Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1988, Side 2
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988.
Fréttir
DV
Líklegt að hvalveiðiþjóðimar sjö haldi áfram að hittast:
Vevður næsti fiindur í Japan?
„íslendingar eru þjóö sem elskar
náttúruna. Gestir, sem koma til ís-
lands, sjá fljótlega að íslendingar lifa
í nánara sambýli viö náttúru lands
síns en líklega nokkur önnur þjóö,“
sagði Halldór Ásgrímsson í lokaá-
varpi sínu á hvalveiðiráðstefnunni
sem lauk um kl. 5 í gær. Halldór
bætti því viö að vegna þessa gerðu
íslendingar sér far um að lifa í sátt
við umhverfi sitt og því væri þeim
best treystandi til að tryggja viðgang
þeirra lífvera sem hér lifa.
Engin ákveðin niðurstaða fékkst
af fundinum sem var mjög vinnsam-
legur og gagnlegur að sögn Halidórs.
Komist var þó að þeirri niðurstöðu
að efla bæri vísindarannsóknir á
sjávarspendýrum. Þá var kannað
hugsanlegt hlutverk Alþjóða hval-
veiðiráðsins eða annarra fjölþættra
svæðisstofnana en mjög var til um-
ræðu hvort stofna þyrfti ný samtök
Halldór Asgrímsson kveður hér sovésku sendinefndina sem hafði sig litið i frammi á ráðstefnunni. Eftir lok ráð-
stefnunnar bauð Halldór gestunum á Vesalingana í Þjóðleikhúsinu.
DV-mynd GVA
hvalveiðiþjóða. Engin frekari niður-
staða fékkst þó í því.
Á blaðamannafundi eftir ráð-
stefnushtin var Halldór spurður að
því hvort þessi fundur sýndi ekki
fram á að stofnun nýrra samtaka
væri í burðarliðnum. Hann kvað svo
ekki vera en sagði að ræddir hefðu
verið möguleikar á því að koma upp
sérstöku samstarfi á þessu svæði.
Líklega er það það næsta sem Hall-
dór komst því að nefna ný samtök.
Ekki voru teknar neinar ákvarð-
annir um áframhaldandi fundi
þessara sjö þjóða en það var eitt af
því sem átti að ræða frekar. Það kom
þó fram að japanskur þingmaður,
sem var í japönsku nefndinni, stakk
upp á því að fundur yrði næst hald-
inn í Japan. Ólíklegt er talið að hann
verði fyrr en eftir fund Alþjóðahval-
veiðiráðsins í sumar.
-SMJ
Höfundar laganna sem keppa til úrslita í söngvakeppni sjónvarpsins. DV-mynd GVA
Sóngvakeppni Sjónvarpsins:
Lagahöfundar kynntir
Höfundar laganna sem komast í
úrslit í söngvakeppni Sjónvarpsins
voru kynntir á Hótel Holti í gær og
þeim afhent ávísun upp á 175 þúsund
krónur til að fullvinna lög sín áður
en þau verða kynnt opinberlega.
117 lög bárust í keppnina en 10 lög
voru valin. Hrafn Gunnlaugsson
sagði við þetta tækifæri að nú þegar
íslendingar væru að undirbúa þátt-
töku sína í þriðja sinn í söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva væri gott
að hafa í huga orðatiltækið allt er
þegar þrennt er. Hann sagðist álíta
að eftir þessa keppni væri skynsam-
legt aö meta stöðu þjóöarinnar í
keppninni og sjá til hvort við viljum
halda áfram en engin ástæða væri
til að líta á þátttöku okkar í keppn-
inni sem sjálfgefmn hlut. Hann sagði
ennfremur að ánægjulegt væri
hversu margir laga- og textahöfund-
ar í tíu manna hópnum hefðu ekki
verið með í forkeppninni áður og
segöi það til um hversu mikil breidd
væri í íslenskri dægurlagagerð.
Lagahöfundarnir, sem ekki hafa átt
lög í úrslitum áður, eru: Sverrir
Stormsker, Magnús Kjartansson,
Grétar Örvarsson, Kristinn Svavars-
son, Valgeir Skagfjörð, Guðmundur
Ámason og Ingi Gunnar Jóhannsson
sem sendi inn lag með Eyjólfi Krist-
jánssyni. Þeir höfundar, sem hafa
verið í úrslitum áður, eru: Eyjólfur
Kristjánsson, Jakob Magnússon,
Gunnar Þórðarson og Geirmundur
Valtýsson. Mismunandi er hvort
lagahöfundar sjálfir semja texta eöa
sérstakir textahöfundar.
í dómnefnd sátu Egill Eðvarðsson
og Ingimar Eydal, skipaðir af Sjón-
varpinu, Eyþór Gunnarsson, skipað-
ur af Félagi tónskálda og textahöf-
unda, Ámi Scheving, frá Félagi
íslenskra hljómlistarmanna, og Kári
Waage, frá Félagi hljómplötuútgef-
enda. Varamaður var Björn Emils-
son.
Lögin verða kynnt í þætti Her-
manns Gunnarssonar, Á tah, og
síðar í sérstökum kynningarþætti.
Vinningslagið heldur svo til Dublin
í írlandi þar sem söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva verður
haldin 30. apríl 1988.
-JBj
Þjóðhagsstofnun:
Búist við versnandi
viðskiptakjórum í ár
Ekki em horfur á því aö viðskipta-
kjör íslendinga batni á þessu ári
nema síður sé, Þjóðhagsstofnun álít-
ur meiri líkur á að viöskiptakjör
versni í ár fremur en batni. Talið er
að verð freðfisks á erlendum mörk-
uðum hafi náð hámarki og gæti
fremur lækkaö en hækkað á næst-
unni. Þá hefur verið samið um sölu
á liðlega helmingi áætlaðrar salt-
fisksframleiðslu í ár og á sama verði
og í fyrra. Hins vegar era horfur á
að verð loðnuafurða, einkum lýsi,
verði gott í ár.
Þetta kemur fram í áliti Þjóðhags-
stofnunar um ytri skilyröi þjóðar-
búsins árið 1988 en það plagg var
kynnt á blaðamannafundi í gær. Eins
og kuxmugt er af fréttum hefur verið
frestað að spá um þróun launa, verð-
lags og gengismála þar til eftir
kjarasamninga.
Þjóðhagsstofnun telur að óvissa sé
ríkjandi um verð stóriðjufram-
leiðslu. Almennt er talið að verð á
olíuvöram haldist óbreytt í ár en þó
ríkir nokkúr .óvissa um það atriði,
að mati stofnunarinnar. Að öðra
leyti er gert'ráð fyrir því að verð út-
og innflutnings fylgi almennum
verðbreytingum í viöskiptalöndun-
um og í því felst að verði um áfram-
haldandi gengislækkun dollarans að
ræða mun það hafa neikvæð áhrif á
viðskiptakjör íslendinga, þar sem
dollarinn vegur þyngra í útílutningi
en innflutningi.
Hvað varðar álit Þjóðhagsstofnun-
ar á sjávarafla þessa árs spáir hún
því að þorskaflinn muni nema 350
Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar kynnir skýrslu stofn-
unarinnar. DV-mynd GVA
þúsund lestum, sem er 35 þúsund
lestum meira en þorskkvótinn kveð-
ur á um. Ástæða þessarar spár er sú
að aflinn er talinn geta aukist vegna
flutnings afla á milli ára og fiskteg-
unda og ákvæða um afla smábáta.
Að öðru leyti er spá Þjóðhagsstofn-
unar um magn botnfisksafla í
samræmi við áform sjávarútvegs-
ráðuneytisins, nema hvaö varðar
ýsu og grálúöu. Gert er ráð fyrir 10
þúsund tonna meiri ýsuafla og aö
grálúðuafli veröi 5 þúsund tonnum
meiri en áformað er.
Þá gerir stofnunin ráð fyrir einni
milljón lesta loðnuafla sem er um
fjórðungi meiri afli en í fyrra en að
verðmæti útflutts sjávarafla verði
um 0,5 % minna en í fyrra.
-ój
AUS Dam, lögmaður Færeyinga:
Engin krafa um framsal
„Nei, hvorki Færeyingar né Dan-
hafa gert neina kröfu um framsal
t'auls Watson. Eins og ég hef sagt
áður er hann sjúkur maður og viö
vijjum sem minnst af honum sjá
né heyra,“ sagði Atli Dam, lögmað-
ur Færeyinga, þegar hann var
spurður hvort fariö yrði fram á
framsal Watsons vegna framferöis
hans í Færeyjum þegar hann var
aö mótmæla grindhvaladrápi þar.
Atli bætti því þó viö að Watson
fengi veröugar móttökur ef hann
léti sjá sig í Færeyjum. Um meö-
höndlun Watsons hjá íslenskum
stjómvöldum sagöist lögmaðurinn
hafa lítið að segja. Hann sagði aö
sér persónulega þætti best ef Wat-
son fengi sem minnsta umfjöllun
og því heíöi e.t.v. veriö best aö
senda hann strax úr landi.
Um ráöstefnuna sjálfa sagði Atli
aö hún heföi veriö mjög gagnleg og
aö á henni heföi veriö unnið mjög
visindalega. Hún heföi þjappaö
löndunum sjö saman og þau ættu
nú auðveldara með aö samstilla
krafla sína. Að dómi Atla eru lönd-
in sjö þó ekki tilbúin að stofiia ný
samtök. -SMJ
Nýr bankastjori Alþýðubankans
Bjöm Björnsson viðskiptafræðing-
ur var ráðinn bankasljóri Alþýðu-
bankans hf. á fundi bankaráðs í gær.
Hann mun hefja störf 1. mars næst-
komandi.
Bjöm Bjömsson er fæddur á Akur-
eyri 24. ágúst 1949 og lauk prófi frá
viðskiptadeild Háskóla íslands
haustið 1973. Bjöm hefur síðan starf-
að fyrir verkalýðshreyfinguna, fyrst
hjá Kjararannsóknamefnd og síðar
lengst af sem hagfræðingur Alþýðu-
sambands íslands. Frá 1. september
síðastliðnum hefur hann verið að-
stoðarmaður fjármálaráðherra.
-JBj
Wats-on vika og Moby Dick steik
í tilefni heimsóknar erlendra hval-
friðunarmanna hefur matsölustað-
urinn Uxinn í Glæsibæ ákveðið aö
hafa sérstaka Wats-on viku þar sem
íslendingum verður sýnt fram á hve
gómsætt íslenska hvalkjötið er ef það
er matreitt á réttan hátt.
„Nei, þetta er ekki til heiðurs Paul
Watson, frekar að það sé til stuðn-
ings íslenskum stjómvöldum,“ sagði
Magnús Halldórsson, matreiðslu-
maður í Uxanum. Hann átti von á
því að þetta yrði vinsælt hjá gestum
enda úrvals hráefni sem þeir væra
með í höndunum. Þess má geta að
meöal rétta er Moby Dick steik.
-SMJ