Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Page 28
40
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987.
Jarðaifarir
Útfbr Hróðnýjar Sigurðardóttur og
Jóhanns Halldórs Pálssonar,
Dalbæ, Hrunamannahreppi, sem lét-
ust af slysforum 28. nóvember sl., fer
fram frá Hrepphólakirkju laugardag-
'’inn 5. desember kl. 14.
Guðrún Einarsdóttir, Seljahlíð, áð-
ur Laugavegi 81, sem andaðist í
Borgarspítalanum 29. nóvember,
verður jarðsungin í Fossvogskapellu
fostudaginn 4. desember kl. 15.
Laufey Eyvindsdóttir, Helgafells-
braut 21, Vestmannaeyjum, verður
jarðsungin frá Landakirkju laugar-
daginn 5. desember kl. 14.
Guðmundur Kr. Guðmundsson frá
Stóra-Nýjabæ, Krísuvík, er andaðist
á Sólvangi, Hafnarfirði 27. nóvember,
verður jarðsettur frá Hafnarfjarðar-
kirkju fóstudaginn 4. desember kl. 15.
’Þorleifur Thorlacius lést 26. nóv-
ember. Hann var fæddur í Reykjavík
23. júní 1907. Hann var sonur hjón-
anna Ólafs Ólafssonar Thorlacius og
Margrétar Oddsdóttur. Þorleifur
lærði skipasmíði hjá Magnúsi Guð-
mundssyni, skipasmið í Reykjavík,
lauk hjá honum námi og fékk sveins-
bréf 1937. Hann vann við iðn sína
alla tíð, síðast sem eftirlitsmaður
með skipum Skipaútgerðar ríkisins
og Hafrannsóknastofnunar. Þorleif-
ur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans
var Salbjörg Bjarnadóttir sem lést
eftir þriggja ára sambúð. Eftirlifandi
eiginkona Þorleifs er Ágústa Guð-
mundsdóttir. Eignuðust þau hjón
fimm dætur. Útfor Þorleifs verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Menning
Shakespeare á nótunum
Frank Shipway stjómaði Sinfóníuhljómsveit íslands í gærkvöldi
Enn voru sinfóníutónleikar und-
ir stjórn Frank Shipway til að
gleðja undirritaðan og flesta aðra
áheyrendur í gærkvöldi í Há-
skólabíói. Á efnisskránni var nýtt
íslenskt verk, „Midi“ konsert fyrir
tvö píanó og hljómsveit eftir Jónas
Tómasson og ekki var það til að
draga úr ánægjunni, ásamt Eroicu.
Jónas Tómasson er eitt af frum-
legustu tónskáldunum í landinu
um þessar mundir. Hann fer algjör-
lega sínar eigin leiðir án tillits til
tísku og hagsumastreðs en er um
leið þekktur af hógværð og næstum
sérviskulegri hlédrægni. Ekki veit
ég hvort rétt er að kalla „Midi“
píanókonsert. Til þess eru píanóin
varla nóg í „fókus“. En þau hafa
vissulega sína þýðingu og er eflaust
ætlað að vera staðgenglar „þeirra
hjóna", í þessari góðkynjuðu end-
urminningu úr sumarleyfi í
Frakklandi. Annars verð ég að játa
Tónlist
Leifur Þórarinsson
að mér heyrðist miklu meira af
MassachuSetts en Midi í þessu ann-
ars ágætlega samda tónpóemi og
fannst síst verra. Þeir Gísli Magn-
ússon og Halldór Haraldsson léku
listilega á flyglana og hljómsyeitin
sá vel um aö halda uppi fjöri.
En stórviðburður kvöldsins var
samt Eroica. Auðvitað slær hún
öllu við i sjálfu sér og þarf ekkert
að deila um það. En það sem kom
algjörlega á óvart var að hljóm-
sveitin, Sinfóníuhljómsveit ís-
Jónas Tómasson.
lands, lék hana eins og út úr
ævintýri. Ég held að ég muni ekki
eftir öðru eins samspili í Há-
skólabíói. Öll gömlu, þrautkönn-
uðu augnablikin, urðu sem ný
aftur og aftur og maður hélt niðri
í sér andanum: hvað kemur næst?
Frank Shipway er greinilega í sér-
flokki, á okkar mælikvarða a.m.k.
Tilfinning hans fyrir smáatriöum
er alltaf lifandi og spennandi um
leið og vilji hans og geta til að
byggja upp sterka og sannfærandi
heild er með ólíkindum. Fyrsti
þátturinn og sorgarmarsinn voru
magnaðir og lokaþátturinn hlaðinn
lífskrafti og bjartsýni. En eiginlega
var það skersóið sem kom mest á
óvart: tiltölulega hægt og yfirvegað
og þó eins og tvísýnt í tóninum. Þar
heyrðist manni vera býsna óvenju-
leg „sýn“ á heildardramað.
Kannski að Shakespeare hafi verið
með á nótunum?
LÞ
Skák
Tilkyimingar
Þuríöur á Mímisbar
Þuríður Sigurðardóttir söngkona syngur
á Mímisbar, Hótel Sögu, um helgina
ásamt Tríói Árna Scheving. Þuríður er
löngu landsþekkt söngkona og hefur
starfaö með hljómsveitum Magnúsar
Ingimarssonar. Ragnars Bjarnasonar og
síðast hljómsveit Gunnars Þórðarsonar,
auk þess sungið inn á fjölda hljómplatna
í gegnum tíðina. Þuríður mun koma fram
tvisvar á kvöldi, hálftíma í senn.
Kvenfélag Laugarnessóknar
heldur jólafund sinn með súkkulaði og
smákökum í safnaðarheimilinu mánu-
daginn 7. desember kl. 20. Sleppum
jólapökkunum í þetta sinn. Takið með
ykkur gesti.
Félag Harmónikuunnenda
heldur skemmtifund í Templarahöllinni
við Eiríksgötu sunnudaginn 6. des. kl.
15 18. Hljómsveitir og kórar koma fram
ásamt fleiru. Boðið verður upp á veiting-
ar. Allir eru velkomnir.
Tapað - Fundið
Seölaveski tapaðist
- líklegast á Lennon, aðfaranótt laugar-
dagsins sl. Finnandi vinsamlegast hringi
A síma 73048.
Karpov tókst ekki að vinna
- Jafntefli í nítjándu skákinni og staðan í einvíginu er 914-9 !/2
Anatoly Karpov sættist á jafn-
tefli í biðskákinni við Garrí
Kasparov eftir að leiknir höfðu ve-
rið tuttugu og tveir leikir til
viðbótar. Er skákin fór í bið á mið-
vikudagskvöld hafði hann peði
meira en vonlítið var að gera sér
mat úr því. Úrslit biðskákarinnar
komu því ekki á óvart.
Nú er aðeins fimm skákum ólokið
í einvíginu í Lope de Vega leik-
húsinu í Sevilla á Spáni. Staöan er
æsispennandi, 9'A-9 'A. Kasparov
heldur tithnum á jöfnu en víst er
að hann verður að berjast fyrir
hverjum hálfum punkti úr þessu.
Tuttugustu skákina tefla þeir í dag
og þá hefur Kasparov hvítt. Verður
fróðlegt að sjá hvort eftirlætisaf-
brigði þeirra af drottningarbragöi
verður enn til umræðu eða hvort
Karpov kýs að láta slag standa
strax og taka áhættu.
Þannig tefldist nítjánda skákin
áfram. Er skákin fór í bið eftir 40
leiki var staðan þessi. Karpov,- sem
hafði hvítt, lék biðleik:
41. Hea5 Ke6 42. Hal Hc6 43. He5+
Kf6 44. Hf5+ Ke6 45. He5+ Kf6 46.
Hea5
Fyrstu leikir Karpovs benda ekki
til þess að hann hafi fundið vinn-
ingsleið. Hins vegar er góð regla í
endatöflum að flýta sér hægt.
Karpov endurtekur leiki áður en.
Skák
Jón L. Árnason
hann fer að huga að peðastöðunni
á kóngsvæng.
46. - Ke6 47. Hla2 Hb6 48. g4 f6 49.
h5 Hc6 50. Hb2
Loks merki um að eitthvað fari
að gerast. Karpov finnur snöggan
blett í stöðu svarts, peðið á g7, en
áhlaup hans er ekki sérlega hættu-
legt.
50. - Hcxa6 51. Hb6+! Hxb6 52. Hxa7
Hbl 53. Hxg7 Hfl+ 54. Ke3 Hel+ 55.
Kfi Hfl+ 56. Ke2 Hf4 57, Ke3 Ke5!
Bráðskemmtilegur leikur. Þótt
Kasparov sé peði undir þolir hann
að tefia peðsendataflið. Það er ólík-
legt annað en að þessi staða hafi
komið upp á „eldhúsborði“ þeirra
beggja við biðstöðurannsóknirnar.
Karpov á ekki annars úrkosti en
að skipta upp á hrókum því að ann-
ars fellur kóngspeðið.
58. He7+ Kd6 59. He6+
Látil gletta sem engu breytir.
59. - Kxe6 60. Kxf4 Ke7!
Hér sættust þeir á jafntefli. Svart-
ur hefur andspænið í peðsendatafl-
inu og hvíti kóngurinn getur ekki
brotist í gegn. T.d. 61. e5 Ke6 62.
exfB KxfB; eða 61. Kf5 Kf7 62. e5
fxe5 63. Kxe5 Ke7 64. Kf5 Kf7 o.s.
frv. Athygli vakti að eftir að
skákinni var lokið sátu meistar-
arnir lengi við borðið, hreyfðu
mennina og ræddu biðstöðuna.
Þeir brostu og virtist fara vel á með
þeim.
-JLÁ
Athugasemdir við frétt
Ingvar Þ. Gunnarsson, útgerðar-
maður Vattar SU 3, hefur óskað eftir
að DV birti eftirfarandi athugasemd
við frétt í DV síðastliðinn þriðjudag.
„Varðandi frétt DV um smygl um
borð í Vetti SU 3 vil ég, sem útgerðar-
maður skipsins, taka eftirfarandi
fram um viðbrögð mín gagnvart
fréttaritara Dagblaðsins á staðnum
en í fréttinni eru viðbrögð mín gerð
tortryggileg.
5 Hálftíma eftir að fíkniefnalögregl-
an kom á staðinn var blaðamaðurinn
mættur og ætlaði hann að taka mynd
af einum skipveija, sem stóö í síðu-
lúgu skipsins. Mér rann í skap þegar
ég sá hvað slík mynd gæti haft alvar-
legáf afleiðingar fyrir umræddan pilt
sem á engan hátt var viðriðinn
smyglmál þetta. Ég furðaði mig einn-
ig mjög á að fréttaritarinn skyldi
vera mættur svo skjótt sem raun ber
vitni. Mér fannst einnig sem hann
væri að lyfta í eigin glerhúsi of þung-
um steini. Fréttaritarinn er einnig
útgerðarstjóri togaranna á staðnum.
Það er heldur ekki rétt aö ég hafi
slegið til fréttaritarans, enda væri
slíkt ekki sanngjarnt þar sem með
okkur gætir nokkurs aflsmunar. Ég
hef að því vitni að allt sem ég gerði
var að ég sneri einfaldlega flassið af
myndavélinni.
Eg vona svo að menn hugsi sitt
mál áður en þeir bendla, meðvitað
"í
eða ómeðvitað, saklaust fólk viö
glæpi sem þessa.
Loks vil ég þakka þeim mönnum,
sem komu hér og fundu þessi fíkni-
efni, fyrir góða og prúðmannlega
framkomu í hvívetna. Ég hef alltaf-
fordæmt slík efni og yfirleitt alla
vímugjafa.
Ingvar Þ. Gunnarsson
útgerðarmaður“
Athugasemd fréttaritara
„Ég mótmæli alfarið þeim fullyrð-
ingum Ingvars Þ. Gunnarssonar að
ég hafi ætlaðað taka mynd af einum
skipverja á Vetti. Ég ætlaði einungis
að taka mynd af bátnum og lögreglu-
bifreið sem stóð á bryggjunni viö
hlið bátsins. Þetta veit Ingvar vel þar
sem í orðaskiptum okkar kom oft-
sinnis fram að ég hugðist mynda
bátinn og sagði ég það skoðun mína
að rétt væri að fjölmiðlar fjölluðu um
mál sem þetta, það gæti orðið öðrum
fíkniefnasmyglurum víti til varnað-
ar. Að vísu var erfitt að ræða við
Ingvar vegna þess hversu æstur
hann var.
Ingvar gerist svo ósmekklegur að
'blanda saman mínu aðalstarfi og
starfi mínu sem fréttaritari DV. Þessi
störf eru með öllu ótengd.
Það hafa komið upp smyglmál þeg-
ar togaramir, sem ég er útgerðar-
stjóri fyrir, hafa komið úr sighngum.
Um þau mál hefur verið getið í fjöl-
miðlum og hvorki ég né nokkur
annar starfsmaður útgerðarfyrir-
tækisins höfum reynt á einn eða
annan hátt að koma í veg fyrir um-
fjöllun fjölmiðla í þeim málum. Ég
vil taka fram að aldrei hafa fundist
fíkniefni um borð í togurunum enda
eru áhafnir þeirra skipaðar úrvals-
mönnum og ekki um neinar reiði-
leysiskollur að ræða.
Emil Thorarensen,
fréttaritari DV á Eskifirði"
Athugasemd DV
Smygl fíkniefna til landsins er al-
varlegt mál og óumdeilt að slíkt er
fréttnæmt. Fréttaritari DV á Eski-
firði brást að vanda skjótt við ósk
ritstjómar blaðsins um frétt og mynd
af vettvangi. Hitt er verra að útgerð-
armaöur Vattar SU, sem fikniefnin
fundust í, skyldi veitast að fréttarit-
aranum og hindra hann í starfi með
ofbeldi. DV lítur þann atburð alvar-
legum augum. Viðurkenning útgerð-
armannsins á ofbeldinu liggur fyrir
og skemmt flass og myndavél eru til
sönnunar. Blaðið fordæmir atburð
þennan og stendur fast að baki
starfsmanns síns sem sinnti skyldum
sinum á réttan hátt að öllu leyti.
-Fréttastj.
Kjartan Árnason rithöfundur:
Hliðstæða fra Danmörku
Ég byrjaði dagskrána eins og vana-
lega á því að horfa á fréttir, en að
þessu sinni missti ég af 19:19 frétta-
þættinum sem ég allajafna fylgist
með. Það var fátt eftirminnilegt í
fréttum gærkvöldsins. Á eftir frétt-
um sleppti ég því aö horfa á
sjónvarpið á meöan auglýsinga-
flóðbylgjan skall á og hún er
greinilega farin að lengjast mikið
svona nærri jólum.
Kastljós er uppáhaldsþáttur son-
ar míns, sem er fjögurra ára, og
hann vekur einnig athygli mína. í
fyrri hlutanum var fjallað um skák
og fýlgist ég alltaf mjög náið með
þeim málum. Seinm hluti Kastljóss
var stjórnmálalegs eðlis og vakti
engan áhuga minn af þeim sökum.
Þátturinn Matlock finnst mér
ekki meira spennandi en svo að ég
slökkti á honum. Ég kveikti aftur
á sjónvarpinu þegar danski þáttur-
inn um vinnu danskra hjá nasist-
um á styrjaldartímanum hófst.
Hann var mjög athyglisverður og
þess virði að horfa á. Þarna voru
afhjúpaðir þeir fordómar sem hafa
verið í gangi síðastliðin 40 ár og
fjallaö um tímabil sem má ekki
gleymast í mannkynssögunni.
Eftir að sjónvarpinu lauk kann-
aði ég hvað allar útvarpsstöðvam-
ar höfðu upp á aö bjóða. Ég komst
að því að allar stöðvar buöu upp á
sömu tónlistina nema Rás 1. Þar
var þátturinn Samhljómur, um
klassíska tónhst þar sem tónlistin
er kynnt almennhega fyrir spilun,
aldrei þessu vant, og því alláheyri-
legur þáttur. Reyndar veit ég til
þess að í Danmörku er þáttur með
nákvæmlega sama nafni sem er
alveg eins uppbyggður. Samhljóm-
ur er ekkert verri fyrir það.