Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
Fréttir
Fimbulkuldi hefur ráðið ríkjum
í Leifsstöð undanfama daga en
starfsfólk hefur lengi kvartaö und-
an ónógum hita. í frostinu sem ríkt
hefur síðustu daga hefur starfsfólk
i móttökusal, sem vinnur nálægt
útidyrum, þurft að vera í yfirhöfn-
um og með vettlinga.
Pétur Guömundsson flugvallar-
stjóri sagði í samtali við DV að
þetta ástand væri gjörsamlega
óviðunandi en fiórar meginástæð-
ur væru fyrir kuldanum. í fyrsta
lagi væri heimaæð Hitaveitu Suð-
umesja, sem sjá á flugstööinni fyrir
upphitunarvatni, ekki tiibúin og
því nú notuð bráðabirgðaheimaæð
sem ekki dugir þegar gerir verulegt
frost í öðru lagi hefði nýlega kom-
ið í ljós aö margir miðstöðvarofnar
í byggingunni væm óvirkir vegna
bfiunar. I þriðja lagi hefði hitakerfi
Startstólk i móttökusal llugstöðvarlnnar þarf að vera f skjólfatnaði við vinnu sína tll aö halda á sér hita.
, DV-mynd Brynjar Gauti
byggingarinnar ekki alltaf verið í
fullum gangi þar sem undanfarið
hefði verið uhnið aö stillingu þess
en það á að vera með sjálfvirkri
tölvustýringu sem mun sjá um að
halda þæfilegu hitastigi í bygging-
unni. í fiórða og siðasta lagi nefndi
Pétur að rafmagnshurðir við aðal-
inngang hefðu reynst illa og kæmi
inn um dymar mikill trekkur. Pét-
ur sagöi þetta hafa komiö sér mjög
á óvart þar sem líkan af flugstöð-
inni hefði verið vandlega prófað,
með tilliti til vindsveipa og vindá-
lags, í sérstökum stormgöngum í
rikisháskólanum í Colorado í
Bandaríkjunum til að fyrirbyggja
trekkinn. Strax í vor kom í ijós aö
hurðimar vora ekki nógu góðar og
vora geröar á þeim nokkrar endur-
bætur sem dugðu þó skammt í
frostinu. -JBJ
Kvótafhimvarpið:
Enn breytist greinin um
veiðar smábátanna
- banndögunum fækkað og aflahámaikið hækkað
Eins og DV skýrði frá í gær mynd-
aðist meirihluti fyrir því í neðri deild
Alþingis að breyta 10. grein kvóta-
frumvarpsins um veiðar smábáta,
meira en gert hafði verið í efri deild.
Það vora Alþýðuflokksþingmennim-
ir Árni Gunnarsson, Sighvatur
Björgvinsson og Jón Sæmundur Sig-
uijónsson sem höfðu forgöngu um
málið. Til að firra því að þeir létu
reyna á breytingatillögur sínar varð
það úr að menn sömdu um málið og
meirihluti sjávarútvegsnefndar
ásamt Matthíasi Bjarnasyni tók til-
lögumar upp sem sínar, með
samþykki Halldórs Ásgrímssonar
sjávarútvegsráðherra.
Breytingamar, sem þama fengust
fram, gera ráð fyrir að banndögum
verði fækkað. í framvarpinu var gert
ráð fyrir að smábátar hættu veiðum
1. desember en þessu var breytt og
tekur bannið gildi 10. desember.
Þá er gert ráð fyrir að þeir bátar
undir 10 lestum, sem sannanlega var
hafin smíði á fyrir síðustu áramót
og gr'eitt hafði verið inn á þriðjungur
smíðaverðs, skuli fá aflakvóta.
Loks fékkst loforð frá Halldóri Ás-
grímssyni sjávarútvegsráðherra um
að í reglugerö með framvarpinu
skuh aflahámark báta undir 6 lestum
hækkað úr 55 lestum í 60 lestir á
þessu ári.
Önnur umræða um kvótafrum-'
varpið stóð í allan gærdag og lauk
henni ekki fyrr en um kvöldmat.
Atkvæðagreiðslu var frestað þar til
í dag. Mikill fiöldi breytingatillagna
viö framvarpið hggur fyrir og er tal-
iö mögulegt að sumar breytingatil-
lögur Matthíasar Bjamasonar
komist í gegn.
-S.dór
Lögreglumenn höfðu nóg að gera t Hafnarfirði í gærkvöldi, eins og svo oft á þrettándakvöldum.
DV-mynd S
Spáð minni þjóðartekjum en í fyrra:
Ekki raunhæft að
viðhalda kaup-
mætti ársins 1987
- segir efhahagsráðunautur ríkisstjómarinnar
Niöurstaða þriggja dæma um
kaupmáttarþróun miðað við mis-
munandi launahækkanir sem
Þjóðhagsstofnun gerði um áramót
er sú að enda þótt laun hækki í
komandi kjarasamningum mun
kaupmáttur ekki aukast, enda ljóst
þjóðartekjur dragist saman í ár
miöað við síöasthðið ár að því er
fram kemur í endurskoðaðri Þjóð-
hagsspá sem brátt kemur út
samkævæmt upplýsingum sem DV
fékk hjá Ólafi ísleifssyni, efnahags-
ráðunaut ríkisstjómarinnar.
í dæmunum sem Þjóðhagsstofn-
un setti fram er í fyrsta lagi reiknað
með 7% launahækkun á þessu ári,
fostu gengi og liðlega 7% hækkun -
verðlags frá upphafi til loka þessa
árs. Leiðir þetta til þess að kaup-
máttur stendur nær í stað. í hinum
tveimur dæmunum er reiknað með
meiri launahækkunum og þar með
gert ráð fyrir meiri verðbólgu. í
öðra dæminu er gert ráð fyrir 14%
launahækkunum sem tahn er
munu leiða til liðlega 10% hækkun-
ar á veröi erlends gjaldeyris og
hðlega 15% verðlagshækkana á
árinu. í þriðja dæminu er miðað
við 38% launahækkun og 52%
hækkun á erlendum gjaldeyri og
46% hækkun á verðlagi frá upphafi
til loka ársins. í engu dæmanna
verður breyting á kaupmætti frá
fyrra ári.
„Verðbólgudæmi Þjóðhagsstofn-
unar staðfesta það sem þegar var
orðið ljóst í haust að það er ekki
raunhæft markmið að viðhalda
kaupmætti ársins 1987 sem er hinn
hæsti sem hér hefur náðst,“ sagði
Ólafur ísleifson í morgun.
„Markmiðin um skaplega verð-
lagsþróun og viðunandi rekstur
útflutningsgreina nást ekki nema
kaupmáttur launa láti undan í
samræmi við minni þjóðartekjur.
Verðbólgan sem hlytist af því að
verja of hátt kaupmáttarstig yrði
óbærileg heimilum jafnt sem at-
vinnufyrirtækjum og þjóðarbúinu
í heild,“ sagði Ólafur.
-ój
Akureyri:
Sigfús ræðir
viðfóstrurnar
Hafnarfjórður:
Það greip um sig eyðileggingaræði
„Það greip um sig eyðilegginga-
ræði. Unghngamir láta sér ekki duga
að sprengja flugeldana eins og þeir
eru seldir. Heldur sefia unglingamir
inn í þá gaddavírslykkjur og smá-
mynt. Flugeldamir verða með þessu
eins konar handsprengjur,“ sagði
varðsfióri hjá lögreglunni í Hafnar-
firöi.
Alls vora um 60 lögregluþjónar til
taks í Hafnarfirði í gærkvöld. Auk
þess héldu kennarar vaktir í skólum
bæjarins. Að mestu tókst að koma í
veg fyrir ólæti og spjöh í miðbænum.
Þar voru tvær rúður brotnar.
í Víðistaðaskóla og Engidalsskóla
vora unnin spjöh. Rúða var brotin
og hurð sprengd upp í Engidalsskóla.
Var það seint í nótt. Kennarar vora
á vakt í skólanum fram á miðja nótt
og er þeir fóra heim hafði ekkert
borið á skemmdarvörgum við skól-
ann.
Spjöll og skemmdarverk vora unn-
in víðs vegar í bænum. Lögreglan
sagði að ekki hefði verið hægt að
koma í veg fyrir öh ódæðisverkin. Á
annað hundrað manns, mest ungl-
ingar, vora flutt á lögreglustöðina.
Ekki var rnikh ölvun í Hafnarfirði í
gær.
-sme
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyit-
Sigfús Jónsson, bæjarsjóri á Akur-
eyri, átti í gær viðræður við nokkrar
af þeim fóstram sem sagt hafa upp
störfum og sagði hann í samtali við
DV í gær að um könnunarviðræöru
hefði verið að ræða.
Sigfús sagði að sennilega væri eina
leiðin til að leysa fóstramáhð að
semja við fóstrurnar eina og eina en
hér er um að ræða 7 til 8 fóstrur sem
munu gegna yfirmannsstöðum á
dagvistarheimUum bæjarins.
„Ég veit ekki hvort okkur tekst að
leysa þetta mál,“ sagði Sigfús. Nú í
vikunni era dagheimUin rekin á
þann hátt að fólk sem var í öðram
störfum hjá félagsmálastofnun bæj-
arins rekur dagvistarheimUin og var
ákveðið að viðhafa þetta fyrirkomu-
lag út þessa viku. Hvað gerist á
mánudag er því óljóst eins og er en
Sigfús sagði að áfram yrði reynt að
ræða við fóstrarnar og finna lausn á
málinu.
Sigfús sagði að hér væri ekki um
samningaviðræður að ræða því þess-
ar fóstrur hefðu sagt upp störfum og
uppsagnir þeirra tekið gildi. Því er
um að ræða að kanna hug fóstranna
til áframhaldandi starfa og bjóða
þeim laun sem þær geta sætt sig við.