Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 7. JANUAR 1988.
13
dv____________________________________________________________________Neytendur
Bamasjúkdómar og orsakir þeirra
Hvaðátil bragðsaðtaka
þegar þá ber að höndum?
Langsamlega flest börn fá ein-
hveratíma á ævinni hina svokölluðu
barnasjúkdóma. Sjúkdómunum
sjálfum hefur þó fækkað frá því sem
áður var fyrir tilstilli heilbirgðisyfir-
valda eins og t.d. skarlatsótt sem
hefur nærri verið útrýmt algerlega
hér á landi. Sömuleiðis er lömunar-
veiki orðin sjaldgæf hér á landi,
síðasti faraldur geisaði árið 1955.
Bólusetningar á íslandi eru í mjög
góðu lagi eða eiga að minnsta kosti
að vera það og er það þeim að þakka
að sjúkdómunum hefur verið útrýmt
eða þá að þeir leggjast vægar á börn-
in en áður var. Svokallaðar skyldu-
bólusetningar eru eftirfarandi:
Kíghósti:
Við kíghósta á að bólusetja börn á
aldrinum 3,4,6 og 14 mánaða gömul.
Barnaveiki:
Bólusetning þegar börnin eru 3, 4, 6
og 14 mánaða og 6-7 og 14 ára.
Flest börn smitast einhvern tima á bernskuskeiði af barnasjúkdómum.
Lömunarveiki:
Bólusetningar þegar börnin eru: 6,10
og 14 mánaða gömul og 6-7 ára, 9 og
14 ára.
Eftirfarandi listi yfir smitandi
barnasjúkdóma birtist upphaflega í
Ljósmæðrablaðinu. Þaðan komst
hann í Húsfreyjuna. Sá listi birtist
nú hér en með nokkrum breytingum
sem Sigurður Guðmundsson, sér-
fræðingur í smitsjúkdómum á
Borgarspítalanum, gerði á listanum.
Nú á listinn að vera handhægur og
umfram allt réttur.
Það getur verið gott fyrir foreldra
að klippa listann út úr blaðinu og
geyma hann á góðum stað til þess
að fylgjast með því er börn þeirra
veikjast, hvort eitthvað sem getið er
um á töflunni eigi viö um sjúkdóm
barna þeirra.
-A.Bj.
Tímamir
breytast
og úrin
með
Einn af þeim hlutum sem tekið
hafa hvað mestum breytingum í kjöl-
far rafeindabyltingarinnar eru
armbandsúrin. Gömlu „mekanísku"
úrin voru samsett úr ótal smáhlut-
um, tannhjólum, íjöðrum og ýmsu
öðru smálegu, og réð nákvæmnin
öllu um gerð þeirra. Þau báru með
rentu nafnið sigurverk.
Nú eru úrin aðeins gerð úr einni
silikonflögu og ganga fyrir r.afhlöðu.
Gamla sigurverkið heyrir nú sög-
unni til enda kvartsúrin mun
nákvæmari tæki til tímamælinga og
mun ódýrari í framleiðslu. Á mynd-
unum hér að ofan sést munurinn vel
á þessum tækjum. Til vinstri er sig-
urverk, af mörgum talið hápunktur
handverks, en til hægri er tölvuúr
framleitt í verksmiöju með htlum til-
kostnaði.
-PLP
BÍLA
MARKADUR
..á fullri fercf
Á bflamarkaöi DV á
laugardögum, auglýsa
fjöldi bflasala og
bilaumboða fjölbreytt
úrval bíla af öllum
gerðum og i öllum
verðflokkum.
ém\ 1 BLAÐAUKI
1ALLA 1 LAUGARDAGA