Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987.
Neytendur
Tölvuteiknaðar
eldhúsinnréttíngar
„Oft kemur fyrir, þegar búið er að svona út? Ég gerði mér aldrei al- Friðriksson hjá fyrirtækinu Elda-
setja eldhúsinnréttinguna upp, að mennOega grein fyrir því hvemig skálanum er DV fræddist hjá honum
viðskiptavinurinn segir: Já, lítur það þetta yrði!“ Þannig mælti Erlingur um nýja þjónustu fyrirtækisins. Nú
ELDASKALINN
Þannig getur tölvuteikning af eldhúsinu þínu litið út, séð frá öllum sjónarhornum.
Heimilisbókhaldið í október:
Kostnaðurinn á
hraðri uppleið
Nú hefur kostnaðurinn í heimilis-
bókhaldinu heldur betur tekið á
skrið upp á við. Hækkunin varð
hvorki meiri né minni en 24% frá
september til október. Er þar farið
að gæta matarskattarins illræmda
sem settur var á stóran hluta mat-
vörunnar 1. ágúst sl. Það verður
þokkalegt ef og þegar skatturinn
kemur á allar matvörur!
Þannig varð meðaltalskostnaður á
mann í október 6.893 kr., en var 5.549
kr. í september.
Þarf ekki að gera því skóna að
miklar hækkanir eiga eftir að verða
tvo seinustu mánuði ársins þar sem
jólamánuöurinn er vanur að fara
„upp úr öllu valdi“.
Eitthvaö er farið að glæðast hjá
okkur aftur með þátttökuna í heimil-
isbókhaldinu. Er það vel því það
sýnir að fólk er aftur að fá áhuga á
að sinna um í hvað það eyðir fjár-
munum sínum.
Einnig hafa skólanemendur hringt
í okkur og spurt um heimilisbók-
haldið en í einhverjum skólum er
verið að vinna aö slíku verkefni og
kenna börnunum að halda heimilis-
bókhald. Það líst okkur vel á. Þannig
er verið að búa nemendur undir að
verða hæfari neytendur í framtíð-
inni.
Við hvetjum sem flesta til þess að
vera með okkur í heimilisbókhaldinu
og halda nákvæma búreikninga yfir
innkaupin til heimilisins. Auðveld-
ast er aö gera það þannig að skrifað-
ur er listi áður en haldið er til
innkaupa. Síöan verður að merkja
verð inn á listann því kassakvittanir
í flestum verslunum eru því miður
svo illa úr garði gerðar að þær eru
ekki nothæfar í búreikningahaldinu.
Og svo gerist það líka að þær eru svo
ógreinilega prentaðar að varla er
hægt að lesa það sem á þeim stend-
ur. Því verður aö færa veröið sem
skráö er á vörurnar inn á innkaupa-
listann og síðan inn í búreikninga-
bókina.
Þeir sem héldu búreikning í nóv-
ember eru beðnir um að senda okkur
upplýsingaseðilinn sem allra fyrst.
-A.Bj.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig cruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
íjölskyldu af sömu stterð og yðar.
Nafn áskrifanda
] Heimili
! Sími
i Fjöldi heimilisfólks
i Kostnaður í nóvember 1987:
] Matur og hreinlætisvrirur kr.
1 Annað kr
Alls kr.
DV
Erlingur í Eldaskálanum hefur verið brautryðjandi með ýmsar vinnuspar-
andi nýjungar í eldhúsinnréttingum sínum eins og t.d. svona útdregnar
skúffur í stað hefðbundinna djúpra skápa sem koma að mun minni notum
en skúffuskáparnir.
er boðið upp á tölvuteiknaö eldhús.
Þannig er hægt að grandskoða inn-
réttinguna frá öllum sjónarhornum
og á þannig ekkert að geta komið á
óvart í eldhúsinu þegar það er full-
búið.
Ennþá er þó gerð svokölluð plan-
teikning, þ.e. hvemig útlínur eld-
hússins eru og hverjar eru óskir og
þarfir viðskiptavinarins. Fyrirtækið
hefur útbúið sérstakt eyðublað eða
tilboðsbeiðni sem svara verður sam-
viskusamlega til þess að eldhúsið
hæfi sem best óskum og þörfum við-
komandi. Spurt er um heimilistæki
í eldhúsinu, sérstakar óskir, æski-
lega borðhæð, hversu margir séu í
heimili, hvort oftast sé borðað í eld-
húsinu, hvort eldhúsborð sé fyrir-
liggjandi og hvernig það sé í laginu,
hvort mikið sé bakað og matreitt í
eldhúsinu.
Að fengnum öllum þessum upplýs-
ingum er svo hafist handa viö að
fullgera teikningar sem síðan eru
bornar undir viðskiptavininn.
Tölvutæknin gerir mögulegt að
skoða innréttingarnar frá öllum
hugsanlegum sjónarhornum.
Erlingur sagði að því fyrr sem fyr-
irtækið væri kallað til við húsbygg-
inguna því betri eldhúsinnréttingu
væri hægt að bjóða upp á. Það getur
skipt sköpum hvort færa þarf vegg
um 5 cm. Hins vegar er þessi þjón-
usta ekki síður fyrir þá sem eru að
endurnýja gömul eldhús.
Við spurðum Erling hvort einhver
ákveðinn staðall væri til fyrir eldhús
í byggingasamþykktum á íslandi, t.d.
um hve margir . rafmagnstenglar
ættu að vera í eldhúsinu eða í hús-
byggingum yfirleitt.
Sagði hann að svo væri ekki. Það
væri einungis undir hverjum og ein-
um komið hve margir tenglar og
dósir væru í húsum. Erlingur sagði
einnig að hann teldi að alltof fáir
tenglar væru í húsum. Hann hvatti
fólk til þess að auka heldur við
tenglafjöldann heldur en að halda sig
við „hefðbundinn" tenglaljölda.
Við þekkjum þetta öll. í flestum
húsum þarf að notast við ótal fram- •
lengingarsnúrur og aukatengla sem
getur verið stórhættulegt fyrir þá
sem þurfa að búa við slíkt, fyrir utan
öll óþægindin.
Þó verður að segjast að tenglamir
hafa færst ofar á veggnn og er næsta
sjaldgæft að sjá innstungur niðri við
gólflistana eins og algengt var og nær
alsiða fyrir svona 10-20 árum.
Hjá Eldaskálanum er boðið upp á
80 mismunandi útlitsgerðir á eld-
húsinnréttingum. Það eru danskar
innréttingar sem Eldaskáhnn er með
og heita Invita. Verð á meðaleldhúsi
getur kostað frá 150 þúsund kr. upp
í 450 þús. kr. Má þó fá eldhúsinnrétt-
ingu fyrir allt niður í 100 þúsund kr.
og einnig upp í 700 þús. kr. Er það
fyrir utan heimilistæki og uppsetn-
ingarkostnað. Hann er yfirleitt á
bilinu 15-20 þús. kr. að sögn Erlings.
Tölvuteikningin að eldhúsinu kost-
ar 2 þúsund kr. en ef tilboði er tekið
um innréttinguna gengur sú upphæð
upp í kaupverðið.
Eldaskálinn er til húsa á hominu
á Mjölnisholti og Brautarholti. Fyrir-
tækið var stofnað í janúar 1981.
-A.Bj.
Dýrt að panta hjá Veróld
Varist skram í auglýsingum
Við rákumst á nýtt fréttabréf frá
bókaklúbbnum Veröld á dögunum.
í fréttabréfinu, sem í raun er pönt-
unarlisti, er farið fjálglegum orðum
um verð og óspart gefið í skyn að
verð klúbbsins séu mun lægri held-
ur en gengur og gerist. Þannig em
alltaf gefin upp tvö verð. Annars-
vegar er gefið upp það sem gefið er
í skyn að sé venjulegt verð og hins
vegar tilboð klúbbsins.
Þessi verðtilboð klúbbsins em
hins vegar ekki alltaf lægri heldur
en venjulegt verð hlutanna. Þannig
er auglýst hljómplatan Dögun með
Bubba Morthens og kostar hún kr.
849 hjá klúbbnum. í fréttabréfinu
er sagt aö venjulegt verð plötunnar
sé 999.
Það er ekki rétt hjá bókaklúbbn-
um Veröld að staðhæfa að venju-
legt verð Bubbaplötunnar sé kr.
999. Samkvæmt upplýsingum
Grammsins, sem gefur plötuna út,
er leyft verð hennar kr. 899 og má
raunar fá hana í flestum hljóm-
plötuverslunum á kr. 810 sem er
mun lægra en svokallaö „tilboð“
hjá bókaklúbbnum Veröld.
Neytendur verða að taka svona
tilboðum með fyrirvara og athuga
hvað hlutimir kosta annars staðar.
-PLP