Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Page 22
22
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
Iþróttir
Amór Guðjohnsen
- íþróttamaður ársins 1987
Stærsta stund
á mínum ferli
„Þetta er stærsta stundin á mínum
ferli og skemmtileg ábót á velgengn-
ina síöasta vor. Ég fór aö leiöa
hugann aö þessu kjöri þegar fór aö
líða á áriö 1987 og leit þannig á aö
þetta væri kannski möguleiki - en
átti eiginlega heldur von á að einhver
okkar snjöllu handboltamanna yrði
kjörinn. Þessi útnefning kom því
þægilega á óvart,“ sagði knatt-
spyrnusnillingurinn Arnór Guö-
johnsen í samtali við DV í gærkvöldi,
eftir aö Samtök íþróttamanna höföu
útnefnt hann íþróttamann ársins
1987.
s Þaö var afrek Arnórs keppnistíma-
bilið 1986-87 sem færöi honum
þennan titii. Hann varð belgískur
meistari með Andérlecht, marka-
kóngur belgísku 1. deildarinnar og
jafnframt vahnn besti leikmaður
hennar. Hann hefur veriö atvinnu-
maður í Belgíu frá 17 ára aldri og í
sumar eru tíu ár frá því Arnór skrif-
aði undir sinn fyrsta samning, viö
belgíska 1. deildarfélagið Lokeren.
Allan sinn atvinnuferil hefur hann
leikið í 1. deildinni í Belgíu, meö Lo-
keren 1978-83 og með Anderlecht,
• öflugasta félagi Belgíu og einu því
þekktasta í Evrópu, frá 1983.
Arnór hefur á ferli sínum hjá And-
erlecht veriö mjög óheppinn hvaö
meiðsli varðar. Þrjú fyrstu leiktíma-
bilin þar fóru aö miklu leyti fyrir
ofan garð og neðan hjá honum af
þeim sökum, en sl. vetur slapp hann
loks alveg viö þau og árangurinn lét
ekki á sér standa. Arnór hefur leikiö
á þriðja hundrað leikja með Lokeren
og Anderlecht í 1. deild og skorað í
þeim rúmlega 50 mörk. Þá eru ótald-
ir bikarleikir, Evrópuleikir og fleiri
og síðan leikir með íslenska landshð-
inu. Með því á Arnór að baki 26 leiki
og þrjú mörk, þrátt fyrir að meiðsli
og árekstrar við leiki í Belgíu hafi
margsinnis komið í veg fyrir þátt-
töku hans.
Vegna meiðsla missti Arnór af
fyrstu vikunum á þessu keppnis-
tímabih. „Ég var lengi í gang af þeim
sökum en náði mér vel á strik síð-
ustu fjórar til flmm leikvikurnar á
síðasta ári og er nú í mjög góðu formi.
Anderlecht er búið að missa af lest-
inni í baráttunni um belgíska meist-
aratitihnn að mínu mati, við erum
átta stigum á eftir efsta höi, en eigum
meiri möguleika í bikarkeppninni og
Evrópukeppni meistaraliða. Þar er-
um við í 8-liða úrshtum á báðum
vígstöðvum og eigum í bikamum
leiki gegn botnliði 1. deildarinnar,"
sagði Arnór Guðjohnsen, íþrótta-
maður ársins á íslandi 1987. -VS
Nýtt snið á kjörinu
Einn af ellefu
Að þessu sinni var kjör íþróttamanns ársins raeð nokkuð öðru
sniði en áður. Ekki var gefíð upp hverjir urðu í hvaða sæti, eitt
til tíu, eins og áður - í staðinn var tilkynnt hveijir væru í efstu
tiu sætunum og síðan lesið upp nafn sigurvegarans. Það voru
reyndar ehefu einstaklingar sera voru á hstanum þarsera tveir
höíðu orðið jafnir í tiunda sæti þegar stigatalan var reiknuð út.
Þessir ellefu fengu flest atkvæði í kjörinu, í stafrófsröö:
Alfreð Gíslason, Essen, handknattleikur
Amór Guðjohnsen, Anderlecht, knattspyma
Bjami Friðriksson, Ármanni, júdó
Eðvarð Þór Eðvarösson, Njarðvík, sund
Einar Vilhjálmsson, UÍA, frjálsar íþróttir
Haukur Gunnarsson, ÍFR, íþróttir fatlaöra
Kristján Arason, Gummersbach, handknattleikur
Kristján Sigmundsson, Víkingi, handknattleikur
Pétur Ormslev, Fram, knattspyma
Úlfar Jónsson, GK, golf
Þorgils Óttar Mathiesen, FH, handknattleikur -VS
• Arnór Guðjohnsen rneð hinn glæsilega og eftirsótta grip sem fylgir sæmdarheitinu iþróttamaður ársins.
DV-mynd Brynjar Gauti
Það stóð tæpt að Amór kæmist til landsins
Munaði þremur mínútum!
Framkvæmdastjóri Andeiiecht rétt búinn að koma í veg fyrir útnefninguna
Það munaði aöeins þremur mínútum að Amór Guðjohnsen
kæmist ekki til landsins í gær til að taka viö verðlaunum sínum
í kjöri íþróttamanns ársins! Arnór flaug ásamt Ólöfu Einars-
dóttur, eiginkonu sinni, frá Brússel til London í gærdag og þar
sluppu þau naumlega upp í flugvélina til íslands. í Keflavík
lentu þau kl. 17.10 og vom komin á Hótel Loftleiðir, þar sem
kjörinu var lýst, um sexleytið, nokkru á eftir öðmm sem þang-
að mættu.
Strax að kjörinu. loknu stigu Amór og Ólöf upp í htla flug-
vél, frá Bílaleigu Akureyrar, á Reykjavikurflugvelh og þaðan
var forinni heitið beint til Brússel. í dag fer síðan Amór með
hði sínu, Anderlecht, í tíu daga æfmgabúðir til Frakklands, th
undirbúnings fyrir seinni hluta belgíska keppnistímabilsins.
Lengi vel leit út fyrir að Arnór fengi ekki leyfi frá fram-
kvæmdastjóra Anderlecht, Verschueren, til íslandsferðarinnar.
Ekki kom til greina að Amór mætti lengja jólafri sitt um tvo
daga til að taka við verðlaununum sl. mánudag, hann varð að
vera mættur á fyrstu æflngu ársins á mánudagsmorgni. Loks-
ins seint í fyrrakvöld gaf Verschueren sig - eftir mikinn þrýsting
frá Samtökum íþróttafréttamanna, ritara Evrópusambands
íþróttafréttamanna, Eherti B. Schram, formanni Knattspymu-
sambands íslands, og loks sjálfum VandenStock, forseta og
aðaleiganda Anderlecht, sem snerist á sveif með Arnóri og sam-
tökunum í þessu máli. Þá fyrst varð ljóst að Kjörið gæti farið
fram daginn eftir - annars hefði þurft að fresta því fram yfir
16. janúar, þegar Anderlecht kæmi aftur úr Frakklandsfórinni!
Eins og menn muna lenti Amór í útistöðum við þjálfara og
stjóm Anderlecht í byijun nóvember sl. Sættir tókust fljótlega
en aðallega til að halda friðinn. Amór neitaði því í gær að
þrjóska Verschuerens væri afleiðing af þeim árekstri. Þarna
heföi einfaldlega verið um „prinsipp-mál“ að ræða hjá honum.
-VS