Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Side 5
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
5
DV
Fréttir
Salan á húseignum Grænmetisverslunarinnar:
Beðið efdr lagaheimikl
„Við bíðum eftir lagaheimild frá
ráðherra til að fá þessi kaup stað-
fest,“ sagði Hrafnkell Karlsson,
stjórnarformaður Ágætis hf„ en nú
um áramótin rann út heimild í fjár-
lögum fyrir sölu á eignum
Grænmetisverslunarinnar í Síðu-
múlanum. Heimild fyrir sölunni
var ekki endurnýjuð en þeir hjá
Ágæti hf. telja sig hafa loforð fyrir
því að sérstök lög verði sett til að
tryggja söluna.
„Það veröur flutt sérstakt frum-
varp um þetta en það kom meðal
annars fram hjá Sighvati Björg-
vinssyni, formanni fjárveitinga-
nefndar Alþingis, þegar fjárlög
voru rædd,“ sagði Hrafnkell. Bætti
hann því við að Sighvatur hefði
lofað því að þetta lagafrumvarp
yrði flutt fljótlega. Þetta kom einnig
fram í máli Magnúsar Sigurðsson-
ar frá Birtingaholti, sem er í stjóm
Ágætis hf„ en hann taldi að máhð
fengi póhtiska lausn.
Hver flytur frumvarpið?
En hvaða ráðherra á þá að flytja
þetta lagafrumvarp? Eðh málsins
samkvæmt ætti það að vera fjár-
málaráðherra, hann selur eignina
en í fjármálaráðuneytinu virðist
ekki vera mikill vilji fyrir því að
frá sölunni vérði gengið enda löng-
um verið tahð að áhugi á því sé
helstur í landbúnaðarráðuneyt-
inu.
„Landbúnaðarráðuneytið hefur
ekki rætt við okkur ennþá," sagði
Karl Th. Birgisson, upplýsingafull-
trúi fjármálaráðherra, og bætti því
við að fj ármálaráðuneytið hefði
enga heimhd th að selja þessar
eignir. Hann sagöi aö heimild hefði
verið veitt á sínum tíma til Sam-
taka íslenskra mafjurtaframleið-
enda, SÍM, th að veðsetja húsnæðið
og ríkið yrði að standa undir þeim
40 mihjónum sem hvíldu á húsun-
um. Reynt yrði þó að forða ríkinu
frá að sitja uppi með þessar veð-
skuldir. „Annars eru þetta ágætis-
hús og kemur vel th greina að leigja
þau undir einhverja starfsemi,"
sagði Karl.
Löng bið eftir Jóni
„Frá miðjum desember hefur leg-
ið beiðni frá okkur inni á borði hjá
ritara Jóns Baldvins um að fá að
ræða okkar mál við hann. Ég trú
ekki öðru en að hann taki vel við
okkar málaumleitan þegar hann
heyrir hana,“ sagöi HrafnkeU. Þess
má geta að ríkislögmaður hefur
samið ályktun fyrir fjármálaráö-
herra vegna sölunnar.
Eins og áður hefur komið fram
skiptir miklu máh fyrir Ágæti hf.
að fyrirtækið fái þessar húseignir.
Það eru hins vegar áhöld um að
félagið sé fulltrúi grænmetisfram-
leiðenda en hugmyndin var að
hehdarsamtök þeirra fengju hús-
eignimar á góðum kjömm þegar
Grænmetisversluriin var lögð nið-
ur. Ágæti hf. rekur nú sína starf-
semi í húsinu og leigir það af SÍM
sem að sögn Hrafnkels hefur engin
önnur tengsl við Ágæti hf. Reyndar
er hluti húsnæðisins leigöur undir
aðra starfsemi.
Hlutafjársöfnun vegna Ágætis hf.
hefur lítið þokað áleiðis - enn hafa
ekki safnast nema þessar 16 mihj-
ónir sem söfnuðust í upphafi.
, „Það er ekki á dagskrá að safna
meiru hlutafé en ef fleiri sýna
áhuga á að leggja fram fé þá mun
hluthafafundur taka afstöðu th
þess,“ sagði Hrafnkeh. Hann sagði
að heildarskuldir SÍM væm yfir
100 mhljónir króna en fyrirtækið
heföi byrjað með neikvæða eigin-
fjárstöðu og síðan hefði skuldahal-
inn vafið upp á sig. Þess má geta
að nýr framkvæmdastjóri hefur
verið ráðinn hjá Ágæti, Amar Ing-
ólfsson, en Gestur Einarsson gaf
ekki kost á sér lengur í starf-
ið.
-SMJ
Já, ævintýrin gerast enn. Við byrjum
árið 1988 með tilboði sem er svo
ótrúlegt að líkja má við ævintýri. En
eins og öll ævintýri tekur það enda,
þannig að ef þú vilt taka þátt í þessu
einstaka ævintýri skaltu vera með frá
byrjun. Það er of seint þegar það er á
enda.
PANASONIC NV-H65
HI-FI STEREO
NV-H65 er eitt besta og fullkomnasta
myndbandstæki sem framleitt hefur
verið. Mynd og hljómgæði eru í
ótrúlega háum gæðaflokki, tækni-
legir eiginleikar eru með ólíkindum
og öll bygging tækisins ber augljósan
vott um yfirburða tæknigetu
Panasonic, mesta myndbandstækja-
framleiðanda heims.
HVERS VEGNA
HI-FI STEREO?
Nærri allar áteknar myndbansspólur í
dag eru HI-FI, hvort sem þær eru
fjölfaldaðar hér eða erlendis. Allar
eigin upptökur tekur þú upp í HI-FI
og losnar við allt suð og bjögun,
þannig vinna hljóm- og myndgæði
saman við að auka áhrifamátt
myndarinnar.
Með NV-H65 stígur þú skrefið til fulls
inn í framtíðina.
Alfullkomin fjarstýring.
HQ myndgæði (High Quality).
Hraðanákvæmni 99,999%.
HI-FI STEREO hljómgæði.
Tíðnisvið 20-20.000 Hz.
„Simul", hægt að taka upp myndútsend-
ingu á sama tíma og hljóð er tekið upp
úr útvarpi í stereo (t.d. hefur Eurovision
verið send út þannig hérlendis).
Hrein og truflunarlaus kyrrmynd.
Mynd fyrir mynd, truflunarlaus.
Hraðastillanleg truflunarlaus hægmynd
frá 1/5 til 1/30. »
Rafeindastýrðir snertitakkar.
Tvöfaldur hraði.
Mánaðar upptökuminni með 8
prógrömmum.
24 tíma skynditímataka.
Stafrænn teljari sem sýnir klukkutíma,
mínútur og sekúndur.
Sjálfvirk bakspólun.
Sjálfvirk gangsetning við innsetningu
spólu.
99 rásir.
32 stöðva minni.
Sjálfvirkur stöðvaleitari.
Fínklipping, klippir saman gamla og nýja
upptöku án truflana.
Heyrnartólstengi með styrkstilli.
Læsanlegur hraðleitari með mynd.
Leitari með mynd áfram.
Leitari með mynd afturábak.
Myndskerpustilling.
Fjölvísir sem leyfir þér að fylgjast með
öllum gjörðum tækisins.
Fjölþættir tengimöguleikar.
Tækið byggt á steyptri álgrind.
Og ótal margt fleira.
Verð áður 73.900,-
Verð nú 66.500,-
Tilboð 49.850,-stgr.
(Miðað við gengi 4.1.88 og aðeins
eina sendingu)
JAPISS
BRAUTARHOLT2 • KRINGLAN • SlMI 27133