Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
Útlönd
Óveður í Bretiandi
Mikið óveður gekk yfir vestur-
og suðurliluta Breílands í gær.
Mildll stormur og rigningar ollu
flóðum, sem urðu aö minnsta kosti
tveim aö bana og skemmdu mann-
virki víöa.
Þeii'sem létu lifið i óveörinu voru
okumaður bifhjóls. sem iauk a tré.
og liðlega sextugur sjómaður sem
drukknaði viö BlackpooL
Seinl í gærkvöldi boröust björg-
unarmenn enn við aö bjarga óðrum
sjómanni sem var a reki i smábát
á svipuðum slóðum.
Veðrið i gær var hið versta sem
gengiö hefur yflr Bretland frá því
í októbermánuöi á síðasta ári en
þá gekk þar yfir versta óveður sem
Brctar hafa þmft að Jwla undan-
famar þtjár aldir.
Óvenju hlýtt í Finnlandi
Meðan fregnir berast af óveðrum
og miklum kuldum víða að úr ver-
öldinni njóta Finnar óvenju mikilla
hlýinda, miðaö við árstúna.
Á meðfylgjandi myndum má
glöggt sjá muninn á veörinu nú og
á sama tíma 1 fyrra en þá var vetur-
inn óvenju kaldur.
Efri myndin er af verði við for-
setahöllina í Helsinki í janúar í
fyrra þegar sjór var mikill og kuld-
ar slikir að verðir þurftu aö verja
sig sérstaklega gegn þeim og yfir-
mönnuym þótti ástæða til að stytta
varðstöðu hvers og eins. Neðri
myndin er svo frá sömu varöstöð
nú, en eins og sjá má er þar enginn
snjór og vörðurinn næstum sumar-
klæddur.
Bandarísk þyrla á flugi yfir skipalest frá Kuwait á leið suður Persaflóa.
Simamynd Reuter
Fækka í flotanum
Starfsmenn vamarmálaráðuneyt-
isins í Bandaríkjunum fullyrða að
áætlun um að fækka skipum í banda-
ríska flotanum á Persaflóa þýði ekki
breytingar á þeirri stefnu Banda-
ríkjamenn að vernda skip undir fána
þeirra.
Embættismennirnir tilkynntu í
gær að orrustuskipið Iowa og þyrlu-
móðurskipið Okinawa myndu sigla
heim einhvem tíma á næstu mánuð-
um þar sem þeirra væri ekki lengur
þörf á Persaflóa.
Reagan Bandaríkjaforseti sagði í
gær að hann hefði ekki fyrirskipað
heimkomu neinna af þeim þrjátíu
bandarísku herskipum sem eru á og
nálægt flóanum. Háttsettur embætt-
ismaður sagði að það hefði ekki verið
ætlun forsetans að neita að Iowa og
Okinawa yrðu send.heim.
Frank Carlucci vamarmálaráö-
horra og Marlin Fitzwater, talsmað-
ur Hvíta hússins, lögðu áherslu á að
ekki væri um stefnubreytingu að
ræða. Carlucci er nú í heimsókn á
Persaflóasvæðinu.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið
er nú undir miklum þrýstingi frá
Bandaríkjaþingi og Hvíta húsinu um
að aðstoða við að minnka fjárlaga-
hallanri en samtals fara nálægt
tuttugu milljónir dollara á mánuði í
flotavernd Bandaríkjamanna á
Persaflóa.
Tvö skip frá Kuwait, sem sigla und-
ir bandarískum fána, komust heilu
og höldnu leiðar sinnar út úr Persa-
flóa í gær undir vemd bandaríska
flotans. Skipin lögðu af stað frá
Kuwait á sunnudagskvöld.
Tyrkir eiga r.ú í viðræðum við
bæði írana og íraka um olíuleiðslur
en bæði löndin leita nú ömggra leiða
fyrir olíuflutning sinn. Að sögn orku-
málaráðherra Tyrklands hafa írakar
áhuga á að koma upp þriöju olíu-
leiðslunni gegnum Tyrkland og
myndi útflutningur þeirra við upp-
setningu hennar þá komast upp í
tæpar tvær milljónir tunna á dag.
íranir hafa hug á að leggja olíuleiöslu
um Tyrkland til Miðjarðarhafs sem
gæti flutt á milli hálfrar og heillar
milljónar tunna á dag.
Búistvið kuldalegum móttökum
Qdurinn á leiðinni
Ólympíueldurinn silast nú hægt
hægt yfir sveitir og hémð
Kanada, áleiðis til Calgary, þar sem
ólympíueldurinn verður tendraður
á stalli þann 13. febrúar næstkom-
andi en þá hefjast þar í borg
vetrarólyuipíuleikar ársins 1988.
Eldurinn er borinn af hlaupurum
mestan hluta leiöarinnar og á með-
fylgjandi ljósmynd er hlauparinn
að bera kyndilinn
eins kílómetra vegalengd í ná-
grenni Tottenham í Ontariofylki.
Undiifouningur á ftillu
Undirbúningur undir vetrar-
ólympíuleikana í Calgari í Kanada
er nú í fullum gangi og liggur í
augum uppi aö í mörg hom er þar
aðlíta.
Á meðfylgjandi mynd er Miles
filbert, starfsraaður myntsláttufýr-
irtækisins Jostens Canada, að
steypa gullpening sem veita á sig-
urvegurum í íshokkikeppni leik-
anna.
Fyrirtæki það sem FUbert starfar
hjá sér um að steypa eina þijátíu
þúsund verðlaunapeninga fyrir
leikana enda þarf að verðlauna
ákaflega marga aðila.
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, ásamt eiginmanni sínum,
Dennis, með gjafir er þeim voru afhentar í Kenýa. Simamynd Reuter
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, býst ekki við hlýleg-
um móttökum er hún lendir í Nígeríu
í dag.
Áður en þriggja daga opinberri
heimsókn Thatchers í Kenýa lauk í
gær lýsti hún því yflr að þetta hefði
verið ein stórkostlega heimsókn sín
og að hún byggist við sömu innileg-
heitum í Nígeríu.
Móttökumar í Kenýa vom alls
staðar konunglegar og þúsundir
þorpsbúa fógnuðu henni er hún skar
sykurreyr og gróðursetti tré á ferð
sinni um landbúnaðarsvæði.
Ágreiningur Thatchers og yfir-
vaida í Kenýa um refsiaðgerðir gegn
Suður-Afríku var látinn liggja á milli
hluta en í Nígeríu eru menn ekki
jafndiplómatískir þó svo að sam-
bandið við Breta hafi batnað síðan
Babangida forseti komst til valda
1985. Thatcher.hefur aldrei hitt hann
áður og breskir embættismenn vissu
ekki fyrr en rétt áður en leggja skyldi
frá Kenýa hvernig heimsókninni í
Nígeríu yrði háttað né hvar breski
forsætisráðherrann myndi dvelja.
Aðspurð um væntanlegar móf,
mælagöngur og kuldalegar móttökur
í Nígeríu sagði Thatcher að slíkt
heföi ekki áhrif á þá skoðun hemiar
að refsiaðgerðir væm ekki leiðin til
þess að fá stjómina í Suður-Afríku
til þess að láta af kynþáttaaðskilnað-
arstefnu sinni.