Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Síða 24
.24
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
Meiming_____________________________pv
Málsvari hentistefnu
Furstinn eftir Nicolo Machlavelli.
Mál og mennlng 1987, 180 bls.
Ásgrimur Albertsson þýddi og ritaði eft-
irmála.
Þetta rit frá öndverðri sextándu
öld er fræðileg umfjöllun um ein-
ræðisherra, hvaöa eiginleika þeir
þurfi að hafa og hvemig þeir þurfi
að haga sér til að standa í stöðu
sinni.
Þetta var nærtækt íhugunarefni
fyrir ítalskan stjórnsýslumann á
sextándu öld - og þótt víðar væri
leitaö í stað og tíma. En þá skiptist
Ítalía í mörg smáríki sem flest lutu
einræði, en sum nokkurskonar lýð-
ræði sem takmarkaðist þó við
fámenna, auðstétt.
Ajræmt rit
í fiestum tungumálum er til orðið
„makíavellískur", dregið af nafni
þessa höfundar, og merkir: sam-
viskulaus klækjarefur sem fer sínu
fram af djöfullegri undirferli og
svikum. Og þaö rís af þessu riti,
Furstanum, þar sem Machiavelli
rekur að einræðisherra henti betur
að sýnast orðheldinn en að vera
það, að honum geti komið vel að
teljast mildur, réttsýnn og góðvilj-
aður maður, en ef hann ætli að
halda völdum þá verði hann fyrst
og fremst að hafa hugann við þau
og hika þá ekki við aö beita lævísi,
svikum og grimmd ef með þurfi.
Þetta sýnir Machiavelli fram á
með mörgum sögulegum dæmum.
Og það er það sem mest hrífur viö
þetta frábæra rit hve fræðilega
höfundur tekur á mannkynssög-
unni. Hann tekur jöfnum höndum
fyrir sögu fomaldar, Persa, Grikkja
og Rómveija; sem samtíma sinn og
næstliðna öld. Og hann ber saman
líkar aðstæður til að draga fram
það sem á milli ber til að sýna hvað
réð úrslitum hverju sinni.
í þessari söguspeki ræður andi
Endurreisnarinnar fórinni. í lok
miöalda fóru menn að setja mann-
kynið í miðju heimsins í stað guðs,
það er aö segja, þeir fóru að skýra
söguna sem athafnir manna, frem-
ur en vilja guðs, og að gera þá kröfu
að stofnanir þjóðfélagsins gögnuð-
ust mönnum, fóru að segja aö þetta
líf væri tilgangur í sjálfu sér en
ekki bara undirbúningur undir eil-
íft líf.
Erindi við samtímann
Vitaskuld er þessi lýsing mín
mikil einfóldun, þessi hugarfars-
breyting hefur enn ekki orðið
allstaðar. M.a. þessvegna á Furst-
inn fullt erindi við samtíma okkar,
Machiavelli er skarpskyggnari en
Nicolo Machiavelli.
Bólmieimtir
Örn Ólafsson
margir þeir sem nú fjalla um sögu
og þjóðfélag því hann reynir ævin-
lega að skilja þetta sem manna
verk.
Til dæmis er þessi bók mjög gagn-
leg þeim mörgu íslendingum sem
liggja í Sturlungu. Hér er kominn
lykfil til að skilja aðstæður og fram-
ferði þeirra fursta sem þá skiptu
íslandi milli sín.
Gaman er að því hvernig Machia-'
velli sýnir fornhelgum hugsunar-
hætti sýndarvirðingu en snýr síðan
alveg við blaðinu þegar hann ræðir
um veraldleg ríki kirkjunnar (bls.
55):
„Þar sem þeim er stýrt sam-
kvæmt æöri sjónarmiöum, sem
mannlegur skilningur nær ekki
til, læt ég hjá líða að ræða þar
um. Og þar sem veldi þeirra er
stofnsett af guði og stendur
undir vemd hans væri hroka-
fullt og léttúðugt að kveða upp
dóma um það. Væri ég samt
spurður um hversvegna kirkj-
ari hefði hafist til svo mikilla
valda og stærðar og hversvegna
ítalskir herrar fyrir daga Alex-'
anders [Borgia páfa, 1492-1503],
- ekki aðeins þeir sem raun-
veruleg völd höfðu, heldur
sérhver barón eöa greifi, hve
lítilsmegandi sem þeir voru,
-leyfðu sér að gera litið úr ver- •
aldlegum áhrifum kirkjunnar,
en sjálfur Frakkakonungur
stóð hinsvegar skjálfandi fyrir
henni og hún gat rekið hann
burt frá Ítalíu og beygt Feney-
inga í duftið, þá viröist mér
ekki ófyrirsyriju að rifja upp
þessa hluti í stórum dráttum,
þótt þeir séu reyndar vel kunn-
ir.“ .
Semsé, í fyrsta lagi væri fráleitt
að Machiavelli, vesæll maður,
dirfðist aö fjalla um þessi guðsríki
á jörðu, en í öðru lagi er alkunna
að þau eru ekki eilíf og óumbreyt-
anleg heldur með ýmsu móti eftir
aðstæöum og það ætlar Machia-
velli nú að skýra!
Afstaða Machiavellis
rangtúlkuð
Afstaða Machiavelli hefur mjög
verið rangtúlkuð svo að hann rétt-
læti blinda valdbeitingu, dýrki
einræði. Ekkert er fjær sanni, hann
sýnir fram á það með rökum að
ríki sé því öraggara sem stjómandi
virði meir hagsmuni borgaranna
og öraggast þegar almennir borg-
arar veria það sjálfir.
Enda skipulagði hann her Flór-
ensborgar þannig, eftir slæma
reynslu af málaliði, sem hann rek-
ur í bókinni, það hljóti jafnan að
hugsa um að bjarga eigin skinni,
en ala þó á ófriði til að tryggja sér
atvinnu. M.a.þannig skýrir Mac-
hiavelli þá ókyrrð sem ríkti á Ítalíu,
til þess þarf alls ekki að vísa til ein-
hverrar arfleifðar Langbarða, svo
sem þýðandi gerir í eftirmála (bls.
139), hvort sem hann þar á við að
þeim hafi verið óró í blóð borin eða
að aldrei hafi komist á jafnvægi
eftir innrás þeirra.
Bókin er þessleg að höfundur
hafi borið hana lengi í huga sér og
flutt efni hennar í samtölum áður
en hann skráði hana. Þá á ég við
aö hún er svo ljös og lipurlega skrif-
uð aö unun er aö lesa og kemur
jafnan beint að aðalatriðunum en
tekur þó efnið fyrir rækilega frá
ýmsum hliðum, í stuttum köflum.
Og kraftur bókarinnar stafar af
þvi að höfundUr hefur dregiö álykt-
anir af fræðimennsku sinni, segja
má að hann fari fram af skaphita
og ástríðu, kalli á einræðisherra
sem einu raunhæfu lausn Ítalíu
undan erlendum heijum.
Aðrir telja að hugtakið „Ítalía"
eða „ítalir" í nútímaskilningi hafi
ekki verið til um 1500 en Machia-
velli hafi gjaman viljað sjá öflugt
ríki risa umhverfis heimabyggð
sína.
Góð þýðing
Þýðingin virðist mér vel gerð, það
sem ég hef borið saman. Eftirmáli
þýðanda er fróðlegur og rækilegur
og yfirleitt á ljósu máli. Hann rekur
sögu Ítalíu næstu aldir á undan
ritunartíma, ævi Machiavelli og
aðstæöur. Til fyrirmyndar er að 1
lok eftirmála er tímatafla helstu
atburða á Ítalíu - og á íslandi,
1450-1550. Þó finnst mér vanta
nokkuð í eftirmálann. T.d. segir frá
veldi Savonarola í Flórens í lok 15.
aldar, hvemig þessi fátæki prestur
náði þvílíkum tökum á borgarlýð
með prédikunum sínum að hann
réð þar öllu sem hann vildi ráða
um nokkurra ára skeið. „Með
tímanum gerðist hann þó æ ofstæk-.
isfyllri og stóð fyrir hreyfingu sem
aðhaföist margt sem ofbauð flest-
um borgarbúum.“
Hvað var það sem þeim ofbauð?
Ríkti ekki einstæð þröngsýni, vora
ekki skemmtanir, listir og bók-
menntir bannfærö sem djöfuls-
skapur? Það skiptir máli að vita
slíkt, þó ekki væri nema af því að
Machiavelli var svarinn andstæð-
ingur Savonarola, þótt báðir væra
lýðveldissinnar, og komst til opin-
berra starfa í Flórens eftir að
Savonarola var þar tekinn af lífi
ásamt helstu fylgismönnum sínum.
Önnur gloppa er þó stóram verri.
Machiavelli segir í upphafi Furst-
ans (bls. 10) að hann fjalli þar ekki
um stjóm lýðvelda vegna þess að
hann hafi gert það ítarlega á öðram
stað. Þýðandi hefur-auk eftirmála
gert rækilegar skýringar og segir
þar að hér vísi Machiavelli til rits
síns, Athugasemdir við Rómveria-
sögu Lívíusar. Af handbókum sést
að þetta er talið hið mesta merkis-
rit og annars staöar segir þýðandi
(bls. 161) að þar taki Machiavelli
eindregna afstöðu meö lýðveldum,
gegn einræði því sem hann útlistar
í Furstanum hvemig beita eigi. Hér
þurfti nú augljóslega nánari útlist-
un á stefnu þessa rits, enda er
ólíklegt að það birtist á íslensku á
næstunni úr því að við máttum
bíöa í fjögur hundrað og fimmtíu
ár eftir Furstanum.
Þótt ég hljóti að gera þessar at-
hugasemdir þá.er fyrst og fremst
ástæða til að þakka framtakið, aö
koma þessu merka riti út á lipurri
íslensku og í fallegri útgáfu. Góður
fengur ér að kortum og myndum í
henni.
ÖÓ
t 1(
í 1t
BLAÐ
BURÐARFÓLK
1t %
REYKJAVlK
*
Selvogsgrunn
Sporðagrunn
Brúnaveg
Hátún
Miðtún
1t
Sörlaskjól
Faxaskjól
Nesveg
*
Eskihlið
Blönduhlíð
Hverfisgötu 1-66
Smiðjustíg
Eiríksgötu
Barónsstíg 49 - út
Sæviðarsund
Skipasund 1-29
GARÐABÆ
Hofslund
Grenilund
Hörgslund
Espilund
Efstalund
Heiðarlund
t
KÓPAV0G
Álfhólsveg 64-95
Digranesveg 91-125
Lyngheiði
Melaheiði
Tunguheiði
*
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
it
SIMI 27022
Athugið sendið inn alla 10 seðlana í einu umslagi. Skilafrestur til 11. janúar ’88-
- dregið um sextán glæsilega vinninga -
1. Technics geislaspilari m/fjarstýringu frá Japis að
verðmæti kr. 45.660.-
3. Panasonic ferðaútvarpstæki frá Japis að verðmæti
kr. 7.380.-
7-10. Lazer Tag leiktæki frá Radíóbúðinni, að verðmæti
kr. 2.980.-
2. Sony Discman ferðageislaspilari frá Japis
að verðmæti kr. 27.720.-
4- 6. Bangsi bestaskinn og Gormur vinur hans frá
Radíóbúðinni að verðmæti kr. 8.800.-
11-16. Dansandi dúkkur frá Radíóbúðinni að verðmæti
kr. 1.980.-