Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Síða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritsljórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Olía í grunnvatnið:
Skipta verður
um vatnsból
„Okkur finnst besti kosturinn að
skipta um vatnsból og ef niðurstaðan
verður sú er best að gera það strax,“
sagði Oddur Einarsson, bæjarstjóri í
Njarðvík, en nú er orðið ljóst, eins
og menn reyndar óttuðust, að grunn-
vatn við Keflavík og Njarðvík hefur
mengast vegna olíulekans við her-
stöðina. Oddur sagði að það heföi
mátt vera ljóst nú í langan tíma að
skipta þyrfti um vatnsból því þau
væru allt of nálægt starfsemi her-
stöðvarinnar en þar væri sífellt
unnið með viökvæm efni. Oddur
taldi að herstöðin ætti að bera þann
kostnað sem hlytist af því skipta um
vatnsból.
Undir þessa skoðun tók Magnús
i 4rfjuðjónsson, heilbrigðisfulltrúi Suð-
urnesja: „Það er ljóst að þaö þarf ný
vatnsból og það þó þetta mál hefði
ekki komiö upp. Núverandi vatnsból
eru illa staðsett með tilit til þeirrar
starfsemi sem fer fram á vellinum.
Við Svartsengi eru ein bestu vatna-
svæði landsins og nýting þeirra er
eina viðunandi lausnin," sagði
Magnús. í dag verður áfram fundað
um olíulekann með sérfræðingum.
-SMJ
Niðurgreiðslur
á fiski
Fjármálaráðuneytið hefur sett
reglur um framkvæmd niður-
greiðslna á smásöluverði neyslufisks
og miða reglurnar aö því að verðið
hækki ekki meira en um 10% við það
að varan verður söluskattsskyld.
Tekur niðurgreiðslan til ýsu,
þorsks, ufsa, steinbíts, karfa, löngu,
keilu, lúðu, skötu, kola, skötusels,
rauðmaga, grásleppu og lifrar og
hrogna þessara tegunda. Er hér átt
við fisk sem hefur aðeins sætt venju-
legri aðgerð, svo sem verið flakaður,
■ ««r siginn, kæstur, bútaður, hakkað-
ur, reyktur eða frystur. Ekki tekur
niðurgreiðslan til ferskvatnsfisks,
hákarls, humars, rækju og smokk-
fisks eða annarra fisk- eða krabba-
tegunda.
-ój
Líftiyggingar
ih
ALÞJÓDA
LÍ FTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF.
ÚCMÍ'LI S -RKYkJAYlR
Smii fvSU»44
LOKI
En komast ekki fleiri börn
í Trabantinn?
Sighvatur Bjórgvinsson:
• •
rannsóknastofhun-
ar verði rannsökuð
- skoraði á formann sjávarútvegsnefndar að hafa forgöngu
I ræðu á Alþingi í gær skoraði
Sighvatur Björgvinsson alþingis-
maður á Matthías Bjamason,
formann sjávarútvegsnefndar
neðri deildar Alþingis, að hafa for-
göngu um að hefja rannsókn á
vinnubrögðum Hafrannsókna-
stofhunar með þvi að kalla- fyrir
nefndina forsvarsmenn stofnunar-
innar.
Sighvatur rakti spár Hafrann-
sóknastofnunar allt frá því aö
„Svarta skýrslan“ kom út áriö 1974
og þar til því var lýst yfir í skýrslu
stofhunarinnar árið 1984 að rann-
sóknaraðferð sú sem fiskifræðing-
ar notuðu til að meta stofnstærð,
VP greiningin svokallaða, heföi
reynst ónothæf og því marklaus.
Þá fjallaði Sighvatur um það sem
kallað hefur verið smáfiskadráp.
Taldi hann flest benda til þess að
svo mikiö væri af smáfiski um
þessar mundir, vegna fimasterkra
árganga, að ekki væri hjá því kom-
ist að smáfiskur veiddist í stórum
stH.
Hann taldi þá kenningu fiski-
fræðinga aö takmarka ætti veiði
smáfisks og geyma hann í sjónum
þar til hann væri oröinn stærri
fjarstæðu og benti á dæmi frá
Kanada máli sínu til stuönings.
Kanadamenn ætluðu að gera
þetta fyrir nokkrum árum og átti
áranguriim að skila sér árið 1987.
Þá töldu þeir sig geta veitt eina
milljón lesta af þorski Raunin varð
sú að 40% til 50% vantaöi upp á að
það tækist og hefur engin skýring
veriö gefin á því.
Loks benti hann á dæmi úr nýj-
ustu skýrslu Hafrannsóknastofn-
unar þar sem tillaga um veiði
skarkola er byggð á sagnfræði í
stað vísindalegrar rannsóknar og
spurði hvers vegna tillaga stofhun-
arinnar um þorskveiðar væri ekki
byggö á sagnfræði líka. Ef þaö væri
gert þyrftu menn ekki að vera að
karpa um kvóta. -S.dór
Vagninn er óneitanlega fallegur enda oröinn forngripur. En kaupandinn
hefði getað keypt giænýjan Trabant fyrir lægra verð. DV-mynd GVA
Barna-
vagn
frá 1930
seldur á
hundrað
þúsund
Bamavagn síðan mn 1930 seldist
á 100 þúsund krónur á dögunum í
versluninni Bamabrek við Óðins-
götu sem selur notaðar bamavör-
ur. Þess má geta að algengt verð á
nýjum bamavagni eftir tollalækk-
unina er um 20 þúsund. Kaupandi
vagnsins heföi einnig getað keypt
Trabant skutbíl af árgerð 1988 fyrir
85 þúsund og átt 15 þúsund krónur
íafgangfyrirbensíni. -JBj
Veðrið á morgun:
Hvasstog
frostlaust
Á morgun verður sunnan- og
suðaustanátt á landinu, víða
nokkuð hvöss. Slydduél verða
víða um land, þó líklega úrkomu-
lítið norðanlands. Hiti verður á
bilinu 1 til 4 stig.
Hraðfiystihúsi
Patreksfjarðar
lokað
Hraðfrystihús Patreksfjarðar hef-
ur veriö lokað síðan á Þorláksmessu,
en þá var lokað fyrir rafmagn til
þess vegna vanskila. Hefur engin
vinna verið í frystihúsinu síðan þá
og er óvíst hvenær eða hvort hún
hefst aftur.
Jens Valdimarsson framkvæmda-
stjóri sagði í samtali við DV að
skuldir frystihússins við Orkubú
Vestfjarða væm aðeins hluti þess
vanda sem við væri að etja. Slæm
staða fiskvinnslunnar gerði það að
verkum að rekstur fiskvinnsluhúsa
væri afar erfiður. Skuldir hraðfrysti-
hússins væm verulegar og ekki
fyrirsjáanlegt hvemig hægt yrði að
reka það áfram. Ekki kvaðst Jens
geta nefnt tölur um skuldimar en
þess mætti geta að velta frystihúss-
ins næmi 230-240 milljónum á ári og
mætti fullyrða að tapið heföi numið
einni milljón á viku síðustu vikumar
sem húsið var í rekstri.
í næstu viku er togarinn Sigurey,
sem frystuihúsið gerir út, væntan-
legur af veiðum. Jens kvaðst alveg
eins gera ráð fyrir því aö hann yrði
látinn sigla með aflann og væri alls
óvíst að vinna hæfist aftur í frysti-
húsinu.
Að sögn Jens unnu um 5o manns
í frystihúsinu meðan það var í
rekstri. Sagði hann ennfremur að
lögö yrði áhersla á að gera Sigurey
og Þrym út áfram, en að öðm leyti
væri máhð óráðið.
-JSS
Seyðisfjörður:
Hass fannst
viðleft
ífimmíbúðum
Lögreglan á Seyðisfirði gerði hús-
leit í fimm íbúðum á Seyðisfiröi um
síðustu helgi. í íbúðunum fundust
um 10 grömm af hassi. Lögreglan
hefur unnið að rannsókn málsins og
hafa tíu manns verið yfirheyröir
vegna þess.
Játningar um neyslu efnisins liggja
fyrir. Þaö eru um tíu aðilar sem hafa
játað neyslu á efninu. .Málið verður
sent til áframhaldandi meðferðar hjá
dómstóli í ávana- og fíkniefnamálum.
-sme
39-fóldun hluta-
fjáreignar í
Dagblaðinu hf.
Á aðalfundi Dagblaösins hf. í des-
ember síðastliðnum var samþykkt
margfóldun hlutaíjáreignar hlut-
hafa. Gefin verða út jöfnunarbréf og
leyfi ríkisskattstjóra fyrir þvi liggur
fyrir. Þetta er hluthöfum að sjálf-
sögðu að kostnaðarlausu. Með útgáfu
jöfnunarbréfa 38-faldast hlutafjár-
eign hluthafa plús stofninnstæðan,
svo að alls hefur hlutafjáreign marg-
faldast 39-falt. Þetta er í samræmi við
verulegan hagnað sem verið hefur á
rekstri fyrirtækisins. Hluthafar eiga
að færa þessa margfóldun á skatt-
skýrslu sína fyrir árið 1987 og kemur
hækkunin ekki til teHjuskatts.
í stjóm Dagblaðsins hf. vora end-
urkjömir: Bjöm Þórhallsson, Sveinn
R. Eyjólfsson, Jónas Kristjánsson,
Haukur Helgason og Agnar Kristj-
ánsson.
-HH