og málin standa nú verður það er-
fitt. -S.dór
Kvótafrumvarpið lagt fram á Alþingi í dag:
’T'
Fyriivarar í öllum
stjömmálaflokkunum
Þeir eru alvarlegir á svip, alþingismennirnir, og ekki ólíklegt að þeir Halldór Blöndal og Ólafur G. Einarsson séu
þarna að ræða kvótafrumvarpið við Halldór Ásgrímsson. DV-mynd GVA
Frumvarp til laga um fiskveiðistefnu
verður lagt fram á Alþingi í dag. Það
stóð til að leggja það fram í gær en
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði í samtali við DV að
frumvarpið næðist ekki tímanlega
úr prentun.
Eftir viðræður við þingmenn úr
öllum flokkum í gær er ljóst að innan
flestra þingflokkanna er ágreiningur
um ýmis atriði frumvarpsins. Al-
þýðubandalagsmenn sameinast um
að vera á móti frumvarpinu í heild
og ætla þeir að leggja fram tillögur
um nýja fiskveiðistefnu. Þessar til-
lögur sínar ætla þeir að kynna á
sjávarútvegsráðstefnu sem flokkur-
inn boðar til í dag og á morgun.
DV ræddi viö þingmenn í öllum
flokkum í gær um afstöðu þingflokk-
anna til frumvarpsins.
Páll Pétursson,
Framsóknarflokki:
„Ég segi ekki að mikill ágreiningur
sé uppi innan þingflokks Framsókn-
arflokksins en hann er þó til staðar.
Ólafur Þ. Þórðarson hefur ævinlega
lýst yfir andstöðu við ákveðna þætti
í fiskveiðistefnunni og gerir það enn.
Alexander Stefánsson, Jóhann Ein-
varðsson og Guðni Ágústsson skrif-
uöu undir bréf 32ja þingmanna um
norður/suðurlínuna og eru því dálít-
ið sér á báti. Að öðru leyti held ég
að segja megi að sæmilegur friður
sé um frumvarpið í mínum þing-
flokki,“ sagði Páll Pétursson.
Karl Steinar Guðnason,
Alþýðuflokki:
„Við í þingflokki Alþýðuflokksins
munum leggja áherslu á að sættir
náist um frumvarpið. Við fengum í
gegn ákveðin atriði sem komin eru
inn í frumvarpið og að mínum dómi
hefur Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráöherra sýnt mikla sanngirni í
því máli. Auk þess teljum við ábyrgð-
arhluta að ætla að hindra það að
frumvarpið komist í gegnum Al-
þingi. Auðvitaö eru skiptar skoðanir
í Alþýöuflokknum, eins og öllum
öörum flokkum, en það mun ekki
verða til þess að tefja frumvarpið úr
þessu,“ sagöi Karl Steinar Guðnason.
Július Sólnes, Borgaraflokki:
„Það er enginn ágreiningur innan
þingflokks Borgaraflokksins um
frumvarpið. Aftur á móti er sam-
staða með okkur og fjölmörgum
þingmönnum úr öllum flokkum sem
eru óánægðir með marga þætti frum-
varpsins. Það er breið samstaða um
að láta fiskveiðistefnuna ekki gilda í
4 ár. Einnig eru margir á því að skoða
vandlega óskir smábátaeigenda og
ég fullyrði að það er vilji fjölmargra
þingmanna að þeirra hlutur verði
ekki fyrir borð borinn. Fyrir utan
þessi atriði eru mörg önnur sem
menn eru ekki sáttir við,“ sagði Júl-
íus Sólnes.
Kristín Halldórsdóttir,
Kvennalista:
„í okkar þingflokki er ekki sá
ágreiningur að ekki sé auðvelt að ná
samstöðu. Við erum og sammála um
að fá fram breytingar á þessu frum-
varpi. Við viljum áfram heildarkvóta
en að 80% hans verði skipt á milli
byggðarlaga með hliðsjón af lönduð-
um afla síðustu 5 ára. Vilji byggðar-
lög halda sínum hlut miðað við fyrri
ár beri þeim að greiða fyrir það. Þeir
peningar renni síðan í sjóð sem varið
verði úr til rannsókna, fræðslu í sjáv-
arútvegi og verðlauna fyrir góða
nýtingu og meðferð sjávaraflans. Þá
viljum við að byggðarlögin ráði sjálf
hvemig þau ráðstafa sínum afla og
hvert gjald þau taka fyrir og þær
tekjur, sem þau fengju af því, rynnu
til að bæta hafnaraðstöðu og auka
þjónustu við sjávarútveginn," sagði
Kristín Halldórsdöttir.
Ólafur G. Einarsson,
Sjálfstæöisflokki:
„Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
hefur fyrirvara hvað varðar tíma-
lengd laganna og að auki þurfum við
að ræða betur nokkra þætti þar sem
er nokkur meiningarmunur. Þar má
til nefna norður/suðurlínuna,
rækjukvótann og smábátana. Einnig
er meiningarmunur hjá okkur um
hækkun á gjaldi á útflutningi fersk-
fisks. Ætli það sé þó ekki best að bíða
með allar yfirlýsingar þar til umræð-
urnar fara fram,“ sagði Ólafur G.
Einarsson.
Steingrímur J. Sigfússon,
Alþýðubandalagi:
„Ég held að enginn ágreiningur
verði innan þingflokks Alþýðu-
bandalagsins um frumvarpið vegna
þess að við höfum í sameiningu unn-
iö að tillögum um breytingar á
frumvarpinu um stjórnun fiskveiða
og um þær tillögur er fullt samkomu-
lag innan þingflokksins. í raun erum
við að gera tillögur um nýja fiskveiði-
stefnu. Ef tillögur okkar næðu fram
að ganga væri full samstaða innan
okkar raða. Við munum kynna þess-
ar tillögur okkar á sjávarútvegsráð-
stefnu sem við efnum til í dag og mun
standa í tvo daga,“ sagöi Steingrímur
J. Sigfússon.
-S.dór
Meðalþyngd
þorsks
2,2 kíló
iEí anu
i tyrra
Viö sögðum frá því í DV í gær
að meðalþyngd í 40 tonnum af
þorski, sem landaö var úr togar-
anum Víði HF i Hafnarfirði í
vikunni, hefði veriö 1,4 kfió. Þetta
er nokkuð langt undir þeirra
meðalþyngd sem var á öllum
þorski iönduðum árið 1986.
í ritinu Útvegur, sem Fiskifélag
íslands gefur út, greinir frá því
að meöalþjmgd'þorsks, sem lan-
dað var á íslandi árið 1986, hafi
verið 2,23 kfló. Verst er útkoman
þjá trillunum því aö meðalþyngd
þorsks, sem þær lönduöu, var
ekki nema 1,96 kíló. Meðalþyngd-
in hjá vélbátunum, en það eru
hinir heföbundnu vertíðarbátar,
var 2,56 kfió en hjá skuttogurum
var meöalþyngdin 2,18 kíló.
Hér er átt við slægðan fisk úr
öllum veiðarfærum. Afli vélbá-
tanna og opnu bátanna er nær
alltaf óslægður þegar hann kem-
ur að landi en afli togaranna er
alltaf slægður. Því er ekki raun-
hæft aö miða við annað en
slægðan fisk.
Útkoraan er best hjá vertíðar-
bátum frá Suðurlandi, Þar er
meðalþyngd óslægðs þorsks 6,07
kiló en slóg er um 30% af þyngd
fisks upp úr sjó þannig að meðal-
þyngdin af slægðum fiski Ifiá
vélbátum frá Suðurlandi er því
4J27 kíló.
Þótt allir segist hafa áhyggjur
af smáfiskadrápinu og margt sé
gert til að koma í veg fyrir það,
svo sem með lokun veiðihólfa og
fleira, segja skýrslw Fiskifélags-
ins að hlutur smáfisks í aflanum
fari vaxandi. Dæmið frá Hafnar-
firði bendir einnig til þess.
-S.dór
Domsmálaráðherra:
Gefur engar
yfirlýsingar
um Watson
Jón Sigurðsson dómsmálaráö-
herra kveðst ekki geta gefið
opinberar yfirlýsingar um fýrir-
hugaöar aögerðir vegna hugsan-
legrar komu fulltrúa Sea
Shepherd samtakanna, aö því er
fram kom í svari hans við fyrir-
spurn þar aö lútandi á Alþingi í
gær.
Áleit Jón að líf samtakanna
væri undir þvi komið að vera í
kastljósi fjölmiðlanna og ekki
sagðist hann mundu aöstoða
samtökin í því efni. -ój