Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
23
Meiming
Katt er a
jólunum
Jólin eru hátíö barnanna og öll
verðum við svolítið barnaleg á jól-
unum. Tilhlökkun grípur jafnvel
hina harðsvíruðustu við jólaundir-
búninginn og í friösæld hátiðis-
daganna gefum við okkur tíma til
að spila púkk og fara í jólaleiki með
krökkunum. Vonandi hafa jóldag-
ar sem flestra liðið þannig með
hefðbundnum hætti.
En á síöustu árum hefur óboðinn
gestur tekið sér bólfestu á íslensk-
um heimilum og heimtar sinn sess
í jólahaldinu. Sjónvarpsstöðvamar
bjóða upp á margháttaða dagskrá
um hátíðarnar og hætt er við að
mikið framboð efnis glepji ein-
hverja sem gleyma því að hægt er
að velja og hafna.
Á hinn bóginn er það gleðilegt að
sjá að aukin samkeppni hefur örv-
aö menn til dáöa og á báðum
stöðvunum var boðið upp á vandað
innlent efni fyrir böm.
Á jólaróli
Ríkissjónvarpið var með jóla-
stund þar sem blandaö var saman
stuttum þáttum af ýmsu tagi og
jólaskemmtun með hefðbúndnu
sniði. Þarna mættu ýmsar persón-
ur, sem bömin þekkja úr bamatím-
unum, og brúöur og jólasveinar
dönsuðu meö krökkunum í kring-
um jólatréð.
Helga Steffensen hafði veg og
vanda af gerð jólastundarinnar.
Brúðuatriðin hennar féllu vel inn
í heildina, sérstaklega fundust rnér
stóru brúðurnar skemmtilegar.
Síðasti þáttur framhaldsleikrits-
ins Á jólaróli, eftir Iðunni Steins-
dóttur, var fluttur þama í
jólastundinni. Þetta er einkar ljúft
leikrit um hress sómahjón, þau Sig-
urð og Sölvínu sem Guðmundur
Ólafsson og Guðrún Ásmundsdótt-
ir leika. Gott og skemmtilegt
barnaefni sem fullorðnir geta líka
haft gaman af.
Ríkissjónvarpið sýndi Uka nú-
tímaútgáfu af Rauðhettusögninni á
jólunum. Höfundur er Iðunn
Steinsdóttir og leikstjóri Þórhallur
Sigurðsson. Þetta var snoturlega
unnin mynd sem var borin uppi
af einstaklega fallegri túlkun Utlu
telpunnar sem lék Lóu litlu rauð-
hettu en hún heitir Linda Ókeeffe.
Falleg tónUst Hróðmars Sigur-
björnssonar vakti athygli.
Jólabörn
Stöð 2 lét gera vandaö jólaleikrit,
Jólaböm, sem var sýnt ótruflað á
jóladag. Höfundar handrits eru
Guðrún Þórðardóttir, Guðmundur
Ólafsson, Maríanna Friðjónsdóttir
og Saga Jónsdóttir. Leikstjóri,
Guðrún Þórðardóttir. Þetta verk
ber öU einkenni hins besta barna-
efnis og greinilega mikið í það lagt.
Handritið er skemmtileg blanda af
Leiklist
Auður Eydal
gömlum ævintýraminnum og jóla-
sögum og þekktum persónum úr
barnatímum stöövarinnar.
Þau Saga Jónsdóttir og Örn
Árnason leika ömmu og afa sem
lenda í ýmsum ævintýrum og geta
flakkað um í tíma og rúmi með
aðstoð töfraljóss.
Skemmtilegt þótti mér hvernig
Grýla gamla var sýnd í öðru ljósi
en venjulega og hvernig tengd var
saman ný og gömul ímynd jóla-
sveinsins. Minni úr þjóðsögum og
ævintýrum renna eðlUega saman
við söguþráðinn og ótrúlega margt
kemst fyrir í ekki lengra verki.
Vandað, fallegt
Búningar, sem Anna Jóna Jóns-
dóttir hannaði, vöktu sérstaklega
athygU mína, litríkir og gerðir af
miklu hugmyndaflugi. Þeir áttu
stóran þátt í því að skapa þann
ævintýrablæ sem þurfti.
Mörg atriöi í þessu leikriti voru
mjög vel út færð, ég nefni aðeins
heimsóknina í helU þeirra Grýlu
og Leppalúða, álfadansinn, sem
telpur úr ballettskóla Þjóðleik-
hússins dönsuðu undurvel, og
sönginn í Betlehem þar sem kór
Öldutúnsskóla söng af alþekktri
sniUd.
Ég held að það sé einungis sann-
gjarnt að segja að þetta leikrit
Stöðvar 2 hafi verið eins og best
verður á kosið, vandað, fallegt,
fræðandi og skemmtUegt.
Mættum við fá meira að sjá af
sUku.
AE
Úr leikritinu „Jólabörn".
Úr leikritinu „Jólabörn'
sem bý'
föstudags- og laugardagskvöld
Borðapantanfllfel la carté
^daglega í síma 2%^og 23335.
Snyrtil^gur ki^Mgðtir.
kemmtistaður á~hefrismælikvarða
Brautarholti 20
r-