Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Page 7
7
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
Fréttir
ÍOU, TH£ MAbWS. VOítD
THlMYwUR BMIGHÍf *■?
HOPEíQH 1V8BAND Wf THE i
HACKS. VOlSil THfclR DfttUT.
-eiRTHOAr.THE 8ESTSIN01E
or)9B7 SO.JUST WHOARE
THI SUGARCOatS? STJVE
SUTHERIAND EUYS WOSO
ANOMINU GAMfsWITH
ICÍIAND'5 flNtST.
: PlCS: TOM SHfcEHAN AMD
ANDY C7'TI IN
• NEW YEAR'S REVOLUTION •
■IMPIEMINDS
EADO'CONNOR
MARC ALMOND
Cube
isassaa$sx£s*
an——___
B -• C• 533Em8 »•*«■
*?!*jT*<.<n*"te",>'.
ROOTS
Miöopna blaðsins. Takið eftir enska textanum sem hljómar eitthvað á þessa leið: „Þiö, lesendur, kusuð hana björtustu von
ársins 1988 og við kusum smáskifuna Birthday bestu plötu ársins 1987. Svo, hverjir eru Sykurmolarnir? Steve Sutherland tekur
hér viðtal við bestu íslensku hljómsveitina... “
Forstða nýjasta tölublaðs Melody Maker með mynd af Björk
Guðmundsdóttur þar sem hljómsveitin Sykurmolarnir er köll-
uð „bylting nýja ársins".
Melody Maker stórtirifið af Björk og Sykurmolunum:
Bjartasta von ársins
Um áramót gera tónlistarblöð víða
um heim upp árið þar sem valdar eru
plötur ársins, hljómplötur ársins,
bjartasta vonin og svo framvegis. Hið
þekkta tímarit, Melody Maker, er þar
engin undantekning. Þeir og lesend-
ur þess hafa sýnt íslensku hljóm-
sveitinni Sykurmolunum alveg
sérstakan áhuga á liðnu ári.
í uppgjöri blaðsins fyrir árið 1987
var smáskífan Birthday kosin besta
plata ársins. Það er mikill heiður
fyrir hljómsveitina, og má til dæmis
nefna aö smáskífa Prince, „Sign of
the Times“, skipaði þriðja sætið á
þeim lista. Meðal lesenda blaðsins
hafnaði hljómsveitin í öðru sæti á
þeim Usta. Auk þess hlotnaðist
hljómsveitinni sá heiður að lesendur
blaðsins kusu hana björtustu von
ársins fyrir árið 1988. Björk Guð-
mundsdóttir var af lesendunum
kosin þriðja besta söngkonan og eru
ekki ómerkari söngkonur en Kate
Bush í sjöunda sæti, Annie Lennox
í áttunda og Madonna í tíunda sæti.
í fyrsta sæti var Julianne Regan og
í öðru sæti Suzanne Vega.
í nýjasta blaöi Melody Maker, sem
kom út annan janúar, eru þeir enn
á ný aðalumfjöllun blaösins. Björk
Guðmundsdóttir prýðir enn á ný for-
síðu blaðsins og auk þess er viðtal
við alla í hljómsveitinni á miðsíöum
blaðsins, samtals þrjár síður. Þar er
lesendum blaðsins gefmn kostur á
aö kynnast hljómsveitarmeðlimum
nánar í viðtali sem nefnist Rætur
Molanna.
Þar sem Melody Maker er vel þekkt
tónlistarblað í Bretlandi og víðar er
ekki að efa að þessi auglýsing kemur
sér vel fyrir Sykurmolana... þaö er
að segja ef þeir kæra sig um þaö.
ÍS
Framhaldsskólar of seinir í gang
Margir framhaldsskólar hafa
enn ekki hafið störf eftir jólafri en
samkvæmt reglugerð um löggild
leyfi í skólum nr. 80 frá 1976 segir
að skólar eigi að hetja starf sitt á
vorönn 3. janúar eða fyrsta virkan
dag þar á eftir.
Menntaskólar meö bekkjakerfum
hófu kennslu á tilsettum tíma en
ílestir áfangaskólanna byrja aftur
öðru hvoru megin við helgina.
Meðal þeirra sem hefja kennslu á
mánudag eru MH, FB, Iðnskólann,
og Flensborg.
Þrátt fyrir tafir af þessu tæi eru
skólarnir ekki vanir að lengja
kennslutíma fram á voriö þar sem
kennarar liafa bundið í kjarasamn-
ingum að þeir skuli vera lausir frá
störfUm í maílok, að sögn Stefáns
Ólafs Jónssonar, deildarstjóra í
menntamálaráðuneytinu. .JÞetta
hefur verið verulegt vandamál allt
frá því áfangakerfi voru tekin upp
í framhaldsskólunum. Mennta-
málaráðuneytið hefur lengi beint
eindregnum tilmælum til skólanna
um að hefja starfið á tilsettum tíma
svo þorri nemenda þurfi ekki aö
vera óvirkur í langan tíma en þetta
kemur þeim að sjálfsögðu mjög illa.
Ástandiö er þó skárra nú en það
var þegar annaskiptaskólarnir
voru að ryöja sér til rúms.“
Stefán sagði skólana gera hvað
þeir gætu til að koma málinu í lag
en sumir geti ekki hafið skólastarf
á tilsettum tíma þar sem þeir þurfa
aö vinna mjög flóknar stundatöfiur
auk þess sem stúdentar eru braut-
skráðir fyrir jólin og nýir nemend-
ur innritaöir.
-JBj