Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
9
Utlönd
Dole og Hart
fylgismestir
Demókratinn Gary Hart og repú-
blikaninn Robert Dole eni þeir tveir
af frambjóöendum í forkosningum
bandarísku stjómmálaflokkanna
fyrir forsetakosningamar þar í haust
sem njóta mest fylgis í Iowa. Svo seg-
ir aö minsta kosti í niðurstöðum
skoðanakönnunar sem gerð var af
Gallup nýlega.
Skoðanakönnunin leiddi í ljós að
Gary Hart, sem síðastliðið vor varð
að hætta þátttöku í kosningabarátt-
unni vegna kynlífshneykslismáls en
hefur nú tekið upp merkið að nýju,
nýtur fylgis þijátíu og fjögurra af
hundraði kjósenda demókrata í
Iowa. Næstur honum af demókrötum
er Paul Simon.
Meðal repúblikana er það Robert
Dole sem nýtur fylgis íjörutíu og íjög-
urra prósenta en George Bush
varaforseti hefur hylli tæplega þrjá-
tíu af hundraði þeirra.
Leiðtogar ríkja á Karíbahafi ræða væntanlegar kosningar á Haiti. Þeir hafa verið beðnir að senda þangað friðar-
sveitir til að tryggja réttlátar kosningar. Simamynd Reuter
iiaac,r ;
ítiöUtk-. \>
ppemE.E.i®
StisotKiw
iBSstJciœ
BfeS.Parrfflgi
6»«.S8bíik
£5*iCÍS£Sáí
ni-issá
SHl
Sakaðir um
misþyrmingar
Mannréttindasamtök Palestínu-
manna halda því fram að palestínsk-
ir fangar í vörslu ísraelsmanna sæti
illri meðferð. Alls hafa tvö þúsund
Palestínumenn verið handteknir frá
því að óeiröirnar á herteknu svæð-
unum hófust fyrir mánuði. Að
minnsta kosti tuttugu og fimm hafa
fallið fyrir hendi ísraelskra her-
manna og tvö hundruð særst.
ísraelski herinn neitar ásökunum
lögfræðinga Palestínumanna um að
tveimur meintum óeirðaseggjum
hafi verið misþyrmt til þess að knýja
fram játningu um þátttöku í ólögleg-
um mótmælaaðgerðum og gijótkasti.
Talsmaður mánnréttindasamtak-
anna segir skilyrði fanganna léleg
og greinilega sé allt gert til þess að
niðurlægja þá. Margir fanganna eru
á unglingsaldri.
Biðja um friðar-
sveitir til Haiti
Ungir mótmælendur á Gazasvæð-
inu. Símamynd Reuter
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar á
Haiti hafa farið þess á leit við samtök
ríkja á Karíbahafi, Caricom, að þau
sendi friðarsveitir til landsins til þess
að fylgjast með því að kosningamar
þar síðar í þessum mánuöi fari fram
á réttan hátt. '
Telja þeir að alþjóðlegar friðar-
sveitir séu líklega eina lausnin til
þess að tryggja að lýðræði komist á
í landinu eftir þijátíu ára einræðis-
stjórn.
í gær var einnig tilkynnt að stjórn-
arandstaðan myndi einnig biðja
samtökin að beita herstjórnina á
Haiti þrýstingi til þess að hún fre-
staði kosningunum sem ráögerðar
hafa verið þann 17. janúar næstkom-
andi.
'Caricom eru áhrifamikil samtök
og í október 1983 fóru flestir meðlim-
ir þeirra fram á að það við Banda-
ríkjamenn að þeir gerðu innrás í
Grenada til þess að binda enda á fjög-
urra ára tilraun með stjórn marxista.
Kosningum á Haiti var aflýst í nóv-
ember síðastliðnum eftir aö byssu-
menn skutu á kjósendur og felldu aö
minnsta kosti þijátíu og fjóra. Kosn-
ingarnar hefðu orðið fyrstu frjálsu
kosningarnar í þijátíu ár eftir aö ein-
Nýir erfiðleikar
Sjálfvirkur dælubfll
Leiðtogar gyðinga vöruðu í gær
við því að ef Jóhannes Páll II.
páfi myndi eiga annan fund með
Kurt Waldheim, forseta Austur-
ríkis, gæti slíkt haft alvarlegar
afleiðingar fyrir tengsl gyðinga
og kaþólsku kirkjunnar. Einkum
sögðu leiðtogarnir að afleiðing-
amar yrðu alvarlegar ef sá
orðrómur reyndist réttur að páfi
og Waldheim hygðust funda á
stað þar sem áður stóðu einar af
dauðabúðum nasista • í síðari
heimsstyrjöldinni.
Gyöingarnir hafa áhyggjur af
heimsókn páfa til Austurríkis á
komandi sumri og þá einkum
þeim stuðningi sem þeir telja að
páfi veiti Waldheim með því að
eiga fund með honum en Wald-
heim hefur verið sakaður um að
hafa átt aðild að voðaverkum
nasista gegn gyðingum.
Tíu nýir biskupar
Tíu nýir biskupar rómversk-
kaþólsku kirkjunnar voru í gær
vígðir í St. Péturskirkjunni í
Róm. Meðal þeirra biskupa sem
þar lögðust flatir frammi fyrir
Jóhannesi Páli H. páfa var nýr
biskup fyrir rómversk-kaþólsku
kirkjuna í Jerúsalem.
of lítinn heimanmund með henni.
Konan hefur alvarleg brunasár
á um sjötíu prósent líkama síns
og er henni vart hugað lif.
Ættingjum brúðguma var fyrir
nær þrem áratugum bannað með
lögum að hefna sín á brúðinni ef
þeim þótti heimanmundur henn-
ar ekki nægilegur. Enn tíðkast
þessi gamli og grimmilegi siður
þó og talið er að árlega séu hundr-
uö kvenna á Indlandi líflátin
vegna þess að ættingjar þeirra
neita eða geta ekki mætt kröfum
um heimanmund.
Sjátfsmyndir
Sá elsti látinn
Slökkvilið Tokýoborgar hefur
nú tekið í notkun nýjan og sér-
stæðan dælubíl sem mun einkum
verða að gagni við aðstæður sem
taldar eru slökkviliösmönnum
hættulegar.
Dælubill þessi er fjarstýrður og
verður hægt að senda hann inn í
aðstæður sem mannslíkaminn
þohr illa eða ekki.
Meðfylgjandi mynd var tekin
þegar slökkvilið Tokýoborgar
sýndi nýja bílinn og getu hans við
árlega skrúðgöngu sína í gær.
Kveiktu í konunni
Elsti starfandi prestur róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar,
Alvaro Fernandez, lést í gær.
Femandes, sem starfað hafði um
langt árabil í landbúnaðarhérað-
inu TGirso de Abres á Spáni, var
orðinn eitt hundrað og sjö ára
gamall. Hann sinnti öllum prests-
störfum sínum þar til fyrir tveim
vikum þegar hann tók sótt þá er
nú hefur leitt hann til bana.
Liðlega tvítug kona liggur nú
þungt haldin á sjúkrahúsi í Nýju
Delhí á Indlandi eftir að ættingjar
eiginmanns hennar kveiktu í
henni í mótmælaskyni vegna
þess að foreldrar hennar greiddu
Frakkinn Lasurent Septier,
sem er tæplega fertugur, hefur
undanfarin sjö ,ár tekið ljósmynd
af sjálfum sér á hveijum einasta
morgni. Myndimar eru allar
teknar á nákvæmlega sama stað
og er hann nakinn á þeim öllum.
Septier hefur nú klætt baðher-
bergið sitt að innan með þessum
ljósmyndum sem orðnar eru 2.565
talsins.
Hægfara jafnrétti
Þótt stjórnvöld hvítra í Suður-
Afríku standi eins þver fyrir
öllum jafnréttismálum og þau
mögulega geta vinnast öðru
hvoru áfangasigrar í baráttu þel-
dökkrá í landinu.
Nýlega vom þannig almenn-
ingsgarðar í Jóhannesarborg
opnaðir þeldökkum en þeir hafa
tU þessa verið ætlaðir hvítum
íbúum borgarinnar einiun sam-
an.
ræðisstjóm Duvaliers, sem steypt
var af stóli í febrúar 1986, lauk.
^03
FYRIRTÆKITILSOLU
• Fiskverkun með útfl. ásamt
eignum - mikil velta - góð
kjör.
• Matvöruverslun í Breiðholti -
mánaðarvelta 6,0 millj. -
mögul. á láni til lengri tima.
• Veitingastaður i hjarta borg-
arinnar - mikil velta - fallegar
innréttingar.
• Heildverslun með snyrtivörur
- góð kjör.
• Byggingavöruverslun i
Reykjavik - góð umboð.
• Litil matvöruverslun ásamt
söluturni, verð 1,7 millj.
• Litil heildverslun með vefnað-
arvörur - góð kjör.
• Tiskuvöruverslun með 35
millj. kr. veltu á ári -góð stað-
setning. Uppl. á skrifst.
• Billjardsto'a í Breiðholti i eig-
in húsnæði - góð kjör.
• Sólbaðsstofa í Reykjavík -
góð kjör.
• Tískufataverslanir f Breiðholti
- ýmsir greiðslumöguleikar.
• Snyrtivöruverslun i vesturbæ
- miklir mögul.
• 15 söluturnar víðs vegar í
Reykjavik, Kóp. og Hafnar-
firði, ýmsir greiðslumöguleik-
ar eru i boði.
Höfum kaupendur að góðum
heildverslunum og söluturnum
með mikla veltu. Um er að ræða
mjög fjársterka kaupendur.
Við aðstoðum kaupendur og selj-
endur fyrirtækja.
Ýmsir fjármögnunarmöguleikar.
VIÐSKIPTAÞJONUSTAN
Skeifunnl 17 A Sími:
108 Reykjavik^^ (91 >-689299
Viðski ptaf ræði ng ur:
Kristinn B. Ragnarsson.
Lögmenn:
Jónatan Sveinsson hrl.
Hróbjartur Jónatansson hdl.
★ Ráðgjöf ★ Bókhald ★ Inn-
helmtur ★ Skattaaðstoð ★ Kaup
og sala